Steingrímur situr fund Brims hf. um kvótafrumvörp Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 4. júní 2012 21:39 Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra.
Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, mun sitja opin fund útgerðarfélagsins Brims hf. um áhrif frumvarpa um stjórn fiskveiða og veiðigjöld. Skipafloti Brims fór ekki til veiða í dag og mun flotinn vera við bryggju út vikuna í mótmælaskyni. Á fundinum mun Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims hf., fara yfir mat stjórnenda fyrirtækisins á áhrifum frumvarpanna á áframhaldandi rekstur félagsins. Þá er talið að Steingrímur muni fjalla um sýn stjórnvalda á almennum áhrifum frumvarpanna. „Þetta verður létt og skemmtilegt," sagði Guðmundur í samtali við Vísi. „Markmiðið með fundinum er að sýna almenningi hvernig útgerðin og sjómenn tala saman og Steingrímur verður þátttakandi í þessum umræðum." Guðmundur segir að umræða síðustu vikna um frumvörpin hafi verið flókin og að nú sé tími til kominn að ræða um hlutina á mannamáli. Steingrímur og Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri Grænna, gagnrýndu á laugardag fyrirkomulag fundanna sem útgerðirnar ætla að halda um frumvörpin. Þá sagði Björn Valur að fyrirtækin ættu að bjóða stjórnmálamönnum og fjölmiðlafólki á fundina svo að almennileg umræða um málefnin gæti farið fram. Guðmundur svaraði kalli þeirra og hefur nú boðið bæði stjórnmálamönnum og fjölmiðlafólki á fundinn en hann mun fara fram á þriðjudaginn í húsnæði Brims hf. á Miðbakka í Reykjavík. Fundurinn hefst klukkan 12:00. Þá verður fundurinn einnig í beinni útsendingu á internetinu en hann má nálgast á heimasíðu Brims.
Tengdar fréttir Býður stjórnmálamönnum á fund: "Komi þeir sem þora“ „Ég hvet hér með Steingrím J. Sigfússon til þess að mæta og ræða við okkur og sjómenn Brims á opnum fundi næsta þriðjudag," segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri útgerðarfélagsins Brims, en hann ætlar að standa fyrir opnum fundi í Brimshúsi á miðbakkanum á Reykjavíkurhöfn klukkan tólf næsta þriðjudag. 2. júní 2012 18:33 Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Fleiri fréttir Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Sjá meira
Býður stjórnmálamönnum á fund: "Komi þeir sem þora“ „Ég hvet hér með Steingrím J. Sigfússon til þess að mæta og ræða við okkur og sjómenn Brims á opnum fundi næsta þriðjudag," segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri útgerðarfélagsins Brims, en hann ætlar að standa fyrir opnum fundi í Brimshúsi á miðbakkanum á Reykjavíkurhöfn klukkan tólf næsta þriðjudag. 2. júní 2012 18:33