Verkfræðingar sjá fátt framundan á Íslandi Kristján Már Unnarsson skrifar 15. október 2012 19:06
Noregur er orðinn helsta líftaug íslenska verkfræðigeirans, og nema verkefnin þar nú milljörðum króna á ári. Norðmenn vilja enn meiri sérfræðivinnu frá Íslandi á næstu árum. Verkfræðingar, arkitektar og verktakar voru meðal þeirra sem sóttu fund Íslandsstofu á Hilton hótelinu í Reykjavík í dag, - ekki um það sem er framundan á Íslandi, heldur um það sem er framundan í Noregi. Egill Viðarsson, verkefnastjóri hjá Almennu verkfræðistofunni, segir að staðan á Íslandi sé ekki góð og hafi lítið batnað að undanförnu. Menn sjái ekki margt framundan hérlendis á næstu 1-2 árum. Egill segir að um helmingur verkefna Almennu verkfræðistofunnar sé nú í Noregi, og segir norska markaðinn þegar skila verulegum tekjum til íslenskra verkfræðinga og hönnuða, sem hann áætlar 3-5 milljarða króna á ári. Og nóg verður að gera á næstu árum í Noregi, miðað við orð yfirmanns norsku Vegagerðarinnar, Björns Erik Selnes, á fundinum í dag en Norðmenn vantar erlent vinnuafl meðal annars til að standa undir 45 prósenta aukningu samgönguframkvæmda á næstu árum. „Verkefnin bíða í röðum svo við höfum mikinn áhuga á að fá liðveislu frá Íslandi," sagði norski Vegagerðarmaðurinn. Egill Viðarsson segir að án Noregsverkefna væri staðan mjög slæm hjá íslenskum verkfræðingum en það sé ekki auðvelt að sækja vinnu til útlanda. Það sé bæði erfitt fyrir starfsfólk að vera fjarri fjölskyldu á Íslandi og það sé einnig dýrt fyrir fyrirtækin. „Þetta er mikið meiri kostnaður heldur en að sækja verkefnin á Íslandi. Þetta er ekki allt hamingja að sækja verkefnin til Noregs. Það kostar líka töluvert mikið meira," segir Egill.
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira