Innlent

Segja að veiðigjaldið leiði til byggðaröskunar

Landsbyggðarskattur í formi veiðigjalds, sem nú er lagt á sjávarútveginn, mun leiða til verulegrar byggðaröskunar vegna samþjöppunar á aflaheimildum og fækkun starfa í sjávarútvegi, segir meðal annars í stjórnmálaályktun kjördæmaþings Framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi.

Þá bendir þingið á að rannsóknir Hafró og reynsla sjómanna sýni að mögulegt sé að auka nú þegar við kvótann í mörgum fisktegundum, og telur þingið ábyrgðarleysi að nýta ekki tækifæri í sjávarúvegi til að flýta efnahagsbata landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×