Dúxinn úr MR með 9,83 í meðaleinkunn 4. júní 2012 05:00 Hólmfríður Hannesdóttir ætlar í háskóla í haust en er ekki búin að ákveða hvaða námsgrein verður fyrir valinu. Líklega verður það þó verkfræði. „
Ég hef notið þess öll árin í MR að vera með frábæra kennara sem hafa vakið áhuga á námsgreinunum og kennt þær vel,“ segir nýstúdentinn Hólmfríður Hannesdóttir, beðin um að uppljóstra leyndarmálinu að baki þeim árangri að útskrifast með 9,83 í meðaleinkunn af eðlisfræðibraut í Menntaskólanum í Reykjavík. Það er fjórða hæsta einkunn sem gefin hefur verið í sögu skólans. Til viðbótar við það að hafa góða kennara segir Hólmfríður árangurinn byggja á heldur einfaldri formúlu: Að skipuleggja sig og nýta tímann vel. Hólmfríður segist ekki hafa stefnt að því að verða dúx. „Nei, það var alls ekki markmið hjá mér. Mig langaði bara að ganga vel. Það var það eina sem skipti mig máli. Ég hef alltaf lært mjög mikið en ég er samt alls ekki alltaf að, heldur hef ég passað að nýta vel þann tíma þegar ég er að læra. Auk þess hefur skipt mig miklu máli að lifa heilbrigðu lífi, borða hollt og hreyfa mig, og ekki síst taka frí milli mikilla anna í skólanum.“ Hólmfríður tekur sér ekki lengri tíma en eina helgi til að ná sér niður á jörðina eftir útskrift, því strax í dag hefur hún stífa þjálfun fyrir Ólympíuleikana í eðlisfræði sem hún tekur þátt í í júlí. „Við erum fimm sem förum héðan frá Íslandi. Fram undan eru fullir vinnudagar í undirbúningi, alveg fram að keppni. Við verðum uppi í Háskóla Íslands og þangað koma ýmsir kennarar til okkar. Þetta er mjög spennandi og ég ætla að gera hvað ég get til að standa mig vel,“ segir Hólmfríður. Að loknum Ólympíuleikunum ætlar Hólmfríður samt að gefa heilanum frí, en þá ætlar hún í Evrópureisu með kærasta sínum og samstúdenti, Baldri Ingvarssyni, áður en alvara lífsins tekur aftur við í haust. Hólmfríður á að baki ellefu ára nám í píanóleik, en hún lagði hann á hilluna síðastliðið haust, þegar of mikið var að gera í náminu. „Það er mjög gaman að spila á píanó og ég fékk mikið út úr því. Mig langar að halda því áfram einhvern tímann, þegar það hentar mér,“ segir hún. Sá tími er ekki kominn, þar sem hugur hennar stefnir í háskólanám í haust. „Ég er ekki alveg búin að ákveða enn þá hvaða námsgrein ég ætla að velja, en líklega verður verkfræðin fyrir valinu,“ segir Hólmfríður að lokum. holmfridur@frettabladid.is
Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Sjá meira