Jón Gnarr verður bingóstjóri fyrir fatlaða íþróttamenn Boði Logason skrifar 20. október 2012 13:53 Jón Gnarr, borgarstjóri. Mynd/Anton
Maður veit aldrei hverju maður á von á þegar Jón Gnarr er annars vegar, segir íþróttagreinastjóri íþróttafélags fatlaðra. Í dag ætlar borgarstjórinn að aðstoða við bingó til styrktar keppendum á Special Olympics sem fer fram í Suður-Kóreu í byrjun næsta árs. Það er íþróttafélagið Ösp og Special Olympics sem standa fyrir fjáröfluninni fyrir íslensku keppendurna sem eru þrír að þessu sinni. Þau Katrín Guðrún Tryggvadóttir, Þórdís Erlendsdóttir og Júlíus Pálsson. Helga Olsen, íþróttagreinastjóri Íþróttasambands fatlaðra, segir að á mótinu verði brotið blað í sögu íþrótta fatlaðra því nú mun Ísland í fyrsta skiptið taka þátt í parakeppni í listhlaupi á skautum. Hún býst við miklum fjölda á bingóið, sem fer fram í Hólabrekkuskóla klukkan tvö í dag. "Já, þetta hefur vakið gríðarlega mikla athygli. Svo við bara vonumst til að sem flestir mæti. Við erum með bingóspjöld fyrir 700 manns. Svo við bara vonum að sem flestir komi og sjái sér fært að styðja við frábært verkefni,“ segir hún. Og vinningarnir eru ekki af verri endanum. "Við erum með alveg glæsilega vinninga, þar á meðal flugferðir fyrir tvo með Icelandair til áfangastaða í Evrópu, ótrúlegar hótelgistingar, mat, gjafakörfur og gjafabréf. Og allt rennur þetta til keppenda í Special Olympics,“ segir hún. Bingóstjórinn að þessu sinni verður sjálfur borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr. "Það er aldrei að vita með Jón Gnarr. En við erum auðvitað bara glöð og ánægð með það að borgarstjórinn sjái sér fært að styðja við verkefni Reykvíkinga. Þarna eru náttúrlega tveir Reykvíkingar innanborðs ásamt einum Mosfelling. Maður veit aldrei hverju maður á von á þegar Jón Gnarr er annars vegar, en við erum mjög ánægð með að hann vilji styðja við okkur,“ segir Helga.
Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ Sjá meira