Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sagði dyraverði hafa reynt við konuna sína Tvær líkamsárásir voru skráðar í miðborginni eftir nóttina. Í öðru tilfellinu voru átök á milli aðila sem voru mjög óljós. Í hinu tilfellinu veittist maður á fimmtugsaldri að dyravörðum og síðan lögreglumönnum sem voru við staðinn. Vildi hann meina að dyraverðirnir hefðu litið konu hans hýru auga. Maðurinn gistir fangageymslu. Að sögn lögreglu var nokkuð um tilkynningar vegna hávaða í heimahúsum. 28.10.2012 09:58
Sofnaði á rauðu ljósi Nokkur erill var var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Um miðnætti veittu lögreglumenn athygli bifreið á Langholtsvegi. Ökumaður hafði stöðvað á rauðu ljósi en þegar græna ljósið kom fór bifreið hans ekki af stað. 28.10.2012 09:36
Hvað ætti ég að gera með kastala? Sara Marti Guðmundsdóttir lifir engan veginn dæmigerðu lífi. Hún er söngkona, leikkona og leikstjóri, býr í London með annan fótinn á Íslandi og sögur ganga um glamúrlíf að hætti kvikmyndastjarna. Sara sagði Friðriku Benónýsdóttur sannleikann að baki sögunum, rómantíska ástarsögu og hvernig það er að búa í því fræga hverfi Notting Hill í London. 27.10.2012 22:00
Facebook í tvísýnum línudansi Þrátt fyrir að á Facebook sé nú rúmlega milljarður virkra notenda, eða sjöunda hvert mannsbarn á jarðarkringlunni, eru kólguský við sjóndeildarhringinn. Virði fyrirtækisins hefur lækkað um 40 milljarða dala frá því að það var sett á markað í maí og lúta helstu áhyggjur á Wall Street að möguleikum eða skorti á möguleikum, fyrir Facebook til tekjuöflunar. 27.10.2012 20:30
Gekk ekki út Enginn var með fyrsta vinninginn í lottóinu í kvöld en vinningurinn hljóðaði upp á 28,5 milljónir króna. Tveir voru þá með annan vinning og fá þeir rúmlega 200 þúsund í sinn hlut. Einn var með allar jókertölurnar í réttri röð og fær sá heppni spilari tvær milljónir í vasann. 27.10.2012 19:27
Óhugnanlegt morð í New York Barnfóstra sem grunuð er um að hafa stungið tvö börn í hennar umsjá til bana í New York fyrir helgi er í lífshættu, en hún reyndi að svipta sig lífi. Lögregla hefur enn ekki getað yfirheyrt hana vegna málsins, sem vakið hefur mikinn óhug vestanhafs. 27.10.2012 19:13
Íslensk ungmenni íhaldssamari en fyrir 20 árum Íslensk ungmenni eru íhaldssamari í viðhorfum til verkaskiptingar kynjanna en jafnaldrar þeirra fyrir tuttugu árum, samkvæmt niðurstöðum nýrrar íslenskrar rannsóknar. Mikið áhyggjuefni, segir prófessor í kynjafræði, sem telur að þörf sé á átaki í skólakerfinu öllu. 27.10.2012 18:57
Losuðu tarf úr girðingarflækju "Hann var sprækur en um leið maður nær að setjast á kviðinn á þeim þá detta þeir niður og verða rólegir,“ segir Þröstur Ágústsson, meðlimur í Björgunarfélagi Hornafjarðar, sem aðstoðuðu tarf sem var fastur í girðingu hjá Firði í Lóni. 27.10.2012 16:32
Ætlar að halda áfram í stjórnmálum Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, segist vera skuldbundinn til að halda áfram sem stjórnmálamaður þrátt fyrir að verið í gær dæmdur í fangelsi fyrir skattsvik. 27.10.2012 15:59
Eignaðist marga óvini „Ég eignaðist marga óvini á starfsferli mínum hjá Fjármálaeftirlitinu,“ sagði Gunnar Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóri FME, á laugadagsspjalli Framsóknarfélags Reykjavíkur sem fór fram í dag. 27.10.2012 15:27
Sumir fengu sér oft í skálina Hinn árlegi kjötsúpudagur er haldinn hátíðlegur í dag. Yfir 1500 lítrar af kjötsúpu eru í boði fyrir gesti og gangandi á fimm stöðum á Skólavörðustíg í miðborginni. 27.10.2012 15:04
Jóhanna hvöss í garð fjármálastofnanna: Lánin þarf að endurreikna strax! Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að frekari undansláttur fjármálastofnanna varðandi útreikninga erlendra lána verði ekki liðinn - lánin þurfi að endurreikna strax. Þetta kom fram í ræðu hennar á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem fer fram á Natura í dag. 27.10.2012 14:11
Gat ekki sagt Ragnar og Brynjar Hinn írski Graham Norton átti í erfiðleikum með að bera nöfn krakkanna í Of Monsters and Men fram. Hann gat þó sagt Nanna, en nöfnin Ragnar og Brynjar voru aðeins of erfið fyrir hann. 27.10.2012 13:44
Er þetta ekki aðeins of mikil snilld? Raftækjaframleiðandinn Panasonic hefur nú hannað vélmenni sem sérhæfir sig í því að nudda höfuð. Vélmennið er keimlíkt öðru vélmenni frá Panasonic sem sér um að þvo hár. 27.10.2012 13:21
"Ef þú vilt ekki blotna þá áttu ekki að fara í sund“ Prófessor í byggingarverkfræði segir að Íslendingar sem og aðrir að skjálftasvæðum verði að vera vel undirbúnir skjálftum. 27.10.2012 12:16
Nubo líkt við illmennið Dr. No úr James Bond Kínverski fjárfestirinn Huang Nubo segist í viðtali við der Spiegel eiga erfitt með að skilja af hverju fjárfestingaráform hans hér á landi hafi verið svona umdeild. 27.10.2012 11:47
Átök þrátt fyrir vopnahlé Hundrað fjörutíu og sex létust í átökum í Sýrlandi í gær, þrátt fyrir að stríðandi fylkingar hafi lýst yfir fjögurra daga vopnahléi í gærmorgun þegar ein mesta trúarhátíð múslima, Eid-al-Adha, hófst en hún markar upphaf hinna árlegu pílagrímaferða til Mekka. 27.10.2012 11:20
Tóku upp auglýsingu á Langjökli Í byrjun júní kom japanski dekkjaframleiðandinn Yokohama til Íslands til að taka upp vetrardekkjaauglýsingu á Langjökli. Japanskt og franskt framleiðslufyrirtæki stóðu sameiginlega að auglýsingunni, en Peppi hjá framleiðslufyrirtækinu Pegasus aðstoðaði við undirbúninginn. 27.10.2012 11:06
Heimilisofbeldi í Hafnarfirði Nóg að gera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. 27.10.2012 10:07
Rólegra á skjálftasvæðinu - óvissustig enn í gildi Nokkuð rólegra var á skjálftasvæðinu út af Norðurlandi í gærkvöldi og í nótt. Síðasti skjálfti sem náði þremur stigum var rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi en fyrir utan hann hefur enginn skjálfti mælst stærri en þrjú stig síðan á fimmtudagsmorgun. Skjálftarnir eiga flestir upptök sín vestan megin á skjálftasvæðinu nær Siglufirði þar sem stóri skjálftinn varð fyrir tæpri viku síðan. Vísindamenn veðurstofunnar fylgjast náið með þróuninni í samstarfi við Almannavarnir og er óvissustig enn í gildi. 27.10.2012 09:45
Páll horfinn af sjónvarpsskjánum í bili „Ég tók mér bara ótímabundið leyfi frá þessu eins og ég hef oft gert áður,“ segir Páll Magnússon útvarpsstjóri, sem nú í október hefur ekki lesið fréttir í Sjónvarpinu eins og hann er vanur. 27.10.2012 09:00
Ættleiðingum fækkar á Norðurlöndunum Rúmlega fjögur hundruð færri börn voru ættleidd til Norðurlandanna í fyrra en árið þar áður, sem er 26 prósenta fækkun. Ættleiðingum fækkar til allra ríkjanna nema Íslands. 27.10.2012 08:30
520 milljóna svik til sérstaks saksóknara Skattrannsóknarstjóri hefur vísað tólf málum til ákærumeðferðar hjá sérstökum saksóknara sem varða svokallaða framvirka samninga og hagnað af þeim. Þetta segir Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri. 27.10.2012 07:00
Nelson Mandela á Vitatorgi eða Mýrargötu „Ein hugmyndin er að þetta verði á Vitatorgi eða ef til vill á Mýrargötureitnum þar sem gert er ráð fyrir nokkrum litlum torgum,“ segir Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi Besta flokksins, um hugsanlega staðsetningu torgs sem Arkitektur- og designhøgskolen í Ósló hefur óskað eftir að fá að byggja í Reykjavík. 27.10.2012 06:00
Rammaáætlun brátt úr nefnd Þingsályktunartillaga um rammaáætlun verður líklega afgreidd úr umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis í næstu viku og tekin til síðari umræðu í þinginu vikuna þar á eftir. 27.10.2012 05:00
Kosningabaráttan var skrautleg Kosningabaráttan fyrir þingkosningar í Úkraínu á sunnudag hefur verið harla skrautleg. Flokkarnir hafa stillt upp á lista hjá sér þekktum einstaklingum úr þjóðlífinu, sem margir hafa litla sem enga reynslu af stjórnmálum. 27.10.2012 01:00
Of Monsters and Men hitti James Bond Íslenska hljómsveitin Of Monsters and Men kom í kvöld fram í Graham Norton show ásamt aðalleikurunum úr nýju James Bond myndinni, Skyfall. Skyfall var frumsýnd í Bretlandi í vikunni og frumsýningin hérna á Íslandi var í kvöld. 27.10.2012 00:08
Fullorðnir gáfu barni eld Þegar 10 ára stúlka í Árósum bað vegfarendur um eld til þess að hún gæti kveikt í sígarettu réttu 90 prósent af þeim 92 fullorðnu sem hún spurði fram kveikjara. Í frétt á vef Jyllands-Posten segir að samtökin Youmefamily hafi myndað tilraunir stúlkunnar með falinni myndavél. 27.10.2012 00:00
Ferðamennirnir á Mosfellsheiði fengu sálrænan stuðning Fimm sjálfboðaliðar Rauða krossins voru fengnir til að veita erlendum ferðamönnum sálrænan stuðning eftir að rúta fór út af veginum á Mosfellsheiði í kvöld 26.10.2012 23:28
Unglingahópurinn á Bláfjallasvæðinu fundinn Björgunarsveitir fundu nú fyrir stundu hóp 28 unglinga sem villtust á Bláfjallasvæðinu. Höfðu þeir gengið frá Neyðarskýli við Selvogsgötu og hugðust labba gegnum Grindarskörð að Ármannsskála. 26.10.2012 23:04
Snákur í flugvél - í alvöru Líklega héldu flestir að hugmyndin um snák í flugvél væri aðeins eitthvað sem hugmyndaríkir framleiðendur í Hollywood gætu látið sér detta í hug. En veruleikinn lætur ekki að sér hæða 26.10.2012 22:38
Hátt í 30 ungmenni villt á Bláfjallasvæðinu Búið er að kalla út björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu vegna hóps ungmenna sem er í villum á Bláfjallasvæðinu. Hópurinn, sem telur 28 manns sem allir eru heilir á húfi, er í símasambandi. Svo virðist sem veður á svæðinu hafi breyst snögglega og var þá ákveðið að óska eftir hjálp. 26.10.2012 21:34
Pac-Man á himnum Það var engu líkara en að æðri máttarvöld hefðu tekið sig til og endurskapað Pacman leikinn fornfræga á sjálfum himninum. 26.10.2012 21:00
Börn særð eftir bílasprengju í Sýrlandi Vopnahléi í Damaskus, höfuðborg Sýrlands, var rofið síðdegis í dag þegar bílasprengja sprakk nærri barnaleikvelli í suðurhluta borgarinnar. Minnsta kosti fimm eru taldir látnir, þrjátíu eru slasaðir, þar á meðal börn. 26.10.2012 20:47
Varað við lúmskri ísingu Ábendingar frá veðurfræðingi fyrir kvöldið og nóttina Vaxandi úrkoma um vestan- og norðvestanvert landið í kvöld og hægt hlýnandi veður. 26.10.2012 20:02
Íslensk ungmenni hafa jákvæðari hugmyndir um líkama sinn Íslensk ungmenni hafa mun jákvæðari hugmyndir um líkama sinn en önnur ungmenni á Norðurlöndunum. Hugmyndir þeirra um sjálfan sig hafa batnað á síðustu sex árum eftir því sem fram kemur í nýrri rannsókn. 26.10.2012 20:00
Rúta með tæplega 30 farþegum út af veginum á Mosfellsheiði Björgunarsveitir af Kjalarnesi og úr Mosfellsbæ eru nú á leið á Mosfellsheiði þar sem rúta fór útaf veginum þannig að lá við veltu samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg. 26.10.2012 19:37
Stjórnendur telja svarta vinnu vaxandi vandamál Langflestir þeirra stjórnenda sem þátt tóku í könnun Samtaka atvinnulífsins telja að svört vinna sé vaxandi vandamál hér á landi. Framkvæmdastjóri samtakanna kallar eftir skjótvirkari úrræðum til að bregðast við þegar upp kemst um svik. 26.10.2012 18:53
Dómurinn yfir Berlusconi mildaður samdægurs Sex ára löngum réttarhöldum yfir fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi, lauk í dag með sakfellingu. Berlusconi var dæmdur til eins árs fangelsisvistar fyrir skattsvik. Nær öruggt þykir að hann muni áfrýja dómnum. 26.10.2012 18:50
Óvíst með áhrif gengisdómsins á bílalán Óvíst er hvaða áhrif dómar Hæstaréttar um vexti af gengistryggðum lánum hafa á skammtímalán, eins og bílalán. Sérfræðingur FME telur að fleiri dóma þurfi til að skera úr um fyrirkomulag endurútreikninga þar sem mörgum álitaefnum sé enn ósvarað. 26.10.2012 18:46
Hornsteinn lagður að Búðarhálsvirkjun Hornsteinn var lagður að Búðarhálsvirkjun við hátíðlega athöfn í stöðvarhúsinu í dag. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar setti athöfnina. 26.10.2012 18:21
Lentu í Bergen og vissu ekki hvers vegna Farþegaflugvél sem var á leið frá Berlín til Íslands lenti óvænt á miðri leið í Bergen í Noregi í dag. Vélin var full af fólki sem vissi hvorki ástæður lendingarinnar né hvenær þau færu aftur í loftið og kæmust til Íslands. 26.10.2012 16:40
Ágúst Ólafur ráðinn ráðgjafi Jóhönnu Ágúst Ólafur Ágústsson, fyrrverandi varaformaður Samfylkingarinnar, hefur verið ráðinn sem efnahags- og atvinnuráðgjafi forsætisráðherra. Ágúst Ólafur sem er lögfræðingur- og hagfræðingur að mennt hefur störf hinn 1. nóvember næstkomandi. Ágúst Ólafur tekur við starfinu af Sigurði Snævarr, hagfræðingi, en tveggja ára tímabundinn ráðningarsamningur hans við ráðuneytið rann út 1. október síðastliðinn og hefur Sigurður ákveðið að snúa sér að öðrum verkefnum. Ágúst Ólafur er ráðinn á grundvelli nýlegra laga um Stjórnarráð Íslands, þar sem fjallað er um aðstoðarmenn ráðherra. 26.10.2012 16:32
Hjólreiðamenn mega ekki tala í farsíma Samkvæmt frumvarpi til nýrra umferðarlaga verður hjólreiðamönnum óheimilt að hjóla og tala á farsíma á sama tíma. Frumvarpið er nú til meðferðar á Alþingi. 26.10.2012 16:07
Sofnaði á leið yfir götu Lögreglan kom í vikunni að hreyfingarlausum manni sem stóð úti á miðri götu í miðborginni og studdi sig við reiðhjól. Maðurinn skapaði talsverða hættu í umferðinni og var því beðinn að færa sig. Maðurinn tók engum fyrirmælum en stóð kyrr í sömu sporum svo lögregluþjónar héldu einna helst hann væri heyrnarlaus. En þegar lögreglan kom fast upp að manninum kom á daginn að hann var steinsofandi úti á miðri götunni. 26.10.2012 15:27