Fleiri fréttir Vilja draga úr yfirvinnu til að jafna laun Starfshópur undir forystu borgarfulltrúans Sóleyjar Tómasdóttur um það hvernig útrýma megi kynbundnum launamun hjá Reykjavíkurborg leggur til að dregið verði úr yfirvinnu og vinnuvikan þar með stytt, til að gera borgina að fjölskylduvænni vinnustað. 3.12.2011 07:00 Blönduvirkjun hafði mikil áhrif á bleikjustofna vatna Bleikjuveiði á veituleið Blönduvirkjunar er að meðaltali fimm til átta sinnum minni en í viðmiðunarvötnum á sömu slóðum. Fiskurinn er jafnframt mun minni vegna breytinga á æti. 3.12.2011 07:00 Byggt á Hólmsheiði og fé veitt á Hraunið stjórnsýsla Ákveðið hefur verið að veita fé til byggingar nýs fangelsis á Hólmsheiði, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Að auki er rætt um að setja sérstaka fjárupphæð til nauðsynlegra endurbóta á fangelsinu á Litla-Hrauni. 3.12.2011 06:00 Tilbúnir að slökkva elda í netheimum Þjóðir heims eru sífelt að verða meðvitaðri um þá hættu sem stafar af fyrirtækjum og stofnunum í gegnum netið. Undirbúningur nokkurs konar almannavarnateymis í netheimum er nú langt kominn hér á landi, og stefnt að því að hópurinn taki til óspilltra málanna um áramótin. 3.12.2011 05:30 Takast á við stórmeistarann Tíu af efnilegustu skákmönnum þjóðarinnar munu tefla fjöltefli við stórmeistarann Friðrik Ólafsson í Hörpu í dag. Uppákoma þessi er á vegum Skákskóla Íslands og Skákakademíu Reykjavíkur. 3.12.2011 05:00 Deilt innan beggja flokka um ráðherra - Fréttaskýring Enn er óvíst hvaða breytingar verða gerðar á ríkisstjórninni. Ljóst er að tilkynning um breytingar verður ekki gefin út fyrr en í fyrsta lagi eftir samþykkt fjárlaga, sem koma til þriðju umræðu á þriðjudag. Eins líklegt er að einhverjar vikur séu í breytingar. 3.12.2011 05:00 Katla-jarðvangur viðurkenndur alþjóðlega Fyrsti jarðvangurinn, Katla-jarðvangur, fékk í byrjun september inngöngu í Evrópusamtök jarðvanga (European Geoparks Network) og í alþjóðasamtök jarðvanga hjá Sameinuðu þjóðunum (UNESCO Global Geopark Network). Svæði jarðvangsins er Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur. Undirbúningur stóð yfir í tvö ár. 3.12.2011 04:30 Óttast mikla afturför bráðaþjónustu Stjórn Landssambands heilbrigðisstofnana telur nálægð Reykjavíkurflugvallar við Landspítalann vera mikilvæga vegna sjúkraflugs og bráðaþjónustu við landsbyggðina. 3.12.2011 04:15 Gæsluvarðhald þremenninganna staðfest Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhald yfir Lárusi Welding, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, og tveimur fyrrverandi undirmönnum hans. Þeir sitja í varðhaldi vegna rannsóknar sérstaks saksóknara á meintum umfangsmiklum brotum í rekstri bankans fyrir hrun. 3.12.2011 04:00 Drottinn blessi Mýrdalshrepp Eva Dögg Þorsteinsdóttir, fulltrúi minnihluta E-lista í sveitarstjórn Mýrdalshrepps, segir forsvarsmenn sveitarfélagsins hafa sýnt sér og þingmönnum Suðurlandskjördæmis óvirðingu á fundi. „Við erum farin að búa við menningu sem einkennist af virðingarleysi og yfirgangi,“ bókaði Eva á fundi sveitarstjórnar og bætti við: „Guð blessi Mýrdalshrepp og samskipti innan hans.“ 3.12.2011 04:00 Aðgangsstýring á 20 milljónir Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar ætlar að taka tuttugu milljóna króna lán til að kaupa aðgangsstýrikerfi svo unnt verði að taka gjald í bílakjallaranum undir Höfðatorgi. Borgin ætlar að selja sínu starfsfólki aðgangskort á sama verði og gildir í bílakjallara Ráðhússins. 3.12.2011 04:00 Kýldu mann á dansgólfinu 3.12.2011 03:30
Sjá næstu 50 fréttir
Vilja draga úr yfirvinnu til að jafna laun Starfshópur undir forystu borgarfulltrúans Sóleyjar Tómasdóttur um það hvernig útrýma megi kynbundnum launamun hjá Reykjavíkurborg leggur til að dregið verði úr yfirvinnu og vinnuvikan þar með stytt, til að gera borgina að fjölskylduvænni vinnustað. 3.12.2011 07:00
Blönduvirkjun hafði mikil áhrif á bleikjustofna vatna Bleikjuveiði á veituleið Blönduvirkjunar er að meðaltali fimm til átta sinnum minni en í viðmiðunarvötnum á sömu slóðum. Fiskurinn er jafnframt mun minni vegna breytinga á æti. 3.12.2011 07:00
Byggt á Hólmsheiði og fé veitt á Hraunið stjórnsýsla Ákveðið hefur verið að veita fé til byggingar nýs fangelsis á Hólmsheiði, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Að auki er rætt um að setja sérstaka fjárupphæð til nauðsynlegra endurbóta á fangelsinu á Litla-Hrauni. 3.12.2011 06:00
Tilbúnir að slökkva elda í netheimum Þjóðir heims eru sífelt að verða meðvitaðri um þá hættu sem stafar af fyrirtækjum og stofnunum í gegnum netið. Undirbúningur nokkurs konar almannavarnateymis í netheimum er nú langt kominn hér á landi, og stefnt að því að hópurinn taki til óspilltra málanna um áramótin. 3.12.2011 05:30
Takast á við stórmeistarann Tíu af efnilegustu skákmönnum þjóðarinnar munu tefla fjöltefli við stórmeistarann Friðrik Ólafsson í Hörpu í dag. Uppákoma þessi er á vegum Skákskóla Íslands og Skákakademíu Reykjavíkur. 3.12.2011 05:00
Deilt innan beggja flokka um ráðherra - Fréttaskýring Enn er óvíst hvaða breytingar verða gerðar á ríkisstjórninni. Ljóst er að tilkynning um breytingar verður ekki gefin út fyrr en í fyrsta lagi eftir samþykkt fjárlaga, sem koma til þriðju umræðu á þriðjudag. Eins líklegt er að einhverjar vikur séu í breytingar. 3.12.2011 05:00
Katla-jarðvangur viðurkenndur alþjóðlega Fyrsti jarðvangurinn, Katla-jarðvangur, fékk í byrjun september inngöngu í Evrópusamtök jarðvanga (European Geoparks Network) og í alþjóðasamtök jarðvanga hjá Sameinuðu þjóðunum (UNESCO Global Geopark Network). Svæði jarðvangsins er Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur. Undirbúningur stóð yfir í tvö ár. 3.12.2011 04:30
Óttast mikla afturför bráðaþjónustu Stjórn Landssambands heilbrigðisstofnana telur nálægð Reykjavíkurflugvallar við Landspítalann vera mikilvæga vegna sjúkraflugs og bráðaþjónustu við landsbyggðina. 3.12.2011 04:15
Gæsluvarðhald þremenninganna staðfest Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhald yfir Lárusi Welding, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, og tveimur fyrrverandi undirmönnum hans. Þeir sitja í varðhaldi vegna rannsóknar sérstaks saksóknara á meintum umfangsmiklum brotum í rekstri bankans fyrir hrun. 3.12.2011 04:00
Drottinn blessi Mýrdalshrepp Eva Dögg Þorsteinsdóttir, fulltrúi minnihluta E-lista í sveitarstjórn Mýrdalshrepps, segir forsvarsmenn sveitarfélagsins hafa sýnt sér og þingmönnum Suðurlandskjördæmis óvirðingu á fundi. „Við erum farin að búa við menningu sem einkennist af virðingarleysi og yfirgangi,“ bókaði Eva á fundi sveitarstjórnar og bætti við: „Guð blessi Mýrdalshrepp og samskipti innan hans.“ 3.12.2011 04:00
Aðgangsstýring á 20 milljónir Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar ætlar að taka tuttugu milljóna króna lán til að kaupa aðgangsstýrikerfi svo unnt verði að taka gjald í bílakjallaranum undir Höfðatorgi. Borgin ætlar að selja sínu starfsfólki aðgangskort á sama verði og gildir í bílakjallara Ráðhússins. 3.12.2011 04:00
Suu Kyi vongóð um framfarir „Ef við höldum þessu áfram í sameiningu þá er ég sannfærð um að ekki verði hægt að snúa af braut lýðræðis,“ sagði Aung San Suu Kyi, leiðtogi lýðræðishreyfingarinnar í Búrma, eftir að hafa rætt við Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. 3.12.2011 03:00
Fleiri hlynntir göngugötu Ríflega helmingur Akureyringa er frekar eða mjög hlynntur því að banna akstur í Hafnarstræti, eða Göngugötunni svokölluðu. 36 prósent eru frekar eða mjög andvíg banni. Þetta eru niðurstöður könnunar á vegum félagsvísindadeildar Háskólans á Akureyri og greint er frá í Akureyri Vikublaði. 3.12.2011 03:00
Merkel útilokar nú allar skyndilausnir „Við erum komin á nýtt stig í samhæfingu Evrópusambandsins,“ sagði Angela Merkel Þýskalandskanslari í ræðu á þýska þinginu í gær, þar sem hún lýsti hugmyndum sínum um að styrkja efnahagssamstarf evruríkjanna. 3.12.2011 02:00
Sveik út veitingar og stal víni Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært mann á þrítugsaldri fyrir að stela mat úr Bónus fyrir nær tíu þúsund krónur og síðan áfengi úr Vínbúð fyrir nær þrjú þúsund. 3.12.2011 02:00
Forsetinn varar við sundrungu Vinsældir Sameinaðs Rússlands, stjórnmálaflokks þeirra Vladimírs Pútín forsætisráðherra og Dmitrí Medvedev forseta, hafa dalað nokkuð í Rússlandi vegna spillingarímyndar þótt enn sé honum spáð góðum sigri í þingkosningum sem haldnar verða á morgun. 3.12.2011 01:30
Fleiri refsiaðgerðir samþykktar Bandaríkjaþing samþykkti í gær refsiaðgerðir á hendur Íran, daginn eftir að Evrópusambandið tók ákvörðun um slíkt hið sama. 3.12.2011 01:00
Sverðfiskur stakk veiðimann í munninn - myndband Skelfingaróp veiðimanns náðust á myndband þegar sverðfiskur fleygði sér úf hafinu og stakk hann í munninn. 3.12.2011 00:15
Drífa Snædal: Hrósar stúlkunni sem kærði Gillz fyrir hugrekki Drífa Snædal, fyrrverandi fræðslustýra hjá Samtökum um Kvennaathvarf segir í pistli sínum á vefmiðlinum Smugunni að stúlkan sem hefur kært Egil Einarsson og kærustu fyrir nauðgun, eigi hrós skilið. 2.12.2011 23:06
Gillz segir nauðgunarásakanir fráleitar Egill Einarsson, eða Gillzenegger, segir ásakanir um nauðgun fráleitar og eingöngu til þess fallnar að sverta mannorð sitt. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Egill sendi Vísi fyrir stundu. 2.12.2011 21:02
Gillz kærður fyrir nauðgun Egill Einarsson, kallaður Gillzenegger, hefur verið kærður fyrir nauðgun. Það er Eyjan.is sem greinir frá þessu. 2.12.2011 20:40
Brenndist á andliti eftir aðgerð Eldur braust út á andliti konu í Alabama þegar hún gekkst undir hefðbundna skurðaðgerð fyrr í vikunni. Læknar segjast aldrei hafa séð neitt þessu líkt. 2.12.2011 00:00
Sumir sjá alltaf björtu hliðarnar Maður sem missti handlegg í lestarslysi lét húðflúra höfrungshöfuð á stubbinn. 2.12.2011 23:45
Íbúar skelkaðir eftir að Snæfinnur Snjókarl kom í bæinn Maður klæddur sem Snæfinnur Snjókarl hræddi líftóruna úr íbúum smábæjar í Bandaríkjunum. 2.12.2011 23:30
Þrír jarðskjálftar nærri Akureyri Í kvöld klukkan 19:22 varð jarðskjálfti í Ljósavatnsfjalli u.þ.b. 14 kílómetrum austan Akureyrar samkvæmt tilkynningu á vef Veðurstofunnar. Hann var 3.2 að stærð. Tveir eftirskjálftar fylgdu í kjölfarið, annar kl:19:36 og var hann (1,5 Ml) hinn kl. 19:46 (2,5 Ml). 2.12.2011 21:52
Árni Páll kannast ekki við að hann sé á leið út úr ríkisstjórn Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, segist ekki kannast við þær sögusagnir að hann sé leið út úr ríkisstjórn. Ekki er útilokað að ráðherralið ríkisstjórnarinnar taki breytingum fyrir áramót. 2.12.2011 20:00
Par kært fyrir nauðgun - segir kærustuna hafa horft upp á ofbeldið Par hefur verið kært fyrir nauðgun í heimahúsi á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Fórnarlambið er átján ára stúlka. Lögregla er með málið til rannsóknar en samkvæmt heimildum fréttastofu hefur parið einnig kært stúlkuna fyrir rangar sakargiftir. Maðurinn var yfirheyrður í dag. 2.12.2011 19:25
Einn skotárásarmannanna tekur amfetamín daglega Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhald yfir manni vegna manndrápstilraunar í Bryggjuhverfi til áttunda desember næstkomandi. Maðurinn segist nota amfetamín og Mogadon daglega. Þetta kom fram í yfirheyrslum yfir manninum hjá lögreglu eftir að hann var handtekinn. 2.12.2011 16:46
Áfram í gæsluvarðhaldi vegna skotárásar Karlmaður á þrítugsaldri hefur á grundvelli rannsóknarhagsmuna verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til áttunda desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn hennar á skotárás í Bryggjuhverfi föstudaginn 18. nóvember síðastliðinn. 2.12.2011 16:12
Hvetja Íslendinga til að bjóða ferðamönnum í piparkökubakstur Haustátak Inspired by Iceland hefur farið vel af stað. Mikill áhugi hefur verið meðal ferðamanna á heimboðum Íslendinga og hafa þau verið ákaflega vel sótt, segir í tilkynningu frá forsvarsmönnum átaksins. 2.12.2011 15:53
Strauk kynfæri sín við glugga og hótaði nágrönnum lífláti Karlmaður um sjötugt var í dag dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir kynferðisbort. Maðurinn var ítrekað allsnakinn á svölum og við óbyrgðan glugga á heimili sínu þannig á nágrannar sáu til hans. Í eitt skipti beraði hann sig og strauk kynfæri sín við gluggann. Maðurinn var einnig dæmdur fyrir að hringja í nágranna sína og hóta þeim lífláti. Maðurinn rauf skilorð með brotunum en við ákvörðun refsingar leit dómari til þess að maðurinn hafi lýst mikilli iðrun vegna framferðis síns og látið af þeirri hegðun sem hann var ákærður fyrir. 2.12.2011 15:32
Sjúklingur um borð í einkaþotu fluttur til Reykjavíkur Tveir sjúkrabílar frá Brunavörnum Suðurnesja og lögreglubíll með lækni voru sendir að einkaþotu á Keflavíkurflugvelli fyrr í dag. 2.12.2011 15:14
Lagði bílnum og hljóp á eftir ungum dreng Maður um þrítugt hljóp á eftir ungum dreng í nágrenni við Grandaskóla í Reykjavík í fyrradag. 2.12.2011 13:26
Eldgos í Kötlu gæti haft áhrif á heimsvísu Breska ríkisútvarpið segir nýtt eldgos í Kötlu geta haft áhrif á heimsvísu. Mögulegar afleiðingar eru hamfaraflóð í Evrópu þegar milljarðar lítra af vatni steypast í norður Atlantshafið. 2.12.2011 12:17
Erlendir fjársvikarar hafa fé af Íslendingum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill vara fólk við tilraunum til fjársvika þar sem erlendir aðilar reyna með fjölbreyttum hætti að blekkja fólk hér á landi í því skyni að hafa af því fé. 2.12.2011 11:53
St Petersburg er daprasta borgin í Bandaríkjunum Borgin St Petersburg í Flórída er daprasta borg Bandaríkjanna. Sú hamingjusamasta er aftur á móti Honolulu á Hawai-eyjum. 2.12.2011 07:50
Verðmæt nútímalistaverk eyðilögðust hjá Eimskip Verðmæt íslensk nútímalistaverk eyðilögðust þegar ólag reið yfir flutningaskip Eimskipa milli Íslands og Bandaríkjanna í vor samkvæmt kvöldfréttum RÚV. Íslenska ríkið þurfti að greiða 75 milljónir króna í bætur fyrir verkin sem listfræðingar segja ómetanleg. 2.12.2011 19:03
Huang Nubo aldrei kynnst slíkum samskiptaaðferðum Huang Nubo segir vinnubrögð íslenskra stjórnvalda í máli sínu ófagleg. Hann hafi þó enn áhuga á að fjárfesta á Íslandi en ekki komi til greina að kaupa landið í gegnum fyrirtæki innan EES, það sé óvirðing við Íslendinga. Jónas Margeir Ingólfsson ræddi við Nubo í dag. 2.12.2011 18:30
Fundu vopnasafn hjá andlega vanheilum manni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði í dag hald á nokkurt magn vopna; byssur, skotfæri og hnífa, við húsleitir í framhaldi af handtöku manns í Kópavogi um miðjan dag í gær. 2.12.2011 18:19
Fangaverðir vilja Hólmsheiði - fangar mótmæla Fangavarðafélag Íslands vill fangelsi á Hólmsheiði og styður heilshugar stefnu Fangelsismálastofnunnar um uppbygginu fangelsiskerfisins samkvæmt tilkynningu sem félagið sendi á fjölmiðla. 2.12.2011 17:49
Skíðalyftur opnaðar í dag Skíðalyftur í Árbæ og Grafarvogi verða opnaðar í dag klukkan fjögur. Verið er að vinna við Breiðholtslyftu og stefnt að því að opna hana á mánudag. Lyfturnar í Árbæ og Grafarvogi verða svo opnar alla helgina frá klukkan ellefu til sjö. Skíðasvæðið í Bláfjöllum hefur enn ekjki verið opnað. 2.12.2011 14:57
Byrjað að troða snjó í Bláfjöllum Verið er að opna skíðasvæði landsins eitt af öðru eftir rausnarlega snjókomu upp á síðkastið. Í Oddsskarði vantar peninga, en ekki snjó, og verður ekki opnað þar að sinni. 2.12.2011 12:42
„Þetta er niðurskurður sem hugsanlega getur drepið“ Vestmanneyingar óttast að sjúkrahúsið í Eyjum verði lagt niður í núverandi mynd, verði sameiningartillögur velferðarráðuneytis að veruleika. Bæjarstjóri Vestmananeyja segir um að ræða niðurskurð sem getur drepið. 2.12.2011 12:11
Margrét sú eina sem studdi flutning Sogns Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, styður flutning réttargeðdeildarinnar að Sogni á Kleppspítala. Hún er eini þingmaður Suðurlandskjördæmis sem mælti með flutningi deildarinnar í umræðum um málið á þingi í dag. Hún sagðist hafa kynnt sér málið eftir samtal við framkvæmdastjóra geðsviðs. 2.12.2011 12:09