Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sigurhjörtur til Mannvits Sigurhjörtur Sigfússon hefur verið ráðinn fjármálastjóri Mannvits og tekur sæti í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Sigurhjörtur er löggiltur endurskoðandi og viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur víðtæka reynslu á sínu sviði. Áður en Sigurhjörtur réðst til Mannvits var hann forstöðumaður áætlana og greininga hjá Skiptum frá árinu 2008. 16.10.2012 09:55
Skuldamál gegn Kaupþingstoppum tekið fyrir Skuldamál Dróma gegn öllum helstu stjórnendum Kaupþings verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 16.10.2012 09:20
Treystir að Al Thani-málið fari sömu leið Breska efnahagsbrotalögreglan, Serious Fraud Office (SFO), hefur hætt rannsókn á málefnum Kaupþings. Þar með er Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður bankans, ekki lengur í sigti hennar. Áður hafði rannsókn á þætti nokkurra annarra fyrrverandi starfsmanna Kaupþings og bræðrunum Vincent og Robert Tchenguiz verið látin niður falla. 16.10.2012 09:00
Þrjár álftir í viðbót skotnar við Stokkseyri Eins og fram hefur komið þá var lögreglunni á Selfossi tilkynnt um sex dauðar álftir í fjörunni á Stokkseyri um helgina, sem höfðu verið skotnar. Nú hafa þrjár aðrar álftir fundist dauðar eftir skot, eða á bökkum Vola, sem er veiðisvæði rétt við Stokkseyri. 16.10.2012 08:31
Eva Joly er á leið til landsins Föstudaginn 19. október n.k. mun Eva Joly halda fyrirlestur í Silfurbergi í Hörpu í boði Samtaka fjárfesta og viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands. 16.10.2012 08:27
Varað við hálku víða á landinu Vegagerðin varar við hálku víða á landinu þennan morguninn. Það eru hálkublettir á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi. 16.10.2012 08:08
Hverastrýtur virðast til staðar í Steingrímsfirði Hverastrýtur virðast vera í Steingrímsfirði á Ströndum, í grennd við Hólmavík og Drangsnes, en hingað til hafa þær aðeins fundist á tveimur stöðum í Eyjafirði. 16.10.2012 08:04
Fordómarnir finnast líka í kerfinu Síðan samfélagsteymi LSH tók til starfa hefur tími geðsjúkra inni á stofnunum minnkað og innlögnum fækkað. Sveitarfélögin verða að taka sig á varðandi þjónustu við hópinn, að mati teymisstjóra. Fordómar finnast innan heilbrigðiskerfisins sem utan þess. 16.10.2012 08:00
Marorka fundaði með Cosco Group Íslensk sendinefnd skipuð fulltrúum úr utanríkisþjónustunni og starfsmönnum Marorku fundaði í síðustu viku með stjórnendum kínverska skipafélagsins Cosco Group. Á fundinum var rætt samstarf milli Marorku og Cosco sem er eitt stærsta skipafélag heims. 16.10.2012 08:00
Þing rofið og boðað til kosninga í Ísrael Ísraelska þingið samþykkti í gærkvöldi að rjúfa þing þegar í stað og boða til kosninga í janúar á næsta ári en það er ári fyrr en kosningarnar áttu að vera. 16.10.2012 07:06
Segja að veiðigjaldið leiði til byggðaröskunar Landsbyggðarskattur í formi veiðigjalds, sem nú er lagt á sjávarútveginn, mun leiða til verulegrar byggðaröskunar vegna samþjöppunar á aflaheimildum og fækkun starfa í sjávarútvegi, segir meðal annars í stjórnmálaályktun kjördæmaþings Framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi. 16.10.2012 07:04
Sprengingar og skothríð í einni borga Nígeríu Miklar sprengingar og skothríð hafa heyrst í borginni Maiduguri í norðurhluta Nígeríu í gærkvöldi og nótt en þar hafa meðlimir múslímsku öfgasamtakanna Boko Haram herjað á borgarbúa að undanförnu. 16.10.2012 07:00
Fimm mánaða fangelsis krafist Dómstólar Farið hefur verið fram á fimm mánaða fangelsisrefsingu og þriggja ára ökuleyfissviptingu vegna fjölmargra afbrota þrítugs Kópavogsbúa síðastliðið ár eða svo. Þá er krafist 673 þúsund króna í málskostnað. Mál á hendur manninum var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. 16.10.2012 07:00
Fellibylurinn Paul að skella á Mexíkó Yfirvöld í Mexíkó hafa gefið úr viðvörun vegna fellibylsins Paul sem nálgast nú Kyrrahafsströnd landsins. 16.10.2012 06:57
Læknar bjartsýnir á að Malala muni ná sér Læknar í Bretlandi eru bjartsýnir á að hin 14 ára gamla pakistanska stúlka Malala Yousafzai muni ná sér eftir skotárársina sem hún varð fyrir af hendi Talibana. Fjarlægja þurfti byssukúlu úr höfði hennar. 16.10.2012 06:56
Castró var með SS foringja í þjónustu sinni Leyniskjöl frá þýsku leyniþjónustunni sem gerð hafa verið opinber sýna að Fidel Castro fyrrum leiðtogi Kúbu naut aðstoðar fyrrum nasistahermanna úr SS sveitunum árið 1962. 16.10.2012 06:49
Telja sig hafa fundið staðinn þar sem Julius Cesar var myrtur Vísindamenn telja að þeir hafi fundið nákvæmlega staðinn þar sem Gaius Julius Cesar, einn þekktasti keisari Rómaveldis, var stunginn til bana árið 44 fyrir Krist. 16.10.2012 06:43
Þjófur lét greipar sópa um heimili í Breiðholti Þjófur lét greipar sópa um heimili í Breiðholti í gærkvöldi og stal þaðan meðal annars fartölvu, staðsetningartæki, hljómtækjum, starfænni myndavél og skartgripum. 16.10.2012 06:39
60 íslenskir hönnuðir sameinast í 17-húsinu Vörur 60 íslenskra hönnuða verða til sölu í ATMO, nýrri verslun í gamla Sautján-húsinu á Laugaveginum. Nokkrum hönnunarverslunum verður samtímis lokað. Rekstur í kjallara í samstarfi við Rauða krossinn. Gló með veitingar í húsinu. 16.10.2012 06:00
Fær læknisþjónustu og vernd í Bretlandi Hin fjórtán ára gamla Malala Yousufzai var snemma í gærmorgun flutt af hersjúkrahúsi í Pakistan til Bretlands þar sem hún fær aðhlynningu og vernd gegn áframhaldandi árásum talibana, sem hafa heitið því að myrða hana. 15.10.2012 23:30
Skotar fá að kjósa um sjálfstæði 2014 Bretland, apForsætisráðherra Bretlands, David Cameron, og æðsti ráðherra Skotlands, Alex Salmond, hafa skrifað undir samkomulag um þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands. 15.10.2012 23:30
Hálendisgæslan í Ísland í dag Björgunarsveitarmenn um land allt hika ekki við að eyða sumarfríinu sínu í að sjá til þess að ferðamenn séu öruggir á ferð sinni um hálendið. 15.10.2012 23:05
Malala komin til Bretlands Hin 14 ára gamla Malala Yousafzai, sem skotin var í höfuðið í Swat-dalnum í Pakistan í síðustu viku, hefur verið komið undir læknishendur í Bretlandi. 15.10.2012 22:55
Vopn Asera gegn Íran: J-Lo Hugmyndafræðilegt stríð Asera og Írana náði nýjum hæðum á dögunum þegar bandaríska dívan Jennifer Lopez steig svið í Aserbaídsjan. 15.10.2012 22:42
"Þetta er sameining, ekki yfirtaka“ Um næstu helgi, 20. október, verður kosið um sameiningu Garðabæjar og Álftaness. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabær, var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis í dag en þar ræddi hann við þáttastjórnendur um kosninguna og framtíð bæjarfélaganna. 15.10.2012 21:31
Undirbúningsnám í flugumferðarstjórn í óvissu Flugakademía Keilis á Keflavíkurflugvelli verður fyrir mörg hundruð þúsund króna tekjutapi þegar lokað er fyrir æfinga- og kennsluflug vegna manneklu í flugturninum, segir skólastjórinn. Hann segir að fleiri flugumferðarstjóra vanti en Isavia hefur beðið Keili um að hætta að þjálfa nemendur í undirbúningsnámi í flugumferðarstjórn. 15.10.2012 18:10
Netflix ekki á leiðinni til Íslands "Stjórnendur Netflix hafa ekki áhuga á að koma hingað til lands. Engin áform eru um að opna fyrir þjónustuna á Íslandi að svo stöddu.“ 15.10.2012 18:03
Sækist eftir 2 til 3 sæti í Suðvesturkjördæmi Magnús Orri Schram, þingmaður, sækist eftir 2 til 3 sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi sem fram fer þann 10. nóvember. 15.10.2012 21:09
"Nú fer ég heim“ Austurríski ofurhuginn Felix Baumgartner, sem í gær rauf hljóðmúrinn fyrstur allra, segir að um tíma hafi hann lent í vandræðum í stökkinu. Hann velti fyrir sér hvort hann ætti að ýta á neyðarhnapp og þannig bjarga lífi sínu, eða þrauka aðeins lengur og bæta metið. 15.10.2012 20:30
Kallar eftir skýrum skilaboðum frá stjórnvöldum Kallað er eftir því að nýtt umhverfismat verði unnið fyrir virkjun í Bjarnarflagi við Mývatn. Forstjóri Landsvirkjunar kallar eftir skýrari skilaboðum frá stjórnvöldum í málinu. 15.10.2012 19:30
Verkfræðingar sjá fátt framundan á Íslandi Noregur er orðinn helsta líftaug íslenska verkfræðigeirans, og nema verkefnin þar nú milljörðum króna á ári. Norðmenn vilja enn meiri sérfræðivinnu frá Íslandi á næstu árum. Verkfræðingar, arkitektar og verktakar voru meðal þeirra sem sóttu fund Íslandsstofu á Hilton hótelinu í Reykjavík í dag, - ekki um það sem er framundan á Íslandi, heldur um það sem er framundan í Noregi. 15.10.2012 19:06
Lögbann ekki lagt á Landsbankann Hæstiréttur hafnaði í dag kröfu Hagsmunasamtaka heimilanna og talsmanns neytenda um að lögbann yrði lagt á útsendingu Landsbankans á greiðsluseðlum vegna ólögmætra gengislána. Rétturinn staðfesti þar með niðurstöðu Héraðsdóms. 15.10.2012 17:05
Hænsnabóndi óttast að hann sé á leið á götuna Júlíus Már Baldursson, sem hefur rekið landnámshænsnabú á bænum Tjörn í Vatnsnesi við Hvammstanga, óttast að hann sé kominn á götuna. Hann og bróðir hans voru ábúendur á Hvammstanga um árabil áður en allt brann í mars 2010. Jörðin, var leigujörð og skráð á bróður hans, en þegar allt brann þá var þeim samningi rift og Júlíus Már óskaði eftir að fá jörðina skráða á sig. Aftur á móti fékk hann þau skilaboð að ráðuneytið yrði að auglýsa jörðina, þrátt fyrir að Júlíus hefði búið á henni um árabil og verið með lögheimili sitt skráð á henni. 15.10.2012 17:01
Flytja 24 þúsund lítra af vatni til flóttamanna Gámur með 24 þúsund lítra af vatni verður fluttur frá Íslandi í vikunni til flóttamannabúða í Panama í Mið-Ameríku. Vatnið verður flutt með sérstökum hætti sem gæti verið upphafið að nýrri hugmyndafræði í því hvernig flytja megi vatn inn á fjarlæg og erfið svæði. 15.10.2012 16:35
Ríkisendurskoðandi taldi skýrsluna aðeins hafa sögulegt gildi Sífelldar breytingar á mannhaldi, stór verkefni og breyttar áherslur eftir hrunið 2008 og að lokum vangaveltur um hvort of langur tími væri liðinn frá því að því kerfið var keypt er meðal þess sem olli drættinum á úttekt Ríkisendurskoðunar á Oracle-kerfinu svonefnda. Þetta kemur fram í minnisblaði Ríkisendurskoðanda sem rætt var í forsætisnefnd Alþingis í dag. 15.10.2012 16:02
Skúrkurinn úr Inglourious Basterds leikur Gorbachev í Reykjavík Christoph Waltz, sem fékk óskarsverðlunin fyrir að leika nasistaforingja í myndinni Inglourious Basterds mun leika Mikhail Gorbachev, fyrrverandi forseta Sovétríkjanna, í myndinni Reykjavík. Það er Mike Newell sem leikstýrir myndinni, en eins og áður hefur komið fram mun Michael Douglas leika sjálfan Ronald Reagan, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Eins og fram kemur á vefnum Variety fjallar myndin um leiðtogafundinn í Höfða, sem haldinn var árið 1986 og er oft sagður hafa markað upphafið af endalokum Kalda stríðsins. 15.10.2012 15:24
Ríkisendurskoðandi hugsi yfir umfjölluninni um Oracle Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi, er hugsi yfir atburðarrásinni í tengslum við birtingu Kastljóss á vinnugögnum og trúnaðarskýrslum Ríkisendurskoðunar, ekki síst yfir þætti núverandi formanns fjárlaganefndar, Björns Vals Gíslasonar, í málinu. Þetta kemur fram í svarbréfi hans sem rætt var á fundi forsætisnefndar Alþingis í hádeginu í dag. 15.10.2012 15:18
Þúsundir barna hlaupa maraþon á morgun Á morgun munu þúsundir barna víðs vegar um heiminn hlaupa maraþon og vekja þannig athygli á baráttunni gegn barnadauða í heiminum. Þetta er í fimmta sinn sem hlaupið er haldið en Ísland tekur nú þátt í fyrsta sinn þegar 140 börn úr fjórum skólum mæta til keppni í Laugardalshöll. 15.10.2012 14:54
Náðu bestu myndunum af samgöngum Tilkynnt hefur verið um sigurvegarana í ljósmyndasamkeppni Reykjavíkurborgar í tilefni samgönguviku. Fjórar bestu myndirnar má skoða hér til hliðar. 15.10.2012 14:28
Stelpan sem stal senunni á Möðrudal Ísold Fönn Vilhjálmsdóttir, 6 ára geitahirðir á Möðrudal á Fjöllum, stal senunni í þættinum "Um land allt" sem sýndur var á Stöð 2 í gærkvöldi. 15.10.2012 14:22
Það tekur meira en fimm mínútur að kynna sér málið Það er ábyrgðarlaust að mati fræðimannsins Ágústar Þórs Árnasonar að fullyrða að það taki fólk í mesta lagi fimm mínútur að mynda sér skoðun á stjórnarskránni, kynna sér málið og ákveða hvernig rétt er að greiða atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni næstu helgi. 15.10.2012 13:52
Feðgar ákærðir fyrir líkamsárás Feðgar, sá eldri á sextugsaldri en sá yngri um þrítugt, hafa verið ákærðir fyrir líkamsárás sem átti sér stað á veitingarstaðnum Rauða Riddaranum við Engihjalla í Kópavogi seint á síðasta ári. Samkvæmt ákæru réðust mennirnir tveir að manni sem þar var staddur og sparkaði annar mannanna í andlit hans með þeim afleiðingum að hann féll í jörðina. Í kjölfarið veittust báðir mennirnir að hinum særða og veittu honum fleiri spörk í andlit og líkama með þeim afleiðingum að hann hlaut eymsli í andliti. Mennirnir eru krafðir um greiðslu alls sakarkostnaðs eða því sem nemur rúmum 860 þúsund krónum. 15.10.2012 13:51
Dæmdur fyrir að stela kvíðastillandi lyfi Rúmlega þrítugur karlmaður var í dag dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur. fyrir þjófnað og akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann var sömuleiðis sviptur ökuréttindum í 2 ár. 15.10.2012 13:45
Selaát örvar kynhvötina Selaát hefur kynörvandi áhrif. Þetta fullyrðir Sophus Magnússon selaveiðimaður frá Ísafirði sem veiðir og verkar sel allan ársins hring. 15.10.2012 13:31
Sögðust hafa „fundið skilríki á víðavangi“ Fimm sextán ára stúlkur og ein sautján ára reyndust vera inni á skemmistað í Reykjanesbæ þegar lögreglan á Suðurnesjum var með hefðbundið eftirlit á skemmtistöðum um helgina, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum. 15.10.2012 11:26