Fleiri fréttir

Birnir sluppu úr dýragarði - tvær konur látnar

Birnir sem sluppu úr búrum sínum í dýragarði í Japan hafa drepið tvær konur í Akita héraði. Óljóst er hve margir birnir sluppu út en veiðimenn hafa skotið nokkra í dag. Konurnar tvær sem fundist hafa látnar eru taldir vera starfsmenn í garðinum. Um fjörutíu dýr eru í garðinum og eru flest þeirra birnir. Garðurinn er lokaður yfir vetrartímann og nú liggur snjór yfir öllu svæðinu. Íbúum í nærliggjandi bæum hefur verið skipað að halda sig innandyra og gefið var frí í skólum í dag vegna málsins.

Forsætisráðherrann þakkaði fyrir hlýjar móttökur

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra bauð Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, velkominn til landsins við upphaf fundar þeirra í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Hún sagði ánægjulegt að forsætisráðherrann væri kominn til landsins og vonandi yrði heimsóknin til þess að styrkja tengsl ríkjanna.

Félagar úr Falun Gong mættir til að mótmæla

Félagar úr Falun Gong hafa tekið sér stöðu á Arnarhóli til þess að mótmæla ofríki kínverskra stjórnvalda. Falun Gong vakti gríðarlega athygli á Íslandi þegar þeir komu hingað árið 2002 til að mótmæla á sama tíma og Jiang Zemin, þáverandi forseti Kína, kom í opinbera heimsókn.

Hvern vilt þú sjá á Bessastöðum?

Lesendur Vísis geta í dag og fram yfir helgi tekið þátt í könnun á vefnum og látið í ljós skoðun sína á því hver eigi að verða næsti forseti Íslands. Sjö hafa þegar tilkynnt um framboð sitt en framboðsfrestur rennur út 25. maí. Sjálfar kosningarnar verða síðan á laugardaginn 30. júní.

Aukning á slysum og tjónum vegna rafvespa

Tryggingafélagið Sjóvá finnur fyrir aukningu á slysum og tjónum vegna notkunar rafvespa hér á landi. Ástæðan er fyrst og fremst mikil aukning á rafvespum í umferð hér á landi. Helstu notendur rafvespa eru unglingar sem ekki hafa fengið kennslu til þess að stjórna vélknúnum ökutækjum í umferðinni.

Farþegaþota hrapaði í Pakistan

Farþegaflugvél með 127 farþega innanborðs hrapaði í dag nálægt flugvellinum í Islamabad í Pakistan. Pakistanskir miðlar segja að vélin hafi verið frá Bhoja flugfélaginu og á leið frá Karachi til Islamabad þegar hún hrapaði. Óljóst er hvort einhverjir hafi komist af en björgunarsveitir eru á leið á slysstaðinn.

Jóhanna tók á móti Wen Jiabao

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra var á Keflavíkurflugvelli þegar Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, lenti ásamt föruneyti sínu. Sendinefndin kom með Boeing 747 þotu. Jiabao mun heimsækja Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, á Bessastöðum í kvöld. Á meðfylgjandi myndskeiði getur þú séð þegar tekið er á móti Jiabao í Keflavík.

Súlukóngurinn með stóra hjartað

Það er óhætt að segja að Ásgeir Þór Davíðsson hafi verið umdeildur maður. Hann rak lengi vel nektardansstaði og hafði sínar skoðanir á hlutunum, sem fylgdu ekki alltaf meginstraumi þjóðfélagsins. Samferðarfólk hans segir Ásgeir hafa verið með stórt hjarta fjölskyldukær og ættrækinn. Og hann var góður við náungann að sögn þeirra sem til hans þekktu.

Ronan Keating mætir á Þjóðhátíð

Poppstjarnan Ronan Keating hefur boðað komu sína á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í sumar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skiptuleggjendum hátíðarinnar en Keating kemur til Eyja ásamt tíu manna hljómsveit.

Eldur í bíl við Sporðagrunn

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út fyrir skömmu en tilkynnt var um eld í bifreið við Sporðagrunn. Nánar verður sagt frá málinu síðar.

Færðu íslensku þjóðinni augnlækningatæki

Lionshreyfingin í Íslandi færði í morgun íslensku þjóðinni að gjöf augnlækningatæki sem nú sárvantar á Landspítalann. Þetta er gert í tilefni af 60 ára afmæli Lions hér á landi. Viðstaddur afhendinguna var alþjóðaforseti Lions, Wing-Kun Tam, en hann er heiðursgestur afmælisþingsins sem hefst 20 í dag.

Öldruð hjón týndu 3000 evrum á Suðurlandi

Hjón á áttræðisaldri týndu umslagi sem í voru 3000 evrur mest í 200 evru seðlum síðdegis í fyrradag. Hjónin fóru í Íslandsbanka á Selfossi á milli klukkan 14 og 16 á miðvikudag þar sem þau tóku út gjaldeyrinn til að nota í utanlandsferð sem þau voru á leið í. Þegar þau voru að búa sig til ferðarinnar í gær fundu þau ekki umslagið með gjaldeyrinum. Hugsanlegt er að umslagið hafi glatast á Selfossi eða í Hveragerði. Lögreglan biður fólk að hafa augun hjá sér á þessum tilgreindu stöðum og líta eftir umslagi sem hugsanlega gæti legið í götunni, í görðum eða annars staðar og hafa samband við lögregluna á Selfossi í síma 480 1010 finnist umslagið með evrunum.

Boða til mótmæla við Hörpuna vegna Tíbets

Boðað hefur verið til mótmæla við Hörpuna síðar í dag á meðan á veislu til heiðurs forsætisráherra Kína stendur. Hópurinn ætlar að mómæla vaxandi hörku kínverskra stjórnvalda í garð Tíbeta.

Sóttu rúmar 100 milljónir til Íslenskrar getspár

Hjón sem unnu 108 milljónir í Víkingalottói á dögunum mættu til Getspár í morgun að vitja vinnings síns. Húsbóndinn hafði keypt 5 raða Víkingalottómiða í Olís Akureyri og vann stærsta happadrættisvinning sem hefur unnist á Íslandi. Hjónin hafa ákveðið að leyfa börnunum sínum að njóta góðs af vinningnum.

Enginn eldur á Ásbrú - bara háþrýstiþvottur

Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Suðurnesja voru kallaðir á Ásbrú, á gamla varnarsvæðinu, en þar var tilkynnt um reyk undan þaki húss. Þegar þeir mættu á staðinn kom í ljós að enginn eldur var laus en verið var að háþrýstiþvo húsið. Við það myndaðist einskonar vatnsgufa sem einhver hélt að væri reykur og því var liðið kallað út.

Geiri á Goldfinger látinn

Ásgeir Þór Davíðsson lést seint í gærkvöldi. Ásgeir, eða Geiri á Goldfinger eins og hann var að jafnan kallaður, var 62 ára gamall þegar hann lést. Ásgeir þótti með líflegri persónuleikum bæjarins en hann rak umdeildan nektardansstað í Kópavogi og hafði áður rekið fjölmarga skemmtistaði víða um borg. Meðal annars Hafnarkrána.

Kínverska forsætisráðherrans beðið með eftirvæntingu

Kinverski sendiherrann og kona hans mættu prúðbúin að Hóteli Reykjavík Natura í morgun. Þaðan fóru svo fjölmargar rútur til Keflavíkur. Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, er væntanlegur til landsins klukkan tólf á hádegi ásamt um 100 manna fylgdarliði. Hann mun funda með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í Þjóðmenningarhúsinu í dag og Ólafi Ragnari Grímssyni forseta á Bessastöðum.

Vill reglur um aðgang allra að landsleikjum

"Mér finnst eins og mörgum öðrum að það sé alls óviðunandi þegar stórviðburðir eiga sér stað og eru í beinum útsendingum, hvort sem það er menning, listir eða íþróttaviðburðir, þá skuli sú staða koma upp ítrekað að það er boðið upp á þetta í læstri dagskrá,“ segir alþingismaðurinn Lúðvík Geirsson, sem hefur innt Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráðherra eftir því með skriflegri fyrirspurn á þingi hvort til standi að koma í veg fyrir þetta hvað íþróttirnar varðar.

Nota gervitunglamyndir við að greina útbreiðslu lúpínu

Notkun gervitunglamynda við að meta útbreiðslu lúpínu á Íslandi lofar góðu. Nú hefur verið þróuð aðferðafræði við greiningu myndanna og niðurstöður liggja fyrir úr fyrsta hluta samstarfsverkefnis stofnana og háskóla. Frekari rannsóknir eru fyrirhugaðar í sumar.

Miklu fleiri karlar stunda starfsnám en konur

Um tveir af hverjum þremur nemendum á framhaldsskólastigi stunda nám á bóknámsbrautum en um þriðjungur er í starfsnámi. Hlutfall nemenda í starfsnámi hefur lækkað lítillega frá síðasta ári og hafa ekki verið færri nemendur í starfsnámi síðasta áratuginn. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar um skólamál sem birtust í morgun. Hlutfall nemenda í starfsnámi er mun hærra meðal karla en kvenna, eða tæp 39% á móti 28% hjá konum.

SGS styður kvótafrumvörpin en vill breytingar

Starfsgreinasamband Íslands (SGS) telur að framlögð frumvörp ríkisstjórnar um stjórn fiskveiða og veiðigjald séu mikilvægt skref í þá átt að eyða óvissu sem ríkt hefur á undanförnum árum um framtíð og rekstur fiskvinnslu og útgerðar á Íslandi.

Enn á huldu með hulduefnið

Ráðgátan um hulduefni í alheiminum varð enn dularfyllri í fyrradag eftir að ný rannsókn stjörnufræðinga í Síle gekk í berhögg við fyrri kenningar um eðli efnisins.

Tugmilljóna dósasvindl á ári

Neytendur og framleiðendur drykkja í skilaskyldum umbúðum snuða Endurvinnsluna árlega um tugi milljóna króna og hefur svindlið farið vaxandi.

Ákveðið að loka 16 kirkjum í Kaupmannahöfn

Héraðsráð Kaupmannahafnar hefur ákveðið að loka 16 kirkjum í borginni. Ástæðan fyrir þessu er að prestar messa á sunnudögum í síauknum mæli fyrir tómum kirkjum í borginni.

Meirihlutinn bendir á Sigrúnu og Gunnar

Bæjarfulltrúinn Gunnar Birgisson og Sigrún Ágústa Bragadóttir, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar (LSK), bættu við setningu í tilkynningu til Fjármálaeftirlitsins (FME) þar sem var fullyrt að lánveitingar sjóðsins til Kópavogsbæjar stæðust lög.

Wen Jiabao til landsins í dag

Kínverski forsætisráðherrann Wen Jiabao og föruneyti hans kemur til landsins í dag í tveggja daga opinbera heimsókn.

Ferðamaðurinn komst úr Esjunni skömmu fyrir miðnættið

Björgunarsveitarmenn Slysavarnafélagsins Landsbjargar komu niður úr Esjuhlíðum með hollenskan ferðamann á ellefta tímanum í gærkvöldi, en hann hringdi eftir hjálp síðdegis, eftir að hann var kominn í sjálfheldu.

Skipverjar á færeyskum línubát yfirheyrðir í dag

Færeyski línubáturinn, sem áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar stóð að meintum ólöglegum veiðum suður af Vestmannaeyjum í gærmorgun, kom til Vestmannaeyja laust fyrir miðnætti og verða skipverjar yfirheyrðir í dag.

Páfinn setur ofan í við bandarískar nunnur

Páfinn hefur falið þremur bandarískum biskupum að setja ofan í við stærstu samtök nunna í Bandaríkjunum þar sem samtökin hafi vikið um of frá réttum kennisetningum kaþólsku kirkjunnar.

Aðstandendur fórnarlamba Breivik varaðir við réttarhaldinu í dag

Aðstandendur fórnarlamba fjöldamorðingjans Anders Breivik hafa verið varaðir við að sitja í réttarhaldinu yfir honum í dag. Þá verður farið nákvæmlega í gegnum hvert þeirra 69 morða sem Breivik framdi í Útey og Breivik beðinn að útskýra gjörðir sínar í smáatriðum.

Segist hafa ætlað að afhöfða Brundtland

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik sagðist í vitnastúku í gær hafa ætlað að afhöfða Gro Harlem Brudtland, fyrrum forsætisráðherra Noregs og leiðtoga norska verkamannaflokksins. Hann sagðist einnig hafa ætlað að myrða alla á Útey þann 22. júlí síðastliðið sumar.

Áminntu Nesskel án ástæðu

Umhverfisstofnun hefur afturkallað áminningu sem var veitt Nesskel vegna tveggja frávika frá starfsleyfi fyrirtækisins. Áminningin var veitt þann 2. apríl á þeim forsendum að fyrirtækið hefði ekki sent stofnuninni staðfestingu eða áætlun um um úrbætur vegna frávikanna.

Eva Joly stal senunni

Eva Joly stal senunni í frönskum fjölmiðlum í gær, en hún er þessa dagana í kosningabaráttu fyrir frönsku forsetakosningarnar. Fyrsta umferð kosninganna fer fram á sunnudaginn. Joly bauð fjölmiðlamönnum í strætóferð um götur Parísar í gær. Í bíltúrnum ræddi hún allan þann óskunda sem hún telur að Nicholas Sarkozy, núverandi forseti, hafi gert í forsetatíð sinni.

Björgunarsveitamenn komnir að manninum í Esjunni

Björgunarsveitarmenn eru komnir að manninum sem lenti í sjálfheldu í Esjunni í dag, en hann var staddur nálægt klifursvæði í Kistufelli. Björgunarsveitarmenn munu fylgja honum niður en áætlað er að niðurleiðin taki um eina og hálfa klukkustund.

Íslendingar þurfa að greiða meira en aðrir

Íslendingar sem geta ekki eignast börn með eðlilegum hætti þurfa að greiða mun meira en aðrir Norðurlandabúar fyrir að láta draum sinn rætast. Styrkir íslenska ríkisins til verðandi kjörforeldra er til að mynda helmingi lægri en í Danmörku.

Gauraflokkur og Stelpur í stuði njóta sívaxandi vinsælda

Starfið í Vatnaskógi hefst þetta árið eins og venjulega á því að Gauraflokkur verður starfræktur þar fyrstu vikuna í júní. Gauraflokkur er sérhópur í sumarbúðunum sem er haldinn fyrir stráka með ADHD eða skyldar raskanir. Þetta er í sjötta skiptið sem tekið er á móti drengjum í Gauraflokki.

Hvetja Füle til að setja aðildarviðræður við Íslendinga á ís

Fulltrúar í sjávarútvegsnefnd Evrópuþingsins hafa farið fram á það við Stefan Füle, stækkunarstjóra Evrópusambandsins, að hann stöðvi viðræður við Ísland um aðild að Evrópusambandinu þangað til að lausn hefur náðst í makríldeilunni. Frá þessu er greint á vefnum Fishnewseu.com.

Slasaða konan flutt með þyrlu í bæinn

Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti konuna sem slasaðist í svifflugdrekaslysi á slysadeild í Reykjavík. Konan flaug svifdreka á hamra í Núpafjalli, rétt við Hveragerði, um klukkan þrjú í dag. Hún er fótbrotinn. Félagar úr þremur björgunarsveitum fóru að konunni en svo bratt var upp í hamrana að öruggast þótti að láta þyrluna flytja hana til baka.

Fótbrotin eftir slys í svifflugi

Björgunarsveitarmenn voru kallaðir að Núpafjalli, rétt við Hveragerði, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna svifflugdrekakonu sem lenti í klettabeltinu þar. Talið er að konan sé fótbrotinn, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi.

Ari Trausti gefur kost á sér

Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur ætlar að gefa kost á sér í embætti forseta Íslands. Ari Trausti boðaði til blaðamannafundar á heimili sinu í dag þar sem hann greindi frá þessu. Rúm vika er siðan Ari Trausti boðaði til blaðamannafundarins. Ari Trausti er Íslendingum kunnur fyrir störf á fræðisviði sinu en hann sagði jafnframt veðurfréttir á Stöð 2 um árabil.

Sjá næstu 50 fréttir