Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Búið að undirrita Icesave samkomulagið Icesave samkomulagið var undirritað með fyrirvörum í fjármálaráðuneytinu fyrir stundu. Undirritunin markar kaflaskil í einhverri mestu milliríkjadeilu sem Íslendingar hafi staðið í frá lýðveldisstofnun. Viðstaddir undirritunina voru fulltrúar íslenskra, breskra og hollenskra stjórnvalda. 19.10.2009 13:23
Landhelgisgæslan nýtur mikils trausts. Mikill meirihluti landsmanna ber traust til Landhelgisgæslunnar ef marka má nýja könnun MMR. Um 77,6%, segjast bera mikið traust til Gæslunnar. Einungis 5% svarenda segjast bera lítið traust til Landhelgisgæslunnar - sem þýðir með öðrum orðum að 15,5 sinnum fleiri segjast bera mikið traust til Gæslunnar en segjast bera lítið traust til hennar. 19.10.2009 12:44
Icesave fyrirvarar ná ekki til vaxta Efnhagsfyrirvarar Íslands í Icesave samkomulaginu ná ekki til greiðslu vaxta sem eru um fjórðungur af árlegum afborgunum. Greiðslur vegna Icesave munu nema um 55 milljörðum króna á ári. Samningurinn mun draga úr lífsgæðum hér á landi segir fulltrúi Sjálfstæðisflokks í Fjárlaganefnd. 19.10.2009 12:10
24 liggja inni vegna svínaflensu Útbreiðsla svonefndrar svínaflensu er hröð og bárust um 1000 tilkynningar um inflúensulík einkenni í síðustu viku, sem er tvöföldun frá því vikunni á undan. Langflestir ná sér með því að vera rúmliggjandi og fara eftir ráðleggingum lækna, en þó voru 24 inniliggjandi á Landspítalanum í gær, þar af fjórir á gjörgæslu. Sá sem lengst hefur legið á gjörgæslu hefur verið þar í um tvær vikur. 19.10.2009 12:01
Hagfræðingur: Greiðsluþrot verður vart umflúið Greiðsluþrot þjóðarbúsins verður vart umflúið og aðgerðaráætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þarfnast róttækrar endurskoðunar. Þetta kemur fram í bréfi sem Gunnar Tómasson, hagfræðingur, sendi alþingismönnum í gærkvöldi. 19.10.2009 12:00
Sjötti maðurinn handtekinn - stúlkan aðeins 19 ára Sjötti maðurinn, sem talinn er tengjast meintu mansalsmáli á Suðurnesjum, verður yfirheyrður í dag. Litháíska stúlkan sem kom hingað til lands, hugsanlega til að stunda vændi, er nítján ára. Maðurinn, sem einnig er Lithái og búsettur hérlendis, var handtekinn í gærkvöldi. Hann er nú í haldi lögreglu og verður yfirheyrður síðdegis. Í framhaldinu verður tekin ákvörðun um hvort óskað verði eftir gæsluvarðhaldsúrskurði yfir honum. 19.10.2009 11:53
Franklin Steiner ákærður fyrir fíkniefnabrot Hafnfirðingurinn Franklin Stiner hefur verið ákærður fyrir vörslu fíkniefna fyrir ári síðan. Samkvæmt ákæru hafði Franklin rúm 150 grömm af amfetamíni, 33 grömm af kókaini, 23 alsælutöflur og 1 grömm af hassi á sér þegar lögregla gerði leit þann 23. október í fyrra. 19.10.2009 11:30
Hýddar fyrir að vera í brjóstahöldurum Islamistar í Sómalíu hafa lagt blátt bann við því að konur þar klæðist brjóstahöldurum. Konur sem klæðast slíkri flík eru dæmdar til opinberrar hýðingar. 19.10.2009 10:50
Þrír vilja taka við af Ögmundi 42. þing Bandalags starfsmanna ríkis og bæjar, BSRB, hefst á miðvikudag og stendur fram á föstudag. Á þinginu lætur Ögmundur Jónasson af störfum sem formaður en hann hefur verið formaður frá 1988. Þrír gefa kost á sér til formanns. Það eru þau Arna Jakobína Björnsdóttir formaður Kjalar, Árni Stefán Jónsson formaður SFR og Elín Björg Jónsdóttir formaður Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi. 19.10.2009 10:26
Eitt atkvæði bjargaði Þórshöfn og Þistilfirði Þórshafnarbúar og nærsveitungar prísa sig sæla að eiga harðan kjarna fólks sem sagði nei við girnilegu gylliboði í fyrra. Það munaði nefnilega aðeins einu atkvæði að meirihluti heimila við Þistilfjörð sæti nú uppi með illviðráðanlegan skuldaklafa. 19.10.2009 10:10
Loftbelgsfjölskyldan vildi í raunveruleikaþátt Lögreglan í Larimer sýslu í Colorado segir engan vafa á að Heene fjölskyldan hafi sviðsett meint loftbelgsflug hins sex ára gamla Falcons Heene til þess að tryggja sér pláss í raunveruleikaþætti í sjónvarpi. 19.10.2009 10:03
Opinber útgjöld til tryggingamála hafa aukist verulega Heildarútgjöld hins opinbera til almannatrygginga og velferðarmála hafa vaxið verulega síðasta aldarfjórðung eða úr tæplega 5,7% af landsframleiðslu árið 1980 í ríflega 8,9% af landsframleiðslu 2008, en það samsvarar 132 milljörðum króna á því ári. 19.10.2009 10:02
Dregur úr peningaþvætti Á árinu 2008 bárust peningaþvættisskrifstofu embættis ríkislögreglustjóra alls 520 tilkynningar frá tilkynningarskyldum aðilum. Heildarfjárhæð þeirra var 625 milljónir. Það er 336 milljónum minna en árið áður en þá bárust 496 tilkynningar. Þetta kemur meðal annars fram í skýrslu skrifstofunnar fyrir árið 2008. 19.10.2009 09:58
Ögmundur enn óákveðinn i Icesave „Hjartað segir mér að réttast væri að fella samninginn. Skynsemin býður mér að fara varlega. Segir að það leiði ekki endilega til "réttari" og betri niðurstöðu,“ segir Ögmundur Jónasson þingmaður VG um niðurstöðuna i Icesave málinu sem kynnt var í gær. 19.10.2009 09:13
Hár Presley ekki ókeypis Hárlokkar af Elvis Presley seldust fyrir 18.300 dollara á uppboði í Chicago í gær. 19.10.2009 09:01
Á fimmta tug látnir eftir árás á íranska byltingarvörðinn Nú er ljóst að 42 eru látnir eftir sjálfsmorðssprengjuárás á hinn svonefnda byltingarvörð í Íran í gær. 19.10.2009 08:54
Mannskætt maraþon í Michigan Þrír þátttakendur í maraþonhlaupi í Detroit í Michigan létust í hlaupinu sem fram fór í gær. Maður á sjötugsaldri datt og fékk högg á höfuðið en hinir tveir, sem voru 26 og 36 ára gamlir, hnigu niður í hlaupinu og voru úrskurðaðir látnir við komu á sjúkrahús. 19.10.2009 08:51
Fimmtíu dagar til stefnu Leiðtogar heimsins hafa fimmtíu daga til þess að bjarga heiminum. Breskir miðlar greina frá því í dag að þetta verði inntakið í ræðu Gordons Brown forsætisráðherra Bretlands sem hann mun halda í dag í London. Með þessum skilaboðum vill Brown vekja athygli á mikilvægi þess að gripið verði til aðgerða á loftlagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn sem hefst eftir fimmtíu daga. 19.10.2009 08:16
Frumvarpið lagt fram í dag - sameiginleg yfirlýsing birt Nýtt Icesave frumvarp verður lagt fram á Alþingi í dag en í gær var tilkynnt um að samkomulag hefði náðst við Breta og Hollendinga í málinu. Þá er búist við því að í dag verði sameiginleg yfirlýsing frá Íslendingum Bretum og Hollendingum birt. Yfirlýsingin er liður í samkomulaginu og þar verður tekið fram að Bretland og Holland hafi meðal annars fallist á þá efnahagslegu skilmála sem settir voru með lögum Alþingis um ríkisábyrgð á Icesave. 19.10.2009 07:32
Skotbardagi í Puerto Rico Sjö manns eru látnir og að minnsta kosti 25 særðir eftir skotbardaga sem átti sér stað í borginni San Juan í Puerto Rico í gær. 19.10.2009 07:17
John Travolta lenti Boeing þotunni sinni á Keflavíkurflugvelli Boeing 707 þota leikarans John Travolta lenti á Keflavíkurflugvelli rétt fyrir klukkan níu í gærkvöldi. Travolta er annálaður flugáhugamaður og hefur flogið þotunni sinni um allan heim. 19.10.2009 07:00
Grunur leikur á íkveikju Allt tiltækt lið slökkviliðs var kallað út þegar tilkynnt var um eld í húsinu við Skólavörðustíg 40 laust fyrir klukkan 15 í gærdag. Húsið var mannlaust þegar slökkvilið og lögregla komu á staðinn og gekk slökkvistarf vel. Töluverðar skemmdir urðu á húsinu. Grunur leikur á íkveikju. 19.10.2009 06:00
Stuðningur við stjórnina eykst lítillega Stuðningur við ríkisstjórnina hefur aukist lítillega á síðustu mánuðum samkvæmt niðurstöðu skoðanakönnunar Fréttablaðsins, en stjórnin mælist enn með stuðning minnihluta kjósenda. 19.10.2009 05:30
Verð á bókum hækkar um 10 til 15 prósent Forlagið er stærsta bókaútgáfan á Íslandi og gefur um 200 titla út á árinu. Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins, segir að þrátt fyrir að bókaverð hjá þeim hækki á milli ára sé sú hækkun minni en almenn verðlagsþróun á Íslandi. „Í fyrra hækkaði verðið ekki neitt, þrátt fyrir uppsafnaða hækkunarþörf og aukinn kostnað,“ segir Egill. 19.10.2009 05:00
Orkuskattur gæti fælt verksmiðju frá „Ef þessi áform ganga eftir verður nær útilokað að selja þá hugmynd að staðsetja verksmiðjuna hér. Mitt persónulega mat er að þetta slái okkur út af borðinu“, segir Einar Þorsteinsson, forstjóri Elkem Ísland, spurður um áhrif boðaðra orku- og auðlindaskatta á fyrirætlanir um byggingu sólarkísilverksmiðju á Grundartanga. 19.10.2009 04:00
Biðlisti eftir föstum básum í Kolaporti viðskipti Stóraukin ásókn er í sölupláss í Kolaportinu í Reykjavík, að sögn Gunnars Hákonarsonar, framkvæmdastjóra Kolaportsins. Hann segir þó erfitt að leggja tölulegt mat á aukninguna, þar sem alla jafna hafi verið skipað í öll pláss. Hann finni þó fyrir því að pláss sem losna séu tekin mun fyrr en áður. 19.10.2009 03:00
Þrisvar brotist inn í sama skólann Aftur var brotist inn í skólastofu (kálf) við Myllubakkaskóla. En fyrir viku var brotinn upp gluggi á skólastofu og stolið þaðan hvítum Sony 3LCO myndvarpa. 18.10.2009 17:20
Yfirlýsing frá Baldri Guðlaugssyni Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri Menntamálaráðuneytisins, áður fjármálaráðuenytisins, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna frétta af meintum innherjaviðskiptum hans sem sérstakur saksóknari á að hafa til rannsóknar. 18.10.2009 16:45
Búið að slökkva eldinn - töluverðar skemmdir Slökkviliðið er búið að ráða niðurlögum eldsins á Skólavörðustígnum en þar kviknaði í mannlausu húsi. Ekki er vitað um eldsupptök. 18.10.2009 15:25
Eldur í húsi hústökumanna Eldur kviknaði í húsi á Skólavörðustíg nú rétt fyrir þrjú í dag. Að sögn varðstjóra er mikill viðbúnaður vegna brunans en sjúkrabílar og slökkviliðsbílar eru ýmist á leiðinni á vettvang eða eru komnir. 18.10.2009 15:04
Nasistaglingur til sölu á íslenskri bloggsíðu Nafnlaus Íslendingur, sem kallar sig Himmler, í höfuðið á Heinrich Himmler, yfirmanni Gestapó og SS sveitanna, er með tvo verðmæta nasistahringi til sölu á bloggsíðu á vefsvæði Vísis. Þá er einnig hægt að kaupa bókina Mein Kampf. 18.10.2009 14:39
Menntamálaráðherra: Staða Baldurs skoðuð eftir helgi Staða Baldurs Guðlaugssonar sem er ráðuneytisstjóri menntamálaráðuneytisins, verður skoðuð eftir helgi að sögn Katrínar Jakobsdóttur, menntamálaráðherra, þegar við hana var rætt fyrir utan stjórnarráðið í hádeginu. 18.10.2009 14:24
Bensínsforstjóri til varnar ráðuneytisstjóra „Þegar einstaklingur kemst að því að fyrirtæki sem hann á mikið undir í er annað hvort búið að gefa út rangar eða villandi upplýsingar um stöðu sína eða þá að að því steðji slík ógn að líkur séu á gjaldþroti, hver er þá réttur hans?“ skrifar Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, á vefsvæði Pressunnar þar sem hann bloggar til varnar Baldri Guðlaugssyni fyrrum ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytisins. 18.10.2009 13:53
Norðmaður lést í slysinu í Haukadal Karlmaðurinn sem lést í fjórhjólaslysi á Haukadalsheiði síðastliðinn föstudag var 47 ára gamall Oslóarbúi, eftir því sem fram kemur á fréttavef TV 2 í Noregi. 18.10.2009 13:14
Össur Skarphéðinsson: Afsögn Ögmundar greikkaði fyrir Icesave Ríkisstjórnarfundi lauk fyrir stundu en ráðherrar vildu ekkert tjá sig efnislega um Icesave en niðurstaða er kominn í málið á milli Íslands, Hollands og Bretlands. 18.10.2009 13:14
Menntamálaráðherra vill takmarka nafnlaus ummæli á netinu Nýtt fjölmiðlafrumvarp verður kynnt fyrir öllum þingflokkum í næstu viku og svo lagt fyrir Alþingi til umræðu. Ein af tillögunum sem finna má í frumvarpinu er ábyrgðarákvæði um nafnlaus ummæli á fréttasíðum á netinu. Fjölmiðlar eru gerðir ábyrgir fyrir nafnlausum ummælum sem birtast á vefsvæðum þeirra. 18.10.2009 13:00
Mótmælendur við stjórnarráðið: „Ragna þrjótur, mannréttindabrjótur.“ Um það bil 25 manns mótmæla brottvísun flóttamanna frá Íslandi fyrir utan stjórnarráðið en þar fer fram ríkisstjórnarfundur þessa stundina. Um er að ræða sömu mótmælendur og mótmæltu fyrir utan heimili Rögnu Árnadóttur, dómsmálaráðherra, á dögunum. 18.10.2009 12:48
Femínistar vilja vitnavernd og lokun súlustaða Femínistafélag Íslands krefst þess að súlustaðir verði lokaðir og að fórnalamba- og vitnavernd verði innleidd í íslensk lög í samræmi við alþjóðasamninga og að aðgerðaráætlun gegn mansali verði hrint í framkvæmd strax samkvæmt tilkynningu frá félaginu. 18.10.2009 12:08
Indriði H. Þorláksson: Niðurstaða fengin í flestum atriðum Icesave Niðurstaða er fengin í flestum atriðum í Icesave samningnum á milli íslenskra, breskra og hollenskra stjórnvalda, segir Indriði H. Þorláksson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra. Hann segir þó að enn eigi eftir að ganga frá lausum endum sem séu aðallega tæknileg atriði varðandi samninginn. 18.10.2009 10:05
Ríkisstjórnarfundur í hádeginu - niðurstaða komin í Icesave-málið Ríkisstjórnin mun funda um Icesave-málið á hádegi í dag en niðurstaða er kominn í viðræðum Íslendinga við Breta og Hollendinga samkvæmt áreiðanlegum heimildum Vísis. 18.10.2009 09:39
Undarlegur erill hjá lögreglu í nótt Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Að sögn varðstjóra þá var það eftir hálf fimm í nótt sem útköllum fjölgaði stórlega. Mikið var um slagsmál í miðbænum og í einu tilviki þurftu lögreglumenn að fara inn á skemmtistað í miðborginni til þess að aðstoða dyraverði við að stöðva áflogahunda. Það þykir óvanalegt. 18.10.2009 09:31
Vísindamenn snéru kynvísum ávaxtaflugum Vísindamenn við Háskólann í Toronto í Kanada fundu út með þrotlausum rannsóknum að með því að breyta erfðaefnum ávaxtaflugunnar urðu þær samkynhneigðar. Flugurnar hættu að framleiða ákveðið ferómón, eða lykt, sem varð til þess að þær urðu ómótstæðilegar í augum annarra ávaxtaflugna - og þá skipti engu hvaða kyn var um að ræða. 18.10.2009 00:00
„Afhverju hata þig allir Obama?“ Hinn tíu ára gamli Terence Scott sló sjálfan forseta Bandaríkjanna og friðarnóbelsverðlaunahafann, Barack Obama, út af laginu í New Orleans á dögunum. Obama var á fundi með íbúum borgarinnar í borgarráðshúsinu þegar Terence kom upp á svið og fékk að spyrja forsetann einnar spurningar. Og hann hikaði ekki heldur spurði: 17.10.2009 23:00
Snaróð mamma laug til um veikindi sonar síns fyrir peninga Upp hefur komist um hryllingsmömmu frá Bretlandi sem hefur misnotað barnið sitt hrottalega í gegnum árin. Hún er búinn að ljúga að öllum, meðal annars barninu sjálfu, að það sé langveikt. Meðal annars hefur móðirin, sem ekki hefur verið nefnd á nafn í Bretlandi, látið átta ára gamlan son sinn gangast undir læknisaðgerðir á þremur mismunandi spítölum þau sex ár sem hún hefur blekkt kerfið og jafnvel bresku konungsfjölskylduna. 17.10.2009 22:00
Hryllilegt barnamorð: Óhugnanlegar upptökur fundust á vettvangi Lögreglan í Manchester fann óhugnanlegt myndband af systkinunum Theo Molemohi, sem var tveggja ára, og Yolöndu, sem var fjögurra ára, þar sem þau kvöddu móður sína. Systkinin voru myrt á heimili föður síns en móðir þeirra kom að þeim. Faðirinn, Petros Mwashita, er grunaður um verknaðinn en hann var búinn að taka of stóran skammt af lyfjum þegar lögreglan kom á vettvang. 17.10.2009 21:00
Utanríkisráðherra Breta á Íslandi: „Gleður mig að Ísland vill vera með í bandalagi viljugra þjóða“ Innlent