Innlent

Mótmælendur við stjórnarráðið: „Ragna þrjótur, mannréttindabrjótur.“

Mótmælendur í Háskóla Íslands á dögunum.
Mótmælendur í Háskóla Íslands á dögunum.

Um það bil 25 manns mótmæltu brottvísun flóttamanna frá Íslandi fyrir utan stjórnarráðið en þar fer fram ríkisstjórnarfundur þessa stundina. Um er að ræða sömu mótmælendur og mótmæltu fyrir utan heimili Rögnu Árnadóttur, dómsmálaráðherra, á dögunum.

Þá réðust þeir einnig á hana með hrópi og köllum á fundi um mannréttindamál í Háskóla Íslands.

Mótmælendurnir krefjast þess að dómsmálaráðherrann snúi ákvörðun Útlendingastofnunnar til baka um að senda fimm flóttamenn til Grikklands byggt á dyflinarsamkomulaginu.

Meðal þess sem mótmælendur hrópa er: „Ragna þrjótur, mannréttindabrjótur."

Mótmælendur eru farnir af vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×