Innlent

Biðst afsökunar á "erótísku“ bréfi

Jón Baldvin Hannibalsson
Jón Baldvin Hannibalsson
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra, biðst í Fréttablaðinu í dag afsökunar á því að hafa árið 2001 sent sextán ára frænku eiginkonu sinnar bréf sem á köflum voru erótísk. Tímaritið Nýtt líf fjallar um málið í dag.

Fréttablaðið hefur ekki séð umrædd bréf, en Jón Baldvin lýsir þeim í aðsendri grein í blaðinu í dag. Þar segist hann hafa sent stúlkunni, sem þá var skiptinemi í Venesúela, bók eftir Vargas Llosa um samskipti Norður- og Suður-Ameríku. Bæði bókin og bréf sem fylgdi séu „á köflum erótísk". Hann segir það hafa verið dómgreindarbrest, hvorugt hafi átt erindi við stúlkuna.

Jón Baldvin segir stúlkuna hafa kært sig fyrir kynferðislega áreitni á grundvelli bréfanna árið 2005. Kærunni hafi verið vísað frá sem tilefnislausri. Þá hafi saksóknari ákveðið að rannsaka sérstaklega árið 2006 hvort refsivert væri að skrifa slík bréf í Bandaríkjunum, þar sem Jón Baldvin bjó á þeim tíma, eða í Venesúela. Því hafi síðar verið vísað frá.

„Öllum verður okkur á í lífinu. Öll þurfum við einhvern tíma á fyrirgefningu að halda. Ég harma það alla daga að hafa valdið fólki sem mér þykir vænt um í minni nánustu fjölskyldu sárindum og hugarangri að ósekju. Ég hef viðurkennt mína sök og beðist fyrirgefningar," skrifar Jón Baldvin í Fréttablaðinu í dag.


Tengdar fréttir

Jón Baldvin krefst þess að sjá umfjöllun Nýs Lífs - íhugar ella lögbann

Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi ráðherra og sendiherra krefst þess að fá að sjá umfjöllun Nýs Lífs um hann sem birtist í nýjasta tölublaðinu sem kemur út á morgun. Hann segir ennfremur skýlausa kröfu að hann fái að svara fyrir sig í sama blaði. Ella íhugi hann að sækjast eftir lögbanni á dreifingu þess. Þetta staðfestir Þóra Tómasdóttir ritstjóri tímaritsins í samtali við fréttastofu en hún hefur ekki svarað kröfu Jóns Baldvins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×