Fleiri fréttir Saksóknaranefnd valin á þriðjudag Saksóknaranefnd Alþingis vegna málshöfðunar gegn Geir Haarde verður kosin á þriðjudag, strax eftir að saksóknari og varasaksóknari hafa verið kjörnir. Nefndin er kosin á grundvelli laga um landsdóm og er gert ráð fyrir að um fimm manna nefnd sé að ræða sem fylgist með málinu og sé saksóknara Alþingis til aðstoðar. 8.10.2010 13:30 Hertar aðgerðir gegn svartamarkaðsbraski Boðaðar hafa verið hertar aðgerðir gegn svartamarkaðsbraski með rjúpur, segir Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags Íslands. Verulega hefur dregið úr rjúpnaveiði á undanförnum árum enda þykir stofninn vera allt of lítill. Það breytir því ekki að margir sem hafa vanist því að borða rjúpnakjöt á jólunum eru enn sólgnir í slíkan mat. Þetta skapar forsendur fyrir svörtum markaði. 8.10.2010 12:45 Síminn vill nánari útfærslu á internetskatti STEF, samtök tónskálda og eigenda flutningsréttar, vilja taka upp sérstakt gjald á internetnotkun til að milda fjárhagslegt högg sitt vegna ólöglegs niðurhals. Talsmaður Símans segir fyrirtækið ekki slá hugmyndina út af borðinu. 8.10.2010 12:15 Bleikur föstudagur í dag Í dag klæðist fólk einhverju bleiku og vefsíður, byggingar og fleira eru skreyttar bleiku til að sýna samstöðu í baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. 8.10.2010 12:09 Salmann Tamimi: Moska verður að vera á íslenskum forsendum Talsmaður Menningaseturs múslíma sem á að vera í Ýmishúsinu í Skógarhlíð segist ekki hafa verið rekinn úr Félagi múslíma eins og formaður þess, Salmann Tamimi, heldur fram. Nú stefnir í að félagið fái lóð undir mosku. 8.10.2010 12:00 Amnesty hvetur Kínverja til að sleppa samviskuföngum Amnesty International hvetur kínversk stjórnvöld til að leysa alla samviskufanga í landinu úr haldi, þeirra á meðal baráttumanninn Liu Xiaobo sem fékk friðarverðlaun Nóbels í morgun. 8.10.2010 11:55 Gleymdu að stimpla sig en vilja samt atvinnuleysisbætur Tvö mál bíða afgreiðslu úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þar sem einstaklingar krefjast þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að hafa staðfest atvinnuleit sína eins og lög gera ráð fyrir. 8.10.2010 11:38 Liu Xiaobo fær friðarverðlaun Nóbels Kínverski andófsmaðurinn Liu Xiaobo hlýtur friðarverðlaun Nóbels í ár. Þetta var tilkynnt í Osló í morgun. Liu situr nú í fangelsi í heimalandi sínu fyrir að hvetja til pólitískra umbóta og aukins tjáningar- og trúfrelsis. 8.10.2010 11:12 Nauðungarsala blasir við 240 íbúðareigendum Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að flest bendi til þess að um 230 til 240 íbúðir, þar sem eigandi á lögheimili, fari að óbreyttu á lokasölu í október. Ætlunin er að þessir aðilar fái nú flýtimeðferð hjá Umboðsmanni skuldara og embættið fái afdráttarlausar heimildir til að stöðva nauðungarsölur í slíkum tilfellum. Nú er unnið því að hafa samband við þá 230-240 aðila sem standa í þessum sporum og reynt að leita lausna í samráði við þá. 8.10.2010 11:05 Skipt um rúður í Alþingishúsinu Iðnaðarmenn voru í óða önn að skipta um rúður í Alþingishúsinu í morgun. Sjö rúður voru brotnar þar í fyrrinótt og enn fleiri á mánudagskvöldið þegar stefnuræða forsætisráðherra fór fram. 8.10.2010 10:53 Niðurskurði mótmælt á Blönduósi Bæjarráð Blönduósbæjar mótmælir harðlega þeim niðurskurði sem gert er ráð fyrir hjá Heilbrigðiststofnun Blönduóss og birtist í fjárlagafrumvarpi 2011. Bæjarráðið segir að stofnunin hafi á undangegnum árum þurft að sæta miklum niðurskurði og nú sé svo komið að vegið er að grunnþjónustu og velferð íbúa í Austur-Húnavatnssýslu. 8.10.2010 10:36 Ætla að byggja heilsuþorp á Flúðum Sveitastjórn Hrunamannahrepps hefur kynnt umhverfisráðuneytinu áform um fyrirhugaða byggingu heilsuþorps á Flúðum, samkvæmt yfirlýsingu sem send var fjölmiðlum í morgun. 8.10.2010 10:14 Fæðingarþjónusta leggst af í Árborg Bæjarfulltrúar í Árborg mótmæla harðlega þeim niðurskurði sem boðaður er í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2011 á rekstrarframlögum til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. 8.10.2010 10:12 Óheppilegur framburður á nafni ráðherra Ríkisstjórn Nýja Sjálands hefur beðið Indverja afsökunar á því að stjórnandi útvarpsþáttar skyldi bera nafn indversks ráðherra vitlaust fram. 8.10.2010 09:59 Metfjöldi brautskráðra úr framhaldsskóla Alls brautskráðust 5.689 nemendur af framhaldsskólastigi með 6.404 próf skólaárið 2008-2009. Þetta er fjölgun um 150 nemendur frá fyrra ári, eða 2,7%. 8.10.2010 09:06 Safna fyrir hjólastólarampi handa fötluðum dreng Ragnar Emil Hallgrímsson er þriggja ára drengur sem aðeins nokkurra mánaða gamall greindist með alvarlegan hrörnunarsjúkdóm. Vegna veikinda sinna þarf Ragnar Emil að nota öndunarvél og fer ferða sinna í rafmagnshjólastól. 8.10.2010 09:01 Rowling útilokar ekki fleiri Harry Potter bækur Rithöfundurinn JK Rowling hefur gefið í skyn að hún muni skrifa fleiri bækur um hetju sína galdrasveininn Harry Potter. 8.10.2010 07:46 Nær fjögur þúsund mótmæla niðurskurði víða um land Hátt í fjögur þúsund manns,samtals, mótmæltu niðurskurði í heilbrigðisþjónustunni á borgarafundum á Húsavík, Ísafirði og í Reykjanesbæ í gærkvöldi og mótmælaaðgerðir eru fyrirhugaðar í Vestmannaeyjum í dag. 8.10.2010 07:44 Bygging sjúkrahúss í Árósum orðin að hneyksli Mikið hneyksli er komið upp í tengslum við metnaðarfulla byggingu hátæknisjúkrahúss í Árósum. Byggingarverktakinn er gjaldþrota og munu danskir skattborgarar þurfa að borga 250 milljónir danskra króna eða um 5 milljarða króna sökum þess. 8.10.2010 07:42 Aðeins 89 metrar eftir niður að námuverkamönnunum í Chile Björgunarmenn í Chile eiga nú aðeins 89 metra ófarna með bor að ná til námuverkamannanna þrjátíu og þriggja sem lokaðir hafa verið inn í 700 metra djúpri námu síðan í byrjun ágúst. 8.10.2010 07:38 Ný ríkisstjórn mynduð í Hollandi, Wilders með Beatrix Hollandsdrottning hefur beðið leiðtoga frjálslynda flokksins að mynda nýja ríkisstjórn í landinu. Stjórnin mun njóta stuðnings flokks Geert Wilders þar sem hún hefur ekki meirihluta á þingi Hollands. 8.10.2010 07:29 Enn í haldi eftir líkamsárás í gærkvöldi Karlmaður á þrítugsaldri er enn í haldi lögreglu, vegna rannsóknar á líkamsárás þrigga manna á ungan mann af erlendum uppruna á mótum laugavegar og Vitastígs í Reykjavík á sjötta tímanum í gærkvöldi. 8.10.2010 07:25 Sextán ára stúlka velti bil á miklum hraða Sextán ára stúlka og 19 ára piltur voru flutt á slysadeild Landsspítalans eftir að bíll, sem stúlkan ók, fór út af Vatnsleysustrandarvegi laust fyrir miðnætti, valt þar nokkrar veltur og gjör eyðilagðist. 8.10.2010 07:23 Framlengja frest á nauðungarsölum um fimm mánuði Ríkisstjórnin hefur ákveðið að framlengja heimild til frestunar á loka nauðungarsölum á íbúðarhúsnæði um fimm mánuði, eða til mars loka á næsta ári. 8.10.2010 07:21 Talibanar hafa miklar tekjur af Bandaríkjaher Talibanar í Afganistan hafa miklar tekjur af einkareknum öryggisgæslufyrirtækjum í landinu sem nær alfarið starfa á vegum Bandaríkjahers. 8.10.2010 07:19 Þingmenn lofa að vinda ofan af niðurskurðinum 8.10.2010 06:00 Eftirlýstir af Interpol fyrir glæpi hérlendis Fjórir erlendir karlmenn eru eftirlýstir af alþjóðalögreglunni Interpol fyrir alvarleg brot sem þeir hafa framið hér á landi. Hinn fimmti, sem eftirlýstur var til skamms tíma, hefur nú verið handtekinn og situr í fangelsi í Líbanon. 8.10.2010 05:30 Sjálfseignarkerfið að komast á endastöð Á síðustu árum og húsnæðisverðiáratugum hafa langflestar fjölskyldur keypt sitt eigið húsnæði, enda fáir aðrir kostir í boði. Þeir sem hafa þurft eða kosið að fara út á leigumarkaðinn hafa oft á tíðum mátt búa við mikla óvissu. Stjórnvöld telja að breyta þurfi húsnæðiskerfinu og gefa fólki aðra valkosti en eigið húsnæði. 8.10.2010 05:30 Fjöldi ófeðraðra mynda enn á huldu „Þeir eru búnir að viðurkenna þessi mistök og málið er úr sögunni af minni hálfu,“ segir Eygló Sigurðardóttir, sem á fjórar ljósmyndir í 35 mynda verki Ólafs Elíassonar. 8.10.2010 05:00 Bíður tillagna forstöðumanna „Það eru sívaxandi kröfur um ákveðna tækni og ákveðna færni og kunnáttu í læknisþjónustu en það er ekki hægt að dreifa þessu um allt land heldur verður að koma henni fyrir á fáum stöðum, til dæmis höfuðborgarsvæðinu og Akureyri,“ segir Guðbjartur Hannesson heilbrigðisráðherra. 8.10.2010 05:00 Gat ekki fallist á ályktunina Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vildi ekki standa að ályktun sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins, sem hélt sinn fyrsta fund á þriðjudag. 8.10.2010 04:30 Svandís áfrýjar dómi vegna óskýrra laga Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem synjun hennar á þeim hluta aðalskipulags Flóahrepps er varðar Urriðafossvirkjun var ógilt. Hún segir ástæðuna vera þá að hún vilji skýrari leiðsögn um það hver megi koma að kostnaði við skipulagsgerð. 8.10.2010 04:15 Mikill vilji hjá skipulagsráði Mikill vilji er hjá skipulagsráði Reykjavíkur að ganga frá úthlutun lóðar undir mosku og menningarsetur Félags íslenskra múslima. Það segir Páll Hjaltason, formaður skipulagsráðs, í samtali við Fréttablaðið. 8.10.2010 04:00 Skemmdirnar óafturkræfar „Ég er ekki viss um að fólk átti sig á því að það er verið að eyðileggja varanlega Alþingshúsið, sem er þjóðargersemi,“ segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. 8.10.2010 02:30 Vilja rukka netnotendur Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar (STEF) vill sporna við ólöglegu niðurhali á tónlist hér á landi með því að leggja meðal annars gjöld á nettengingar. Gjöldin myndu gefa notendum aðgang að tónlist á netinu með löglegum hætti og fara í sameiginlegan sjóð sem yrði síðan útdeilt til höfundarréttarhafa. 8.10.2010 01:30 Samkomulag talið í sjónmáli Ísrael, AP Palestínumenn hafa fallist á tillögu Bandaríkjanna um að Ísraelar framlengi framkvæmdabann á landtökubyggðum um tvo mánuði, gegn því að þessir tveir mánuðir verði notaðir til þess að komast að samkomulagi um legu landamæra Ísraels og væntanlegs Palestínuríkis. 8.10.2010 01:00 Eiturleðjan komin út í Dóná Ungverjaland, AP Rauða eiturleðjan sem slapp úr úrgangslóni við súrálverksmiðju í Ungverjalandi hefur borist út í Dóná. Vonast er til að leðjan þynnist nægilega út í vatnsmiklu fljótinu svo skaðinn verði ekki mikill. 8.10.2010 01:00 Borgarstjóri: Yndislegur fundur með Yoko Ono Jón Gnarr, borgarstjóri, segir á færslu í dagbók sinni á samskiptavefnum Facebook að hann hafi átt yndislegan fund með Yoko Ono, ekkju Johns Lennons, eftir borgarráðsfund í dag. Næstkomandi laugardag verða 70 ár liðinn frá fæðingardegi Johns. 7.10.2010 23:45 Skilur viðbrögð almennings „Vinnan er rétt að hefjast en sjokkið er komið hjá þeim sem hafa fengið kynningu á því hvernig frumvarpið stendur,“ segir Þuríður Backman, formaður heilbrigðisnefndar Alþingis. Borgarafundir hafa verið haldnir v 7.10.2010 21:31 Kalla eftir einingu á meðal ráðamanna „Reyknesingar hafa fengið sig fullsadda af óeiningu ráðamanna, atvinnuleysi, gjaldþrotum, nauðungarsölum, endalausum töfum og aðgerðarleysi. Nú þarf að hafa skýra sýn og taka á málum með festu," segir í ályktun borgarafundar sem haldinn var í Stapa í Reykjanesbæ í kvöld. Fundurinn var haldinn í samvinnu við Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi. Hann var þétt setinn, að því er fram kemur á vef Víkurfrétta. 7.10.2010 20:38 Leiðtogi múslima óttast að öfgaöfl skjóti hér rótum Fjársterkir útlendingar hafa keypt hús í Reykjavík sem á að vera moska múslíma. Formaður Félags múslíma á Íslandi sver hópinn af sér. Hann hefur tilkynnt mennina til lögreglu og segist óttast að öfgaöfl nái að skjóta hér rótum. 7.10.2010 18:30 Fjórir handteknir eftir líkamsárás Karlmaður var fluttur á slysadeild Landspítalans eftir alvarlega líkamsárás á horni Laugavegar og Vitastígar í dag. Fjórir menn voru handteknir eftir árásina og eru enn í haldi lögreglunnar. Ekki liggur fyrir hve alvarlegir áverkar mannsins sem ráðist var á eru. 7.10.2010 18:21 Sex bíla árekstur við Bústaðaveg Sex bíla árekstur varð á gatnamótum Bústaðavegar og Flugvallarvegar fyrir stundu. Fjórir voru fluttir á slysadeild úr tveimur bílum en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er ekki um alvarleg meiðsl á fólki að ræða. Umferðartafir gætu orðið við gatnamótin fram á sjöunda tímann í kvöld vegna slyssins. 7.10.2010 17:21 Gleymdi potti á eldavélinni Betur fór en á horfðist þegar gleymdist að slökkva á eldavélarhellu í kjallaraíbúð í vesturborginni síðdegis í gær. Þar var ungur maður að sjóða fisk í potti fyrir heimilisköttinn en skrapp frá og gleymdi að slökkva á hellunni. 7.10.2010 17:03 Grunaður um að lemja konu og hrinda fötluðum manni Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag gæsluvarðhald yfir manni sem er grunaður um að hafa lamið fyrrverandi kærustu sína með hnúajárni og stórslasað hana. Maðurinn skal sæta gæsluvarðhaldi til 1. nóvember. 7.10.2010 16:39 Sjá næstu 50 fréttir
Saksóknaranefnd valin á þriðjudag Saksóknaranefnd Alþingis vegna málshöfðunar gegn Geir Haarde verður kosin á þriðjudag, strax eftir að saksóknari og varasaksóknari hafa verið kjörnir. Nefndin er kosin á grundvelli laga um landsdóm og er gert ráð fyrir að um fimm manna nefnd sé að ræða sem fylgist með málinu og sé saksóknara Alþingis til aðstoðar. 8.10.2010 13:30
Hertar aðgerðir gegn svartamarkaðsbraski Boðaðar hafa verið hertar aðgerðir gegn svartamarkaðsbraski með rjúpur, segir Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags Íslands. Verulega hefur dregið úr rjúpnaveiði á undanförnum árum enda þykir stofninn vera allt of lítill. Það breytir því ekki að margir sem hafa vanist því að borða rjúpnakjöt á jólunum eru enn sólgnir í slíkan mat. Þetta skapar forsendur fyrir svörtum markaði. 8.10.2010 12:45
Síminn vill nánari útfærslu á internetskatti STEF, samtök tónskálda og eigenda flutningsréttar, vilja taka upp sérstakt gjald á internetnotkun til að milda fjárhagslegt högg sitt vegna ólöglegs niðurhals. Talsmaður Símans segir fyrirtækið ekki slá hugmyndina út af borðinu. 8.10.2010 12:15
Bleikur föstudagur í dag Í dag klæðist fólk einhverju bleiku og vefsíður, byggingar og fleira eru skreyttar bleiku til að sýna samstöðu í baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. 8.10.2010 12:09
Salmann Tamimi: Moska verður að vera á íslenskum forsendum Talsmaður Menningaseturs múslíma sem á að vera í Ýmishúsinu í Skógarhlíð segist ekki hafa verið rekinn úr Félagi múslíma eins og formaður þess, Salmann Tamimi, heldur fram. Nú stefnir í að félagið fái lóð undir mosku. 8.10.2010 12:00
Amnesty hvetur Kínverja til að sleppa samviskuföngum Amnesty International hvetur kínversk stjórnvöld til að leysa alla samviskufanga í landinu úr haldi, þeirra á meðal baráttumanninn Liu Xiaobo sem fékk friðarverðlaun Nóbels í morgun. 8.10.2010 11:55
Gleymdu að stimpla sig en vilja samt atvinnuleysisbætur Tvö mál bíða afgreiðslu úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þar sem einstaklingar krefjast þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að hafa staðfest atvinnuleit sína eins og lög gera ráð fyrir. 8.10.2010 11:38
Liu Xiaobo fær friðarverðlaun Nóbels Kínverski andófsmaðurinn Liu Xiaobo hlýtur friðarverðlaun Nóbels í ár. Þetta var tilkynnt í Osló í morgun. Liu situr nú í fangelsi í heimalandi sínu fyrir að hvetja til pólitískra umbóta og aukins tjáningar- og trúfrelsis. 8.10.2010 11:12
Nauðungarsala blasir við 240 íbúðareigendum Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að flest bendi til þess að um 230 til 240 íbúðir, þar sem eigandi á lögheimili, fari að óbreyttu á lokasölu í október. Ætlunin er að þessir aðilar fái nú flýtimeðferð hjá Umboðsmanni skuldara og embættið fái afdráttarlausar heimildir til að stöðva nauðungarsölur í slíkum tilfellum. Nú er unnið því að hafa samband við þá 230-240 aðila sem standa í þessum sporum og reynt að leita lausna í samráði við þá. 8.10.2010 11:05
Skipt um rúður í Alþingishúsinu Iðnaðarmenn voru í óða önn að skipta um rúður í Alþingishúsinu í morgun. Sjö rúður voru brotnar þar í fyrrinótt og enn fleiri á mánudagskvöldið þegar stefnuræða forsætisráðherra fór fram. 8.10.2010 10:53
Niðurskurði mótmælt á Blönduósi Bæjarráð Blönduósbæjar mótmælir harðlega þeim niðurskurði sem gert er ráð fyrir hjá Heilbrigðiststofnun Blönduóss og birtist í fjárlagafrumvarpi 2011. Bæjarráðið segir að stofnunin hafi á undangegnum árum þurft að sæta miklum niðurskurði og nú sé svo komið að vegið er að grunnþjónustu og velferð íbúa í Austur-Húnavatnssýslu. 8.10.2010 10:36
Ætla að byggja heilsuþorp á Flúðum Sveitastjórn Hrunamannahrepps hefur kynnt umhverfisráðuneytinu áform um fyrirhugaða byggingu heilsuþorps á Flúðum, samkvæmt yfirlýsingu sem send var fjölmiðlum í morgun. 8.10.2010 10:14
Fæðingarþjónusta leggst af í Árborg Bæjarfulltrúar í Árborg mótmæla harðlega þeim niðurskurði sem boðaður er í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2011 á rekstrarframlögum til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. 8.10.2010 10:12
Óheppilegur framburður á nafni ráðherra Ríkisstjórn Nýja Sjálands hefur beðið Indverja afsökunar á því að stjórnandi útvarpsþáttar skyldi bera nafn indversks ráðherra vitlaust fram. 8.10.2010 09:59
Metfjöldi brautskráðra úr framhaldsskóla Alls brautskráðust 5.689 nemendur af framhaldsskólastigi með 6.404 próf skólaárið 2008-2009. Þetta er fjölgun um 150 nemendur frá fyrra ári, eða 2,7%. 8.10.2010 09:06
Safna fyrir hjólastólarampi handa fötluðum dreng Ragnar Emil Hallgrímsson er þriggja ára drengur sem aðeins nokkurra mánaða gamall greindist með alvarlegan hrörnunarsjúkdóm. Vegna veikinda sinna þarf Ragnar Emil að nota öndunarvél og fer ferða sinna í rafmagnshjólastól. 8.10.2010 09:01
Rowling útilokar ekki fleiri Harry Potter bækur Rithöfundurinn JK Rowling hefur gefið í skyn að hún muni skrifa fleiri bækur um hetju sína galdrasveininn Harry Potter. 8.10.2010 07:46
Nær fjögur þúsund mótmæla niðurskurði víða um land Hátt í fjögur þúsund manns,samtals, mótmæltu niðurskurði í heilbrigðisþjónustunni á borgarafundum á Húsavík, Ísafirði og í Reykjanesbæ í gærkvöldi og mótmælaaðgerðir eru fyrirhugaðar í Vestmannaeyjum í dag. 8.10.2010 07:44
Bygging sjúkrahúss í Árósum orðin að hneyksli Mikið hneyksli er komið upp í tengslum við metnaðarfulla byggingu hátæknisjúkrahúss í Árósum. Byggingarverktakinn er gjaldþrota og munu danskir skattborgarar þurfa að borga 250 milljónir danskra króna eða um 5 milljarða króna sökum þess. 8.10.2010 07:42
Aðeins 89 metrar eftir niður að námuverkamönnunum í Chile Björgunarmenn í Chile eiga nú aðeins 89 metra ófarna með bor að ná til námuverkamannanna þrjátíu og þriggja sem lokaðir hafa verið inn í 700 metra djúpri námu síðan í byrjun ágúst. 8.10.2010 07:38
Ný ríkisstjórn mynduð í Hollandi, Wilders með Beatrix Hollandsdrottning hefur beðið leiðtoga frjálslynda flokksins að mynda nýja ríkisstjórn í landinu. Stjórnin mun njóta stuðnings flokks Geert Wilders þar sem hún hefur ekki meirihluta á þingi Hollands. 8.10.2010 07:29
Enn í haldi eftir líkamsárás í gærkvöldi Karlmaður á þrítugsaldri er enn í haldi lögreglu, vegna rannsóknar á líkamsárás þrigga manna á ungan mann af erlendum uppruna á mótum laugavegar og Vitastígs í Reykjavík á sjötta tímanum í gærkvöldi. 8.10.2010 07:25
Sextán ára stúlka velti bil á miklum hraða Sextán ára stúlka og 19 ára piltur voru flutt á slysadeild Landsspítalans eftir að bíll, sem stúlkan ók, fór út af Vatnsleysustrandarvegi laust fyrir miðnætti, valt þar nokkrar veltur og gjör eyðilagðist. 8.10.2010 07:23
Framlengja frest á nauðungarsölum um fimm mánuði Ríkisstjórnin hefur ákveðið að framlengja heimild til frestunar á loka nauðungarsölum á íbúðarhúsnæði um fimm mánuði, eða til mars loka á næsta ári. 8.10.2010 07:21
Talibanar hafa miklar tekjur af Bandaríkjaher Talibanar í Afganistan hafa miklar tekjur af einkareknum öryggisgæslufyrirtækjum í landinu sem nær alfarið starfa á vegum Bandaríkjahers. 8.10.2010 07:19
Eftirlýstir af Interpol fyrir glæpi hérlendis Fjórir erlendir karlmenn eru eftirlýstir af alþjóðalögreglunni Interpol fyrir alvarleg brot sem þeir hafa framið hér á landi. Hinn fimmti, sem eftirlýstur var til skamms tíma, hefur nú verið handtekinn og situr í fangelsi í Líbanon. 8.10.2010 05:30
Sjálfseignarkerfið að komast á endastöð Á síðustu árum og húsnæðisverðiáratugum hafa langflestar fjölskyldur keypt sitt eigið húsnæði, enda fáir aðrir kostir í boði. Þeir sem hafa þurft eða kosið að fara út á leigumarkaðinn hafa oft á tíðum mátt búa við mikla óvissu. Stjórnvöld telja að breyta þurfi húsnæðiskerfinu og gefa fólki aðra valkosti en eigið húsnæði. 8.10.2010 05:30
Fjöldi ófeðraðra mynda enn á huldu „Þeir eru búnir að viðurkenna þessi mistök og málið er úr sögunni af minni hálfu,“ segir Eygló Sigurðardóttir, sem á fjórar ljósmyndir í 35 mynda verki Ólafs Elíassonar. 8.10.2010 05:00
Bíður tillagna forstöðumanna „Það eru sívaxandi kröfur um ákveðna tækni og ákveðna færni og kunnáttu í læknisþjónustu en það er ekki hægt að dreifa þessu um allt land heldur verður að koma henni fyrir á fáum stöðum, til dæmis höfuðborgarsvæðinu og Akureyri,“ segir Guðbjartur Hannesson heilbrigðisráðherra. 8.10.2010 05:00
Gat ekki fallist á ályktunina Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vildi ekki standa að ályktun sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins, sem hélt sinn fyrsta fund á þriðjudag. 8.10.2010 04:30
Svandís áfrýjar dómi vegna óskýrra laga Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem synjun hennar á þeim hluta aðalskipulags Flóahrepps er varðar Urriðafossvirkjun var ógilt. Hún segir ástæðuna vera þá að hún vilji skýrari leiðsögn um það hver megi koma að kostnaði við skipulagsgerð. 8.10.2010 04:15
Mikill vilji hjá skipulagsráði Mikill vilji er hjá skipulagsráði Reykjavíkur að ganga frá úthlutun lóðar undir mosku og menningarsetur Félags íslenskra múslima. Það segir Páll Hjaltason, formaður skipulagsráðs, í samtali við Fréttablaðið. 8.10.2010 04:00
Skemmdirnar óafturkræfar „Ég er ekki viss um að fólk átti sig á því að það er verið að eyðileggja varanlega Alþingshúsið, sem er þjóðargersemi,“ segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. 8.10.2010 02:30
Vilja rukka netnotendur Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar (STEF) vill sporna við ólöglegu niðurhali á tónlist hér á landi með því að leggja meðal annars gjöld á nettengingar. Gjöldin myndu gefa notendum aðgang að tónlist á netinu með löglegum hætti og fara í sameiginlegan sjóð sem yrði síðan útdeilt til höfundarréttarhafa. 8.10.2010 01:30
Samkomulag talið í sjónmáli Ísrael, AP Palestínumenn hafa fallist á tillögu Bandaríkjanna um að Ísraelar framlengi framkvæmdabann á landtökubyggðum um tvo mánuði, gegn því að þessir tveir mánuðir verði notaðir til þess að komast að samkomulagi um legu landamæra Ísraels og væntanlegs Palestínuríkis. 8.10.2010 01:00
Eiturleðjan komin út í Dóná Ungverjaland, AP Rauða eiturleðjan sem slapp úr úrgangslóni við súrálverksmiðju í Ungverjalandi hefur borist út í Dóná. Vonast er til að leðjan þynnist nægilega út í vatnsmiklu fljótinu svo skaðinn verði ekki mikill. 8.10.2010 01:00
Borgarstjóri: Yndislegur fundur með Yoko Ono Jón Gnarr, borgarstjóri, segir á færslu í dagbók sinni á samskiptavefnum Facebook að hann hafi átt yndislegan fund með Yoko Ono, ekkju Johns Lennons, eftir borgarráðsfund í dag. Næstkomandi laugardag verða 70 ár liðinn frá fæðingardegi Johns. 7.10.2010 23:45
Skilur viðbrögð almennings „Vinnan er rétt að hefjast en sjokkið er komið hjá þeim sem hafa fengið kynningu á því hvernig frumvarpið stendur,“ segir Þuríður Backman, formaður heilbrigðisnefndar Alþingis. Borgarafundir hafa verið haldnir v 7.10.2010 21:31
Kalla eftir einingu á meðal ráðamanna „Reyknesingar hafa fengið sig fullsadda af óeiningu ráðamanna, atvinnuleysi, gjaldþrotum, nauðungarsölum, endalausum töfum og aðgerðarleysi. Nú þarf að hafa skýra sýn og taka á málum með festu," segir í ályktun borgarafundar sem haldinn var í Stapa í Reykjanesbæ í kvöld. Fundurinn var haldinn í samvinnu við Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi. Hann var þétt setinn, að því er fram kemur á vef Víkurfrétta. 7.10.2010 20:38
Leiðtogi múslima óttast að öfgaöfl skjóti hér rótum Fjársterkir útlendingar hafa keypt hús í Reykjavík sem á að vera moska múslíma. Formaður Félags múslíma á Íslandi sver hópinn af sér. Hann hefur tilkynnt mennina til lögreglu og segist óttast að öfgaöfl nái að skjóta hér rótum. 7.10.2010 18:30
Fjórir handteknir eftir líkamsárás Karlmaður var fluttur á slysadeild Landspítalans eftir alvarlega líkamsárás á horni Laugavegar og Vitastígar í dag. Fjórir menn voru handteknir eftir árásina og eru enn í haldi lögreglunnar. Ekki liggur fyrir hve alvarlegir áverkar mannsins sem ráðist var á eru. 7.10.2010 18:21
Sex bíla árekstur við Bústaðaveg Sex bíla árekstur varð á gatnamótum Bústaðavegar og Flugvallarvegar fyrir stundu. Fjórir voru fluttir á slysadeild úr tveimur bílum en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er ekki um alvarleg meiðsl á fólki að ræða. Umferðartafir gætu orðið við gatnamótin fram á sjöunda tímann í kvöld vegna slyssins. 7.10.2010 17:21
Gleymdi potti á eldavélinni Betur fór en á horfðist þegar gleymdist að slökkva á eldavélarhellu í kjallaraíbúð í vesturborginni síðdegis í gær. Þar var ungur maður að sjóða fisk í potti fyrir heimilisköttinn en skrapp frá og gleymdi að slökkva á hellunni. 7.10.2010 17:03
Grunaður um að lemja konu og hrinda fötluðum manni Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag gæsluvarðhald yfir manni sem er grunaður um að hafa lamið fyrrverandi kærustu sína með hnúajárni og stórslasað hana. Maðurinn skal sæta gæsluvarðhaldi til 1. nóvember. 7.10.2010 16:39