Fleiri fréttir

Enginn slasaðist illa í rútuslysi í Oddskarði

Enginn slasaðist illa þegar rúta með átta farþegum fór út af veginum í Oddskarði rétt fyrir klukkan átta í kvöld. Björgunarsveitirnar Brimrún á Eskifirði og Gerpir á Norðfirði voru kallaðar út og fluttu björgunarsveitarmenn farþegana á heilsugæsluna á Eskifirði.

Rútuslys í Oddskarði

Björgunarsveitirnar Brimrún á Eskifirði og Gerpir á Norðfirði voru kallaðar út rétt fyrir klukkan átta í kvöld þegar lítil rúta fór útaf veginum í Oddskarði með átta manns innanborðs.

J.K. Rowling undirbýr nýja skáldsögu

Rithöfundurinn J.K. Rowling, sem gerði garðinn frægan með skáldsögunum um Harry Potter, vinnur nú að nýrri bók. Gríðarleg eftirvænting er fyrir bókinni en hún verður ætluð eldri lesendum.

Neydd til þess að hlaupa til dauða fyrir að stela sælgæti frá ömmu

Stjúpmóðir og amma níu ára gamallar stúlku í Alabama ríki í Bandaríkjunum hafa verið kærðar fyrir að valda dauða stúlkunnar. Hún var neydd til þess að hlaupa stanslaust í þrjá tíma sem varð til þess að hún féll niður, fékk flog og lést nokkrum dögum síðar á spítala. Talið er að dánarmein stúlkunnar sé ofþornun. Ofþornun getur bæði komið til vegna ónógrar vatnsdrykkju og vegna mikils vökvataps.

Talsverður áhugi á listaverkum eftir Sævar Cieselski

Málverk eftir Sævar Cieselski er nú á vefuppboði hjá Gallerí Fold. Verkið er selt ásamt verkum nokkura þekktustu listamanna landsins en vefuppboðin hafa gefið nýjum og óþekktum listamönnum tækifæri. Gallerí Fold byrjaði fyrir tæpu ári síðan að halda uppboð á netinu, þar geta áhugasamir kaupendur skoðað málverk og listmuni og boðið í rafrænt. Uppboðin standa í tíu daga og hafa viðtökurnar verið góðar.

Nýtt líf uppselt hjá útgefanda

"Það hefur ekki gerst áður að blað seljist upp daginn sem það kemur út. Það er alveg einsdæmi," segir Karl Steinar Óskarsson, útgáfustjóri hjá Birtíngi, sem gefur meðal annars út tímaritið Nýtt líf. Fyrirtækið hefur fengið gríðarlega mikil og sterk viðbrögð við nýjustu útgáfu af blaðinu, en eflaust á umfjöllun blaðsins um erótísk ástarbréf Jóns Baldvins Hannibalssonar til frænku eiginkonu sinnar, stóran þátt í sölunni.

Ræningja leitað á Akureyri

Rán var framið í húsnæði Happadrætti háskólans við Geislagötu á Akureyri nú fyrir stundu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu fór einstaklingur inn í útibúið og komst á brott með eitthvað af peningum. Lögreglan vill ekki gefa upp hvort að maðurinn hafi verið vopnaður. Unnið er að rannsókn málsins og er mannsins nú leitað. Frekari upplýsingar þegar þær berast.

Gekk berserksgang í breska þinghúsinu

Eric Joyce, þingmaður breska verkamannaflokksins, hefur verið leystur frá störfum eftir að hann var handtekinn í kjölfar slagsmála í breska þinghúsinu.

Obama biðst afsökunar á Kóran-brennu

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hefur beðið afgönsku þjóðina afsökunar eftir að bandarískir hermenn brenndu nokkur eintök af Kóraninum.

Bíll sprengdur í loft upp með fjarstýringu - tólf fórust

Tólf fórust og yfir þrjátíu særðust þegar að bílsprengja sprakk í grennd við strætóstoppistöð í norðvesturhluta Pakistan í morgun. Um tíu bílar skemmdust í árásinni en samkvæmt yfirvöldum var sprengjan sprengd með fjarstýringu úr góðri fjarlægð. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á tilræðinu.

Mannskæðar sprengjuárásir í Írak

Að minnsta kosti 50 eru látnir eftir hrynu sprengju- og skotárása í Írak. Árásirnar áttu sér flestar stað við lögreglustöðvar og öryggistálma í hverfum Shia-múslima.

Fiseindir ferðast ekki hraðar en ljósið

Vísindamenn telja að gallaður ljósleiðari hafi orsakað niðurstöður sem bentu til að fiseindir ferðuðust hraðar en ljós. Hefðu niðurstöðurnar verið réttar hefði þetta verið merkilegasta vísindauppgötvun síðustu áratuga.

Kolfinna: Málið var afgreitt fyrir mörgum árum

Kolfinna Baldvinsdóttir, dóttir Jóns Baldvins Hannibalssonar og Bryndísar Schram, segir að það sé ólýsanlegt að vera stödd erlendis nú þegar fjölmiðlar fjalla um umfjöllun Nýs Lífs. Nýtt líf segir í dag frá erótískum bréfum sem Jón Baldvin sendi Guðrúnu Harðardóttur, frænku Bryndísar. Fyrstu bréfin fékk hún þegar hún var 10 ára gömul.

Kínverjar og Norðmenn í köldu stríði

Norðurskautsráðið gæti orðið að vopni í höndum Norðmanna í pólitískri deilu þeirra við Kínverja, en Kínverjar hafa fryst Norðmenn og norskan útflutning algjörlega eftir að þeir veittu kínverskum andófsmanni Nóbelsverðlaun.

Landsdómsmál úr nefnd í næstu viku

Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar og eftirlitsnefndar Alþingis, segir að þingsályktun Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að fella niður málshöfðun á hendur Geir Haarde verði afgreidd út úr nefnd í næstu viku.

Hvetur fólk til að kaupa ekki Nýtt líf

Þráinn Bertelsson, þingmaður VG, hvetur fólk til þess að kaupa ekki nýjasta tölublaðið af Nýju lífi. Í blaðinu er birt grein um samskipti Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra, við stúlku á unglingsaldri fyrir um áratug síðan. Stúlkan er í fjölskyldu Bryndísar Schram, eiginkonu Jóns.

Málið afgreitt úr nefnd í næstu viku

Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar og eftirlitsnefndar Alþingis, segir að þingsályktun Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að fella niður málshöfðun á hendur Geir Haarde verði afgreidd út úr nefnd í næstu viku. Bjarni Benediktsson og Birgir Ármannsson, flokksbróðir hans, vöktu athygli á málinu á Alþingi í dag. Birgir sagði að í þingsköpum væru úrræði til að fá málið á dagskrá Alþingis jafnvel þótt ekki væri meirihluti fyrir því í nefndinni að afgreiða það. Saksóknari Alþingis sagði í Morgunblaðinu í dag að hann vonaðist til þess að niðurstaða fengist í málið áður en aðalmeðferð þess hefst 5. mars næstkomandi.

Vatnsleki kom upp um kannabisræktun

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í miðborginni í fyrradag. Í tilkynningu frá lögreglu segir að við húsleit á áðurnefndum stað hafi fundist um 60 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar en þær vógu um 23 kg.

Bréf Jóns Baldvins ollu reiði, sorg og biturð

Guðrún Harðardóttir segir að bréfin sem Jón Baldvin Hannibalsson sendi henni á sínum tíma hafi gert hana hrædda og ástæða þess að hún hefur kosið að greina frá þeim nú sé sú að hún hafi fengið nóg. Guðrún segir í viðtali í nýjasta tölublaði Nýs lífs, þar sem bréf Jóns Baldvins eru birt, að hún hafi reglulega fundið fyrir reiði, sorg og biturð, og því hafi hún kosið að koma þessu frá sér.

Bílar fóru út af veginum í Hveradalabrekku

Að minnsta kosti tveir bílar hafa runnið út af veginum í Hveradalabrekku í morgun vegna hálku og éljagangs. Hálka er víða á Suðurlandi, en auk Hellisheiði eru hálkublettir í Þrengslum. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er einnig hálka á Lyngdalsheiði og á efri hluta Biskupstungnabrautar en annars víða hálkublettir í uppsveitum Suðurlands. Snjóþekja er á Sólheimasandi og austur að Vík í Mýrdal.

Kærir Snorra í Betel til lögreglu

Pétur Maack, sálfræðingur á Akureyri, ætlar að kæra Snorra Óskarsson, kennara í Brekkuskóla á Akureyri, til lögreglu. Ástæðan er ummæla Snorri viðhafði um samkynhneigða á vefsíðu sinni. Í aðsendri grein sem Pétur skrifar í vikublaðið Akureyri segir hann að óvissa virðist vera fyrir hendi hvar mörk tjáningarfrelsis liggi og þess vegna kæri hann. Málsmetandi menn hafi sakað skólayfirvöld á Akureyri um að brjóta gegn tjáningarfrelsi Snorra. Pétur segir jafnframt í greininni að á Íslandi sé skólaskylda og þess vegna verði að ríkja fullkomið traust á milli heimils og skóla. Skólinn verði að gera ráð fyrir að í nemendahópnum sé fólk af öllu tagi og nemendurnir, skjólstæðingar skólans, komi frá alls konar heimilum og úr alls konar fjölskyldum. Þegar Vísir hafði samband við Pétur í morgun sagðist hann ekki vera búinn að fara með kæruna til lögreglu en hann hygðist gera það í dag.

Þóra: Umfjöllunin krafðist ekki skýringa Jóns Baldvins

Þóra Tómasdóttir, ritstjóri tímaritsins Nýs Lífs segir að umfjöllun nýjasta tölublaðsins er varðar Jón Baldvin Hannibalsson og bréfaskriftir hans til unglingsstúlku, byggi á gögnum úr lögreglumáli, meðal annars bréfum sem hann hefur gengist við að hafa ritað. Umfjöllunin hafi því að hennar mati ekki krafist viðbragða af hans hálfu.

Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfunum

Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi ráðherra og sendiherra , biðst í Fréttablaðinu í dag afsökunar á því að hafa árið 2001 sent 16 ára frænku eiginkonu sinnar bréf, sem á köflum voru erótísk. Jafnframt erótíska bók eftir Vargas Llosa.

Ný prinsessa fædd í Svíþjóð

Victoria Svíaprinsessa fæddi sitt fyrsta barn í morgun. Um er að ræða fallega og velskapaða prinsessu en hinn stolti faðir, Daniel prins, tilkynnti um fæðinguna fyrir nokkrum mínútum. Hann segir að dóttirin sé falleg og velsköpuð. Hún vó 13 merkur og var 51 sentimetri á lengd.

Ráðherrar kannast ekki við tafir vegna lögreglurannsóknar

Í tímaritinu Nýju Lífi eru birt kynferðisleg bréf sem Jón Baldvin Hannibalsson fyrrum ráðherra og sendiherra sendi systurdóttur eiginkonu sinnar. Stúlkan kærði Jón en málið var fellt niður. Tveir fyrrverandi ráðherrar hafna því í samtali við fréttastofu að hafa tafið rannsókn málsins.

Segir útlitið á eldsneytismarkaði svart

"Þetta sligar svo marga," sagði Runólfur Ólafsson, framkvæmdarstjóri FÍB, í viðtali í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hann ræddi um hækkanir á eldsneytisverði.

Upplýsingar um leiguverð verða birtar mánaðarlega

Þjóðskrá Íslands birtir í fyrsta sinn á morgun upplýsingar um húsaleigu eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu og hyggst hér eftir birta mánaðarlega leiguverð og vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu. Í sameiginlegri tilkynningu frá stofnununum segir að á síðustu mánuðum hafi verið haft samstarf um skráningu upplýsinga um leiguverð úr þinglýstum leigusamningum. Hingað til hafi Þjóðskrá aðeins birt upplýsingar um fjölda leigusamninga sem þinglýst er í hverjum mánuði en samkomulag við Íbúðalánasjóð um kostun skráningar gerir kleift að skrá líka fjárhæð húsaleigu, staðsetningu og eiginleika fasteignar.

Ógnaði starfsmanni með úðabrúsa

Ræninginn sem réðst inn í húsnæði Happadrættis Háskóla Íslands á Akureyri í hádeginu í dag ógnaði starfsmanni í afgreiðslu með úðabrúsa. Hann tók svo peninga úr afgreiðslukassanum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er maðurinn grannur, lágvaxinn, klæddur dökkleitum buxum, í úlpu, með mótórhjólahjálm á höfði og með bakpoka. Þeir sem geta gefið upplýsingar um grunsamlegar mannaferðir á þessum slóðum um þetta leiti eru vinsamlegast beðnir um að láta lögregluna á Akureyri vita í síma 464-7705.

Rannsókn á nauðgunarmálum lokið

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið rannsókn sinni á tveimur nauðgunarkærum á hendur Agli "Gillz" Einarssyni. Málið hefur nú verið sent til ákærusviðs lögreglunnar sem mun taka ákvörðun um það hvenær það verði sent til ríkissaksóknara.

Tveggja daga þjóðarsorg í Argentínu

Forseti Argentínu lýsti í morgun yfir tveggja daga þjóðarsorg í landinu eftir hörmulegt lestarslys í höfuðborginni Buenos Aires í gær. Fimmtíu manns fórust í slysinu og á sjöunda hundrað manna slösuðust.

Ummerki um olíu frá Júratímabili á Drekasvæðinu

Nýjar rannsóknir á Drekasvæðinu, þar sem Íslendingar gera sér vonir um að olíu sé að finna, gætu rennt stoðum undir þær vonir. Á heimasíðu Orkustofnunar er greint frá rannsóknum tveggja olíuleitarfélaga, TGS og Volcanic Basin Petroleum Research.

Biðst afsökunar á "erótísku“ bréfi

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra, biðst í Fréttablaðinu í dag afsökunar á því að hafa árið 2001 sent sextán ára frænku eiginkonu sinnar bréf sem á köflum voru erótísk. Tímaritið Nýtt líf fjallar um málið í dag.

Ákærður fyrir henda flösku í lögreglubíl

„Sé ég eftir þessu? Já, ætli það ekki. Veskið mitt sér líka eftir þessu,“ segir rapparinn Emmsjé Gauti, sem hefur verið ákærður fyrir að henda glerflösku í lögreglubíl.

Strauss-Kahn laus úr haldi lögreglunnar

Dominique Strauss-Kahn fyrrum forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var látinn laus úr haldi frönsku lögreglunnar í borginni Lille í gærkvöldi.

Innbrot í Húsaskóla

Brotist var inn í Húsaskóla í Grafarvogi í nótt og var þjófurinn handtekinn á staðnum. Frekari málsatvik liggja ekki fyrir. Það var líka gerð tilraun til innborts í hús við Antmannsstíg en þjófurinn forðaði sér áður en lögregla kom á vettvang.

Sacha Cohen bannað að koma á Óskarsverðlaunahátíðina

Ákveðið hefur verið að banna breska gamanleikaranum Sacha Cohen að vera með á Óskarverðlaunahátíðinni í næsta mánuði þótt að myndin Hugo sem hann leikur aðalhlutverk í sé tilnefnd til nokkurra verðlauna.

Svarti dauði fer ekki í sölu í vínbúðunum

Bjór kenndur við svarta dauða verður ekki seldur í Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) vegna þess að á bjórflöskunum stendur „Drekkið í friði“. Eigandi vörumerkisins hefur kært ákvörðun ÁTVR um að taka bjórinn ekki í sölu til fjármálaráðuneytisins.

Þvottavél á hreyfingu olli vatnsleka

Þvottavél á baðherbergi í fjölbýlishúsi í Breiðholti tók upp á því um eitt leitið í nótt, að labba af stað og fyrir hurðina inn á baðið. Um leið slitnaði vatnsslangan inn á vélina þannig að vatn fór að leka og hringdi húsráðandi þá á slökkviliðið.

Sjá næstu 50 fréttir