Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Grunaður um brot gegn ellefu ára dóttur sinni Hæstiréttur hefur framlengt gæsluvarðhald manns sem grunaður er um gróf kynferðisbrot gegn ellefu ára gamalli dóttur sinni. Gæsluvarðhaldið gildir til 15. júní. 26.4.2012 04:30
Aðeins verður veitt á flugu Landeigendur við Haukadalsá og fulltrúar einkahlutafélags í eigu Kenneths Johns Deurloo skrifuðu undir samning um leigu á veiðirétti í Haukadalsá um helgina. Samningurinn er til fjögurra ára; gildir frá 2013 til 2016. 26.4.2012 04:00
18 vilja hanna nýja fangelsið Átján tillögur bárust í hönnunarsamkeppni fangelsisins á Hólmsheiði. Dómnefnd sem skipuð var vegna samkeppninnar kom saman í gær til að hefja mat á tillögunum. 26.4.2012 03:00
Murdoch neitar öllum sökum Ástralski fjölmiðlakóngurinn Rupert Murdoch neitar því að hafa þegið neinn greiða frá valdamiklum mönnum, sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum hans. 26.4.2012 02:00
Sér eftir látalátum við geðlækna "Ég held að allir Norðmenn hafi séð að ég er ekki órökvís," sagði Anders Behring Breivik fyrir rétti í Ósló í gær. "Ég hef ekki svo miklar áhyggjur af því lengur." 26.4.2012 01:30
18 ára dómur látinn standa Ítalskur áfrýjunardómstóll hefur látið standa nær óbreyttan 18 ára fangelsisdóm yfir Calisto Tanzi, stofnanda mjólkurrisans Parmalat. 26.4.2012 01:00
Geta stýrt vél með hugarafli Svissneskum vísindamönnum hefur tekist að gera lömuðu fólki kleift að stýra fjarlægum vélbúnaði með hugaraflinu einu saman. 26.4.2012 00:30
Bráðabirgðastjórn í sumar Ákveðið hefur verið að þingkosningar verði haldnar í Hollandi 12. september. Þangað til verður bráðabirgðaríkisstjórn við völd undir forystu Marks Rutte forsætisráðherra, sem sagði af sér á mánudag. 26.4.2012 00:00
Frá fæðingu til 12 ára aldurs - Líðandi kvikmynd um þroska barna Hollenskur faðir og kvikmyndagerðarmaður hefur birt myndband þar sem vöxtur barna hans frá fæðingu birtist á rúmum tveimur mínútum. 25.4.2012 23:30
Áhrif mannkyns kortlögð í myndbandi Kanadískur mannfræðingur sem safnað hefur saman gögnum um veru mannkyns á Jörðinni hefur birt myndband sem sýnir áhrif okkar á plánetuna. 25.4.2012 23:00
Ástþór með nýja vefsíðu og Facebook flugmiðaleik "Nú er hægt að safna vildarpúnktum og komast frítt til útlanda með því að heimsækja Íslenska vefsíðu,“ segir í tilkynningu frá Ástþóri Magnússyni forsetaframbjóðanda. Þar segir að um sé að ræða nýjung í markaðssetningu á netinu sem sé að ryðja sér til rúms erlendis. 25.4.2012 23:09
Tyson er fallegasti bolabíturinn Tveggja ára gamall hvolpur, Tyson, var valinn sá fallegasti í árlegri fegurðarsamkeppni bolabíta í Iowa í Bandaríkjunum fyrr í vikunni. 25.4.2012 22:30
Legó íhugar að fjöldaframleiða EVE online-geimskip Hægt er að kjósa á heimasíðu Legó hvort leikfangafyrirtækið skuli hefja framleiðslu á geimförum eftir hönnun úr leiknum EVE online. Það er íslenska tölvuleikjafyrirtækið CCP sem gerir út leikinn en geimskipið var meðal annars framleitt fyrir aðdáendahátíð CCP sem var á dögunum. 25.4.2012 21:34
Obama söng um baráttumál sín Barack Obama, Bandaríkjaforseti, steig á stokk með þáttastjórnandanum Jimmy Fallon í gær. Félagarnir sungu saman undirspili hljómsveitarinnar The Roots. 25.4.2012 21:30
Egill Skallagrímsson hefði orðið framsóknarbóndi á Alþingi "Egill er mjög klikkaður. Hann er með margar greiningar, hann er mikið illmenni, jaðrar við að vera siðblindur í samskiptum. Hann er með alvarlega geðhvarfasýki og sveiflast þannig upp og niður í geðrofi. Hann er alkahólisti og í æsku var hann með mótþróaröskun,“ segir Óttar Guðmundsson geðlæknir þegar hann lýsir Agli Skallagrímssyni en Óttar hefur skrifað bók um hetjur Íslendingasagnanna þar sem hann dregur þær inn á skrifstofu til sín og greinir út frá geðlækningum. 25.4.2012 21:02
Níunda stúlkan á 100 árum varð inspector scholae í dag Ný stjórn Skólafélags Menntaskólans í Reykjavík tók við í dag en Hörn Heiðarsdóttir er inspector scholae. Hún er níunda stúlkan til að gegna því embætti í meira en hundrað ára sögu skólans. 25.4.2012 20:30
Stofna vinnuhóp um lausnir á myntvanda Íslendinga Íslensk stjórnvöld og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vinna nú að stofnun vinnuhóps sem mun hafa það hlutverk að finna lausnir á þeim vanda sem Íslendingar standa frammi fyrir í efnahags- og peningamálum. 25.4.2012 20:00
RÚV í háskerpu fyrir 2014 Í dag birti Ríkisútvarpið útboðsauglýsingu á Evrópska efnahagssvæðinu um stafræna dreifingu sjónvarps. Útboðið nær til flutnings á tveimur sjónvarpsdagskrám fyrir RÚV í háskerpu til allra landsmanna að því er fram kemur í tilkynningu frá RÚV. 25.4.2012 19:38
Grunaður um að hafa hótað fólki úr gæsluvarðhaldi Hæstiréttur Íslands hefur staðfest gæsluvarðhald yfir karlmanni sem er ákærður fyrir fjölmörg brot, meðal annars að hafa ráðist á barnsmóður sína vopnaður harmi og veitt henni áverka. Meðal gagna sem lögð voru fyrir í gæsluvarðhaldskröfunni var listi með nöfnum þar sem maðurinn hafði skrifað ákveðnar upphæðir við hvert nafn. Listinn fannst í fangaklefa hans. 25.4.2012 19:36
Allir hæstaréttardómarar vanhæfir Allir hæstaréttardómarar voru vanhæfir í máli sem flutt var í Hæstarétti í gær. Ástæðan er að annar málsaðilinn er sjálfur hæstaréttardómari. 25.4.2012 19:30
Þannig vilja flokkarnir koma Íslandi í gang Afar mismunandi sýn birtist frá forystumönnum stjórnmálaflokka um hvernig fjárfestingum verði best komið af stað í landinu. Skapa traust og festu, segja Vinstri grænir. Losun gjaldeyrishafta, segir Framsókn. Orkuuppbygging, segir Sjálfstæðisflokkur. Evrópusambandsviðræður, segir Samfylkingin. 25.4.2012 18:45
Orkuveitan ræðir við lífeyrissjóði - einkavæðing segja VG Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur samþykkt að hefja viðræður við lífeyrissjóði um aðkomu að hlutafélagi um byggingu orkuvers á Hverahlíðarsvæðinu. Formaður stjórnarinnar vonast til þess að með samningum verði hægt að komast nær því að klára fjármögnun virkjunarinnar öllum til farsældar. 25.4.2012 18:34
"Þetta eru mikil tímamót" "Fyrsta verkefnið verður að heyra í starfsmönnum kirkjunnar,“ sagði Agnes M. Sigurðardóttir, nýkjörin biskup Íslands. Hún var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis í dag og ræddi við þáttastjórnendur um nýafstaðið biskupskjör. 25.4.2012 18:00
Rúmlega 500 sjómenn mótmæla frumvarpi 537 sjómenn hafa skrifað undir mótmæli gegn frumvarpa um breytingu á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Í tilkynningu frá þeim segir að þeir mótmæli þeirri grímulausu aðför að kjörum sínum sem við blasir í þeim frumvörpum sem fram eru komin um breytingar á stjórn fiskveiða. 25.4.2012 17:59
Fær níu milljónir í skaðabætur vegna gangaslags í MR Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi íslenska ríkið til þess að greiða fyrrverandi nema Menntaskólans í Reykjavík um það bil níu milljónir króna í miskabætur. Maðurin er tólf prósent öryki eftir að hafa hálsbrotnað í svokölluðum gangaslag í MR sem haldinn var ár hvert í skólanum en hefur nú verið lagður af. 25.4.2012 17:47
Hernaðaraðgerðir gegn Sýrlandi möguleiki Yfirvöld í Frakklandi segja að Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna ætti að íhuga hernaðaraðgerðir gegn Sýrlandi ef friðaráætlun Kofi Annans fer út um þúfur. 25.4.2012 16:55
Gingrich mun draga sig í hlé Fjölmiðlar í Bandaríkjunum fullyrða að Newt Gingrich, sem nú sækist eftir útnefningu Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningar þar í landi, ætli að draga sig út úr kosningabaráttunni. 25.4.2012 15:50
Agnes verður næsti biskup Agnes M. Sigurðardóttir, sóknarprestur í Bolungarvíkurprestakalli, verður næsti biskup Íslands. Niðurstöður talningar í síðari umferð biskupskjörsins voru kunngjörðar á Dómkirkjuloftinu á fjórða tímanum í dag. Séra Sigurður Árni Þórðarson, prestur í Neskirkju, var einnig í kjöri. Nýr biskup verður vígður í lok júní. 25.4.2012 15:36
Halda alþjóðlega hjólakeppni á Íslandi Alþjóðlega hjólreiðakeppnin WOW Cyclothon verður haldin á Íslandi dagana 19. júní -22. júní. Í keppninni munu 20 fjögurra manna lið keppa sín á milli um hvaða lið mun koma fyrst í mark eftir að hafa hjólað 1332 kílómetra hringinn í kringum landið. Hjólakeppnir sem slíkar eru vinsælar erlendis og þótti aðstandum keppninnar tími til kominn að Ísland gæti boðið upp á keppni sem yrði eftirsótt á erlendri grundu, ekki síst vegna miðnætursólarinnar. Markmiðið er ekki eingöngu að hjóla til sigurs heldur einnig að styðja gott málefni. Liðin safna áheitum og í samvinnu við Barnaheill - Save the Children á Íslandi verður efnt til átaksverkefnis um heilsu og hreyfingu barna. 25.4.2012 15:28
Segir fjármálaráðuneytið hafa rænt Lífeyrissjóðnum Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri og bæjarfulltrúi í Kópavogi, segir að fjármálaráðuneytið hafi rænt Lífeyrissjóði Kópavogsbæjar. Þetta sagði hann þegar hann gaf skýrslu fyrir Héraðsdómi Reykjaness í máli gegn stjórn Lífeyrissjóðs Kópavogsbæjar og framkvæmdastjóra sjóðsins. 25.4.2012 14:04
Nýr biskup þakklátur stuðningsmönnum sínum "Nú þegar úrslit liggja fyrir í biskupskjörinu er mér þakklæti efst í huga. Þakklæti til þeirra er hvöttu mig til að gefa kost á mér til embættis Biskups Íslands,“ segir Agnes M. Sigurðardóttir, nýkjörin Biskup Íslands. Í yfirlýsingu segist hún þakklát þeim sem hafi stutt sig og hjálpað sér. "Bið ég Guð að launa það allt og blessa þau öll,“ segir Agnes. 25.4.2012 16:11
Toyota stolið Toyota Corolla árgerð 1997, eiturgrænn að lit, var stolið í úthverfi Kópavogs í gær. Bíllinn er í eigu bláfátæks námsmanns í Háskóla Íslands og er tjónið því tilfinnanlegt þótt bíllinn sé ekki verðmætur. Bílnúmerið er UX 945. 25.4.2012 14:58
Síðasti dagur vitnaleiðsla í Vítisenglamálinu Nú er að ljúka vitnaleiðslum í Vítisenglamálinu svokallaða en þar er fólk sem sagt er tengjast mótorhjólasamtökunum Vítisenglum, ákært fyrir hrottalega líkamsárás. Einnig er um meint kynferðisbrot að ræða og því hefur þinghald í málinu verið lokað. Hinir ákærðu hafa setið í varðhaldi frá því málið kom upp en þau voru handtekin í janúar. Þar á meðal er Einar "Boom" Marteinsson, sem þá var forsprakki Vítisengla. Hann hefur nú af eigin sögn hætt í félagsskapnum. 25.4.2012 14:40
Átján tillögur um nýtt fangelsi Átján tillögur bárust í samkeppni um hönnun fangelsis á Hólmsheiði í Reykjavík en frestur til að skila tillögum rann út 16. apríl síðastliðinn. Dómnefnd sem skipuð var vegna samkeppninnar kom saman í dag til að hefja mat á tillögunum. 25.4.2012 13:39
Stjórn Lífeyrissjóðs Kópavogsbæjar svarar til saka Sigrún Ágústa Bragadóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs, segist engar ákvarðanir hafa tekið um lánveitingar sjóðsins. Þessu svaraði hún þegar saksóknari spurði hana út í lánveitingar sjóðsins upp á 320 milljónir til Kópavogsbæjar í byrjun október á árinu 2009. Saksóknari telur að þessar lánveitingar hafi verið ólöglegar. Sigrún Ágústa svarar því til að stjórn sjóðsins hafi ráðið för. 25.4.2012 13:09
Misskilningur vegna merkinga á erfðabreyttum matvælum Misskilnings hefur gætt hér á landi, bæði meðal neytenda og framleiðenda, vegna merkinga á erfðabreyttum matvælum. Þetta segir matvælafræðingur hjá Matvælastofnun. Engar undantekningar eru á því að merkja skal matvæli ef þau innihalda erðabreytt efni, sama hversu lítið magnið er. 25.4.2012 12:51
Var það andsvar Ögmundar sem jók gubbupestina? Kristján L. Möller, helsti baráttumaður Vaðlaheiðarganga, segir að gubbupest sín hafi aukist þegar hann hlustaði rúmfastur í gærkvöldi á ræður sumra á Alþingi um jarðgöngin. Kristján gefur í skyn að það hafi verið andsvar Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra sem hafði þessi áhrif. 25.4.2012 12:20
Hægri grænir kynna stefnumálin á Múlakaffi Hægri grænir, flokkur fólksins, hefur opnað nýja heimasíðu og á morgun verður forysta flokksins og stefna hans kynnt á Múlakaffi. Formaður flokksins er Guðmundur Franklín Jónsson viðskiptafræðingur. 25.4.2012 12:07
Mein Kampf endurútgefin Yfirvöld í Bæjaralandi í Þýskalandi undirbúa nú endurútgáfu ritverksins Mein Kampf sem Adolf Hitler skrifaði árið 1924. 25.4.2012 11:56
Nýr flughermir tekinn í notkun Flugskóli Íslands hefur látið uppfæra flughermi sinn sem mun gerbreyta allri þjálfun flugnema hér á landi. Flughermirinn var uppfærður hjá franska framleiðandanum ALSIM og sá Eimskip um að flytja flugherminn til uppfærslu í Frakklandi og aftur heim til Íslands. 25.4.2012 11:56
Bræður dæmdir fyrir líkamsárás á Ráðhústorginu Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi bræður á þrítugsaldri fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Annar bróðirinn hlaut átta mánaða fangelsisdóm, en hann var á skilorði vegna annars brots. Sex mánuðir dómsins eru skilorðsbundnir. 25.4.2012 11:46
Braut gróflega gegn stjúpdóttur sinni Rösklega fimmtugur karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir gróf kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni. 25.4.2012 11:20
Umsóknir um strandveiðar streyma inn Umsóknir um strandveiðileyfi í sumar streyma nú inn til Fiskistofu, eftir að farið var að taka á móti þeim í gær. Talið er að hátt í sjö hundruð bátar muni stunda veiðarnar í sumar. 25.4.2012 11:18
Líkur á að Maddie sé á lífi Lundúnalögreglan, Scotland Yard, segir að enn sé möguleiki á að Madeleine McCann sé á lífi. Tæknideild lögreglunnar opinbera ljósmynd í dag sem sýnir hvernig Maddie litle myndi líta út í dag, fimm árum eftir að hún hvarf í Portúgal. 25.4.2012 11:18
Telja fundinn legstað Magnúsar lagabætis Rannsóknir á dómkirkjunni í Bergen í Noregi hafa leitt í ljós það sem menn telja vera hinsta hvílustað Magnúsar lagabætis Noregskonungs. Magnús var sonur Hákonar gamla Hákonarsonar og ríkti yfir Noregi frá 1263 til 1280. 25.4.2012 11:00