Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Flughált og slæm færð víða Það er hálka á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Á Suðurlandi er víðast hálka, snjóþekja eða jafnvel þæfingur. Flughált er austan Hvolsvallar. 24.1.2012 08:06
Flugfélag Íslands frestar fyrstu ferðum í dag Flugfélag Íslands hefur frestað fyrstu ferðum sínum innnlands fram á níunda tímann vegna ófærðar og skólaakstur hefur verið felldur niður á Hvammstanga, þar sem ekkert ferðaveður er þar um slóðir. 24.1.2012 07:45
Töluvert tjón í eldsvoða á Skólavörðustíg Eldur kviknaði í eldhúsi veitingahússins Sjávargrillsins á horni Skólavörðustígs og Óðinsgötu um klukkan hálf tvö í nótt. 24.1.2012 07:40
Fundu einn af forfeðrum spendýra á jörðinni Vísindamenn hafa fundið steingerðar leifar rándýrs sem var uppi um 30 milljónum ára fyrir stórveldistíma risaeðlanna eða fyrir um 260 milljónum ára. 24.1.2012 07:38
Gingrich með afgerandi forystu í Flórída Newt Gingrich hefur tekið afgerandi forystu fyrir prófkjörið í Flórída samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum. 24.1.2012 07:25
Stuðningsmenn Gaddafi ná bænum Beni Walid Stuðningsmenn Muammar Gaddafi fyrrum leiðtoga Líbýu hafa náð bænum Bani Walid á sitt vald að nýju eftir bardaga í gærdag sem kostaði fimm manns lifið. 24.1.2012 07:23
Tilnefningar til Óskarsverðlauna kynntar í dag Tilnefningar til næstu Óskarsverðlauna verða tilkynntar í dag. Fastlega er búist við að George Clooney og Meryl Streep muni leiða baráttuna um hver verði kosinn sem besti karl- og kvennleikarinn í aðalhlutverki. 24.1.2012 07:21
Samskipti Frakkland og Tyrklands í frostmarkinu Samskipti Frakkland og Tyrklands eru í frostmarkinu eftir að öldungadeild franska þingsins samþykkti í gærkvöldi frumvarp sem felur í sér að refsivert sé að afneita fjöldamorðum Tyrkja á Armenum snemma á síðustu öld sem þjóðarmorði. 24.1.2012 07:19
Sjómælingum við Grænland verulega ábótavant Sjómælingum við Grænland er verulega ábótavant. Raunar eru aðeins til mælingar yfir 20% af farvatninu úti fyrir ströndum landsins. 24.1.2012 07:06
Vindhviðurnar náðu fellibylsstyrk Vindur fór upp í 47 metra á sekúndu í vindhviðu að Hvammi, austan við Markarfljót í nótt, en það er aftakaveður eða fellibylsstyrkur. 24.1.2012 07:03
550 sílíkonaðgerðir á ári Árlega láta að minnsta kosti 550 konur hér á landi stækka á sér brjóstin eða endurnýja gamlar sílíkonfyllingar. Er þessi fjöldi miðaður við síðustu þrjú ár. Hlutfall endurnýjana getur verið allt að fjórðungur af heildartölunni, en oftast er mælst til þess að púðar séu endurnýjaðir á fimm til tíu ára fresti. Brjóstastækkun kostar á bilinu 400 til rúmlega 520 þúsund krónur. 24.1.2012 07:00
Helmingur erlendra fanga búsettur hér Hlutfall erlendra fanga sem búsettir eru hér á landi hefur aukist mikið síðan árið 2000. Í dag býr um helmingur fanga hér, en árið 2000 sátu sjö erlendir einstaklingar í fangelsi á Íslandi og af þeim var einungis einn búsettur hér. 24.1.2012 06:30
Stundum er sígandi lukka best Íslendingar borða aðeins heilsusamlegri mat en síðast þegar mataræði þeirra var kannað árið 2002. Ný könnun sýnir að sykrað gos hefur látið undan síga en sykurlaust gos sækir á. Skortur á D-vítamíni er eitt alvarlegasta vandamálið sem taka þarf á. Ný skýrsla Landlæknis, Matvælastofnunar og Rannsóknastofu í næringarfræði sýnir stöðuna 2010-2011. 24.1.2012 06:00
Meiri ánægja með skýrslur í Barnahúsi Bæði börn og foreldrar eru ánægðari með skýrslutökur sem fara fram í Barnahúsi en í húsnæði dómstóla. 24.1.2012 05:30
Ekki rétta leiðin í kjarabaráttu Maður á miðjum aldri var í gær sýknaður af ákæru um fjárdrátt í Vínbúð ÁTVR á Hellu haustið 2009. 24.1.2012 05:30
Hugnast ekki hugmyndir um þjóðstjórn Listi Kópavogsbúa skoraði í gær á önnur framboð sem eiga fulltrúa í bæjarstjórn Kópavogs að mynda "nokkurs konar þjóðstjórn“. 24.1.2012 05:00
Seldu handavinnuna til að styrkja langveik börn Krakkarnir í þremur yngstu bekkjardeildum Sæmundarskóla í Grafarholti söfnuðu hátt í þrjátíu þúsund krónum á basar til styrktar langveikum börnum. 24.1.2012 05:00
Vantar höfuðkirkju segir sveitarstjóri Sóknarnefnd Stórólfshvolskirkju vill að Rangárþing eystra komi að byggingu nýrrar kirkju og samnýtingu húsnæðis og starfsmanns. 24.1.2012 04:30
Safna svo fáist augnlæknir Augnlæknir fæst ekki lengur til starfa á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi vegna tækjaskorts. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hollvinasamtökum HSB um söfnunarátak fyrir nýjum búnaði fyrir HSB. 24.1.2012 03:30
Bestu opinberu vefirnir valdir Tryggingastofnun er með besta opinbera vefinn og Akureyrarbær með besta sveitarfélagsvefinn. Þetta er mat dómnefndar sem var fengin til að meta 267 opinbera vefi. 24.1.2012 03:00
Vill selja hlut í Faxaflóahöfnum Byggðaráð Borgarbyggðar ákvað á aukafundi á sunnudagskvöld að reyna að selja hlut sveitarfélagsins í Faxaflóahöfnum. Tilgangurinn er að fjármagna hluta Borgarbyggðar í átta milljarða króna lánveitingu eigenda til Orkuveitu Reykjavíkur. 24.1.2012 02:45
Málum fjölgaði um 40 prósent milli ára Á árinu 2011 bárust umboðsmanni Alþingis alls 519 kvartanir. Á sama tíma tók hann til athugunar níu mál að eigin frumkvæði. Skráð mál á árinu voru því alls 528 talsins, en það er 40 prósenta fjölgun frá árinu áður. 24.1.2012 02:45
Niinistö mætir Haavisto Sauli Niinistö, fyrrum fjármálaráðherra úr flokki íhaldsmanna, og Pekka Haavisto, þingmaður úr flokki græningja, munu mætast í annarri umferð finnsku forsetakosninganna. 24.1.2012 02:00
Hækkanir verði dregnar til baka Hækkanir á þjónustu Reykjavíkurborgar við aldraða koma mjög illa við eldri borgara. Kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni mótmælir hækkununum í ályktun og skorar á borgina að draga þær til baka. 24.1.2012 02:00
Fimmtán hafa fundist látnir Talið er að laumufarþegar hafi verið um borð í ítalska skemmtiferðaskipinu Costa Concordia, sem strandaði við strendur Toscana-héraðs á Ítalíu 13. janúar. Því má gera ráð fyrir að tala týndra sé hærri en greint var frá í fyrstu. 24.1.2012 01:00
Hafna hugmyndum Arababandalagsins Stjórnvöld í Sýrlandi höfnuðu í gær hugmyndum Arababandalagsins um að koma á friði í landinu. Þær fólu meðal annars í sér að Bashar a-Assad forseti færi frá völdum, þjóðstjórn yrði mynduð innan tveggja mánaða og lýðræðislegar kosningar færu fram undir alþjóðlegu eftirliti. 24.1.2012 00:30
Evrópusambandið í hart gegn Írönum Utanríkisráðherrar Evrópusambandsríkjanna samþykktu í gær að öll olíuviðskipti við Íran verði bönnuð. Jafnframt verða eignir íranska seðlabankans í aðildarríkjum ESB frystar. 24.1.2012 00:00
Fyrri ferð Herjólfs þriðjudag felld niður vegna óhagstæðar veðurspár Ákveðið hefur verið að fella niður fyrri ferð Herjólfs þriðjudag vegna óhagstæðrar veðurspár og hefur Veðurstofan gefið út stormviðvörun. 23.1.2012 21:09
Enn ein stormviðvörunin: Veður fer mjög versnandi suðvestanlands í kvöld Ábending veðurfræðings fyrir kvöldið og nóttina: Veður fer mjög versnandi suðvestanlands í kvöld. Skafrenningur og takmarkað skyggni á veginum austur fyrir fjall strax um kvöldmatarleytið og hríðarveður um mest allt suðvestan og sunnanvert landið frá því seint í kvöld eða snemma í nótt. 23.1.2012 20:26
Lítil stemning innan þingflokks VG Stemningin var lítil innan þingflokks vinstri grænna sem fundaði í Borgarnesi í dag eftir átök helgarinnar. Steingrímur J. Sigfússon segir það þó hljóta að vega þungt meðal þingmanna flokksins að glutra ekki árangri ríkisstjórnarsamstarfsins niður eftir allar fórnirnar sem hafi verið færðar. 23.1.2012 19:30
Segir gagnrýni byggða á misskilningi Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, segir að gagnrýni flokkssystkina á ákvarðanir hennar í Landsdómsmálinu byggi á misskilningi. Að minnsta kosti fimm stjórnarþingmenn vilja að hún víki sæti sem forseti Alþingis. 23.1.2012 18:26
Outlaws-maður áfram í gæsluvarðhaldi Hæstiréttur Íslands staðfesti áframhaldandi gæsluvarðhald yfir einum af meintum skotárásarmönnum sem var handtekinn í nóvember síðastliðnum. Manninum er gefið að sök að hafa skotið á bifreið manns við Sævarhöfða þann 18. nóvember síðastliðinn en talið er að ástæðan sé óuppgerð fíkniefnaskuld. Maðurinn er talinn tengjast vélhjólagenginu Outlaws. 23.1.2012 17:21
Egill aftur kærður fyrir nauðgun Önnur kona hefur kært Egil "Gillzenegger" Einarsson fyrir nauðgun, samkvæmt því sem kemur fram á fréttavef Ríkisútvarpsins. Þar segir að konan hafi farið til lögreglu í dag og lagt kæruna fram. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögeglunnar, vildi ekki staðfesta frétt RÚV í samtali við Vísi nú fyrir stundu. 23.1.2012 16:32
Dæmigerðir ferðamenn: Barnlausir Ameríkanar sem eyða 370 þúsundum Hinn dæmigerði erlendi sumarferðamaður eru tæplega fertug bandarísk hjón sem koma barnlaus í 10 daga frí, skoða Gullfoss og Geysi og kaupa vöru og þjónustu fyrir 370.000 kr. Og þau ætla að koma aftur, ef marka má niðurstöður könnunar sem Ferðamálastofa lét framkvæma síðasta sumr á meðal erlendra ferðamanna. Sagt er frá könnuninni á vef iðnaðarráðuneytisins í dag um leið og þess er getið að rúmlega 565 þúsund erlendir ferðamenn hafi heimsótt Ísland á síðasta ári. Þar er um að ræða 15,8 prósent fjölgun frá fyrra ári. "Mikilvægi ferðaþjónustunnar fer stöðugt vaxandi fyrir samfélagið og hún er komin á bekk með sjávarútveginum og stóriðjunni þegar kemur að sköpun gjaldeyristekna,“ segir ennfremur. 23.1.2012 16:06
Framfleytti sér og fjölskyldu sinni með vændi í fimm ár Í Íslandi í dag í kvöld kemur fram kona sem leiddist út í vændi vegna fátæktar og framfleytti sér og börnum sínum samhliða láglaunaðri vaktavinnu í fimm ár. Hún hélt því leyndu fyrir fjölskyldu sinni og var með 10-15 kúnna. 23.1.2012 16:00
Sykurminna morgunkorn Á næstunni munu morgunkornin Cocoa Puffs og Honey Cheerios fara í sölu með nýrri uppskrift í verslunum um land allt. "Þessar tegundir sem auðkenndar eru með bláum topp og íslenskum umbúðum munu leysa eldri tegundir af hólmi á næstu vikum. Þær innihalda mun lægra magn sykurs en forverar þeirra ásamt því að innihalda minni fitu og salt. Þessar breytingar á uppskrift eru gerðar til að koma til móts við auknar kröfur neytenda um minni sykur og salt í matvöru,“ segir í tilkynningu frá Nathan & Olsen. 23.1.2012 18:00
Þrettán undir áhrifum Þrettán ökumenn voru teknir fyrir akstur undir áhrifum á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Átta af þeim voru ölvaðir undir stýri en þetta voru sjö karlar á aldrinum 23 til 70 ára og ein kona, 17 ára. Þá voru fimm sem óku undir áhrifum fíkniefna en um er að ræða fjóra karla á aldrinum 23 til 36 ára og eina konu, 24 ára. Fjórir af ökumönnunum þrettán höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi. 23.1.2012 16:04
Fimmtánda fórnarlambið fundið Björgunarmenn á Ítalíu hafa fundið tvö lík í skemmtiferðaskipinu Costa Concordia. Tala látinna er því komin upp í 15 og er 18 enn saknað. Kafarar leita enn á neðri dekkjum skipsins. 23.1.2012 15:51
Steven Tyler fór illa með þjóðsöng Bandaríkjanna Söngvarinn og Idol-dómarinn Steven Tyler flutti þjóðsöng Bandaríkjanna þegar ruðningsliðin New England Patriots og Baltimore Ravens mættust í undanúrslitum Ameríska fótboltans í gær. Miðað við framistöðuna í gær hefði Tyler eflaust ekki komist áfram til Hollywood. 23.1.2012 15:34
Endurgerð fyrstu Star Wars myndarinnar birt á Youtube Tveggja klukkutíma endurgerð á fyrstu Stjörnustríðsmyndinni hefur verið birt á Youtube. Þetta er þó engin venjuleg endurgerð því það voru ofurvenjulegir Stjörnustríðsnördar sem sáu um framleiðslu myndarinnar. 23.1.2012 15:14
PIP-málið: Tveir læknar búnir að svara landlækni "Við erum líklega komin með svör frá tveimur lýtalæknum og munum funda með læknafélaginu á morgun til þess að athuga hvernig við getum fengið þessar upplýsingar eins hratt og hægt er,“ segir Geir Gunnlaugsson, landlæknir. 23.1.2012 14:47
Klippt af 160 ökutækjum Um helgina voru skráningarnúmer fjarlægð af eitt hundrað og sextíu ökutækjum víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu. Í tilkynningu frá lögreglu segir að þau hafi verið ýmist ótryggð eða óskoðuð og jafnvel hvorutveggja. 23.1.2012 14:37
Íslendingar taka sig á í mataræðinu Niðurstöður landskönnunar á mataræði landsmanna 2010-2011 benda til þess að mataræði mataræði Íslendinga hefur þokast nær ráðleggingum um heilsusamlegt mataræði frá árinu 2002. 23.1.2012 14:20
Mikil leit gerð að morðingja sem slapp úr haldi Mikil leit er nú gerð á Englandi að fanga sem slapp úr haldi lögreglu þegar verið var að flytja hann úr fangelsi og í dómshús. Maðurinn var ákærður í síðustu viku fyrir morð en félagar hans óku í veg fyrir fangaflutningabílinn og hótuðu ökumanninum með hnífi. Lögregla lýsir manninum sem mjög hættulegum morðingja og hefur víðtæk leit verið gerð að honum frá því atvikið átti sér stað snemma í morgun. 23.1.2012 13:45
Ákærður fyrir aðild að úraráni - átti að koma þýfinu úr landi Ríkissaksóknari hefur ákært mann fyrir aðild sína að ráni í úra- og skartgripaversluninni Michelsen á Laugavegi í október síðastliðnum Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi eftir að þýfið fannst í fórum hans en talið er að hann hafi átt að koma því úr landi. 23.1.2012 13:31