Innlent

Byssumaður reyndist vera leikari

Sem betur fer eru útköll lögreglu stundum byggð á misskilningi. Þannig var því t.d. farið í gær þegar tilkynning barst um byssumann á ferli á höfuðborgarsvæðinu.

Lögreglan brást skjótt við enda málið litið mjög alvarlegum augum. Fljótt kom hins vegar að daginn að ekki var hætta á ferðum enda var um leikfangabyssu að ræða.

Ástæðan fyrir vopnaburðinum mun hafa verið sú að „byssuna" ætlaði maðurinn að nota í atriði í stuttmynd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×