Fleiri fréttir

Steingrímur segir málið margrætt

Siv Friðleifsdóttir, Framsóknarflokki, vill að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra ræði um Icesave-málin við starfsbræður sína í Bretlandi og Hollandi. Vill hún að gerð verði úrslitatilraun til að rétta hlut Íslands í málinu og að það verði gert augliti til auglitis.

Segir úrskurð skapa óvissu í Miðskógum

„Deilurnar hafa verið langar, pólitískar, persónulegar, rætnar og erfiðar,“ segir Kristján Sveinbjörnsson bæjarfulltrúi í bréfi til bæjarstjórnar Álftaness um mál lóðarinnar á Miðskógum 8.

Pattstaða í makrílviðræðum

Fundi strandríkja um stjórn makrílveiða á árinu 2010 var slitið í Edinborg í síðustu viku án þess að niðurstaða næðist. Greint var frá þessu í vefútgáfu norska dagblaðsins VG. Þar er haft eftir fulltrúum norska

Fjölgi um 30 þúsund í Afganistan

Talið er líklegt að Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, muni senda um 30 þúsund hermenn til viðbótar til Afganistan í baráttunni við Talibana.

Ólafur krefst afsagnar borgarstjórans

Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri á að segja af sér vegna fjárframlaga sem hún þáði af Landsbanka Íslands, áður en hún varði hagsmuni eigenda Landsbankans í málefnum Listaháskóla við Laugaveg.

Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins vörðu milljónum í eigin framboð

Sjö frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins i prófkjörum fyrir alþingiskosningarnar í apríl vörðu meira en einni milljón króna úr eigin vasa í prófkjörsbaráttuna. Jón Gunnarsson, þingmaður í suðvesturkjördæmi, varði rúmlega 2,1 milljón króna úr eigin vasa til þess að fjármagna prófkjörsbaráttu sína.

Kröfuhafar eignast bróðurpartinn í Arion

Erlendir kröfuhafar í gamla Kaupþingi eignast bróðurpartinn í Arion banka, sem áður hét Nýi Kaupþing, samkvæmt samkomulagi sem er í burðarliðnum. Fréttastofa RÚV fullyrðir að tilkynnt verði um samkomulag þessa eðlis í dag eða á morgun. Samkvæmt samkomulaginu mun skilanefndin eignast 90% en ríkið mun áfram eiga 10% í bankanum.

RÚV tapaði nærri 300 milljónum

Tap á rekstri Ríkisútvarpsins á nýliðnu rekstrarári nam 271 milljón króna, samkvæmt ársreikningi sem birtur var rétt fyrir fréttir. Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að afkoma RÚV hafi batnað um 465 milljónir króna frá árinu á undan. Tap ársins megi að öllu leyti rekja til mikils fjármagnskostnaðar vegna verðbólgu og gengislækkunar íslensku krónunnar.

Efast um að Alþingi ráði við endurreisn efnahagslífsins

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segist efast um getu Alþingis til að ráða við það verkefni að endurreisa efnhag landsins. Áframhaldandi óvissa í kringum Icesave málið gæti þýtt að lánshæfi Íslands verði lækkað niður í ruslflokk.

Metin slegin í humarveiðum

Skipverjarnir á Fróða II í Þorlákshöfn settu í dag Íslandsmet í humarveiðum þegar afli skipsins á árinu fór yfir hundrað tonn. Skipsstjórinn segir koma á óvart hversu mikið veiðist nú af humri við landið.

Segir tilboði stjórnarandstöðunnar um að ræða skattamál hafnað

Illugi Gunnarsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, kvaddi sér hljóðs þegar þing kom aftur saman eftir miðdegishlé klukkan þrjú og bauð fyrir hönd þingmanna Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Hreyfingarinnar, hliðrun á dagskrá þingsins, þannig að unnt yrði að ræða mikilvæg mál samkvæmt tilkynningu frá þingflokki Sjálfstæðisflokksins.

Umferðatafir á Suðurlandsvegi vegna mjólkurbíls

Umferðartafir eru tímabundið á Suðurlandsvegi við Bláfjallarveg, og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og tillitsemi samkvæmt Vegagerðinni en mjólkurbíll endaði utan vegar rúmlega tvö í dag.

Vilja meitla nöfn þingmanna á Icesave-minnisvarða

Forsvarsmenn heimasíðunnar, iceslave.is, vonast til þess að geta reist minnisvarða í miðborg Reykjavíkur til minningar um hugsanlega samþykkt Icesave-frumvarpsins. Á minnisvarðann verða nöfn þeirra sem greiða atkvæði með frumvarpinu greypt, auk þeirra sem sitja hjá eða koma sér undan þátttöku í atkvæðagreiðslunni.

Hvað gerði kona Tigers við golfkylfuna?

Hollywood vefsíðan TMZ.com segir að Tiger Woods hafi verið að flýja heimili sitt eftir ofsafengið rifrildi við eiginkonu sína hina sænsku Elínu Nordgren, þegar hann ók fyrst á brunahana og svo á tré.

Mjólkurbíll fór út af veginum við Sandskeið

Mjólkurbíll fór út af veginum við Sandskeið nálægt Bláfjallaafleggjara nú fyrir stundu. „Þetta er 22 hjóla trukkur sem liggur hérna á hliðinni.“ segir fréttamaður Stöðvar 2, sem er á staðnum.

Fimmtugur kannabisframleiðandi í fangelsi

Fimmtugur karlmaður var dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir að hafa haft 117 kannabisplöntur og 11 kannabisgræðlinga á heimili sínu í Vogum á Vatnsleysuströnd.

Saddam Hussein fær sjónvarpsrás

Dularfull sjónvarpsrás sem er tileinkuð Saddam Hussein hóf útsendingar í Írak um helgina. Sjónvarpsefnið er að mestu helgað Saddam og má þar bæði hlýða á ræður hans og ljóðalestur.

Indverjar standa straum af ferðakostnaði

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, mun fara til Indlands um miðjan janúar næstkomandi og taka við Nehru-verðlaununum sem hann hlaut á síðasta ári. Það eru indversk stjórnvöld sem bjóða forsetanum en auk hans fer Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra. Indversk stjórnvöld munu standa straum af öllum kostnaði vegna ferðarinnar samkvæmt Örnólfi Thorssyni forsetaritara.

Sýknuð af bótakröfu þegar snjóflóð féll á björgunarsveitarbíl

Eigandi bifreiðar og Sjóvá-Almennar tryggingar voru sýknuð af bótakröfu manns sem lærbrotnaði þegar snjóflóð féll á bifreið sem sat föst í Súðarvíkurhlíð í apríl 2006. Forsaga málsins er sú að tvær bifreiðar voru fastar í Súðavíkurhlíðinni milli snjóflóða. Björgunarsveitarmenn komu á vettvang en þeir voru á vel útbúnum bíl sem kallast Jakinn í daglegu tali.

Fæðingarorlof styst hér á landi

Fæðingarorlof hér á landi er með því stysta í samanburði við önnur Norðurlönd. Þetta segir formaður ljósmæðrafélags Íslands, Guðlaug Einarsdóttir, sem telur hættulega þróun að stytta orlofið. Auk þess samræmist stytting þess engan veginn tilmælum heilbrigðisyfirvalda landsins um aðbúnað og brjóstagjöf ungbarna.

Safnar fyrir styttu af Rúnari Júlíussyni

Rúnar Hartmannsson, Keflvíkingur sem smíðaði styttu af Rúnari Júlíussyni í fullri stærð, hefur hafið söfnun sem hefur það að markmiði að styttunni verði komið fyrir á rokkminjasafninu í Keflavík.

Óku tugi kílómetra til þess að handtaka ölvaðan mann

Lögreglan á Selfossi handtók verulega ölvaðan mann aðfaranótt sunnudags en húsráðendur sumarbústaðs skammt frá Geysi í Haukadal höfðu skotið skjólhúsi yfir manninn þar sem hann hafði orðið viðskila við félaga sína.

Flatskjá og fersku kjöti stolið af Svarta sauðinum

Aðfaranótt fimmtudagsins var brotist inn í veitingastaðinn Svarta sauðinn í Þorlákshöfn. Þaðan var stolið 42” Philips flatskjá, skiptimynt, bjór og fersku kjöti. Þjófarnir komust inn á veitingastaðinn með því að spenna upp glugga. Málið er óupplýst en lögreglan leitar eftir vísbendingum.

Fíladelfíusöfnuðurinn: Samkynhneigðir eru víst velkomnir

Hvítasunnukirkja Fíladelfíu hefur sent frá sér tilkynningu vegna ásakanna tónlistarmannsins, Friðriks Ómars Hjörleifssonar, þar sem hann hélt því fram að samkynhneigðir væru ekki velkomnir í gospelkór safnaðarins.

Barnaheill: Áhyggjur af fæðingarorlofsfrumvarpi

Barnaheill, Save the Children, á Íslandi lýsa yfir áhyggjum vegna frumvarps til laga um skerðingu á hámarksgreiðslum úr fæðingarorlofssjóði og frestun á töku orlofsins um þrjú ár. Barnaheill telja að með boðaðri breytingu sé ekki einungis verið að skerða réttindi foreldra, heldur að vegið sé að þeim rétti barnsins að fá að njóta sem lengstrar umönnunar móður og föður á fyrsta ári ævi þess.

Rændu risaolíuskipi

Sómalskir sjóræningjar hertóku í gær 300 þúsund tonna olíuskip sem var á leið frá Saudi-Arabíu til Bandaríkjanna með olíufarm.

Demjanjuk fyrir rétt í dag

Réttarhöld hefjast í þýsku borginni Munchen í dag yfir John Demjanjuk, sem ákærður er fyrir að hafa aðstoðað við morðin á 27 þúsund gyðingum í útrýmingarbúðum Nasista. Demjanjujk er 89 ára gamall og var hann framseldur frá Bandaríkjunum fyrr á þessu ári þar sem hann hefur búið frá stríðslokum.

Ódæðið í Reykjanesbæ: Líklega farið fram á lengra gæsluvarðhald

Gæsluvarðhald yfir 22 ára gamalli konu, Selmu Guðnadóttur, sem á að hafa stungið stúlkubarn með hnífi í haust rennur út í dag. Samkvæmt lögreglunni á Suðurnesjum verður sennilega farið fram á framlengingu gæsluvarðhaldsins í dag. Rannsókn er nær lokið og er beðið eftir að málið verði tekið fyrir í héraðsdómi.

Feitir farþegar vandamál

Feitir farþegar eru vaxandi vandamál fyrir flugfélög. Meðfylgjandi mynd er sögð vera tekin um borð í Boeing 757 vél bandaríska flugfélagsins American Airlines.

Fjórir lögreglumenn skotnir til bana

Mikil leit stendur yfir að byssumanni sem myrti fjóra lögreglumenn þar sem þeir sáu á kaffihúsi skammt frá Seattle í Bandaríkjunum í gærkvöldi.

Fulltrúar Wikileaks á Íslandi

Tveir fulltrúar frá WikiLeaks, Daniel Schmitt og Julian Assange, eru staddir hérlendis í tengslum við ráðstefnu Félags um Stafrænt frelsi (FSFÍ), sem haldin verður í Háskólanum í Reykjavík á morgun klukkan 10 um morgunin.

Bjarki Freyr fékk 16 ár

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi Bjarka Frey Sigurgeirsson rétt í þessu í 16 ára fangelsi fyrir að verða Braga Friðþjófssyni að bana í Hafnarfirði 17. ágúst síðastliðinn.

Mokað um land allt

Vetrarfærð er nánast um allt land og víða verið að ryðja eða hreinsa vegi. Það er hálka á Sandskeiði og á Hellisheiði þar sem gengur á með éljum. Annars eru hálkublettir víðast hvar á Suðurlandi að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Ökumenn undir áhrifum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gærkvöldi tvo ökumenn sem grunaðir eru um að aka undir áhrifum fíkniefna. Annar var á Breiðholstbraut en hinn í Kjalarvogi. Þá var einn var tekinn á Ártúnshöfða vegna gruns um ölvun við akstur.

Sjá næstu 50 fréttir