Fleiri fréttir Brenndist af hrauni á Fimmvörðuhálsi Kona brenndi sig á hendi um helgina, þegar hún tók upp hraunmola á Fimmvörðuhálsi. Molinn reyndist glóandi að innan þótt yfirborðið væri meinlaust að sjá. 28.6.2010 08:27 Norskur lax að horast Norðmenn eru uggandi yfir því að smálaxar sem hafa snúið aftur í árnar á vesturströnd landsins undanfarin ár hafa verið horaðir og ekki vel á sig komnir. 28.6.2010 08:11 Úteyjar gætu orðið löðrandi af olíu Yfirvöld í Missisippi segja að olíuósandi tjöruboltar hafi byrjað að berast þar að landi í gær. 28.6.2010 08:05 Mannfall hjá Norðmönnum í Afganistan Fjórir norskir hermenn féllu í Afganistan í gærkvöldi og er það mesta einstaka blóðtaka sem Norðmenn hafa orðið fyrir þar í landi. 28.6.2010 08:00 Lögregla of fáliðuð „Það hefur mikil breyting átt sér stað í seinni tíð,“ segir Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu. Hann hefur verið starfandi lögreglumaður í 34 ár. 28.6.2010 06:15 Aukið og grófara ofbeldi gegn lögreglu Bótagreiðslur til lögreglumanna við skyldustörf, sem borgarar hafa ráðist á og slasað, hafa náð nýjum hæðum á síðustu árum. Það sýnir að ofbeldi gegn lögreglu hefur farið harðnandi. Fjöldi mála af þessu tagi í málaskrám lögreglu milli ára segir einnig sína sögu. Málunum hefur farið fjölgandi. Þá hafa hótanir í garð lögreglumanna orðið grófari. Þær beinast nú ekki einungis að lögreglumönnunum sjálfum heldur hafa einnig komið upp mál þar sem borgarar hafa hótað þeim að lífláta börn þeirra, eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skemmstu. 28.6.2010 06:00 Veitingamenn vilja áfengisverslun burt úr miðbænum 28.6.2010 05:30
Sjá næstu 50 fréttir
Brenndist af hrauni á Fimmvörðuhálsi Kona brenndi sig á hendi um helgina, þegar hún tók upp hraunmola á Fimmvörðuhálsi. Molinn reyndist glóandi að innan þótt yfirborðið væri meinlaust að sjá. 28.6.2010 08:27
Norskur lax að horast Norðmenn eru uggandi yfir því að smálaxar sem hafa snúið aftur í árnar á vesturströnd landsins undanfarin ár hafa verið horaðir og ekki vel á sig komnir. 28.6.2010 08:11
Úteyjar gætu orðið löðrandi af olíu Yfirvöld í Missisippi segja að olíuósandi tjöruboltar hafi byrjað að berast þar að landi í gær. 28.6.2010 08:05
Mannfall hjá Norðmönnum í Afganistan Fjórir norskir hermenn féllu í Afganistan í gærkvöldi og er það mesta einstaka blóðtaka sem Norðmenn hafa orðið fyrir þar í landi. 28.6.2010 08:00
Lögregla of fáliðuð „Það hefur mikil breyting átt sér stað í seinni tíð,“ segir Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu. Hann hefur verið starfandi lögreglumaður í 34 ár. 28.6.2010 06:15
Aukið og grófara ofbeldi gegn lögreglu Bótagreiðslur til lögreglumanna við skyldustörf, sem borgarar hafa ráðist á og slasað, hafa náð nýjum hæðum á síðustu árum. Það sýnir að ofbeldi gegn lögreglu hefur farið harðnandi. Fjöldi mála af þessu tagi í málaskrám lögreglu milli ára segir einnig sína sögu. Málunum hefur farið fjölgandi. Þá hafa hótanir í garð lögreglumanna orðið grófari. Þær beinast nú ekki einungis að lögreglumönnunum sjálfum heldur hafa einnig komið upp mál þar sem borgarar hafa hótað þeim að lífláta börn þeirra, eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skemmstu. 28.6.2010 06:00
Stórhvelaveiðar eru að hefjast Hvalbátarnir tveir, Hvalur 8 og Hvalur 9, héldu til veiða í gærkvöldi, um tíu dögum síðar en áætlanir gerðu ráð fyrir. Bátarnir tveir hafa verið í slipp á undanförnum vikum og voru prufukeyrðir í síðustu viku. 28.6.2010 04:30
Saka Guðmund um einelti og hroka Barnaverndarstofu barst kvörtunarbréf, undirritað af tíu starfsmönnum Götusmiðjunnar, í maí síðastliðnum. Í bréfinu lýsa starfsmenn yfir áhyggjum af starfsemi meðferðarheimilisins og saka Guðmund Tý Þórarinsson, forstöðumann stofnunarinnar, um einelti. Í bréfinu segir einnig að Guðmundur komi mjög sjaldan og óreglulega inn í Götusmiðjuna og þegar hann komi þá sé hann með yfirgang, frekju og hroka. 28.6.2010 04:00
Hundruð manna handtekin Kanada,AP Þúsundir mótmælenda gengu um götur Toronto í Kanada í gær vegna fundar G20-ríkjanna þar í borg. Hópar börðust við óeirðalögreglu; kveikt var í bílum og rúður brotnar í verslunum og skrifstofubyggingum. Samkvæmt fréttaskeytum í gær höfðu tæplega 500 manns verið handteknir í gærkvöldi. Lögregla gerir ráð fyrir að átök við mótmælendur haldi áfram á meðan fundinum stendur. Engar fregnir hafa þó borist af því að mótmælendur eða lögreglumenn hafi slasast alvarlega til þessa. 28.6.2010 03:00
Fótbolti dregur athygli að mannréttindabrotum Wilter Nyabate er kenísk baráttukona sem hefur undanfarin ár barist gegn því að fólk í fátækrahverfum í höfuðborg landsins sé flutt nauðugt af heimilum sínum. Hún var hér á landi á vegum Amnesty til að kynna átakið Stand up united, sem á íslensku heitir Vertu með í vörninni… gegn mannréttindabrotum. Þetta er alþjóðleg herferð Amnesty sem var hrundið af stað í tilefni af heimsmeistaramótinu í knattspyrnu og ætlað að vekja athygli á mannréttindabrotum víðs vegar um heiminn. 28.6.2010 03:00
Hafa lært á lífsklukkuna Vísindamenn telja að einfalt blóðpróf geti í framtíðinni spáð fyrir um hvenær breytingaskeið kvenna hefst. Telja þeir að konur geti fengið þessar upplýsingar við ungan aldur og því auðveldað þeim að skipuleggja líf sitt á nýjan hátt með tilliti til barneigna. 28.6.2010 02:00
Mexíkó: Myrtir í meðferð Níu létust og og aðrir níu slösuðust í Mexíkó um helgina þegar grímuklæddir byssumenn skutu á allt sem fyrir varð á meðferðarheimili í norðurhluta landsins. Um fimmtíu sjúklingar voru í byggingunni en mörgum tókst að forða sér þegar fyrstu skotin heyrðust. 27.6.2010 21:00
Gunnfáni Custers á uppboð Bandarískur gunnfáni sem fannst á vígvellinum við Little Big Horn þar sem bandaríski herforinginn George Custer og 270 menn hans voru stráfelldir af Indjánum árið 1876 hefur verið settur á uppboð. Búist er við að allt að 3,3 milljónir punda fáist fyrir fánann. Úrslit bardagans ollu Bandaríkjamönnum gríðarlegu áfalli á sínum tíma og telst til frægari bardaga í sögu landsins. 27.6.2010 20:30
Miklar tafir á Suðurlandsvegi Mikill umferðarþungi hefur verið á Suðurlandsvegi frá Litlu-kaffistofunni og til Reykjavíkur seinni partinn en umferðin á þessum vegarkafla er mjög hæg um þessar mundir. 27.6.2010 19:52
Jóhanna og Jónína gengu í hjónaband Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Jónína Leósdóttir hafa gengið í hjónaband en ný hjúskaparlög tóku gildi í dag á alþjóðlegum baráttudegi samkynhneigðra en með gildistöku laganna eru aðeins ein samræmd hjúskaparlög í landinu óháð kynferði. 27.6.2010 18:10
Vegfarendur björguðu manni úr á Vegfarendur björguðu manni úr bíl sem hafði lent út í miðri ánni Bresti í Eldhrauni nálægt Kirkjubæjarklaustri. Björgunarsveitin Kyndill frá Klaustri var á staðnum og lögregla einnig. Lögreglumaður sagðist í samtali við Vísi að óljóst væri enn með hvaða hætti óhappið hefði borið að. Ökumaðurinn er heill á húfi en í uppnámi. 27.6.2010 19:03
Þingmannanefnd ætlar að ljúka störfum fyrir ágústlok Atli Gíslason, formaður þingmannanefndar sem fjallar um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, segir að nefndin stefni að því að ljúka störfum fyrir lok ágúst. Nefndin hefur ekki komist að niðurstöðu í málum ráðherra sem eru taldir hafa sýnt af sér vanrækslu í aðdraganda bankahrunsins. 27.6.2010 18:41
Búið að slökkva í Hörpu Slökkviliðið hefur ráðið niðurlögum eldsins sem kom upp í tónlistarhúsinu Hörpu fyrir stundu. Að sögn varðstjóra kom eldurinn upp í bráðabirgðaandyri hússins og gekk greiðlega að slökkva hann. Nú vinna menn að því að rífa utan af andyrinu og ganga úr skugga um að glæður leynist hvergi á staðnum. 27.6.2010 17:44
Eldur logar í Hörpu Eldur er kominn upp í tónlistarhúsinu Hörpu við höfnina. Að sögn sjónarvotts liðast mikill svartur reykur upp af byggingunni. Slökkviliðið staðfestir að eldur sé kominn upp í húsinu en en nánari upplýsingar er ekki að fá. Allar stöðvar á höfuðborgarsvæðinu sendu bíla á vettvang. 27.6.2010 17:32
Leitin að bin Laden: Mörg ár síðan vísbendingar hættu að berast Yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA Leon Panetta segir að mörg ár séu liðin síðan bandaríkjamenn fengu síðast einhverjar haldbærar vísbendingar um dvalarstað hryðjuverkaleiðtogans Osama bin Ladens. 27.6.2010 16:55
Hörð átök á G20 fundinum í Toronto Átök hafa brotist út á milli mótmælenda og lögreglumanna á G20 fundinum í Toronto en þar hittast öflugustu ríki heims og ráða ráðum sínum. Mótmælendur kveiktu í bifreiðum, köstuðu grjóti og butu rúður í nótt þegar þeir reyndu að komast inn fyrir girðingu sem sett hefur verið upp umhverfis fundarstaðinn. Lögreglan býst við að átökin haldi áfram í dag en frá því í gær hafa 480 manns verið handteknir af lögreglu. Engar fregnir hafa borist af meiðlsum, hvorki á meðal mótmælenda né lögreglumanna. 27.6.2010 15:19
Páfinn gagnrýnir belgísk yfirvöld Benedikt Páfi hefur hellt sér út í deilu sem verið hefur að magnast á milli Vatíkansins og belgískra stjórnvalda í kjölfar þess að belgíska lögreglan gerði húsleitir í höfuðstöðvum kaþólsku kirkjunnar þar í landi. Lögreglan rannsakar nú ásakanir sem bornar hafa verið á kaþólska presta um barnaníð og í einni húlsleitinni var belgískum biskupum sem voru á fundi haldið í níu klukkustundir á meðan á leitinni stóð. 27.6.2010 15:15
Synir Breiðholts hreinsuðu Andapollinn Samtök íbúa í Breiðholti sem kalla sig Synir Breiðholts tóku sig til í dag og boðuðu til hreinsunardags þar sem Andapollurinn svokallaði í Seljahverfi var hreinsaður. 27.6.2010 14:40
Kraftmikið hlaup í Skaftá Hlaup er hafið að nýju í Skaftá en þar hljóp vatn úr vestur katli Skaftárjökuls þann 20. júní. Nú er farið að renna úr eystri katlinum af miklum krafti að sögn Snorra Zóphóníassonar vatnamælingamanns hjá Veðurstofunni. Snorri segir að hlaupið hafi hafst í nótt og að rennslið sé komið í 700 rúmmetra. Búast má við því að það tvöfaldist þegar líða tekur á. 27.6.2010 13:47
Svifdrekaflugmaður kominn á spítala Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti um klukkan kortér yfir eitt með svifdrekaflugmann sem brotlenti í Spákonufelli fyrir ofan Skagaströnd fyrir hádegið. Vel gekk að komast að manninum en þyrlan gat lent í nálægð við slysstaðinn. 27.6.2010 13:39
Fagnar aðkomu Árna Páls Guðmundur Týr Þórarinsson í Götusmiðjunni fagnar aðkomu Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra að deilunni sem upp er komin á milli hans og Braga Guðbrandssonar, forstöðumanns Barnaverndarstofu. 27.6.2010 12:56
Bjarni með „volgt umboð“ Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur segir að staða Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins hafi ekki styrkst við að fá 62 prósenta stuðning í embætti formanns og hann komi af landsfundi með volgt umboð. Hún segist telja að landsfundargestir hafi viljað senda þau skilaboð að Sjálfstæðisflokkurinn ætti enn ýmislegt ógert í uppgjöri á fortíðinni og hruninu. 27.6.2010 12:12
Svifdreki brotlenti í Spákonufelli Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í morgun vegna svifdreka sem brotlenti í Spákonufelli sem er fyrir ofan Skagaströnd. Í tilkynningu frá Gæslunni segir að björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar séu nú á leið á slysstaðinn auk þess sem TF-GNA þyrla Landhelgisgæslunnar er í þann mund að koma á staðinn. „Verða þá aðstæður á slysstað metnar og hvort þyrlan kemst að staðnum.“ 27.6.2010 11:47
Býst ekki við mörgum úrsögnum úr flokknum Heiðrún Lind Marteinsdóttir, varaformaður Heimssýnar og sjálfstæðismaður, segist ekki eiga von á því að mikið verðu um úrsagnir í Sjálfstæðisflokknum í kjölfar samþykktar landsfundar þar sem hvatt er til þess að hætt verði við aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þetta kom fram í þættinum Á Sprengisandi, í umsjón Sigurjóns M. Egilssonar. 27.6.2010 11:36
Ein hjúskaparlög taka gildi í dag Ein hjúskaparlög í landinu taka gildi í dag, en Alþingi samþykkti lög þess efnis ellefta júní síðastliðinn. Einkum er um réttarbót fyrir samkynhneigða að ræða, en þeir hafa fram að þessu ekki mátt ganga í hjúskap, heldur í staðfesta samvist. Það er ástæða þess að lögin taka gildi í dag, á alþjóðlegum baráttudegi samkynhneigðra. 27.6.2010 10:43
Fullum stuðningi lýst við Jóhönnu og hina ráðherrana Flokkstjórnarfundur Samfylkingarinnar sem haldinn var í gær samþykkti einróma yfirlýsingu þar sem fullum stuðningi er lýst við Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og aðra ráðherra Samfylkingarinnar. 27.6.2010 10:18
Kosið í Kirgistan þrátt fyrir ólgu Ný stjórnarskrá Kirgistan verður lögð í þjóðaratkvæði í landinu í dag, en nýja stjórnarskráin færir aukin völd til þjóðþingsins og hafa kosningar verið boðaðar í september næstkomandi, að því er breska ríkisútvarpið BBC greinir frá. Það var bráðabirgðastjórn landsins, sem mynduð var í apríl, sem boðaði til þjóðaratkvæðagreiðslunnar. 27.6.2010 10:01
Hætti í flokknum eftir landsfund Eitthvað er um að fólk hafi sagt sig úr Sjálfstæðisflokknum eftir að landsfundur samþykkti einarða ályktun í gær, um að flokkurinn krefðist þess að aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu verði tafarlaust dregin til baka. Þannig segist Guðbjörn Guðbjörnsson hafa sagt sig úr flokknum að lokinn afgreiðslu tillögunnar. 27.6.2010 09:53
Héldu vöku fyrir gestum á sólstöðuhátíð Tveir gista fangageymslur lögreglunnar á Suðurnesjum en þeir höfðu haldið vöku fyrir gestum á Sólstöðuhátíð í Garðinum sem fram fór í gær. Að sögn lögreglu linntu mennirnir, sem voru ölvaðir, ekki látunum fyrr en þeir voru komnir í fangaklefann en hátíðin fór að öðru leyti vel fram. 27.6.2010 09:48
Nautgripur réðst á konu á Kálfafelli Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð austur í nótt en þar hafði nautgripur ráðist á konu sem hafði farið inn í girðingu við bæinn Kálfafell sem er um 30 kílómetrum austan við Kirkjubæjarklaustur. Læknir á Klaustri óskaði eftir aðstoð Gæslunnar og lenti þyrlan með hana á Landspítalanum í Fossvogi um klukkan tvö í nótt. Ekki fengust upplýsingar um líðan konunnar á spítalanum. 27.6.2010 09:45
Ók á móti umferð á Kringlumýrarbraut Nokkur erill var hjá lögreglu í nótt en 126 verkefni voru skráð í dagbók hennar sem er vel yfir meðallagi að sögn varðstjóra. 27.6.2010 09:28
Vél frá Iceland Express varð fyrir eldingu í Winnipeg Vél Iceland Express varð fyrir eldingu í aðflugi við Winnipeg í Kanada skömmu eftir miðnætti í nótt að íslenskum tíma. Í tilkynningu frá flugfélaginu segir að engan hafi sakað um borð og að engin hætta hafi verið á ferðum, enda vélin búin til að bregðast við slíku. 27.6.2010 09:20
G8 fordæma Norður-Kóreumenn Leiðtogar G8 ríkjanna svokölluðu hafa fordæmt Norður-Kóreu fyrir að sökkva herskipi frá nágrönnum þeirra í suðri fyrir nokkrum mánuðum. Fordæmingin var sett fram á leiðtogafundi G8 ríkjanna sem nú fer fram í Toronto í Kanada. 26.6.2010 22:00
Mál Götusmiðjunnar skoðað í félagsmálaráðuneytinu Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra segir að ráðuneytið fylgist grannt með þeim ágreiningi sem nú er uppi á milli Guðmundar Týs Þórarinssonar forstöðumanns í Götusmiðjunni og Braga Guðbrandssonar hjá Barnaverndarstofu. Guðmundur Týr krafðist þess í dag að félagsmálaráðuneytið kæmi að málinu. 26.6.2010 20:51
Bareigendur í Bloemfontain undirbúa sig fyrir morgundaginn Bareigendur í borginni Bloemfontein hafa fengið fyrirmæli um að vera vel birgir af bjór fyrir leikinn á morgun en þá mætast Englendingar og Þjóðverjar í 16 liða úrslitum heimsmeistarakeppninnar í Suður Afríku. Búist er við um 25 þúsund enskum stuðningsmönnum og allt að 10 þúsund Þjóðverjum á leikinn. Þar sem leikurinn fer fram á sunnudegi er ekki hægt að kaupa bjór í búðum í Bloemfontain en hinsvegar má kaupa alkóhól á börum og á veitingahúsum. 26.6.2010 20:38
Segir Sjálfstæðisflokkinn stimpla sig út og skila auðu Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra segir það með ólíkindum að Sjálfstæðismenn ætli að „stimpla sig út og skila auðu,“ þegar kemur að Evrrópumálunum en á landsfundi flokksins í dag var samþykkt ályktun þess efnis að skýr krafa sé frá Sjálfstæðisflokknum að umsókn um aðildarviðræður við Evrópusambandið verði dregin til baka sem fyrst. 26.6.2010 19:49
23 létust í rútuslysi á Indlandi Að minnsta kosti 23 létust á Indlandi í dag þegar langferðabifreið ók á fullri ferð framan á vörubíl í austurhluta landsins. Að sögn lögreglustjórans á svæðinu eru 25 einnig alvarlega slasaðir en lögregla segir í samtali við CNN að ökumanni rútunnar sé um að kenna. Hann hafi ekið allt of ógætilega. 26.6.2010 20:21
Segir Guðmund hafa vakið ótta og kvíða Forstjóri Barnaverndarstofu segir forstöðumann Götusmiðjunnar hafa með framkomu sinni vakið ótta og kvíða meðal þeirra barna sem þar voru í vistun, en smiðjunni var lokað í gær. Forstöðumaðurinn hafnar því og segir forstjórann ganga of hart fram, eðlilegra hefði verið að veita sér áminningu. 26.6.2010 18:43
Skýr krafa um að ESB umsókn verði dregin til baka Landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti rétt í þessu breytingartillögu við stjórnmálaályktun landsfundarins þar sem sem fundurinn leggur fram skýra kröfu um að umsóknin um aðild Íslands að Evrópusambandinu verði dreginn til baka án tafar. 26.6.2010 17:37