Fleiri fréttir

15 daga gamalli stúlku bjargað á Haítí

Björgunarsveitum á Haítí tókst að bjarga þremur úr rústum bygginga í gær, en fólkið hefur verið innilokað í viku, án vatns og matar. Eldri konu var bjargað úr rústum kirkju í gær og skömmu síðar náðu björgunarmenn til 25 ára gamallar konu sem grafin var í rústum verslunarmiðstöðvar.

Flugmenn kjósa um verkfallsboðun

Allsherjar atkvæðagreiðsla fer nú fram meðal flugmanna Icelandair, um verkfallsboðun, eftir að upp úr slitnaði í viðræðum þeirra við vinnuveitendur hjá ríkissáttasemjara 12. janúar.

22 ökumenn undir áhrifum

Tuttugu og tveir ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu um helgina vegna aksturs undir áhrifum áfengis eða annarra fíkniefna.

Með kannabis á Akureyri

Lögreglan á Akureyri gerði 50 grömm af kannabis upptæk við húsleit í bænum í gærkvöldi. Tveir menn voru handteknir, en sleppt að yfirheyrslum loknum í nótt. Ekki liggur fyrir hvort mennirnir ætluðu að hagnast af sölu efnanna.

Myrti átta og hélt til skógar

Byssumaður myrti átta manns í gær í bænum Appomattox í Virginíu í Bandaríkjunum. Fórnarlömbin eru öll fullorðin og voru sjö þeirra skotin í sama húsinu en það áttunda úti á götu í næsta nágrenni.

Þungt haldinn á gjörgæslu

Maðurinn sem slasaðist í sprengingu í Hveragerði á níunda tímanum í gær liggur mjög þungt haldinn á gjörgæsludeild Landsspítalans. Maðurinn er 23 ára gamall og félagi hans, sem einnig var á vettvangi, slapp ómeiddur. Strax og sjúkraflutningamenn komu á vettvang kölluðu þeir eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar, en bjuggu um hinn slasaða og héldu af stað með hann í sjúkrabíl til móts við þyrluna.

Óð að ljósmyndara með hnefann á lofti

Árvökull fangavörður greip inn í atburðarás fyrir utan dómsal í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær þegar brasilíski gæsluvarðhaldsfanginn Hosmany Ramos gerði sig líklegan til að ráðast á ljósmyndara Fréttablaðsins.

Þúsundir án vinnu í rúmt ár

Vinnumálastofnun (VMST) gerir ráð fyrir því að langtímaatvinnuleysi muni ná til allt að tíu þúsund manns innan fárra mánaða. Hópurinn þrettánfaldaðist á síðustu tólf mánuðum. Unnið er að sérstöku átaki til að afstýra því að félagslegar og sálfræðilegar afleiðingar þessa vanda vaxi mönnum yfir höfuð.

Breikka Þjóðveg 1 næst borginni

Ríkisstjórnin ákvað í gær að fela samgönguráðherra og fjármálaráðherra að undirbúa útboð vegna breikkunar Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er stefnt að því að ákvörðun liggi fyrir síðar í vikunni.

Tekjurnar nýtist í atvinnufjárfestingu

Skattleggja á séreignarsparnað og nota afraksturinn til fjárfestingar í atvinnulífinu. Þetta segir Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, en hann á jafnframt sæti í efnahags- og skattanefnd þingsins.

Konur hvattar í framboð

Jafnréttisstofa hefur, ásamt samgöngu- og sveitar­stjórnarráðuneyti, gefið út bækl­ing sem ætlað er að hvetja konur til að bjóða sig fram til sveitarstjórnarstarfa. Í bæklingnum, sem ber titilinn Eflum lýðræðið - konur í sveitarstjórn, hvetja sveitarstjórnarkonur úr öllum flokkum og kjördæmum konur til að gefa kost á sér til starfa.

Átak gegn atvinnuleysisvánni

Vinnumálastofnun (VMST) hefur fengið fjármagn til að fjölga starfsráðgjöfum um tíu. Sérstakt átak verður gert á næstu mánuðum til að hjálpa þeim sem hafa verið atvinnulausir í langan tíma. Ungt fólk er þar í forgrunni.

Útvaldir fá ókeypis gistingu í sumarbústað borgarinnar

„Satt best að segja finnst mér menn taka mjög illa í hugmyndir um eitthvað sem minnkar þeirra fríðindi. Ég er dálítið hissa á því,“ segir Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi VG, sem vill að borgarfulltrúar og æðstu embættismenn greiði fyrir afnot af sumarbústað sem borgin á við Úlfljótsvatn.

Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að birta allt

Á næstu vikum ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að birta upplýsingar um heildarframlög til flokksins allt aftur til ársins 2002. Nöfn þeirra sem styrkt hafa flokkinn verða einnig birt, að því gefnu að þeir samþykki að verða nafngreindir. Svo segir Jónmundur Guðmarsson, framkvæmdastjóri flokksins.

Svanhildur áfram formaður

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra og ráðherra ferðamála, hefur skipað í ferðamálaráð til fjögurra ára. Formaður ferðamálaráðs er áfram Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar.

Hreppur flyst á milli landsvæða

Bæjarhreppur á Ströndum kemur til með að tilheyra Norðurlandi vestra en ekki Vestfjörðum, samkvæmt þingsályktunartillögu sem lögð hefur verið fram á Alþingi. Frá þessu er greint á vef Reykhólahrepps.

Hver og einn gefið 88 krónur

Hjálparstarf Hver og einn Íslendingur hafði í gær gefið Rauða krossi Íslands 88 krónur til að sinna neyðaraðstoð á Haítí. Alls eru þetta 28 milljónir. Enn er framlag frá deildum RKÍ og framlag íslenska ríkisins ekki komið fram. Því kann svo að fara að heildarframlög verði um eða yfir fimmtíu milljónir.

Gat ekki sagt nei við kallinu

„Íslenski Rauði krossinn hafði samband við mig um hvort ég gæti starfað með þýska Rauða krossinum við að koma upp spítala í Port-au-Prince. Það er verið að reisa þessa læknamiðstöð núna og ég mun starfa þar sem almennur læknir í mánuð ef allt gengur vel,“ segir Friðbjörn Sigurðsson, læknir á Landspítalanum, sem hélt áleiðis til Haítí í nótt.

Nefbraut mann

Karlmaður hefur verið dæmdur í þrjátíu daga fangelsi, skilorðsbundið, fyrir líkamsárás. Honum var gert að greiða fórnar­lambinu 200 þúsund í skaðabætur. Maðurinn réðst á hinn á og við Hressingarskálann í Reykjavík og kýldi hann í andlitið. Fórnarlambið nefbrotnaði.

Frekar treg veiði og bræla

Skipin sem stunda gulldepluveiðar fundu um helgina töluvert magn í Skerjadýpi. Gulldeplan var hins vegar óveiðanleg vegna mikillar átu og hafa skipin haldið áfram veiðum í Grindavíkurdýpi þar sem hún hefur helst verið í veiðanlegu magni.

Fyrsta beina flugið í bígerð

Helgina 12. til 14. febrúar næstkomandi verður í fyrsta sinn farið í beint áætlunar­flug á milli Vestmannaeyja og Akureyrar, tvisvar sinnum fram og til baka, að því er fram kemur á vef Akureyrarbæjar.

Áfallahjálpin hefst á Bahama

Íslenska rústabjörgunarsveitin leitaði í rústum hótelsins Montana í miðborg Port-au-Prince á Haítí í gær í von um að finna þar fólk, lífs eða liðið.

Samþykki eins foreldris nægir

Lækni er heimilt að miðla til félagsmálayfirvalda upplýsingum úr sjúkraskrá barns með samþykki annars foreldris. Þetta kemur fram í svari Persónuverndar við almennri fyrirspurn.

Verð íbúða lækkar enn

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 302,1 stig í desember síðastliðnum en það er lækkun um 2,2 prósent frá fyrra mánuði, samkvæmt Fasteignaskrá Íslands. Tólf mánaða lækkun nemur 12 prósentum, en síðustu þrjá mánuði hefur íbúðaverð á lækkað um 3,8 prósent.

Efnt til herferðar

Umfangsmikið kynningarátak Iceland Naturally í Bandaríkjunum nær til á milli 30 og 40 milljóna manna á ári hverju. Meðal þess sem ráðast á í á þessu ári eru stórar kynningarherferðir á íslenskri ferðaþjónustu, sjávarafurðum, endurnýjanlegri orku og tækni. Íslenskir úrvalskokkar munu elda fyrir almenning og tónleikar og kvikmynda- og listahátíðir haldnar.

Margir í slæmri skuldasúpu

Um tvö hundruð stofnfjáreigendur í sparisjóðnum Byr hafa stofnað grasrótarsamtökin Samtök stofnfjáreigenda sparisjóðsins. Tilgangur þeirra er að vinna að helstu hagsmunamálum stofnfjáreigenda Byrs og að viðhalda viðgangi og vexti stærsta sparisjóðs landsins.

Undir meðaltali OECD-ríkjanna

Atvinnuleysi hér á landi var 0,8 prósentustigum undir meðaltali aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, í nóvember síðastliðnum. Stofnunin birti sínar nýjustu tölur fyrir skömmu.

Alcoa styrkir björgunarstarf

Samfélagssjóður Alcoa í Bandaríkjunum hefur ákveðið að styrkja björgunarsveitir á Austurlandi næstu tvö árin um 12,5 milljónir króna. Styrkurinn verður stofnframlag í menntunarsjóð björgunarsveitarmanna á Austurlandi.

Ólafur víttur fyrir níðvísu

Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-lista, var víttur á borgarstjórnarfundi í gær eftir að hafa farið með níðvísu um Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra. Hann bar jafnframt upp vantrauststillögu á Hönnu Birnu sem var vísað frá.

Bréf forsetans ekki afhent

Níu af þeim sautján bréfum, sem forseti Íslands sendi rannsóknarnefnd Alþingis vegna rannsóknar á orsökum bankahrunsins, verða ekki gerð opinber fyrr en 30 ár eru liðin frá því að þau voru rituð. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur staðfest synjun forsetaskrifstofunnar við því að gera bréfin opinber.

Löngu útrunninn samningur

Samningur um nýtingu Ísafjarðarbæjar á vatni úr landareign Hvamms í Dýrafirði kann að hafa runnið út árið 1977. Frá þessu greinir Bæjarins besta á Ísafirði, bb.is.

Vonbrigði í stað aðdáunar

Vinsældir Baracks Obama Bandaríkjaforseta hafa dvínað töluvert frá þeim hæðum sem þær voru í þegar hann tók við embætti fyrir réttu ári. Um það bil fimmtíu prósent eru þó enn ánægð með störf hans, þótt prósentan rokki eitthvað til eftir skoðanakönnunum.

Taka harðar á mótmælendum

Ísraelsk stjórnvöld hafa síðan í sumar handtekið tugi palestínskra og ísraelskra andófsmanna, sem hafa mótmælt opinskátt stefnu stjórnarinnar gagnvart Palestínumönnum.

Bandaríski herinn hreiðrar um sig

Haítíbúar tóku fyrstu matvæla- og vatnssendingum Bandaríkjahers fagnandi þegar þeim var varpað niður úr þyrlu rétt fyrir utan höfuðborgina Port-au-Prince.

Kalli í Pelsinum og sonur yfirheyrðir

Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra gerði húsleit á þremur stöðum í dag vegna sölu á stórhýsi til kínverska sendiráðsins. Seljendur hússins eru grunaðir um fjársvik og hefur þegar verið lagt hald á níutíu og þrjár milljónir króna af meintum ávinningi.

Árekstur við Miklubraut

Tvær bifreiðar skullu saman á gatnamótum Grensás og Miklubrautar nú fyrir stundu en lögregla auk sjúkrabílar eru enn á vettvangi. Þegar haft var samband við lögregluna var lítið enn vitað um tildrög málsins.

Fjármálaráðherra: Menn á villigötum telji þeir aðstæður ekki alvarlegar

Fjármálaráðherra segir menn á miklum villigötum ef þeir haldi að aðstæður á Íslandi séu ekki alvarlegar. Forsætisráðherra segir öll lán til fjárfestinga, atvinnulifs, orkuframkvæmda og sveitarfélaga stöðvast á meðan Icesavemálið og efnahagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins séu í óvissu.

Tvöföldun Suðurlandsvegar á leið í útboð

Átta mánaða útboðsbann í vegagerð gæti verið á enda. Samgönguráðherra kynnti ríkisstjórn í morgun áform um að bjóða út tvöföldun Suðurlandsvegar um Sandskeið og tvöföldun Vesturlandsvegar í Mosfellsbæ, verkefni upp á samtals tvo milljarða króna.

Samkynhneigðir stúdentar fagna ellefu ára afmæli

Í dag, 19. janúar, fagnar Q - félag hinsegin stúdenta 11 ára afmæli félagsins. Að því tilefni verður aðalbygging Háskóla Íslands lýst upp í regnbogalitum samkvæmt tilkynningu frá samtökunum, til að fagna deginum og þeim margbreytileika sem finna má meðal nemenda, kennara og starfsfólks innan Háskóla Íslands.

Sjá næstu 50 fréttir