Fleiri fréttir

Rýkur enn úr rústum Lifrasamlagsins

Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur staðið vaktina við leifar Lifrasamlagsins sem brann í fyrrnótt í einum mesta bruna í bænum frá því Ísfélagið brann árið 2000. Stór hluti hússins var einangraður með torfi og því hefur reynst erfitt slökkva síðustu glæðurnar og rýkur enn úr rústunum.

Loftbelgsdrengurinn kominn fram

Sex ára gamli drengurinn, sem talið var að hefði svifið á brott með loftbelg í Colorado í gær, fannst heill á húfi undir kvöld. Reyndist hann hafa falið sig í kassa uppi á háalofti og fallið þar í fastasvefn.

Byggingu hálfkláraðs hótels haldið áfram

Norður-Kóreumenn sjá nú loksins fram á að lokið verði við að byggja Ryugyong-hótelið en byggingin hefur gnæft hálfkláruð yfir Pyongyang, höfuðborg landsins, í rúma tvo áratugi.

Geimrusl skall á húsþaki í Hull

Tveggja kílógramma þungt geimrusl skall á húsþaki ellilífeyrisþega á sjötugsaldri í bresku borginni Hull í síðustu viku.

Bretar hefja bólusetningu gegn svínaflensu

Bólusetning milljóna Breta gegn svínaflensunni mun hefjast innan viku, að sögn sóttvarnalæknis landsins. Nú eru yfir 100 manns látnir úr flensunni í Bretlandi, þar á meðal 17 ára gömul skosk kona en hún var ólétt þegar hún lést.

Markvörður ákærður fyrir rán

Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Ólafi Gottskálkssyni, fyrrverandi landsliðsmarkverði í knattspyrnu. Ólafur er ákærður fyrir húsbrot og rán í félagi við annan yngri mann.

Stúlkan frá Litháen komin í leitirnar

Stúlkan sem lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir vegna meints mansals er fundin. Hún er í vörslu lögreglunnar og er mál hennar til rannsóknar. Búist er við því að lögreglan sendi frá sér fréttatilkynningu vegna málsins þegar nær dregur hádegi. Stúlkan sem ferðaðist undir nafninu Leva Grisiúte með stolnum skilríkjum kom hingað til lands með flugi síðastliðið föstudagskvöld og var flutt rænulítil á sjúkrahús eftir að hafa látið ófriðlega í flugvélinni síðasta hluta leiðarinnar.

Nytjastofnarnir eru ágætlega settir

Nýlokið er fundi ráðgjafarnefndar Alþjóðahafrannsóknaráðsins þar sem fjallað var um ástand nokkurra nytjastofna í Norðaustur-Atlantshafi og tillögur um nýtingu þeirra.

Sjálfstæðisflokkur er í sókn á landsvísu

Sjálfstæðisflokkurinn myndi bæta við sig sex þingmönnum yrðu niðurstöður kosninga í takt við nýja könnun Fréttablaðsins sem gerð var í gærkvöldi. Vinstri grænir og Borgarahreyfingin myndu tapa þingmönnum.

Óskar eftir sjálfboðaliðum

Rauði kross Íslands óskar eftir sjálfboðaliðum til að vera nokkurs konar varalið í viðbrögðum félagsins við neyð. Leitað er eftir fólki með fjölbreyttan bakgrunn og ýmisleg störf geta beðið sjálfboðaliðanna, svo sem símsvörun, túlkun, barnapössun, matreiðsla og sálrænn stuðningur.

Styrkja baðmenningu í höfuðborginni

Samtökin Vatnavinir ætla sér að þróa áfram hugmyndir um fjölbreyttari baðmenningu í Reykjavík og styrkja ímynd Reykjavíkur sem heilsuborg.

Gekk fram á lík á Langasandi

Vegfarandi sem var úti að viðra hundinn sinn gekk fram á lík ungs manns á Langasandi, fyrir neðan elliheimilið á Akranesi, seinni partinn í gær. Ekkert bendir til þess að andlát mannsins hafi borið að með saknæmum hætti en það er þó ekki hægt að útiloka.

Búist við betri endurheimtum

Gera má ráð fyrir að eigendur skuldabréfa gamla Kaupþings endurheimti 35 prósent af kröfum úr búi bankans. Gangi það eftir verða heimtur tæpum 46 prósentum yfir núverandi mati skilanefndar Kaupþings.

Óttast um meintan þolanda hórmangs

Lögregla telur unga litháíska konu, sem grunur leikur á að hafi komið hingað til lands sem fórnarlamb mansals um síðustu helgi, vera í hættu. Lýst hefur verið eftir konunni, sem kom hingað undir nafninu Ieva Grisiúte, og litháískum manni, Vitalijus Gejer að nafni. Þrír litháískir karlmenn eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins þar til í dag.

Segja menn græða á sölu ólöglegra tækja

Rafiðnaðarsamband Íslands segir að heimilistæki séu nú seld út af gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli þrátt fyrir að notkun þeirra sé ólögleg hér á landi.

Breytt skattlagning lífeyris ofmetin leið

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hafnar ekki hugmyndum Sjálfstæðisflokksins um kerfisbreytingu á skattlagningu lífeyris en setur fyrirvara á hversu raunhæfar þær eru. Upphæðirnar sem settar eru fram í tillögunum séu háar og „barbabrellulegt að halda því fram“ að þessi leið geti komið í stað allra skattahækkana. Það sé óraunhæft að það sé hægt að ná slíkum bata í afkomu ríkissjóðs með þeim hætti sem boðað er.

Bangsar fá svínaflensusprautu á laugardaginn

Öll börn geta komð með bangsana sína á Bangsaspítala Lýðheilsufélags læknanema næsta laugardag. Bangsaspítalinn verður á Hilton Reykjavík Nordica en þar verður jafnframt fagnað 100 ára afmæli Læknafélags Reykjavíkur.

Emilía heil á húfi

Emilíana Andrésardóttir, 13 ára stúlka sem lögreglan á Akureyri lýsti eftir í dag, er fundin heil á húfi.

Hæsti maður heims á leið til Íslands

Von er á hæsta manni heims, Sultan Kosen, hingað til lands í lok næstu viku í tilefni af útkomu á nýjustu heimsmetabók Guinnes. Sultan var útnefndur hæsti maður heims fyrir skömmu en hann er rétt tæpir tveir og hálfur metrar á hæð. Sultan er frá Tyrklandi.

Lík fannst á Akranesi

Lögreglan á Akranesi fann lík af karlmanni við Langasand skammt frá elliheimilinu á Akranesi á fjórða tímanum í dag. Ekki er vitað hver maðurinn er, á hvaða aldri hann er eða hvort hann sé íslenskur. Ekki er vitað hvort andlát hans hafi borið að með saknæmum hætti en lögreglan rannsakar málið.

Fimm hryðjuverkaárásir í Pakistan

Talibanar hafa gert fimm hryðjuverkaárásir í Pakistan á síðasta sólarhring. Undanfarinn hálfan mánuð hafa þeir drepið hundruð óbreyttra borgara í sprengjutilræðum.

Braut gegn 14 ára stúlku í bílnum sínum

Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni á fertugsaldri fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku. Hann var dæmdur í 15 mánaða fangelsi en þar af eru 12 mánuðir skilorðsbundnir til næstu þriggja ára. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar og krafðist þess að refsing mannsins yrði þyngd. Hæstiréttur varð ekki við þeirri kröfu.

Séra Gunnar snýr ekki aftur - fær vinnu á Biskupsstofu

Biskup Íslands hefur í dag flutt sr. Gunnar Björnsson úr embætti sóknarprests á Selfossi, í embætti sérþjónustuprests við Biskupsstofu. Ákvörðunin tekur gildi frá og með deginum í dag, 15. október 2009. Séra Óskar Hafsteinn Óskarsson mun gegna embætti sóknarprests á Selfossi þar til nýr prestur verður valinn.

Bólusetning hafin

Fyrstu skammtarnir af bóluefni gegn svonefndri svínaflensu komu til landsins í morgun og hófst bólusetning heilbrigðisstarfsmanna klukkan fjögur í dag.

Lögreglan lýsir eftir Emilíönu

Lögreglan á Akureyri lýsir eftir Emilíönu Andrésardóttur. Ekkert hefur spurst til hennar frá því klukkan átta í gærkvöldi.

Innbrotsþjófur steinsofnaði

Eitthvað var hann þreyttur innbrotsþjófurinn sem lögreglan handtók í kjallara íbúðarhúss í miðborginni eftir hádegi í gær. Að minnsta kosti var hann steinsofandi þegar lögreglan kom á vettvang en erfiðlega gekk að vekja manninn, að sögn lögreglu.

Kristín vill vera rektor áfram

Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, hyggst sækjast eftir því að vera rektor áfram en skipunartími hennar rennur út á næsta ári. Þetta kom fram í máli Kristínar á fundi með starfsmönnum í hádeginu.

Stal fötum og snyrtivörum vopnuð vírklippum

Kona á þrítugsaldri var handtekin í Smáralind um miðjan dag í gær en þar hafði hún stolið bæði fatnaði og snyrtivörum. Hún fjarlægði þjófavörn af fatnaðinum og notaði til þess litlar vírklippur sem hún var með í fórum sínum.

Hýrudreginn fyrir bleikt bindi á brjóstakrabbadag

Strætisvagnabílstjóri í Illinois í Bandaríkjunum hefur verið hýrudreginn fyrir að setja upp bleikt bindi á degi bleiku slaufunnar sem í Bandaríkjunum er fyrsti föstudagur í október.

Siðareglur samþykktar í borgarráði

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag einróma siðareglur fyrir kjörna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg og að þær verði lagðar fyrir borgarstjórn til staðfestingar síðar í mánuðinum. „Loksins, loksins,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar.

Átján mánuðir fyrir að gefa barni sígarettu

Þrítugur breskur maður var í dag dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að gefa þriggja ára stúlkubarni sígaréttur og hvetja hana til þess að taka reykinn ofan í sig.

Búið að slökkva eldinn á N1

Eldur kom upp í afgreiðslu bensínstöðvar N1 við Ártúnsholt í Reykjavík fyrir stundu. Allt tiltækt slökkvilið var kallað á staðinn en búið er að slökkva eldinn, sem var minniháttar. Eldurinn kom upp inn á salerni bensínstöðvarinnar eftir því sem Vísir kemst næst.

Síðasti Gyðingurinn í Afganistan

Þar sem talibanar og al-Kaida hata Gyðinga öðru fólki framar gæti maður ímyndað sér að það sé dálítið einmanalegt að vera síðasti Gyðingurinn í Afganistan.

Gámaskipi rænt við Sómalíu

Sómalskir sjóræningjar rændu enn einu skipinu undan ströndum landsins í dag. Að þessu sinni var það gámaskip frá Singapore sem var á leið til Mombasa í Kenya.

Tæplega 7.000 manns eru fluttir af landi brott

Fyrstu 9 mánuði ársins hafa 6.762 einstaklingar flutt af landi brott. Þar af eru ríflega helmingur með íslenskt ríkisfang eða 3.475 einstaklingar. Ef þróun fram að áramótum verður með sambærilegum hætti mun þetta þýða að samtals fjöldi einstaklinga sem flyst frá Íslandi árið 2009 er mjög svipaður og árið 2008.

Trylltist í flugvél - átti að verða vændiskona á Íslandi

Þrír karlmenn voru í gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í tengslum við meint mansalsmál. Upphaf þess má rekja til komu ungrar litháeskrar konu til landsins um síðustu helgi, en hana þurfti að binda niður í sæti flugvélar Iceland Express eftir að hún hafði veist að öðrum farþegum í vélinni.

Fullyrðingar framsóknarmanna ekki á rökum reistar

Fullyrðingar framsóknarmanna um að Íslendingum standi til boða lán frá Noregi framhjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum eru ekki á rökum reistar. Þetta kom fram í máli forsætisráðherra á Alþingi í morgun. Ráðherra sakaði framsóknarmenn um sérkennilegan málatilbúnað.

Sextán ára stúlka drakk sig í hel

Yfirvöld í Bretlandi hafa sent aðvörun sem sérstaklega er beint til unglinga eftir að sextán ára gömul stúlka drakk sig í hel innflutningspartýi vinar síns.

Bólusetning hefst líklega í dag

Fyrstu skammtarnir af bóluefni gegn svonefndri svínaflensu komu til landsins í morgun og hefst bólusetning heilbrigðisstarfsmanna að öllum líkindum síðdegis.

Sturla um Egil: „Skeytir hvorki um skömm né heiður“

Sturla Böðvarsson fyrrverandi ráðherra og forseti Alþingis segir Egil Helgason fjölmiðlamann halda úti ritsóðasíðu og hann skrif hans einkennist af ómálefnanlegum umsögnum um nafngreinda aðila. Sturla furðar sig á því að heimasíða Ríkisútvarpsins skuli auglýsa bloggsíðu Egils. Þetta kemur fram í pistli sem Sturla skrifar á Pressuna í dag.

Engir dreifimiðar vegna barnaníðinga

Tillaga Danska þjóðarflokksins um að vara fólk við með dreifimiðum ef dæmdur barnaníðingur flyst í hverfi þess hefur verið skotin í kaf.

Sjá næstu 50 fréttir