Erlent

Telpan var ekki Madeleine

Óli Tynes skrifar
Þetta er ekki Madeleine.
Þetta er ekki Madeleine.
Lögreglan á Nýja Sjálandi hefur sannreynt að lítil telpa sem sást á öryggismyndavél í stórmarkaði þar í landi var ekki Madeleine McCann.

Myndin var meðal fleiri mynda í leyniskjölum portúgölsku lögreglunnar um rannsóknina á hvarfi hennar.

Talsmaður Nýsjálensku lögreglunnar vildi ekki gefa upp nafn telpunnar á myndinni eða fjölskyldu hennar, til þess að vernda friðhelgi hennar.

Hann sagði lögregluna vera mjög meðvitaða um þann sársauka sem svona fréttir geti valdið McCann hjónunum og bað fjölmiðla um að reyna ekki að hafa upp á telpunni á myndinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×