Innlent

Unglingahópurinn á Bláfjallasvæðinu fundinn

Bláfjallasvæðið.
Bláfjallasvæðið.
Björgunarsveitir fundu nú fyrir stundu hóp 28 unglinga sem villtust á Bláfjallasvæðinu. Höfðu þeir gengið frá Neyðarskýli við Selvogsgötu og hugðust labba gegnum Grindarskörð að Ármannsskála.

Eitthvað villtust þau af leið, en þó ekki mikið, því þau fundust ekki langt frá Grindarskörðum, við Kristjánsdalahorn.

Ekkert amaði að þeim og voru þau flest hress og kát og vilja halda ferð sinni áfram. Björgunarsveitir eru nú að flytja hópinn í Ármannsskála en um 80 björgunarsveitamenn tóku þátt í leitinni í kvöld.


Tengdar fréttir

Hátt í 30 ungmenni villt á Bláfjallasvæðinu

Búið er að kalla út björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu vegna hóps ungmenna sem er í villum á Bláfjallasvæðinu. Hópurinn, sem telur 28 manns sem allir eru heilir á húfi, er í símasambandi. Svo virðist sem veður á svæðinu hafi breyst snögglega og var þá ákveðið að óska eftir hjálp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×