Vistvænar byggingar ryðja sér til rúms hér á landi 4. júní 2012 13:30 Vistvæn hugmyndafræði var í hávegum höfð við hönnun Framhaldsskólans í Mosfellsbæ. Efni eru sérvalin og sólarljós nýtt til orkusparnaðar.
Vistbyggðaráð var stofnað í febrúar 2010 af 32 fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum. Tilgangur þess er að vera vettvangur á sviði sjálfbærrar þróunar við skipulag, hönnun, byggingu, rekstur og viðhald mannvirkja á Íslandi. Meðal markmiða Vistbyggðaráðs er að skilgreina „íslensk viðmið fyrir vistvæna byggð sem auðvelda hönnuðum og hagsmunaaðilum að þróa í auknum mæli vistvænar áherslur við skipulag, hönnun, byggingu, rekstur og viðhald mannvirkja á Íslandi," eins og segir á heimasíðu ráðsins. Með vistvænni byggð er átt við að skaðleg áhrif bygginga og mannvirkja séu lágmörkuð eins og hægt er. Alþjóðlegir staðlar gera kröfur í þessum efnum og ljóst er að þeir munu hafa áhrif á íslenskan byggingamarkað. Sigríður Björk Jónsdóttir, framkvæmdastýra Vistbyggðaráðs, segir alþjóðlegt vottunarkerfi fyrir byggingar hafa verið að þróast undanfarin ár. Þar sé meðal annars að finna ákvæði um byggingarefni; timbur verði að vera upprunavottað, efni megi ekki innihalda eiturefni og ekki vera of rokgjörn. Þá sé æskilegt að byggingarefni eigi uppruna sinn sem næst byggingarstað, en sé ekki flutt um langan veg. „Það er fyrirsjáanlegt að á næstu árum munum við finna fyrir auknum kröfum. Við sjáum að við þurfum að nota Evrópustaðla þar sem eru gerðar mun meiri kröfur en við þekkjum hér. Þetta sjáum við til dæmis í nýrri byggingarreglugerð um förgun og meðhöndlun efna á byggingarstað, en þar eru gerðar mun meiri kröfur en áður í þeim efnum."Sigríður Björk Jónsdóttir.Ráðstefna um vistvænar byggingar var haldin í gær, með aðkomu aðila á byggingarmarkaði. Sigríður segir galla að ónógt framboð sé á vistvænum byggingarefnum hér á landi og að ákveðin endurmenntun þurfi að eiga sér stað í geiranum. „Maður getur ímyndað sér að byggingarverktakar og framkvæmdaaðilar þurfi að setja sér ákveðna umhverfisstefnu. Gerð er krafa um hlutfall endurnýtingar á byggingarefni og byggingarstaðurinn þarf að uppfylla ýmis skilyrði, svo eitthvað sé nefnt." kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Veður Fleiri fréttir Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Sjá meira