Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Jóni birt stefnan í New York Jón Ásgeiri Jóhannessyni hefur verið birt stefna slitastjórnar Glitnis á hendur honum, Lárusi Welding og fimm öðrum, að sögn breska blaðsins Guardian. Blaðið greinir frá því á vef sínum að Jóni Ásgeiri hafi verið afhent dómsgögnin í annarri lúxusíbúða sinna í Manhattan í New York. 13.5.2010 10:31
Fjórar líkamsárásir kærðar Fjórar líkamsárásir voru kærðar í Reykjavík nótt. Að sögn lögreglu var engin þeirra þó alvarleg. Töluverður erill var í miðborginni enda skemmtistaðir opnir frameftir. Þá voru nokkri teknir fyrir meintan ölvunar og eða fíkniefnaakstur. Á Suðurnesjum gekk skemmtanahald næturinnar hinsvegar mjög vel fyrir sig að sögn lögreglu. 13.5.2010 10:30
Svipaður gangur í gosinu Svipaður gangur er í gosinu í Eyjafjallajökli og verið hefur undanfarna daga. Lögreglan á Hvolsvelli segir að gosmökkurinn sé enn í svipaðri hæð og verið hefur en engar fregnir hafa borist af öskufalli í dag en samkvæmt spá Veðurstofunnar eru horfur á öskufalli sunnan og suðaustan eldstöðvarinnar. 13.5.2010 10:00
Stal Hesti Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði í nótt mann sem virtist hafa óeðlilega mikinn áhuga á skiltum og vegvísum því hann hafði stolið nokkrum slíkum um nóttina. 13.5.2010 09:56
Engin formleg höfnun borist í máli Sigurðar Breska lögreglan hefur ekki hafnað handtöku Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanni Kaupþings, formlega. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. 13.5.2010 09:38
Mergsugu Glitni í eigin þágu Sýslumaðurinn í Reykjavík tekur afstöðu til beiðni slitastjórnar og skilanefndar Glitnis um kyrrsetningu eigna Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Lárusar Welding og Pálma Haraldssonar strax eftir helgi, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Verði sýslumaður við beiðninni má gera ráð fyrir að allar eignir þremenninganna hér á landi verði frystar, þar á meðal 45 prósent eignarhlutur Jóns Ásgeirs í Gaumi og eignarhlutur Pálma í Iceland Express auk annarra eigna þeirra hér á landi. 13.5.2010 09:00
Vill freista þess að ljúka Icesave innan mánaðar Ríkisstjórnin vill láta á það reyna hvort unnt sé að ná Icesave-samkomulagi við Breta og Hollendinga fyrir þingkosningarnar í Hollandi eftir tæpan mánuð og ræddi málið við forystumenn stjórnarandstöðunnar í dag. 12.5.2010 23:00
Miliband vill verða leiðtogi David Miliband hefur gefið kost á sér sem leiðtogi breska Verkamannaflokksins. Gordon Brown, fráfarandi leiðtogi, tilkynnti í gær að hann myndi ekki gegna stöðunni áfram eftir tap í þingkosningum í síðustu viku. 12.5.2010 22:00
Vill að Alþingi stöðvi ákæru gegn mótmælendum Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, hefur lagt fram þingsályktun á Alþingi um að skrifstofustjóra Alþingis verði falið að fara þess á leit við 12.5.2010 20:16
Brynjar Níelsson formaður Lögmannafélags Íslands Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður var kjörinn formaður Lögmannafélags Íslands á aðalfundi félagsins í dag. Hafði hann þar með betur en Heimir Örn Herbertsson mótframbjóðandi hans. 12.5.2010 19:37
Bifreið ekið á barn Bifreið var ekið á barn á Akurvöllum um hálfníuleytið í kvöld. Sem betur fer reyndust meiðslin vera minniháttar og samkvæmt upplýsingum frá sjúkraflutningamönnum reyndist ekki nauðsynlegt að flytja viðkomandi á slysadeild. 12.5.2010 21:15
Nafn mannsins sem lést á Ingólfsfjalli Maðurinn sem lést þegar svifvængur hans hrapaði með hann í hlíðum Ingólfsfjalls um miðjan dag á mánudag hét Grzegorz Czeslaw Rynkowski. Hann var fæddur í Póllandi 13.03.1976. Hann var búsettur á höfuðborgarsvæðinu og lætur eftir sig sambýliskonu. Rannsókn málsins miðar vel en hún er unnin af rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi. 12.5.2010 18:11
Metumferð í íslenskri lofthelgi Fjórða daginn í röð var metumferð um íslenska flugstjórnarsvæðið. Á síðasta sólarhring flugu 1012 flugvélar um svæðið. Sólarhringinn áður voru 984 flugvélar, þar áður 906 flugvélar og svo 758. Fyrra umferðarmet var sett 1.júlí 2008 þegar 576 flugvélar flugu inn á íslenska flugstjórnarsvæðið. 12.5.2010 17:36
Íslenskir starfsmenn í Bank Havilland í leyfi Meirihluti þeirra Íslendinga sem starfar hjá Bank Havilland í Lúxemborg áður Kaupþingbanka var sendur í leyfi skömmu eftir að Magnús Guðmundsson fyrrverandi forstjóri bankans var handtekinn og settur í gæsluvarðhald síðastliðinn fimmtudag. 12.5.2010 17:14
Faðir Jóns Ásgeirs veit ekki hvar hann býr „Ég hef það ekki hjá mér,“ svaraði Jóhannes Jónsson, faðir Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, þegar blaðamaður spurði hann hvort hann vissi hvar Jón væri niðurkominn. 12.5.2010 17:04
Fimm ára fangelsi fyrir stórfellt amfetamínsmygl Gunnar Viðar Árnason, 28 ára gamall karlmaður, hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir innflutningi á 6 kílóum af amfetamíni til landsins frá Hollandi í apríl 2009. 12.5.2010 17:00
Ofbeldismenn áfram í gæsluvarðhaldi Dómari við Héraðsdóm Reykjaness tók sér sólarhringsfrest í gær til að taka afstöðu til kröfu lögreglustjórans á Suðurnesjum um áframhaldandi gæsluvarðahald yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um að hafa ráðist á 64 ára gamlan mann, eiginkonu hans og dóttur við heimili þeirra í Reykjanesbæ þann 3. maí sl. 12.5.2010 16:42
Átta ára fangelsi staðfest en miskabætur lækkaðar Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag átta ára fangelsisdóm yfir Bjarka Má Magnússyni sem beitti sambýliskonu sína hrottalegu ofbeldi um nokkurra ára skeið. 12.5.2010 16:39
Jón Ásgeir játar sig sigraðan: „Þeir unnu“ „Þetta er það sem kallast vinstri krókur í hnefaleikum,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson í viðtali við fréttastofuna Bloomberg. Hann segist einnig ekki ætla að taka til varna, það kosti hann yfir 300 milljónir króna. 12.5.2010 16:12
Fæstir treysta Bjarna Benediktssyni Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, nýtur minnsta traustsins af stjórnmálaforingjum á Íslandi samkvæmt könnun MMR. 67,0% sögðust bera lítið traust til hans nú samanborið við 54,4% í síðustu könnun. Þá segjast 13,8 % bera mikið traust til hans. 12.5.2010 15:16
Ráðist á Múhameðs-teiknara í Svíþjóð -myndband Sænski teiknarinn Lars Vilks var að flytja fyrirlestur um tjáningarfrelsi í háskólanum í Uppsölum þegar upphófust mikil hróp á arabisku -Allah er mikill. Svo var ráðist á hann. 12.5.2010 15:11
Slitastjórnin finnur ekki heimilisfangið hans Jóns Ásgeirs „Það hefur reynst okkur erfitt að finna heimilisfang á hann [Jón Ásgeir Jóhannessonar.innsk.blm.],“ segir Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, en hún er ekki viss hvort búið sé að birta Jóni Ásgeir Jóhannessyni stefnu bankans yfir honum og meintum samverkamönnum hans. 12.5.2010 14:51
Foreldrar flýja frá börnum sínum Foreldrar á Haítí eru farin að yfirgefa börn sín í stórum stíl í von um að hjálparstofnanir geti veitt þeim betra líf....þótt það sé ekki nema ein máltíð á dag. 12.5.2010 14:29
Krafðist þess að óeinkennisklæddar löggur yfirgæfu réttarsalinn Ragnar Aðalsteinsson, verjandi nokkurra einstaklinga af þeim níu sem hafa verið ákærðir fyrir að ryðjast inn á Alþingi, krafðist þess að óeinkennisklæddir lögregluþjónar yfirgæfu réttarsalinn svo fleiri mótmælendur gætu fylgst með réttarhöldunum. Dómarinn hafnaði beiðninni. 12.5.2010 14:19
Fékk aðsvif og ók inn í Mjólkursamlagið Jeppabifreið rann stjórnlaus inn í nýbyggingu Mjólkursamlagsins á Sauðárkróki nú í hádeginu þar sem kaffaðstaða starfsmanna er samkvæmt fréttavef Feykis. Talið er að ökumaður hafi fengið aðsvif. 12.5.2010 14:10
Einn handtekinn í Héraðsdómi Reykjavíkur Einn karlmaður var handtekinn í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að freista þess að komast inn í dómsal þar sem réttað var yfir níumenningunum. Héraðsdómur fylltist af mótmælendum sem vilja fylgjast með réttarhöldunum. Aftur á móti eru ekki næg sæti inn í stærsta sal héraðsdóms og við það eru mótmælendur ósáttir. 12.5.2010 14:00
Mótmælendur fylltu Héraðsdóm Reykjavíkur Fullt var út úr húsi í Héraðsdómi Reykjavíkur þegar taka átti fyrir mál nímenningana sem hafa verið ákærðir fyrir árás á Alþingi í mótmælendaaðgerðum stuttu fyrir jól 2008. 12.5.2010 13:23
Sigurður Pétursson bæjarstjóraefni Í-listans Sigurður Pétursson fyrsti maður á framboðslista Í-listans er bæjarstjóraefni listans. Sigurður hefur starfað sem oddviti Í-listans í bæjarstjórn undanfarin fjögur ár. 12.5.2010 13:11
Skáksambandið styður Karpov Skáksamband Íslands hefur lýst yfir stuðningi við framboð Anatoly Karpov í embætti forseta Alþjóðaskáksambandsins FIDE. Forsetaembættið hefur löngum þótt hápólitískt. Í 15 ár hefur Kirsan Ilymzhinov gegnt embættinu en nú hefur Karpov fyrrverandi heimsmeistari í skák boðið sig fram gegn honum. 12.5.2010 13:02
Hafa ekki keypt notaða bíla vegna eldgossins Bílaleigur hafa lítið sem ekkert keypt af notuðum bílum í vor eins og vonir stóðu til eftir að lög voru samþykkt sem heimiluðu þeim að fá virðisaukaskattinn endurheimtan við kaup á notuðum bílum. Ástæðan er samdráttur í bókunum sem rakin er til eldgossins í Eyjafjallajökli. 12.5.2010 12:52
Rússar telja sjóræningja réttdræpa -skildu tíu eftir á rúmsjó Tíu sómalskir sjóræningjar sem rússneskt herskip sleppti 600 kílómetra frá landi fórust allir að sögn norsku vefsíðunnar vg.no. 12.5.2010 12:32
Mikil ánægja með störf Hönnu Birnu Meirihluti Reykvíkinga telur að Hanna Birna Kristjánsdóttir hafi staðið sig vel í starfi borgarstjóra. Þetta kemur fram í könnun hjá Markaðs- og miðlarannsóknum. 12.5.2010 12:25
Meintum klíkumálum Jóns Ásgeirs vísað til sérstaks saksóknara Meint brot Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, og klíku hans, eins og það er orðað í stefnu slitastjórnar Glitnis, hefur verið tilkynnt til embætti sérstaks saksóknara. 12.5.2010 12:21
Ingólfur í varðhald en Steingrímur í farbann Steingrímur Kárason fyrrverandi framkvæmdastjóri áhættustýringar Kaupþings og Ingólfur Helgason, fyrrverandi fyrrverandi forstjóri bankans á Íslandi, voru leiddir fyrir dómara við Héraðsdóms Reykjavíkur á tólfta tímanum í gærkvöldi, en þeir voru báðir handteknir við komuna til landsins i gærmorgun. 12.5.2010 12:05
Heybanki stofnaður fyrir bændur Öskufall í Skaftártungum suðaustur af Eyjafjallajökli var hið mesta í nótt frá upphafi gossins í Eyjafjallajökli. Heybanki verður stofnaður til að tryggja bændum á öskufallssvæðunum fóður fyrir skepnur þeirra í vetur. 12.5.2010 11:49
„Kærðu mig líka, Ásta“ „Ég hef skrifað undir áskorunina sem nú er á leiðinni til yfirvalda vegna máls nímenninganna. Kærðu mig líka, Ásta!“ segir Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingarinnar. Hann gagnrýnir að ákæra hafi verið gefin út í máli mótmælenda sem ruddust inn í Alþingi í búsáhaldabyltingunni. Ákæran eigi ekkert skylt við öryggi. Hún sé pólitísk og augljóslega ætlað að vara almenning við mótmælum í framtíðinni. 12.5.2010 10:59
Til hamingju David Barack Obama var meðal fyrstu þjóðarleiðtoga sem hringdu í David Cameron til þess að óska honum til hamingju með embætti forsætisráðherra Bretlands. 12.5.2010 10:03
„Hver borgaði Framsókn?“ „Sá flokkur sem sópar undir teppið er að víkja sér undan ábyrgð. Það er Framsóknarflokkurinn að gera. Hann hefur ekki gert hreint fyrir sínum dyrum,“ segir Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi þingflokksformaður Framsóknarflokksins, í grein í Morgunblaðinu í dag. 12.5.2010 10:01
Fleiri njóta félagslegar heimaþjónustu Árið 2009 nutu 8060 heimili félagslegar heimaþjónustu hér á landi og hafði þeim fjölgað um 196 eða 2,5% frá árinu á undan og um 434 eða 5,7% frá árinu 2007. Þetta kemur fram á heimasíðu Hagstofunnar. 12.5.2010 09:12
Yfir hundrað fórust í flugslysi í Lýbíu Talið er að 104 hafi farist þegar flugvél fórst skammt frá Trípólí, höfuðborg Lýbíu, í morgun. Átta ára hollenskur drengur komst lífs af úr slysinu. 12.5.2010 08:57
Enn ein árásin í kínverskum leikskólum Karlmaður réðst inn í leikskóla í Kína í nótt og myrti sex börn áður en hann tók eigið líf. Kínverjar eru slegnir yfir endurteknum árásum á leikskóla. 12.5.2010 08:18
Clegg verður aðstoðarforsætisráðherra David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, tók í gærkvöldi við embætti forsætisráðherra Bretlands. Fimm ráðherrar í nýju stjórninni koma úr röðum Frjálslyndra demókrata. 12.5.2010 08:15
Áttræður maður í hjólastól myrti eiginkonuna Áttræður Bandaríkjamaður hefur viðkennt að hafa myrt 75 ára eiginkonu sína sem hann grunaði um að væri að halda fram hjá sér. Maðurinn kyrkti eiginkonuna en athygli vekur að hann er bundinn við hjólastól og heilsulítill. 12.5.2010 08:12
Leituðu að tvítugum manni á Akureyri Lögreglan á Akureyri hóf seint í gærkvöldi leit að rúmlega tvítugum karlmanni, eftir að hann hafði gleypt í sig tólf svonefndar sprengitöflur við hjartatruflunum, í húsi þar sem hann hafði verið gestkomandi. 12.5.2010 08:06
Hef á tilfinningunni að ég verði sakfelld Mál níu mótmælenda sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi í desember 2008 verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þeir eiga yfir höfði sér að minnsta kosti eins árs fangelsi verði þeir fundnir sekir. 12.5.2010 08:00