Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gjörbreyttar forsendur fyrir aðildarumsókn Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, vill tafarlaust draga umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu til baka. 14.8.2011 19:02
Eldur í álverinu Eldur kom upp í álverinu í Straumsvík um klukkan sex í kvöld en samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu kviknaði í tæki. Slökkviliðið var sett í viðbragðsstöðu en slökkviliðið ISAL sá um að slökkva eldinn sem var minniháttar. 14.8.2011 19:01
Áætlanir að sameina vaxta- og húsaleigubætur í eitt kerfi Velferðarráðherra segir mikilvægt að jafna stöðu þeirra sem eru á leigumarkaði. Áætlanir eru uppi um að leggja sameina vaxtabætur og húsaleigubætur í eitt kerfi. Þær breytingar gætu komið niður á efnameiri einstaklingum sem nú njóta vaxtabóta. 14.8.2011 18:28
Tólf féllu þegar sprengja sprakk á hóteli Að minnsta kosti tólf féllu þegar sprengja sprakk á hóteli í borginni Dera Allah Yar í Pakistan í morgun, á þjóðhátíðardegi Pakistana. Fjöldi fólks var inni á hótelinu þegar sprengjan sprakk og auk þeirra sem féllu eru að minnsta kosti fjórtán særðir. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á tilræðinu. Borgin Der Allah Yar er í Balochistan-héraði sem er stærsta hérað Pakistans en það er jafnframt það fátækasta. 14.8.2011 17:00
Dregur sig úr kapphlaupinu Tim Pawlenty, fyrrverandi ríkisstjóri í Minnessota, sem þótti framan af einn sigurstranglegasti frambjóðandinn í forkosningum bandaríska repúblikanaflokksins, hefur dregið sig úr kapphlaupinu. 14.8.2011 16:43
Tekur undir ósk sjálfstæðismanna Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, tekur undir ósk sjálfstæðismanna um að félags- og tryggingamálanefnd ræði bága stöðu leigenda á næsta fundi sínum. 14.8.2011 15:47
Breivik skoðaði Útey í gallabuxum og bol - Myndband Lögreglan í Osló fór með fjöldamorðingjann Anders Breivik til Úteyjar í gær dag en hann hefur játað að hafa framið fjöldamorð á eyjunni og sprengt sprengju í miðborg Oslóar tuttugasta og annan júlí síðastliðinn. 14.8.2011 14:59
Rangt að standa í aðildarviðræðum og við eigum að hætta því "Ég hef aldrei skynjað annað eins ákall um að koma ríkisstjórninni frá og skipta um stefnu í ríkisstjórninni,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í þættinum Sprengisandi í morgun. Þar sagði hann einnig að hann vildi að aðildarviðræðum við Evrópusambandið yrði hætt. 14.8.2011 13:41
Ljósleiðari fór í sundur Slit varð á ljósleiðara Mílu á Vesturlandi um kl. 10.30 í morgun, við Haffjarðará, milli Haukatungu og Söðulsholt. Viðgerðamenn eru komnir á staðinn til viðgerða, segir í tilkynningu frá Mílu. 14.8.2011 13:12
Segir að óeirðirnar muni setja varanlegan svip á breskt samfélag David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segir að óeirðarseggjum og skemmdarvörgum verði ekki sýnd nein miskunn, en alls hafa 1.276 verið handteknir. Cameron telur að óeirðirnar í Lundúnum muni setjan varanlegan svip á breskt samfélag. 14.8.2011 12:02
Ástandið óþolandi og auka þarf framboð á leiguhúsnæði Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa óskað eftir því að Félags og tryggingamálanefnd ræði bága stöðu leigjenda á næsta fundi sínum. Ástandið á leigumarkaðnum sé óviðunandi og auka þurfi framboð á leighúsnæði til muna. 14.8.2011 12:00
Rick Perry sækist eftir tilnefningu sem forsetaframbjóðandi Spenna er að færast í forkosningar bandaríska repúblikanaflokksins eftir að ríkisstjóri Texas lýsti yfir framboði sínu. Tveir sigurstranglegustu frambjóðendurnir eru strangkristnir íhaldsmenn. 14.8.2011 12:00
Ekki hægt að útiloka frekari niðurskurð á Landspítala Ekki er hægt að útiloka niðurskurð til Landspítalans þótt forstjórinn segi hingað og ekki lengra. Fagráðuneytin fá á næstunni ramma utan um fjárlög. 14.8.2011 11:59
Óbreytt ástand Karlmaður um tvítugt liggur enn alvarlega slasaður eftir að hann lenti í umferðarslysi á Geirsgötu í miðbæ Reykjavíkur í fyrrakvöld. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæslu er piltinum haldið sofandi í öndunarvél. 14.8.2011 11:00
Æðarkolla hrapaði til jarðar í miðri flugeldasýningu Gestum, sem fylgdust með flugeldasýningunni á fjölskylduhátíðinni í Vogum af bílastæði við Stóru-Vogaskóla í gærkvöldi, brá heldur í brún þegar stór dökkur hlutur kom fljúgandi og harpaði til jarðar. 14.8.2011 11:00
Hugsanlega kominn tími á hvíld hjá Akureyringum Nóttin var afar róleg á Akureyri, en þar stóðu fangageymslur galtómar eftir nóttina. Lögregla rekur rólegheitin til mikillar rigningar í bænum í nótt, auk þess sem mikið hefur verið um að vera fyrir Norðan undanfarnar helgar og því hugsanlega verið kominn tími á hvíld. 14.8.2011 10:41
Líkamsárás í Hveragerði Ráðist var á mann í Hveragerði laust eftir miðnætti í gær, en þar fara Blómstrandi dagar fram um helgina. Talið er að árásarmennirnir hafi verið fleiri en einn, en þeir veittust að manni með þeim afleiðingum að hann kinnbeinsbrotnaði. Þeirra er nú leitað, en fórnarlambið þekkti mennina ekki og tildrög árásarinnar eru óljós. Fórnarlambið var flutt til aðhlynningar með sjúkrabíl, en lögregla býst við að árásin verði kærð þegar fram líða stundir. 14.8.2011 10:33
Útlendingar sprautuðu piparúða í leigubílaröðinni Fjórir karlmenn ruddust fram fyrir í leigubílaröðina við Lækjargötu um klukkan sex í morgun við litla hrifningu þeirra sem höfðu beðið í röðinni í nokkrun tíma. Þegar maður sem var í röðinni ætlaði að hafa afskipti af mönnunum og benda þeim á að fara aftast í röðina og bíða, eins og allir hinir, tóku mennirnir upp piparúða og úðuðu framan í manninn. 14.8.2011 09:47
Hótel Plaza rýmt vegna elds - Strætó og Rauði krossinn mætti til aðstoðar „Þetta gekk mjög vel og fólk var mjög rólegt og yfirvegað,“ segir Oddur Hallgrímsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. 14.8.2011 09:28
Skemmdarvörgum verður ekki sýnd nein miskunn David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segir að óeirðarseggjum og skemmdarvörgum verði ekki sýnd nein miskunn, en hann telur að óeirðirnar í Lundúnum muni setja mark sitt á sögu Bretlands. 14.8.2011 10:20
Pissaði á 12 ára stúlku í flugvél Átján ára piltur, Robert Vietze, hefur verið rekinn úr unglingalandsliði Bandaríkjanna í skíðaíþróttum fyrir að hafa kastað af sér vatni á 12 ára stúlku sem var með honum í flugvél fyrr í vikunni. 13.8.2011 22:00
Líftækni í ljósi skáldskapar Líftækni, vélmenni, gervimenni og klón í bókmenntum og myndmáli er viðfangsefni nýútkominnar bókar Úlfhildar Dagsdóttur, Sæborgin: Stefnumót líkama og tækni í ævintýri og veruleika. 13.8.2011 21:00
Þyrlan sækir handleggsbrotna konu Þyrla Landhelgisgæslunnar er nú á leið í átt að Hrafntinnuhrauni norðan við Laugafell að sækja handleggsbrotna konu. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er ekki ljóst hvers vegna konan handleggsbrotnaði. 13.8.2011 20:54
Milljónum skotið undan skatti Að minnsta kosti sex manns eru grunaðir um að hafa skotið tugum milljóna undan skatti með erlendum greiðslukortum. 13.8.2011 20:43
Potturinn gekk ekki út Enginn var allar tölurnar réttar í lottóinu í kvöld. Einn var með fjórar tölur réttar + bónustöluna og fær sá rúmlega 210 þúsund krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru: 1 - 3 - 6 - 24 - 35 Bónustala: 45 Jókertölur: 8 - 3 - 6 - 9 - 8 13.8.2011 19:27
Kemur til greina að flýta framkvæmdum Framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs segir vel koma til greina að sjóðurinn flýti framkvæmdum við ókláraðar íbúðir til að koma þeim fyrr út á leigumarkaðinn. Hann býst við því að sjóðurinn muni eiga um 2000 íbúðir í lok ársins sem teknar hafa verið eignarnámi. 13.8.2011 19:15
Með ólíkindum að enginn ráðherra standi vörð um hagsmuni neytenda Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir það lýsa ótrúlegu skeytingarleysi gagnvart hagsmunum neytenda að engir ráðherrar hafi beitt sér fyrir því að heimila innflutning á kjöti á sama tíma og skortur er í verslunum. 13.8.2011 18:45
Ódýrar indverskar sprautunálar ollu vandræðum á Landspítalanum Dæmi eru um að Landspítalinn hafi fengið ónýtar indverskar sprautunálar sem ekki virkuðu sem skyldi og lyfjabrunna sem ekki stóðust gæðakröfur því hagkvæmasta tilboði var tekið í útboði til að spara peninga. Þetta olli bæði sjúklingum og starfsfólki óþægindum. 13.8.2011 18:30
Alvarlega slasaður og haldið sofandi í öndunarvél Farþegi í bíl sem ökumaður missti stjórn á við Geirsgötuna í Reykjavík í gærkvöldi, liggur enn alvarlega slasaður á slysadeild. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi er honum haldið sofandi í öndunarvél. 13.8.2011 16:54
Bandaríkjamanni rænt í Pakistan Sextíu og þriggja ára bandarískum karlmanni var rænt af átta vopnuðum mönnum í borginni Lahore í Pakistan í morgun. Ræningjarnir komu á nokkrum bílum að heimili mannsins og yfirbuguðu öryggisverði hans og námu hann síðan á brott. 13.8.2011 15:53
Veiddu í soðið við Sæbrautina Makríll spókaði sig í þúsundatali í sjávarmálinu við Sæbrautina í dag og nýttu margir tækifærið og tóku upp veiðistöngina. Heyrst hefur um svipaðar torfur víða um land undanfarna daga. Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytjasviðs Hafrannsóknarstofnunar, sagði í fréttum Stöðvar 2 í fyrra dag að makríllinn fari upp á mjög grunnt vatn og leitar að fæðu. 13.8.2011 15:09
65 prósent Íslendinga á móti aðild að ESB Um 65 prósent Íslendinga eru á móti aðild að Evrópusambandinu, samkvæmt niðurstöðum könnunar sem Capacent-Gallup gerði fyrir Heimssýn, samtök sem berjast gegn aðild að ESB. 13.8.2011 15:00
Óttast að sænskri konu hafi verið rænt - lýst eftir henni um allan heim Þrítug sænsk kona, Jenny Persson, hefur verið týnd frá 1. ágúst síðastliðnum. Óttast er að henni hafi verið rænt. 13.8.2011 14:00
Bernaisesósuís í Hveragerði Hvergerðingar búast við um 15 þúsund manns í bæinn í dag en Ísdagurinn verður haldinn hátíðlegur þar. Þar gefst gestum og gangandi kostur á að smakka ýmsar furðulegar tegundir af ís og má þar nefna sláturís, bearnaisesósuís, hvítlauksís, og hverarúgbrauðsís svo eitthvað sé nefnt. Ísdælurnar voru opnaðar klukkan 13:30 og Ingó úr Veðurguðunum og nokkrir íbúar Latabæjar byrja að skemmta fólki klukkan 14. 13.8.2011 13:47
Fjör á Dönskum dögum í Stykkishólmi Karlmaður um tvítugt var tekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna í Stykkishólmi í gærkvöldi en þar fara fram Danskir dagar. Þá var karlmaður tekinn ölvaður undir stýri í nótt í bænum. 13.8.2011 13:26
Læknamóttaka fyrir þá sem dvelja ólöglega í Danmörku Læknafélagið, Rauði krossinn og Flóttamannahjálpin í Danmörku opna innan skamms læknamóttöku fyrir útlendinga sem dvelja ólöglega í landinu. 13.8.2011 13:00
Ófremdarástand á leigumarkaðnum Ófremdarástand er á leigumarkaðnum og dæmi eru um að 40 fermetra íbúðir séu leigðar á yfir 150 þúsund krónur. Starfsmaður hjá Leigumiðlun segir mikilvægt að bankarnir komi inn á leigumarkaðinn enda séu hundruðir íbúða í eigu bankanna auðar. 13.8.2011 12:04
Júlía enn í varðhaldi Júlía Tímosjenko, fyrrum forsætisráðherra Úkraínu, situr enn í varðhaldi eftir að dómstóll hafnaði beiðni hennar um að verða látin laus. 13.8.2011 11:00
Bandarísk ofurlögga ráðleggur Bretum Bresk yfirvöld hafa ráðið bandaríska ofurlöggu til að ráðleggja þeim í baráttunni við glæpagengi. Dómstólar hafa vart undan að afgreiða mál óeirðaseggja í landinu. 13.8.2011 11:00
Heimilislaus piltur reyndi að ræna verslun með hamri Nítján ára gamall piltur reyndi að fremja vopnað rán í 10-11 verslun í Glæsibæ í nótt. Hann kom grímuklæddur inn í verslunina og var vopnaður klaufhamri. Öryggisvörður var í versluninni og tilkynnti hann ránið til lögreglu í gegnum talstöð. Pilturinn var svo yfirbugaður léttilega, eins og varðstjóri orðar það, inni í verslunni nokkrum mínútum síðar. 13.8.2011 10:50
531 tonn af hjálpargögnum til Afríku Það sem af er mánuði hefur UNICEF sent 531 tonn af hjálpargögnum til þurrkasvæðanna í Austur-Afríku. Um er að ræða matvæli eins og hnetumauk og orkustangir, en einnig lyf, bóluefni, vatnshreinsibúnað og tjöld svo eitthvað sé nefnt. 13.8.2011 10:24
Fleiri sýkjast af kampýlóbakter Fjöldi kampýlóbaktersýkinga í mönnum hefur aukist síðastliðnar vikur samkvæmt upplýsingum frá sýklafræðideild Landspítala, að því er fram kemur á heimasíðu landlæknisembættisins. 13.8.2011 10:19
Hörmulegar aðstæður í Sómalíu Kólerufaraldur blasir við á neyðarsvæðunum í Sómalíu þar sem óhreint vatn og ófullnægjandi hreinlætisaðstaða er gróðrarstía fyrir sjúkdóminn. Hundruð þúsunda barna glíma nú við næringarskort á svæðinu og eru viðkvæm fyrir áföllum. 13.8.2011 10:12
Hittumst á Hlemmi Hópur leikmanna sem kallar sig Urban United mun lífga upp á svæðið umhverfis Hlemm í dag undir yfirskriftinni Hittumst á Hlemmi með alls kyns tilraunainnsetningum og viðburðum. Þar hefst dagskrá klukkan 11 og stendur til klukkan fjögur, en á meðal þess sem til stendur eru innsetningar og gjörningar, auk þess sem boðið verður upp á rakstur undir berum himni og gamlir bílar verða til sýnis. Verkefnið er hluti af Torg í biðstöðu hjá Reykjavíkurborg. 13.8.2011 10:06
50 ár frá byggingu Berlínarmúrsins Í dag eru 50 ár liðinn frá því hafist var handa að byggja Berlínarmúrinn. Múrinn skipti Berlín í tvennt, splundraði fjölskyldum og varð ein af táknmyndum Kalda stríðsins, tvískiptingar austur og vesturs. Þjóðverjar líta til baka í dag. 13.8.2011 09:46