Innlent

Rifja upp æviferil Einars Ben

Einar Benediktsson
Einar Benediktsson
Í dag verður hin svokallaða Einarsvaka haldin hátíðlega í Bíó Paradís við Hverfisgötu en þar verður æviferill þjóðskáldsins Einars Benediktssonar og hinnar merku konu Hlínar Johnson reifaður og fjallað um árin þeirra í Herdísarvík. Það er Grimmhildur, félag H-nemenda á Hugvísindasviði, í samstarfi við Guðrúnu Ásmundsdóttur leikkonu og leikstjóra, sem býður til Einarsvöku. Dagskráin hefst klukkan fjórtán en erindi flytja auk Guðrúnar, Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur, fræðimaður og höfundur ævisögu Einars Ben. Benedikt Erlingsson, leikari og leikstjóri verður með ljóðaupplestur. Þórhallur Barðason söngvari flytur lög með textum Einars við undirleik Steinunnar Halldórsdóttur. Kaffiveitingar og meðlæti í anda Hlínar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×