Fleiri fréttir

Forvarnir spara umtalsvert fé

Forvarnarstarf í kynferðisbrotum gegn börnum er samfélaginu nauðsynlegt og sparar til lengri tíma mikið fjármagn. Þetta er meðal þess sem kemur fram í fyrirlestri Sigríðar Björnsdóttir, verkefnastjóra Blátt áfram, á málþinginu Framtíð barna sem haldið verður í Öskju í Háskóla Íslands í dag.

Þjónustumiðstöð á nýjum gatnamótum

Sveitarfélagið Árborg hefur veitt vilyrði fyrir sex hektara lóð undir nýja verslunar- og þjónustumiðstöð fyrir ferðamenn á Suðurlandi. Miðstöðin kallast Miðja Suðurlands og á að rísa við fyrirhuguð gatnamót Suðurlandsvegar og Biskupstungnabrautar þegar hringvegurinn verður fluttur norðaustur fyrir Selfoss.

Árásarmaður leystur úr haldi

Hæstiréttur hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra yfir manni sem hefur játað alvarlega líkamsárás á eldri mann á Þórshöfn fyrr í mánuðinum.

Tveggja daga heimsókn SÞ til Íran skilaði ekki árangri

Sendinefnd Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar segist ekki hafa haft erindi sem erfiði í tveggja daga heimsókn sinni til Írans í vikunni. Beiðni þeirra um að fá að skoða herstöðina í Parchin var hafnað af írönskum stjórnvöldum.

Saga ASÍ kemur út í október

Skrifað hefur verið undir útgáfusamning vegna sögu Alþýðusambands Íslands (ASÍ) sem koma á út í tveimur bindum næsta haust.

Missti vinnuna og bjó í bílnum

Sænskur maður, sem fannst í bíl sínum á föstudag eftir að hafa verið fastur í tvo mánuði, hafði búið í bílnum frá því um mitt síðasta ár. Þetta segja sænskir fjölmiðlar.

Tókst ekki að stöðva lestina í tæka tíð

Að minnsta kosti 49 létust og á sjöunda hundrað manna slösuðust í lestarslysi í gærmorgun í Buenos Aires, höfuðborg Argentínu. Eitt barn er meðal hinna látnu. Lestin kom á of miklum hraða inn á lestarstöðina Once á háannatíma og lenti af miklum krafti á fyrirstöðu við enda lestarteinanna.

Lítrinn á 328 krónur

Listaverð á 95 oktana bensíni fór allt upp í 15 krónur í Ósló í Noregi í vikunni, sem jafngildir um 328 íslenskum krónum og hefur verðið aldrei verið hærra.

Baldur fer á Litla-Hraun - en hann byrjar í Hegningarhúsinu

Afplánun Baldurs Guðlaugssonar hefst í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg samkvæmt frétt sem birtist á vef Viðskiptablaðsins fyrr í kvöld. Þar segir að Baldur fari á Litla-Hraun eftir að hafa dvalið í Hegningarhúsinu en fer síðan mögulega þaðan á Kvíabryggju eða Sogn.

Trúlofuðust í beinni útsendingu

Sara Duncan hélt að hún væri að fara ræða um baráttu sína við brjóstakrabbamein þegar hún var gestur í sjónvarpsþætti í Bretlandi. Hún kom því af fjöllum þegar kærasti hennar bað um hönd hennar í beinni útsendingu.

Leyndardómar bláu fjölskyldunnar í Kentucky opinberaðir

Læknar vissu ekki sitt rjúkandi ráð þegar Benjamin litli Stacy fæddist árið 1975. Hann var fluttur til greiningar á Háskólasjúkrahúsinu í Kentucky þar sem sérfræðingar rannsökuðu drenginn. Niðurstaðan var ljós: drengurinn var blár.

Líf og fjör á Öskudegi - myndir

Það var líf og fjör á Öskudeginum í dag eins og við mátti búast. Fjöldi barna klæddu sig upp í furðulega búninga og slógu köttinn úr tunnunni auk þess sem farið var í viðamikla sælgætisleiðangra í tilefni dagsins. Þá var fjölmennt í Kringlunni í dag eins og meðfylgjandi myndir bera með sér.

Apple berst fyrir leyfi til að nota "iPad"

Tæknirisinn Apple og kínverska fyrirtækið Shenzhen Proview Technology tókust á í réttarsal í Kína í dag. Apple varði rétt sinn til að nota vörumerkið "iPad" í Kína.

Nýjar Þjórsárvirkjanir gætu skilað yfir 20 milljörðum á ári

Virkjanir í Þjórsá, sem stjórnarflokkarnir ræða nú um að falla frá eða setja á bið, gætu skilað Landsvirkjun yfir tuttugu milljarða króna tekjum á hverju ári í framtíðinni. Búrfellsvirkjun er sennilega gott dæmi um gullkvörn en það orð notaði Steingrímur J. Sigfússon, þáverandi fjármálaráðherra, um Landsvirkjun fyrir rúmu ári.

Ýtti við yfirmanni Dróma og ruddist inn á heimilið

Ráðist var á yfirmann hjá Dróma á heimili hans í gær. Lögregla var strax kölluð til. Árásarmaðurinn er ósáttur viðskiptavinur sem taldi sig eiga harma að hefna. Hann sér eftir því að hafa farið heim til mannsins.

Jón Baldvin krefst þess að sjá umfjöllun Nýs Lífs - íhugar ella lögbann

Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi ráðherra og sendiherra krefst þess að fá að sjá umfjöllun Nýs Lífs um hann sem birtist í nýjasta tölublaðinu sem kemur út á morgun. Hann segir ennfremur skýlausa kröfu að hann fái að svara fyrir sig í sama blaði. Ella íhugi hann að sækjast eftir lögbanni á dreifingu þess. Þetta staðfestir Þóra Tómasdóttir ritstjóri tímaritsins í samtali við fréttastofu en hún hefur ekki svarað kröfu Jóns Baldvins.

Fíkniefni fundust í skrifstofuhúsnæði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann 120 grömm af marijúana við húsleit í skrifstofuhúsnæði í Kópavogi í fyrradag en hluti þess var í söluumbúðum. Á sama stað var ennfremur lagt hald á 10 e-töflur. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar en þess má geta að rýmið hafði verið innréttað sem íbúðarhúsnæði.

Reyndi að smygla stinningarlyfinu Kamagra til landsins

Rúmlega fimmtugur maður var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir tollalagabrot þegar hann kom hingað til lands með skipinu Arnarfelli, þar sem hann er bátsmaður, aðfaranótt miðvikudagsins 9. febrúar 2011.

Sýslumenn svara HH fullum hálsi

Stjórn Sýslumannafélags Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fullyrðingum Hagsmunasamtaka heimilanna frá því í gær er svarað. Samtökin sögðu í gær að í ljósi nýgengins Hæstaréttardóms um ólögmæti vaxtaútreikninga gengistryggðra lána, hefðu sýslumenn sem framkvæmt hafa fjárnám, nauðungarsölur og gjaldþrotaúrskurði "á grundvelli slíkra ólögmætra útreikninga“ tekið sér dómsvald á meðan réttaróvissa ríkti. "þar með hafi þeir brotið stjórnsýslulög og jafnvel stjórnarskrá.“

Obama söng með B.B. King

Bandaríkjaforseti steig á stokk í Hvíta Húsinu í gær og söng lagið Sweet home Chicago ásamt blúsgoðsögninni B.B. King.

Ákærðir fyrir tilraun til manndráps en neita sök

Allir mennirnir þrír sem ákærðir hafa verið fyrir tilraun til manndráps eftir skotárás í Bryggjuhverfinu í Reykjavík í nóvember í fyrra, neituðu sök í þeim ákærulið við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur nú fyrir stundu.

Fjögur lík finnast í Costa Concordia

Björgunarmenn hafa fundið fjögur lík í skemmtiferðaskipinu Costa Concordia sem strandaði undan vesturströnd Ítalíu 13. janúar síðastliðinn.

Steingrímur Sævarr sýknaður í meiðyrðamáli

Steingrímur Sævarr Ólafsson, ritstjóri vefmiðilsins Pressunnar, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag sýknaður af ásökun um meiðyrði í garð Ægis Geirdal listamanns. Ægir fór fram á eina milljón í miskabætur frá ritstjóranum en dómarinn ákvað að hann skyldi í staðinn greiða Steingrími 180 þúsund krónur í málskostnað.

Tveir blaðamenn létust í Sýrlandi

Talið er að 40 hafi látist í sprengjuárás stjórnarhersins í Sýrlandi í dag. Atvikið átti sér stað í borginni Homs en yfirvöld í Sýrlandi hafa látið sprengjum rigna á borgina síðustu daga.

Grútaður fálki í Húsdýragarðinum

Starfsmenn Húsdýragarðsins í Reykjavík eru nú að undirbúa komu fálka, sem fannst ataður í grút skammt frá Grundarfirði í gær. Finnendur náðu að handsama hann og verður hann vistaður í hundabúri þar til hann kemur í Húsdýragarðinn. Að sögn Jóns Gíslasonar yfir dýrahirðis þar, verður reynt að gefa honum að éta áður en hann verður settur í bað með tilheyarndi sápu og ef allt gengur að óskum verður hann svo vistaður í nokkra daga í garðinum áður en honum verður sleppt. Ekki er vitað í hverskonar grút fálkinn lenti, en frengir hafa borist af grútarflekkjum við strendur Breiðafjarðar, sem raktir eru til dauðrar síldar.

Forrit finnur barnaníð í tölvum

Íslenskt fyrirtæki sem hannað hefur tölvuforrit sem nýtist lögreglu við rannsókn á ólöglegu myndefni hóf í gær samstarf við breskt fyrirtæki til að koma forritinu í notkun erlendis.

Lögreglan lýsir eftir 15 ára gömlum dreng

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Guðmundi Árnasyni, sem hvarf er hann var á ferð í Kópavogi, þann 17.02.2012 s.l. og er ekkert vitað um hvar hann er nú niðurkominn.

Rasisti á borði ákæruvalds

Mál yfirlýsts rasista sem réðst á fyrrverandi kennara sinn eftir deilur á Facebook hefur verið sent Ríkissaksóknara til ákærumeðferðar. Þar verður ákveðið fljótlega hvort maðurinn verður ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás.

Helmingur af tunglgrjóti NASA er horfið eða týnt

Vísindamenn við NASA, bandarísku geimferðastofnunina, segja að um helmingur af því tunglgrjóti sem geimfarar þeirra komu með úr ferðum sínum til tunglsins fyrir um og yfir 40 árum síðan sé týnt eða horfið.

Reyndu að stela flöskum og dósum frá björgunarsveit

Lögreglan á Selfossi handtók tvo unga karlmenn á bakvið nýju björgunarmiðstöðina við Árveg, þar sem þeir voru að stela tómum flöskum og dósum, sem björgunarsveitin hefur safnað sér til fjáröflunar.

Hótar að fara fram á gjaldþrot Framsóknar

Sýslumaðurinn í Reykjavík gerði árangurslaust fjárnám hjá Framsóknarflokknum í Reykjavík á mánudaginn fyrir viku að kröfu JCDecaux á Íslandi, sem á og rekur velflest strætóskýli í Reykjavík.

Eftirlitsmenn fengu ekki aðgang að íranskri herstöð

Stjórnvöld í Íran höfnuðu ítrekað beiðni eftirlitsmanna frá Alþjóða kjarnorkumálastofnuninni um að fá að skoða herstöð skammt frá Teheran en talið er að herstöðin gegni lykilhlutverki í kjarnorkuáætlunum Írana.

Sjá næstu 50 fréttir