Þrjár álftir í viðbót skotnar við Stokkseyri Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 16. október 2012 08:31 Álftir með unga sína. Ljósmynd: Jóhann Óli Hilmarsson.
Eins og fram hefur komið þá var lögreglunni á Selfossi tilkynnt um sex dauðar álftir í fjörunni á Stokkseyri um helgina, sem höfðu verið skotnar. Nú hafa þrjár aðrar álftir fundist dauðar eftir skot, eða á bökkum Vola, sem er veiðisvæði rétt við Stokkseyri. Jóhann Óli Hilmarsson, formaður Fuglaverndarfélags Íslands, sem býr jafnframt á Stokkseyri er mjög óhress með stöðu mála varðandi dauðu álftirnar. "Þetta er hefðbundið hatur á meintum samkeppnisaðilum, hvort sem þeir heita álftir, gæsir, máfar, hrafnar eða tófur. Menn halda að álftir rústi túnum fyrir þeim og víla ekki fyrirsér að grípa til hernaðaraðgerða, þó svo að fuglinn sé friðaður. Sumir menn sjá aldrei útfyrir byssuhlaupið, en það er hægt að gera margt annað heldur en að drepa fuglana," segir Jóhann Óli. „Það hefur t.d. reynst vel að strengja plastborða milli staura í landinu og lenda fuglarnir þá ekki þar. Einnig að setja lága girðingu umhverfis kornakra, álftir (og gæsir) þurfa flugbraut og lenda ekki í miðjum óslegnum kornökrum eða túnum, heldur í lægri gróðri og rölta sér svo yfir í ætið. Svo mætti lengi telja, aðferðirnar eru margar. Menn þurfa bara að hafa getu og nennu til að spá aðeins í þær. Það þarf að rannasaka álftabeit og skoða betur aðferðir við að halda þeim frá stöðum þar sem þær mega ekki vera. Með aukinni kornrækt, bæði hér og á vetrarstöðvunum, er hreinlega verið að fóðra álftir og gæsir. Menn þurfa einfaldlega að greiða einhvern toll af því. Menn tala stöðugt um að álftum fari fjölgandi, en íslenski stofninn telur aðeins tæpa 27.000 fugla að hausti. Þetta er mjög sálrænt, álftin er stór, hvítur og hávær fugl og er tala þeirra því oft á tíðum mjög orðum aukin."
Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ Sjá meira