Alcoa verðlagt burt og orkan tekin í annað 17. október 2011 19:04 Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa.
Alcoa er endanlega hætt við álver á Húsavík. Þessi ákvörðun var kynnt sveitarstjórnarmönnum fyrir norðan nú síðdegis. Forstjóri Alcoa segir Landsvirkjun hvorki bjóða næga orku né á samkeppnishæfu verði við nágrannaríki eins og Bandaríkin, Kanada og Noreg. Forstjóri Alcoa á Íslandi, Tómas Már Sigurðsson, tilkynnti þetta í stjórnsýsluhúsinu á Húsavík á fundi sem hófst klukkan fjögur með fulltrúum fjögurra sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum. Hann segir í viðtali við Stöð 2 að þessi ákvörðun sé byggð á því að ekki sé til orka fyrir álver Alcoa né á því verði sem félagið þurfi. Hann segir þetta endanlega ákvörðun. Tómas er ekki sammála þeim sem segja að álver hafi verið of stórt verkefni fyrir svæðið. Alls ekki, segir hann. Annars hefði Alcoa ekki unnið af heilum hug að verkefninu síðan 2005. Að þeirra mati sé næg orka til staðar fyrir álver. Það hafi þeir alltaf talið. Rannsóknarboranir sýni að næg orka sé til á svæðinu. Landsvirkjun sé hins vegar búin að gera viljayfirlýsingar við nokkra aðila um orkukaup. Þeir selji ekki sömu orkuna tvisvar og þar af leiðandi hafi þrengt að verkefni Alcoa. Hann segir Landsvirkjun bjóða Alcoa verð sem ekki sé samkeppnishæft við löndin í kringum okkur. Alcoa sé að byggja upp í New York-fylki, Quebec-fylki í Kanada, hafi nýlega fjárfest í álverum í Noregi og sé að byggja upp í Saudi-Arabíu. Þetta séu viðmiðunarverðin þegar Alcoa segi að verðið á Íslandi sé ekki samkeppnishæft lengur. Spurður hvort það sé opinber verðstefna sem sé að verðleggja áliðnaðinn burt frá Íslandi svarar Tómas að þau verð sem þeir sáu fyrir álver á Bakka séu þannig að Alcoa geti ekki farið í verkefnið. Það var í ráðherratíð Valgerðar Sverrisdóttur sem viðræður um álver á Bakka hófust formlega og fylgdi þeim fagnaðarhátíð á Húsavík. Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna hafnaði því hins vegar fyrir tveimur árum að framlengja viljayfirlýsingu við Alcoa. Þegar Tómas er spurður hvort ákvörðun Alcoa sé afleiðing pólitískrar stefnubreytingar ítrekar hann að ákvörðun Alcoa byggi fyrst og fremst og eingöngu á því að orkan sé ekki lengur til staðar og ekki á þeim verðum sem þarf að vera. Hins vegar segir hann alveg ljóst að frá október 2009 hafi ekki verið í gildi viljayfirlýsing mili stjórnvalda og Alcoa um þetta verkefni. ,,Þannig að það er kannski ekki hægt að segja að það hafi verið mikill pólitískur stuðningur við það," svarar Tómas. Hann segir Alcoa hafa lagt á annan milljarð króna í verkefnið. Spurður hvort félagið telji sig eiga endurkröfurétt á þeim fjármunum eða líti á þá sem tapað fé svarar Tómas: ,,Það höfum við ekkert skoðað í dag."
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Erlent Fleiri fréttir Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Sjá meira