Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Saga íslensku kirkjunnar því miður ekki einsdæmi Hin langa saga íslensku kirkjunnar og tengsl hennar við kynferðisbrot er, eins og flestir vita, ekki einsdæmi og mörg önnur lönd hafi svipaðar sögur að segja af leiðtogum innan sinna kirkna. Þetta segir Dr. Marie M. Fortune, prestur og stofnandi FaithTrust Institute. 18.10.2011 06:00
Krafa um að dælingu verði hætt Hvergerðingar krefjast þess að niðurdælingu jarðhitavökva frá Hellisheiðarvirkjun verði hætt, sagði Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, í viðtali við Fréttablaðið í gærkvöldi. Hún var þá stödd á fjölmennum íbúafundi á Hótel Örk sem Orkuveita Reykjavíkur efndi til. Tilefnið eru skjálftahrinur síðustu vikna sem hafa valdið íbúum í Hveragerði óþægindum og ugg. 18.10.2011 06:00
Fortíðin lifnaði við á Íslandsviku í Sóltúni „Það er ótrúlega gefandi og gaman að bregða svona á leik," segir Anna Birna Jensdóttir, forstöðumaður Hjúkrunarheimilisins Sóltúns, þar sem Íslenskir dagar voru á dagskrá í síðustu viku. 18.10.2011 05:00
Tveir kaflar samningsins líklega kláraðir á morgun Búist er við að tveimur köflum í aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið verði lokað strax eftir að þeir verða opnaðir á ríkjaráðstefnu sambandsins á miðvikudag. Þetta segir Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands. 18.10.2011 04:00
Alcoa nýtti ekki forskotið á aðra Viðbrögð Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra við yfirlýsingu Alcoa í gær eru að ákvörðunin hafi ekki komið sér á óvart. Ákvörðunin skýri línurnar og nú sé að ljúka viðræðum við önnur fyrirtæki sem áhuga hafa á að nýta orkuna til atvinnuuppbyggingar. Hún telur ekki aðalatriði hvaða fyrirtæki það verður svo lengi sem regluverkinu í landinu sé fylgt, umhverfismál séu í hávegum höfð og störf skapist fyrir fólkið á svæðinu. 18.10.2011 03:15
Kort af leið ræningjanna - Þaulskipulagðir á þremur bílum Þrír grímuklæddir menn vopnaðir byssum rændu fokdýrum Rolex-úrum úr verslun Michelsen úrsmiða í gær. Frank Michelsen segist viss um að skoti hafi verið hleypt af. Ránið var þaulskipulagt og svo virðist sem ræningjarnir hafi notast við þrjá stolna bíla. 18.10.2011 11:15
Breskur leigubílstjóri gerður að múmíu Hinsta ósk leigubílstjórans Alan Billis var heldur óvenjuleg. Billis þráði að vera gerður að múmíu eftir að hann félli frá. 17.10.2011 23:15
Gervihnöttur fellur til jarðar í vikunni Úreltur gervihnöttur mun falla til jarðar í vikunni. Vísindamenn segja að líkurnar á að gervihnötturinn gæti skaðað einhvern á jörðu niðri séu 1 á móti 2.000. 17.10.2011 22:51
Lyfjagjöf til að fresta kynþroska Par í Kalíforníu gefur nú 11 ára gömlum syni sínum sérstök hormónalyf til að hægja á kynþroska hans. Pilturinn hefur oft talað um að hann langi að vera stelpa. Parið ákvað að hefja lyfjagjöfina svo að sonur þeirri hafi lengri tíma til að ákveða kyngervi sitt. 17.10.2011 22:35
Ahmadinejad neitar ásökunum Bandaríkjanna Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, hefur neitað öllum ásökum í máli tveggja íranskra manna sem sakaðir eru um að hafa lagt á ráðin um að myrða sendiherra Sádí Arabíu í Bandaríkjunum. 17.10.2011 21:49
Vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um Atlantshafsbandalagið Allir þingmenn VG, nema Steingrímur J. Sigfússon formaður og Jón Bjarnason, vilja að þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu fari fram. Samkvæmt þingsályktunartillögunni, sem þingmennirnir hafa lagt fram ásamt Birgittu Jónsdóttur og Atla Gíslasyni vilja þau að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram fyrir mitt næsta ár. 17.10.2011 21:17
Þýskur ferðamaður hvarf á hitabeltiseyju Lögreglan í París bíður nú eftir niðurstöðu DNA rannsókna á líkamsleifum sem fundust á hitabeltiseyjunni Nuku Hiva í Frönsku Pólýnesíu. 17.10.2011 21:13
Forðuðumst útrýmingu fyrir 100 árum Vísindamenn telja að allt líf á jörðinni hafi naumlega sloppið við útrýmingu fyrir rúmlega 100 árum. 17.10.2011 20:54
Erfingi L'Oreal svipt sjálfræði Dómstólar í Frakklandi hafa komist að því að hin vellauðuga Liliane Bettencourt verði svipt sjálfræði. Þetta var niðurstaðan í máli sem fjölskyldumeðlimir hennar höfðuðu gegn henni. Í úrskurði dómarans kom fram að andleg heilsa Bettencourt, sem er 88 ára gömul, væri í afar slæmu ástandi. 17.10.2011 20:07
Varar við fordómum gagnvart stjórnmálamönnum „Grundvallaratriðið í þessu öllu saman er að ef við ætlum að búa til þjóðfélag þar sem pólitíkusar, eða allir sem taka þátt í stjórnmálastarfi eru dæmdir út frá því einu lendum við í verulegum vandræðum,“ sagði Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, vegna háværrar umræðu um ráðningu Páls Magnússonar sem forstjóra Bankasýslu ríkisins. 17.10.2011 20:03
Flugslys í Botswana Sjö létust þegar flugvél hrapaði í Botswana í dag. Þau sem létust voru öll Evrópubúar, þar á meðal þrír Svíar. Flugvélin var af gerðinni Cessna 208. 17.10.2011 19:48
Alcoa verðlagt burt og orkan tekin í annað Alcoa er endanlega hætt við álver á Húsavík. Þessi ákvörðun var kynnt sveitarstjórnarmönnum fyrir norðan nú síðdegis. Forstjóri Alcoa segir Landsvirkjun hvorki bjóða næga orku né á samkeppnishæfu verði við nágrannaríki eins og Bandaríkin, Kanada og Noreg. 17.10.2011 19:04
Kæra borgina vegna ákvörðunar um trúmál Sóknarnefnd Grafarvogskirkju vill að reglur Reykjavíkurborgar, sem banna trúar- og lífsskoðunarfélögum að stunda starfsemi sína innan leik og grunnskóla, verði felldar úr gildi en nefndin ætlar að leggja fram stjórnsýslukæru vegna málsins. 17.10.2011 18:55
Fjögurra ára sænskur drengur myrtur Lögreglan í Ljungby í Svíþjóð hefur nú staðfest að fjögurra ára gamall drengur sem fannst látinn í nágrenni við leikvöll í gærkvöldi var myrtur. Drengurinn hvarf af leikvellinum síðdegis í gær og um kvöldmatarleytið var lýst eftir honum af lögreglu. Víðtæk leit fór í gang og stuttu síðar fundu sjálfboðaliðar sem þátt tóku í leitinni lík hans. 17.10.2011 16:39
Skotum hleypt af í ráninu Mennirnir sem réðust inn í úraverslunina Michelsen á Laugavegi í morgun hleyptu af alvöru byssu inni í versluninni þegar þeir voru að ræna hana. Þetta telur Frank Úlfar Michelsen, eigandi búðarinnar. 17.10.2011 16:30
Tveir menn grunaðir um að hafa nauðgað stúlku sem fékk með þeim far Tveir menn sitja nú í gæsluvarðhaldi grunaðir um að hafa nauðgað konu sem fékk far með þeim á sunnudagsmorgun. Konan leitaði strax á neyðarmóttöku vegna nauðgana á Landspítalanum í Fossvogi og kærði svo mennina til lögreglu. Mennirnir, sem eru af erlendu bergi brotnir, voru handteknir í gær og í kjölfarið úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald vegna rannsóknarhagsmuna. Lögreglan verst allra frétta af málinu en rannsóknin er á byrjunarstigi. 17.10.2011 15:53
Herjólfur fer í Þorlákshöfn Ferjan Herjólfur siglir til Þorlákshafnar á fimmtudag en nú er unnið hörðum höndum að dýpkun í Landeyjahöfn og eru dýpkunarskipin Skandía og Perlan eru þar við dælingar. Í tilkynningu frá Eimskipi segir að stefnt sé að því að mæla dýpi hafnarinnar á miðvikudag eða fimmtudag. Af þeim sökum hefur verið ákveðið að festa siglingar í Þorlákshöfn á fimmtudaginn en bíða með ákvörðun um framhaldið þar til niðurstöður mælinga liggja fyrir. Farþegum er bent á að fylgjast með ferðunum á herjólfur.is og á Facebook-síðu ferjunnar. 17.10.2011 15:09
Synir Mubaraks áttu tugi milljarða á bankareikningum Tveir synir Hosni Mubaraks, fyrrverandi forseta Egyptalands, eru sagðir eiga 340 milljónir dollara á bankareikningum í Sviss, eða rétt tæpa fjörutíu milljarða. Bræðurnir Alaa og Gamal eru fyrir rétti í Kairó sakaðir um spillingu ásamt föður sínum. Þá hafa svissnesk yfirvöld greint frá því að verið sé að rannsaka hvort Alaa hafi verið viðriðinn peningaþvætti. Að auki hefur Hosni Mubarak verið ákærður fyrir að bera ábyrgð á því að um 850 mótmælendur létu lífið í uppreisninni sem leiddi til afsagnar forsetans. 17.10.2011 14:46
Framsókn kynnir „plan b“ Framsóknarmenn hafa lagt fram svokallað „plan b“ til að hefja sókn í atvinnumálum og koma á stöðugleika í efnahagsmálum. Meðal tillagna er að afnema verðtryggingu í skrefum og einfalda skattakerfið. 17.10.2011 14:14
Meint brot ná allt til ársins 1998 Skýrslutökum yfir Tryggva Jónssyni, fyrrverandi forstjóra Baugs, í Héraðsdómi Reykjavíkur er lokið. Tryggvi er einn þriggja einstaklinga sem ákærður í er skattahluta Baugsmálsins, en aðalmeðferð í málinu fer fram í dag. 17.10.2011 14:05
Kvennó nýtir sér Miðbæjarskólann Kvennaskólinn í Reykjavík hefur tekið í notkun gamla Miðbæjarskólann sem ríkið keypti af borginni á síðasta ári. Húsið var tekið til gagngerra breytinga í samstarfi við húsafriðunarnefnd áður en skólinn tók við aðstöðunni. Á heimasíðu Reykjavíkurborgar segir að almenn ánægja ríki meðal nemenda og kennara með breytingarnar. 17.10.2011 13:52
Bifreiðin á Hringbrautinni tengist ekki ráninu - mennirnir enn ófundnir Mennirnir þrír sem voru handteknir á Hringbrautinni um klukkan ellefu í morgun tengjast vopnuðu ráni á Laugavegi ekki. Þetta segir varðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 17.10.2011 13:04
Skýrslur teknar af sakborningum í dag "Ég hef aldrei talið vísvitandi rangt fram til skatts," sagði Tryggvi Jónsson, fyrrverandi forstjóri Baugs, við aðalmeðferð skattahluta Baugsmálsins sem fram fer í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 17.10.2011 12:38
Mjög hvasst undir Ingólfsfjalli - vörubíll fauk útaf Vörubíll með tengivagni fauk út af veginum undir Ingólfsfjalli á tólfta tímanum. Ökumaður bílsins slapp ómeiddur. Tengivagninn er gjörónýtur en óvíst er með skemmdir á bílnum. Ekki verður farið í að koma honum aftur upp á veg fyrr en lægir. 17.10.2011 12:01
Ræningjarnir ganga enn lausir Ræningjarnir sem frömdu rán í úraversluninni Michelsen í morgun ganga enn lausir. Þrír menn réðust inn í úraverslunina um klukkan hálf ellefu í morgun. Mennirnir voru allir með leikfangabyssur og barefli en bifreið sem þeir notuðu við verkið fannst stuttu síðar í Þingholtunum og voru þrjár leikfangabyssur í henni. 17.10.2011 11:52
Vopnaðir lögreglumenn handtóku þrjá menn á Hringbraut Þrír menn voru handteknir á gatnamótum Njarðargötu og Hringbrautar nú fyrir stundu en talið er að þeir tengist vopnuðu ráni sem var framið í Michelsen úraverslun í morgun. Varðstjóri hjá lögreglunni vildi þó ekki staðfesta að mennirnir séu þeir sem frömdu ránið - rannsókn sé í enn í fullum gangi. Sérsveit ríkislögreglustjóra aðstoðar við aðgerðir lögreglunnar. 17.10.2011 11:26
Ógnuðu starfsfólki með byssum Vopnað rán var framið í Michaelsen úraverslun á Laugavegi um klukkan hálf ellefu í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu komu þrír menn, sem allir voru vopnaðir skambyssum, inn í verslunina og tæmdu þar hillur með dýrum úrum. 17.10.2011 10:38
Aðalmeðferð í skattahluta Baugsmálsins Aðalmeðferð hófst í morgun í skattahluta Baugsmálsins. Í málinu eru þrír einstaklingar ákærðir fyrir skattalagabrot, persónulega og í rekstri fyrirtækja. Ákærðu eru þau Jón Ásgeir Jóhannesson, Kristín Jóhannesdóttir og Tryggvi Jónsson. Þá beinist ákæran einnig gegn fjárfestingafélagið Gaumur, að því er fram kemur í dagskrá héraðsdóms. 17.10.2011 10:19
Hefur þú séð þennan bíl? Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú að fólksbifreið sem stolið var í Gnoðarvogi í Reykjavík síðastliðna nótt. 17.10.2011 10:17
Flestir fluttu til Norðurlandanna Á þriðja ársfjórðungi ársins fæddust 1220 börn, en 470 einstaklingar létust en landsmönnum fækkaði hinsvegar um 90 á tímabilinu. Í lok fjórðungins bjuggu 319.090 manns á Ísland, Um 160 þúsund karlar og tæplega 159 þúsund konur. Erlendir ríkisborgar voru tæplega 21 þúsund og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu rúmlega 203 þúsund. 17.10.2011 09:30
Spá stormi víða um land í dag Veðurstofan spáir stormi víða um land í dag og bendir ökumönnum á að búast megi við erfiðum akstursskilyrðum á noðranverðu landinu í dag, fyrst norðvestanlands. 17.10.2011 08:36
Grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun Tveir grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun í Kópavogi í nótt og stálu þaðan töluverðum verðmætum og komust undan. 17.10.2011 08:18
Kveikt í mannlausum bíl Tilkynnt var um eld í mannlausum fólksbíl við Laufásveg á sjötta tímanum í morgun og logaði hann í einhverjum efnum við bensínlokið, þegar slökkvilið kom á vettvang. 17.10.2011 08:09
Settu klám inn á YouTube síðu Sesame Street Klámtölvuþrjótum tókst að brjótast inn á YouTube síðu bandaríska barnaþáttarins Sesame Street í gærdag. Þar settu þeir inn myndbönd sem eru stranglega bönnuð börnum. 17.10.2011 08:05
Forseti Mexíkó veldur illvígum pólitískum deilum Illvígar pólitískar deilur hafa blossað upp í Mexíkó í kjölfar viðtals The New York Time við Felipe Calderon forseta landsins. 17.10.2011 08:00
Stórbruni í Kaupmannahöfn Allt tiltækt slökkvilið Kaupmannahafnar berst nú við stórbruna á iðnaðarlóð í Rödovre, einu úthverfa borgarinnar. 17.10.2011 07:58
Kenýa sendir hermenn yfir landamærin til Sómalíu Stjórnvöld í Kenýa hafa sent hersveitir yfir landamærin til Sómalíu en hersveitirnar eiga að ráða niðurlögum sómalskra mannræningja sem hafa herjað á flóttamannabúðir og ferðamannastaði í Kenýa. 17.10.2011 07:55
Uppreisnarmenn komnir í síðasta vígi Gaddafis Uppreisnarmenn í Líbíu segja að þeir séu komnir inn í bæinn Bani Walid sem talinn er síðasta vígi Muammar Gaddafi og hersveita hliðholla honum. 17.10.2011 07:44
Eldur í íbúð í Eskihlíð, kettir fengu far með sjúkrabíl Eldur kviknaði í íbúð á fjórðu hæð í fjölbýlishúsi við Eskihlíð um miðnætti. Íbúar annarsstaðar í húsinu heyrðu í reyksynjara í íbúðinni, en þar sem engin virtist vera heima kölluðu þeir á slökkvilið. 17.10.2011 07:39
Lögreglan kölluð út til að róa farþega á Gatwick Kalla þurfti lögreglu til á Gatwick flugvelli við London í gærdag til að hemja 200 æsta og reiða farþega flugvélar. Farþegarnir höfðu beðið í flugvélinni í níu tíma og voru orðnir sársvangir enda allur matur um borð uppurinn. 17.10.2011 07:28