Fleiri fréttir

Par reyndi að ræna apótek á Akureyri

Ekki hefur enn verið hægt að yfirheyra karl og konu á þrítugsaldri, sem handtekinn voru eftir ránstilraun í apóteki á Akureyri í gær, þar sem fíkniefnavíma er ekki runnin af þeim.

Þyrla sótti slasaðan norskan togarasjómann

Þyrla Gæslunnar kom til Reykjavíkur um klukkan hálf níu í gærkvöldi með norskan sjómann, sem hafði slasast um borð í togara, þegar hann var að veiðum á Reykjaneshrygg.

Facebook skoðar kaup á Opera

Verð hlutabréfa í norska vafraframleiðandanum Opera rauk upp í kjölfar þess að tæknivefsíðan Pocket-Lint greindi frá því að Facebook hefði áhuga á að kaupa fyrirtækið. Fyrirtækið Opera Software var stofnað af hinum íslenskættaða Jóni S. Von Tetzchner árið 1994. Hann gegndi lengst af stöðu forstjóra en lét af störfum hjá fyrirtækinu á síðasta ári. Ríflega 200 milljónir manna nota Opera-vafrann.

Gefa dagþjónustu öryggiseftirlit

Dagþjónustunni fyrir fatlaða við Gylfaflöt í Grafarvogi hefur borist aðstoð víða að úr samfélaginu í kjölfar frétta um skemmdarverk í útivistargarði þjónustunnar.

Samningar að nást um hótel

Samningaviðræður við forsvarsmenn svissnesks fjárfestingafélags um byggingu hótelbyggingar við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu eru langt komnar, en Marriott-hótelið sem rísa mun á svæðinu verður langdýrasta hótel landsins.

Kirkjan í Grafarvogi skuldar 600 milljónir

Við borgum bara og borgum en lánin bara hækka,? segir Bjarni Kr. Grímsson, formaður sóknarnefndar Grafarvogskirkju um ríflega 600 milljóna króna skuld safnaðarins. Bjarni segir skuldina tilkomna vegna byggingar Grafavogskirkju sem var vígð árið 2000. Um sé að ræða verðtryggð lán sem hækkað hafi um 150 milljónir króna eftir hrunið 2008.

Siglir í sumar um Diskóflóa

Skipið Fram frá norska skipafélaginu Hurtigruten hafði viðkomu í Reykjavík á föstudag á leið sinni til Grænlands. Fram siglir í sumar um Diskóflóa undan vesturströnd Grænlands þar sem farþegar koma við í þorpum og öðrum athyglisverðum stöðum. Fram er sérútbúið til ferða á heimskautasvæðum og er nefnt eftir skipi landkönnuðarins Roalds Amundsen.- þj

Dúxinn úr MR með 9,83 í meðaleinkunn

„Ég hef notið þess öll árin í MR að vera með frábæra kennara sem hafa vakið áhuga á námsgreinunum og kennt þær vel,“ segir nýstúdentinn Hólmfríður Hannesdóttir, beðin um að uppljóstra leyndarmálinu að baki þeim árangri að útskrifast með 9,83 í meðaleinkunn af eðlisfræðibraut í Menntaskólanum í Reykjavík. Það er fjórða hæsta einkunn sem gefin hefur verið í sögu skólans. Til viðbótar við það að hafa góða kennara segir Hólmfríður árangurinn byggja á heldur einfaldri formúlu: Að skipuleggja sig og nýta tímann vel.

Sjá fyrir sér hagstofu atvinnulífsins

Meðal þess sem horft er til með sameiningu hagsmunasamtaka sem starfa fyrir atvinnulífið er að búa til öfluga hagdeild, nokkurs konar hagstofu atvinnulífsins. Samkvæmt heimildum blaðsins er í yfirstandandi viðræðum einna helst horft til þess að sameina með einhverjum hætti starfsemi Samtaka atvinnulífsins (SA) og Viðskiptaráðs Íslands (VÍ). Greint var frá því í blaðinu 10. þessa mánaðar að þreifingar hefðu átt sér stað á vettvangi samtakanna um nánara samstarf.

Gleymdi barni á þaki bílsins

Betur fór en á horfðist þegar hin nítján ára gamla Catalina Clouser frá Phoenix í Arizonaríki gleymdi fimm vikna gömlum syni sínum í bílstól uppi á þaki bíls síns áður en hún ók af stað, seint á föstudagskvöld.

Aukningin 1,3 prósent í maí

Umferð um landið jókst um 1,3 prósent í nýliðnum maímánuði samanborið við sama mánuð í fyrra, samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar. Það er mesta aukningin milli mánaða á árinu.

1000 ára gamall ruslahaugur grafinn upp

Fornleifafræðingar frá Fornleifastofnun Íslands munu taka þátt í uppgreftri á Görðum á Grænlandi í júlí og ágúst. Rústasvæðið kom í ljós árið 2005 þegar unnið var að framræslu votlendis skammt frá. Vegna framræslunnar hefur mýrin þornað upp og er varðveislu leifanna því hætta búin.

Öll andvíg eða full efasemda gagnvart ESB

Herdís segist hafa efasemdir um aðild Íslendinga að ESB eins og staðan sé núna. Hún sagði í kappræðunum á Stöð 2 í kvöld að það væri mikil óvissa innan ESB.

Þóra er í fæðingarorlofi

Þóra Arnórsdóttir er í fæðingarorlofi á sama tíma og hún heyir sína kosningabaráttu. Þetta kom fram í fyrirspurn af netinu. Þóra sagðist ennfremur ætla að vera í orlofi til 31. júlí, en bætti við að barnið væri svo heppið að eiga föður sem kæmi til móts við móður þess. Þóra eignaðist, eins og kunnugt er, dóttur þann 18. maí síðastliðinn.

Herdís: Mikilvægt að forseti sé þroskaður og með reynslu

Í landi æskudýrkunar að þá er maður kominn framyfir síðasta söludag 38 ára, sagði Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi þegar talið barst að aldri forsetaframbjóðenda í dag. Herdís sagði að sér þætti mikilvægt að ung fólk sé kappsfullt og bryddi upp á nýjunum. "En mér finnst skipta máli að sá sem leiðir og er í forystu , að hann sé kominn með þroska og reynslu,“ sagði Herdís. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands var spurður að því hvort hann væri ekki orðinn of gamall í starfið, í ljósi þess að hann yrði sjötugur á næsta ári. Hann svaraði því til að þótt hann vildi ekki líkja sér við Ronald Reagan, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, eða Churchill, fyrrverandi forsætisráðherra Breta, þá hefðu þeir báðir verið eldri en hann í embætti. "Þetta er annasamt starf, er þá ekki gott að fá einhvern sem er tilbúinn til að leggja sín orkuríkustu ár í þetta,“ sagði Þóra Arnórsdóttir þegar hún var spurð út í það hvort aldur skipti máli.

Þóra vill láta þjóðinni líða betur

"Ég held að ég vildi láta minnast mín fyrir að hafa þjónað þjóðinni vel, að hafa náð til hennar, að ég hafi getað hafa látið henni líða örlítið betur og að hún gæti verið stolt af mér,“ sagði Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi þegar Elín Stephensen, áhorfandi úr sal, spurði hana hvernig hún vildi láta minnast sín sem forsetaframbjóðanda í kosningasjónvarpi Stöðvar 2 og Vísis í kvöld.

Þóra Arnórsdóttir: "Ég sé enga skriðdreka“

Ólafur Ragnar Grímsson segir enga tengingu á milli þess að Þóra Arnórsdóttir fór í barneignarleyfi á sama tíma og hann ákvað að hefja kosningabaráttu sína. Hann hafnaði forsendum spurningarinnar og sagði að hann hefði hafið sína baráttu vegna þess að það var orðið ljóst hverjir byðu sig fram og að kjörstjórnir væru búnar að óska eftir meðmælendalistum frambjóðanda.

Ólafur Ragnar: Sextán ár nóg ef aðstæður væru eðlilegar

"Vissulega, í eðlilegum kringumstæðum og eðlilegum aðstæðum, þá væri það langur tími,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, aðspurður um það hvort ekki væri nóg að forsetinn sæti í sextán ár eins og hann hefur gert.

Herdís gekk ekki út - mikilvægara að ávarpa áhorfendur

Herdís Þorgeirsdóttir segist taka undir sjónarmið forsetaframbjóðandanna þriggja sem gengu út úr sjónvarpssal í mótmælaskyni við Stöð 2 vegna fyrirkomulags um að ræða við tvo frambjóðendur í einu í Hörpu og láta Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur mætast tvö ein.

Brýnt að kenna börnum forritun snemma

Það má í raun segja að börn í dag kunni að lesa en ekki að skrifa, út frá tækninni. Þetta segir framkvæmdastjóri menntafyrirtækisins Skema sem ætlar í samstarfi við Háskólann í Reykjavík að efla kennslu barna í forritun, ekki síst með þarfir atvinnulífsins í huga.

Leikkona úr Desperate Housewives látin

Leikkonan Kathryn Joosten er látin sjötíu og tveggja ára að aldri en banamein hennar var lungnakrabbamein. Joosten er Íslendingum vel kunn úr hinum sívinsælu þáttum, Desperate Housewives, en þar lék hún fúllynda nágrannann Karen McCluskey.

Áfrýja dómnum yfir Mubarak

Egypsk yfirvöld hafa staðfest að þau hyggjast áfrýja dómsmáli gegn Hosni Mubarak og öðrum sem réttað var yfir í málinu en dómurinn hefur vakið hörð viðbrögð í Egyptalandi.

Reyndi að smygla kókaíni til landsins

Karlmaður um fimmtugt situr nú í gæsluvarðhaldi eftir að hafa reynt að smygla um 370 grömmum af kókaíni til landsins. Maðurinn sem er útlendur var stöðvaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar við komuna til landsins frá Lundúnum samkvæmt vf.is.

Borgarfulltrúi vill meta betur hættuna af hraunflóði

Huga þarf betur að líkum á eldsumbrotum í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og hraunsflóðs af völdum þeirra. Þetta segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna. Hann segir gagnrýni eldfjallasérfræðings á áhættumati Almannavarna réttmæta.

Kappræðurnar í Hörpu í beinni útsendingu á Vísi

Hægt er að horfa á kappræður frambjóðenda til embættis forseta Íslands hér fyrir ofan og á sjónvarpssíðu Vísis. Dagskráin fer fram í Hörpu og stýra fréttamennirnir Helga Arnardóttir og Þorbjörn Þórðarson umræðunum, sem eru einnig í opinni dagskrá á Stöð 2.

Tekið á móti spurningum til frambjóðenda í gegnum Facebook og Twitter

Frambjóðendur til embættis forseta Íslands mætast í kappræðum í beinni útsendingu á Stöð 2 klukkan 18.55 í kvöld. Dagskráin fer fram í Hörpu og munu fréttamennirnir Helga Arnardóttir og Þorbjörn Þórðarson stýra umræðunum. Andri Ólafsson fréttamaður tekur einnig á móti spurningum áhorfenda í sal, auk áhorfenda heima í stofu, sem gefst kostur á því að spyrja frambjóðendur í gegnum Facebook og Twitter.

Almennir borgarar handtóku vopnaða ræningja á Akureyri

Almennir borgarar handtóku karlmann og konu á þrítugsaldri í hádeginu í dag þegar þau reyndu að ræna apótek á Akureyri. Fólkið var í annarlegu ástandi þegar þau komu inn í apótekið vopnuð kúbeinum og með hulin andlit. Þau ógnuðu starfsfólki sem tókst þó að hrekja þau á flótta.

Steingrímur vill skattaívilnanir fyrir sjómenn í framtíðinni

Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra, sagði í hátíðarræðu sinni í tilefni af sjómannadeginum í dag að hann vildi ekki varpa frekari skugga á hátíðarhöldin með því að ræða um harðvítug átök LÍÚ og ríkisstjórnarinnar. "Það kynni ég að hafa látið eftir mér ef mál hefðu ekki skipast með þeim hætti sem raun bar vitni í gær,“ sagði Steingrímur og vitnaði þar til mótmælaaðgerða LÍÚ en nær allur skipafloti Íslendinga mun verða bundin við bryggju í næstu viku í svokölluðu neyðarkalli útgerðarmanna.

Einn látinn eftir skotárás í Kanada

Einn er látin eftir að karlmaður hóf skothríð í verslunarmiðstöð í Toronto í Kanada í gærkvöldi. Skotmaðurinn er 25 ára gamall karlmaður. Sjö aðrir særðust í árásinni, þar af nokkrir lífshættulega. Meðal annars 13 ára gamall drengur.

Gerði LÍÚ tilboð í beinni: Sendið skipin út og við skulum funda

"Ég skal gera þér tilboð. Nú skulum við hætta þessum skærum, sendið skipin á sjó og ég skal sjálfur, prívat og persónulega sjá til þess að við setjumst niður í vikunni og ræðum þetta,“ sagði Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, þegar hann gerði framkvæmdastjóra LÍÚ, Friðriki Arngrímssyni, tilboð um sáttafund á milli sambandsins og ríkisstjórnar.

Þrír stútar teknir í morgun

Þrír ökumenn voru stöðvaðir í morgun fyrir ölvunarakstur og fíkniefnaakstur. Þannig voru tveir teknir á sjöunda tímanum í morgun. Annar var stöðvaður á Hringbraut í Reykjavík en hinn á Vesturlandsvegi við Korputorg. Báðir voru fluttir á lögreglustöð þar sem málin voru gerð upp.

Sjá næstu 50 fréttir