Fleiri fréttir

Tiger og Elín þögul sem gröfin

Tiger Woods neitar enn að tala við lögregluna vegna bílslyssins sem hans lenti í. Dagblaðið Los Angeles Times segir að vegna þess hafi lögreglan leitað til sjúkrahússins sem hann var fluttur á til þess að fá áverkavottorð hans.

Ungir jafnaðarmenn leggjast gegn skerðingu á fæðingarorlofi

Ungir jafnaðarmenn leggjast gegn þeim áformum félagsmálaráðherra að skerða fæðingarorlof, hvernig sem þær tillögur verða framkvæmdar. Frá þessu segir í yfirlýsingu frá UJ. Í umræðu hafa verið tillögur um að skerða hámarksgreiðslur niður í 300 þúsund eða að gera foreldrum að fresta töku eins mánaðar af fæðingarorlofi um nokkur ár.

Baugsmál í uppnám vegna tímaritsgreinar

Fresta þurfti Baugsmálinu í dag vegna ritstjórnargreinar eftir Róbert Spanó sem finna má í nýjasta hefti Tímariti lögfræðinga og ber heitið: „Ne bis in idem - Mannréttindadómstóll Evrópu víkur frá fyrri fordæmum.“

Í fangelsi fyrir að stela tveimur nautalundum og kynlífseggi

Kona var í dag dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur í 90 daga fangelsi fyrir að rjúfa skilorð þegar hún stal tveimur nautalundum í Hagkaup og kynlífseggi í versluninni Adam og Evu. Nautalundirnar voru verðmetnar á rúmar tíu þúsund krónur og eggið á tæpar fimm þúsund. Ákærða játaði skýlaust brot sín og í ljósi þess að hún hefur á stuttu tímabili gerst sek um nokkur afbrot ákvað dómurinn að dæma hana nú í 90 daga fangelsi.

Dýrkeypt fegurð

Fyrrverandi ungfrú Argentína lést um helgina eftir misheppnaða fegrunaraðgerð á þjóhnöppun. Þetta hefur beint athyglinni að því að Argentína er að verða alheimsmiðstöð fyrir fegrunaraðgerðir.

Þorbjörn Jensson hlaut Barnamenningarverðlaunin 2009

Þorbjörn Jensson, forstöðumaður Fjölsmiðjunnar, hlaut í dag Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna árið 2009 fyrir ómetanlegt starf sitt í þágu ungmenna. Verðlaunaféð, 3,5 milljónir króna, verður nýtt til að efla nýja uppbyggingu meðal annars tónlistardeild Fjölsmiðjunnar. Alls var úthlutað ríflega 26 milljónum króna úr Velferðarsjóði barna í dag en heildarúthlutunin úr sjóðnum í ár nemur alls um 160 milljónum króna.

Svandís gagnrýnd fyrir seinagang

Lagning nýs vegar um Vattarfjörð og Kjálkafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum þarf að fara í umhverfismat, þvert gegn vilja Vegagerðarinnar, samkvæmt úrskurði Svandísar Svavarsdóttur umhverfissráðherra. Gagnrýnt var á Alþingi í gær að það hefði tekið ráðherrann sjö mánuði að kveða upp úrskurðinn þegar lög gerðu ráð fyrir að hann hefði tvo. Ráðherrann lofaði bót og betrun vegna ítrekaðrar gagnrýni á ráðuneytið fyrir að draga úrskurði fram úr hófi.

Lögreglumorð í Seattle: Morðinginn skotinn til bana

Lögreglan í Seattle í Bandaríkjunum hefur skotið til bana mann sem grunaður var um að hafa myrt fjóra lögreglumenn með köldu blóði. Morðin voru framin á kaffihúsi á sunnudagsmorgun og hefur verið gerð gríðarleg leit að morðingjum síðan.

Áhyggjur af HIV smiti með sprautunálum

Konur eru í meirihluta þeirra sem smituðust af HIV hér á landi en tólf manns hafa greinst með sjúkdóminn á þessu ári. Í þessum hópi eru fjórir karlmenn og átta konur en enginn samkynhneigður hefur greinst með smit á árinu. Í dag er alþjóðlegi baráttudagurinn gegn alnæmi.

Pústrar í Vestmannaeyjum

Það var í ýmis horn að líta hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í vikunni þrátt fyrir að engin alvarleg mál hafi komið upp.

Dabbi Grensás ákærður fyrir að kýla kampavínskóng

Davíð Smári Helenarson hefur verið ákærður fyrir að slá eiganda Kampavínsklúbbsins Strawberries, Viðar Má Friðfinnsson, á vinstra gagnaugað með þeim afleiðingum að andlitsbein hans brotnaði. Árásin á að hafa átt sér stað í febrúar síðastliðnum.

Fjárlaganefnd: Lögspekingar ræða Icesave og stjórnarskrá

Nokkrir af virtustu lögfræðingum landsins hafa verið boðaðir á fund fjárlaganefndar í hádeginu í dag. Kallað hefur verið eftir áliti þeirra á því hvort fyrirliggjandi frumvarp um ríkisábyrgð í Icesave málinu standist stjórnarskrána. Á meðal gesta nefndarinnar í dag er Sigurður Líndal prófessor sem á dögunum skrifaði grein í Fréttablaðið þar sem vakin er athygli á því hve lítil umræða hafi farið fram um Icesave með tilliti til stjórnarskráarinnar.

Dæmdur fyrir nefbrot á Tunglinu

Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í morgun fyrir að nefbrjóta mann á skemmtistaðnum Tunglinu í miðborg Reykjavíkur í september á síðasta ári. Maðurinn sló fórnalamb sitt einu höggi með þeim afleiðingum að hann nefbrotnaði.

Fjölskylduhjálp: „Það er allt tómt, allar frystikistur, allir skápar“

Fjölskylduhjálp Íslands er orðinn uppiskroppa með matvæli en líknarfélagið biðlar til þjóðarinnar allrar að aðstoða félagið svo það geti aðstoðað þá sem minna mega sín. Góðgerðarfélagið hefur hingað til aðstoðað 49 þúsund einstaklinga á ári - allt stefnir í að það met verði slegið í ár.

Barn kafnaði við brjóstagjöf

Fjögurra mánaða gamalt barn kafnaði þegar móðir þess sofnaði við að gefa því brjóst í einni af flugvélum United Airlines.

Ungir bændur ánægðir með skipun vinnuhóps

Stjórn Samtaka ungra bænda, fagnar því að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherrra hefur skipað vinnuhóp til að fjalla um breytingar sem verða á eignarhaldi bújarðar vegna bankahrunsins og að vilji sé fyrir hendi til að tryggja að jarðir fari ekki úr landbúnaðarnotkun og leitast sé við að tryggja áframhaldandi búsetur á þeim.

Hannaði hjálpartæki gleðinnar

„Kínversk speki segir að ef þú brosir fimm sinnum á hverjum degi án tilefnis, breytir þú lífi þínu á nítíu dögum," segir listamaðurinn Gegga, eða Helga Birgisdóttir, sem hefur hannað svokallaðan brosara sem fólk getur nýtt sér til þess að fást við lífið og tilveruna.

Íranar handtaka áhöfn af seglskútu

Íranar hafa í haldi fimm breska skipverja af kappsiglingasnekkju sem þeir segja að hafi komið inn í landhelgi sína síðastliðin miðvikudag.

Neyðarkall frá Fjölskylduhjálp Íslands

Fjölskylduhjálp Íslands biðlar til þjóðarinnar um aðstoð fyrir jólin en matarkistur og skápar Fjölskylduhjálpar Íslands eru tómar samkvæmt tilkynningu frá Ásgerði Jónu Flosadóttur, formanns Fjölskylduhjálpar.

Gleyma 10.000 símum á mánuði í leigubílum

Lundúnabúar skilja að jafnaði 10.000 farsíma eftir í leigubílum í hverjum mánuði og enn fleirum í jólamánuðinum. Auk símanna gleymast eða týnast að jafnaði 1.000 annars konar rafmagnstæki, svo sem fartölvur eða iPod-spilarar, sem farþegar hafa með sér í leigubílana.

Enn ein flökkusaga af dauða Kim Jong-il

Stjórnvöld í Suður-Kóreu lýstu því yfir opinberlega í morgun að ekkert væri hæft í því að Kim Jong-il Norður-Kóreuleiðtogi hefði verið myrtur eftir að sögusagnir um það komust á kreik.

Lögregla skaut mann í Kalundborg

Lögregla í Kalundborg á Sjálandi skaut mann til bana um klukkan eitt í nótt að íslenskum tíma eftir að hann hafði gert tilraun til að keyra tvo lögreglumenn niður á bíl sínum.

Clemmons talinn njóta aðstoðar vina

Maurice Clemmons, sem er á flótta undan lögreglu í Washington eftir að hafa skotið fjóra lögreglumenn til bana á veitingastað í fyrradag, er talinn njóta aðstoðar vina sinna við að fara huldu höfði.

Endaði inni í húsagarði

Tveir bílar skullu harkalega saman á mótum Barmahlíðar og Reykjahlíðar í Reykjavík í gærkvöldi og hafnaði annar bíllinn inni í húsagarði.

Óku út af í Víkurskarði

Tvær ungar konur komust í hann krappan í gærkvöldi, þegar bíll þeirra snerist í hálku og rann aftur á bak út af veginum í Víkurskarði, á milli Akureyrar og Húsavíkur, og hafnaði þar í skafli.

Konur heilbrigðari en karlar

Þeir sem meira eru menntaðir eru líklegri til að finna sér heilsusamlegri lífsstíl en þeir sem minni menntun hafa og konur lifa almennt heilsusamlegra lífi en karlar. Þetta kemur fram í greiningu Rúnars Vilhjálmssonar, prófessors í félagsfræði við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, sem hann byggir á umfangsmiklum könnunum sem gerðar voru á heilsufari Íslendinga á árunum 2006 til 2007.

Eykt með verk fyrir nærri 600 milljónir

Verktakafyrirtækið Eykt hefur fengið verkefni fyrir 585,1 milljón króna fyrir Reykjavíkurborg í þremur verkefnum síðustu þrjú ár, samkvæmt upplýsingum frá Framkvæmda- og eignasviði borgarinnar. Árið 2007 vann fyrirtækið að flutningi Strætós að Hesthálsi fyrir 423,6 milljónir, eftir að hafa fengið verkefnið í gegnum útboð.

Vilji þóknast landsbyggðarhagsmunum

Forseti borgarstjórnar er að þóknast landsbyggðarhagsmunum í borginni með málflutningi sínum um Reykjavíkurflugvöll og það er skammarlegt að hann hnýti í eina manninn sem gætir hagsmuna borgarbúa í Sjálfstæðisflokknum, Gísla Martein Baldursson.

Steingrímur segir málið margrætt

Siv Friðleifsdóttir, Framsóknarflokki, vill að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra ræði um Icesave-málin við starfsbræður sína í Bretlandi og Hollandi. Vill hún að gerð verði úrslitatilraun til að rétta hlut Íslands í málinu og að það verði gert augliti til auglitis.

Segir úrskurð skapa óvissu í Miðskógum

„Deilurnar hafa verið langar, pólitískar, persónulegar, rætnar og erfiðar,“ segir Kristján Sveinbjörnsson bæjarfulltrúi í bréfi til bæjarstjórnar Álftaness um mál lóðarinnar á Miðskógum 8.

Pattstaða í makrílviðræðum

Fundi strandríkja um stjórn makrílveiða á árinu 2010 var slitið í Edinborg í síðustu viku án þess að niðurstaða næðist. Greint var frá þessu í vefútgáfu norska dagblaðsins VG. Þar er haft eftir fulltrúum norska

Fjölgi um 30 þúsund í Afganistan

Talið er líklegt að Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, muni senda um 30 þúsund hermenn til viðbótar til Afganistan í baráttunni við Talibana.

Ólafur krefst afsagnar borgarstjórans

Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri á að segja af sér vegna fjárframlaga sem hún þáði af Landsbanka Íslands, áður en hún varði hagsmuni eigenda Landsbankans í málefnum Listaháskóla við Laugaveg.

Sjá næstu 50 fréttir