Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kæra borgarstjóra fyrir árás Tveir blaðamenn frá Montenegró kærðu í gær borgarstjóra Podgorica, höfuðborgar landsins, son hans og einkalífvörð fyrir að hafa barið sig. 7.8.2009 02:30
Braut rúður og hoppaði á bíl Lögregla handtók ölvaðan karlmann á Háteigsveginum á sjötta tímanum í gærmorgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu höfuðborgarsvæðisins hafði maðurinn brotið rúður á nokkrum bílum áður en lögreglu bar að garði. 7.8.2009 02:00
Kaupsamningum fækkaði fimmfalt Fimmfalt færri kaupsamningum fasteigna var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu fyrstu sjö mánuði ársins miðað við sama tíma árið 2007, samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá ríkisins. Kaupsamningum hefur fækkað um ríflega helming samanborið við tímabilið janúar til júlí á síðasta ári. 7.8.2009 01:30
Níu til viðbótar með svínaflensu Níu til viðbótar hafa greinst með svínaflensuna hér á landi á undanförnum dögum. Tilfellin eru því orðin 63 talsins frá því fyrsta tilfellið var staðfest 22. maí. 7.8.2009 01:15
Bankaleyndin víða sambærileg Íslensk lög um bankaleynd eru í aðalatriðum sambærileg þeim sem gilda í Danmörku, Noregi, Þýskalandi og Bretlandi. 7.8.2009 01:00
Hjólhýsi langt utan bæjarins Mikill mannfjöldi er kominn á Dalvík vegna fiskidagsins mikla sem er á Dalvík um helgina. Um 2.000 manns eru þegar komnir, að sögn lögreglunnar á Dalvík, og er búist við nokkrum þúsundum til viðbótar um helgina. Öll tjaldsvæði eru löngu full og eru hjól- og fellihýsi komin út fyrir bæjarmörkin, samkvæmt lögreglunni. 7.8.2009 00:30
Lestarræningja gefið frelsi til að deyja Lestarræninginn Ronnie Biggs hefur verið látinn laus úr fangelsi þar sem hann er dauðvona. Það var dómsmálaráðherra Bretlands, Jackie Straw sem tók ákvörðunin þrátt fyrir að hafa synjað Biggs áður. Frá þessu greinir the Daily Telegraph. 6.8.2009 23:45
Þingmenn mættu ekki á átakafund Borgarahreyfingarinnar Enginn þingmanna Borgarahreyfingarinnar mætti á boðaðann átakafund hreyfingarinnar í kvöld. 6.8.2009 22:33
Þingkonur mæta ekki á átakafund Borgarahreyfingarinnar Þingkona Borgarahreyfingarinnar, Margrét Tryggvadóttir, mætti ekki á átakafund Borgarahreyfingarinnar sem stendur nú yfir. Hún er því annar þingmaður flokksins sem ekki mætir. Áður hafði Birgitta Jónsdóttir boðað forföll þar sem hún fékk ekki pössun. 6.8.2009 21:44
Fékk ekki barnapössun og kemst ekki á átakafund „Kæru félagar, Vegna þess hve fyrirfarinn var stuttur sé ég mér ekki fært á að mæta í kvöld en ég hef ekki aðgang að pössun í kvöld og vil helst ekki taka son minn með á átakafund.“ 6.8.2009 20:33
Steingrímur J.:Þetta er harður heimur „Þetta er harður heimur,“ sagði fjármálaráðherrann, Steingrímur J. Sigfússon, í viðtali við Kastljós í kvöld spurður út í raunverulegar seinkanir á fyrirtöku málefnis Ísland hjá Aljóðgjaldeyrissjóðnum. Aðspurður hvort ástæðan væri Icesave svaraði Steingrímur einfaldlega: „Já.“ 6.8.2009 20:07
Björgunarsveit sótti slasaðan hestamann Á sjötta tímanum í dag var Björgunarsveitin Dalvík kölluð út vegna hestamanns sem féll af baki og slasaðist þegar hann var í hópferð hestamanna í botni Svarfaðardals samkvæmt tilkynningu frá Landsbjörg. 6.8.2009 20:39
Harður árekstur í Ártúnsbrekku Harður þriggja bíla árekstur varð í Ártúnsbrekku rétt fyrir klukkan fimm. Tveir menn voru fluttir með minniháttar meiðsl á slysadeild. Lögreglan segir að gera megi ráð fyrir einhverjum umferðartöfum þarna næstu mínúturnar. 6.8.2009 16:49
Dauðsföllum vegna svínaflensu fjölgar - smittilfellum fækkar Níu manns létust vegna svínaflensunnar svokölluðu í Englandi í síðustu viku og er fjöldi dauðsfalla þar í landi orðinn 36, samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum þar í landi. 6.8.2009 16:26
Loftfimleikar yfir Vatnsleysuströnd Fjölskyldudagur verður haldinn í Vogum á Vatnsleysuströnd á laugardaginn. Óhætt er að segja að dagskráin sé fjölbreytt en hún hefst með dorgveiðikeppni á smábátabryggjunni klukkan 9:30. 6.8.2009 16:02
Aftur eldur í Vatnsstíg 4 Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að Vatnsstíg 4 í dag vegna elds í anddyri hússins. Greiðlega gekk að slökkva eldinn. All nokkrar skemmdir hlutust af þegar kveikt var í þessu sama húsi á föstudagskvöld. Húsið hefur staðið mannlaust um skeið en lögreglan var nokkrum sinnum kvödd þangað í vor þegar hústökumenn reyndu að taka sér bólfestu í því. 6.8.2009 15:42
Íslendingar styðja heyrnarlausa Namibíumenn Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra á Íslandi ætlar að styðja við bakið á stjórnvöldum í Namibíu við stofnun og starfrækslu sambærilegrar stofnunar þar í landi. Undanfarin ár hefur Samskiptamiðstöðin unnið á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands við að bæta kennslu heyrnarlausra í Namibíu með áherslu á táknmál og þjálfun táknmálstúlka, segir í tilkynningu til fjölmiðla. 6.8.2009 15:10
Miklu fleiri piltar með tannskemmdir en stúlkur Þriðji hver piltur á aldrinum 15-16 ára er með skemmdir í tannglerungi vegna gosdrykkju. Þetta sýnir ný rannsókn frá Frederiksberg í Danmörku, sem fjallað er um í tímariti danskra tannlækna. 6.8.2009 15:00
Kúrðu á kamrinum vegna óveðurs Veður að Fjallabaki var með versta móti í nótt og hafði björgunarsveitin Suðurnes í nógu að snúast við að aðstoða fólk á hálendinu. 6.8.2009 13:52
Fimm ára með svínaflensu Fimm ára gamalt barn hefur greinst með H1N1 inflúensuna, eftir því sem fram kemur í upplýsingum frá Sóttvarnarlækni. Samkvæmt sömu upplýsingum voru ný inflúensutilfelli A(H1N1) staðfest hjá níu manns síðustu tvo sólarhringa og heildarfjöldi staðfestra tilfella er því samtals 63. Fólkið sem er nýgreint er á aldrinum 5 - 27 ára með búsetu 6.8.2009 13:19
Mannréttindasamtök segja árásir Hamas stríðsglæpi Mannréttindasamtökin Human Right Watch hvetja nú Hamas samtökin í Palestínu til að fordæma eldflaugaárásir herskárra Hamasliða á Ísrael og draga hina seku til ábyrgðar. 6.8.2009 12:28
Rabe ekki höfuðpaur í Papeyjarmálinu Það tókst ekki að sýna fram á að Peter Rabe hefði skipulagt innflutning á fíkniefnum í svokölluðu Papeyjarmáli, segir lögmaður hans. Rabe hlaut 10 ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann var handtekinn ásamt fimm Íslendingum í apríl síðastliðnum fyrir smygl á 109 kílóum af fíkniefnum. 6.8.2009 12:10
Álfheiður býst við breytingu á bankaleynd Álfheiður Ingadóttir, formaður viðskiptanefndar Alþingis, segist búast við að lögum um bankaleynd verði breytt með frumvarpi á haustþingi. 6.8.2009 11:40
Ríkislögreglustjóri vill sex lögreglustjóra á landinu Ég get tekið undir þá skoðun að nýframkomin hugmynd þriggja manna starfshóps dómsmálaráðherra um einn lögreglustjóra yfir landinu öllu er afar róttæk, segir Haraldur Jóhannessen ríkislögreglustjóri við fyrirspurn Vísis. Dómsmálaráðherra kynnti hugmynd starfshópsins fyrir lögreglustjórum í síðustu viku. 6.8.2009 11:13
Birgitta: Veit ekki hvort Þráinn er enn í flokksliðinu „Ég hreinlega veit það ekki," segir Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, aðspurð hvort Þráinn Bertelsson hafi klofið sig úr flokksliðinu. 6.8.2009 11:00
Vegagerðarmenn áttu fótum sínum fjör að launa Fjórir vegagerðarmenn, sem voru að laga vegaskemmdir á Óshlíðarvegi á tíunda tímanum í morgun, eftir mikið grjóthrun þar í nótt, áttu fótum sínum fjör að launa þegar grjót tók að hrynja á ný. 6.8.2009 10:34
Rúnar og Rabe fá tíu ára dóm fyrir Papeyjarsmygl Dómar í Papeyjarsmyglinu voru að falla í Héraðsdómi Reykjavíkur. Peter Rabe og Rúnar Þór Róbertsson fengu tíu ára dóm hvor. 6.8.2009 10:07
Hús Hreiðars Más málað rautt í nótt Rauðri málningu var í nótt skvett á heimili Hreiðars Más Sigurðssonar fyrrverandi forstjóra hjá Kaupþingi. Þegar myndatökumann Stöðvar 2 bar að garði voru iðnaðarmenn í óða önn að þvo málninguna af húsinu. Hús Hreiðars er eitt af mörgum sem fengið hefur svipaða meðferð á síðustu vikum og síðast í gær gerðu umhverfissinnar svipaða árás á hús Rannveigar Rist forstjóra álversins í Straumsvík. 6.8.2009 08:57
21 látinn í sprengingu í Afganistan Spengja sem sprakk í vegarkanti í suðurhluta Afganistans í morgun varð að minnsta kosti 21 óbreyttum borgara að bana. Flutningabíll sem var að flytja farþega lenti í sprengingunni að sögn afganskra yfirvalda. Sex slösuðust í árásinni. 6.8.2009 08:23
Nýjar vísbendingar í Maddí-málinu Boðað hefur verið til blaðamannafundar í London síðar í dag þar sem einkaspæjari nokkur sem rannsakað hefur hvarf Madeleine McCann, litlu stúlkunnar sem hvarf af hótelherbergi sínu í Portúgal árið 2007 mun skýra frá nýjum vísbendingum í málinu. 6.8.2009 08:17
Hillary ræðir við forseta Sómalíu Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna mun í dag hitta Sheik Sharif Ahmed, forseta Sómalíu en viðræðurnar verða í Kenýa. Búist er við því að Clinton lýsi yfir stuðningi við ríkisstjórn Ahmeds sem stendur í ströngu í baráttu sinni við öfgasinnaða hópa íslamista í landinu sem er að mestu stjórnlaust. 6.8.2009 08:09
Ferðamenn staðnir að utanvegaakstri Björgunarsveitarmenn, sem staðsettir eru á hálendinu í sumar, stóðu í gærkvöldi erlenda ferðamenn að utanvegaakstri, þar sem hann er stranglega bannaður. Þegar var haft samband við lögregluna á Húsavík og ferðaskrifstofuna, sem útlendingarnir tengjast, og hefur lögreglan nú málið til rannsóknar. 6.8.2009 08:05
Sluppu vel úr bílveltu Fimm manns sluppu ótrúlega lítið meiddir, að sögn lögreglu, eftir að jeppi, sem fólkið var í, valt í Öxnadalnum skammt frá Akureyri um kvöldmatarleitið í gærkvöldi. Jeppinn, sem dró stórt hjólhýsi, var að fara fram úr örðum bíl, sem dró stóra kerru. 6.8.2009 07:59
Kílóverð á fiski aldrei verið hærra Meðalverð á íslenskum fiskmörkuðum í síðasa mánuði var hátt í 219 krónur fyrir kílóið, sem er það hæsta sem það hefur orðið í sögu fiskmarkaðanna hér á landi til þessa, samkvæmt upplýsingum Reiknistofu fiskmarkaðanna. 6.8.2009 07:57
Hestakerra olli töfum á umferð Töluverðar tafir urðu á þjóðvegi eitt sunnan við Blönduós í gærkvöldi, þegar hestakerra valt aftan úr bíl, sem dró hana. Við það snérist bíllinn þversum á veginum og truflaði umferð í báðar áttir þartil lögregla og björgunarmenn höfðu athafnað sig á vettvangi. Engin hestur var í kerrunni og er verið að kanna hvað olli því að hún valt. 6.8.2009 07:16
Síðasti "Tommy-inn" lagður til grafar Síðasti breski hermaðurinn sem tók þátt í fyrrri heimstyrjöldinni verður lagður til grafar í dag. 6.8.2009 07:11
Enn brotist inn í borginni Brotist var inn í fyrirtæki við Skipholt í Reykjavík í nótt, auk þess inn í tvo bíla og inn í hótelherbergi í miðborginni. Dvalargesturinn var ekki í herberginu. 6.8.2009 07:04
Í ham á Háteigsvegi Ofurölvi maður var handtekinn á Háteigsveginum í Reykjavík undir morgun eftir að hann hafði gengið berserksgang og brotið framrúður í fjórum mannlausum bílum við götuna. Þjófavarnakerfi bílanna fóru í gang og vöktu vöktu íbúa við götuna með látum, sem sáu hvers kyns var og kölluðu á lögreglu. 6.8.2009 07:03
Tíu þúsund gætu flúið land Allt að tíu þúsund manns gætu flutt úr landi á næstu árum umfram þá sem flytjast til landsins vegna kreppunnar að mati Stefáns Ólafssonar, prófessors í félagsfræði við Háskóla Íslands. Þetta byggir hann á samanburði við fólksflutninga vegna efnahagsþrenginga á 10. áratugnum og spám um atvinnuleysi. Aukin skuldabyrði gæti orðið til þess að enn fleiri flyttu úr landi. 6.8.2009 06:00
Blóðtaka en ekki reiðarslag „Þetta eru góðar ábendingar og stjórnvöld verða að hafa þær í huga,“ segir Guðmundur Jónsson, prófessor í hagsögu við Háskóla Íslands, um skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um Icesave-skuldbindingarnar. Þar kemur fram að skuldabyrði landsmanna myndi þyngjast ef fólk flýr land í stórum stíl. 6.8.2009 06:00
Fá bætur ef það rignir í fríinu Farþegar sem ferðast með þýska flugfélaginu Lufthansa geta nú krafið félagið um bætur ef það rignir á þá í fríinu. 6.8.2009 06:00
Össur verðmætasta félagið í Kauphöllinni Össur hf. er verðmætast þeirra fyrirtækja sem skráð eru í Kauphöllinni. Markaðsvirði hlutabréfa Össurar nam rúmum 48 milljörðum króna um mánaðamótin. Næst í stærð er Marel en markaðsvirði þess nemur rúmum 31 milljarði króna. Markaðsvirði Færeyjabanka er rúmir 29 milljarðar. Samanlagt markaðsvirði skráðra félaga í Kauphöllinni var 192 milljarðar um mánaðamót. 6.8.2009 06:00
Skiptist ekki á orðum við samflokksmenn „Á sunnudeginum eftir kosninguna héldum við fund þar sem ýmislegt kom fram. Þremenningarnir vöruðu meðal annars við því að Hollendingar hótuðu að standa í vegi fyrir aðildarumsókn ef ekki yrði skrifað undir Icesave, og þeim finnst tilgangurinn helga meðalið í kosningu sinni. Margir innan hreyfingarinnar eru ósammála þeim í því,“ segir Herbert Sveinbjörnsson, formaður Borgarahreyfingarinnar. 6.8.2009 06:00
Steingrímur J. flytur Hólaræðu Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra flytur hátíðarræðu á Hólahátíð í ár. Hátíðin fer fram helgina 14.-16. ágúst. 6.8.2009 05:00
Enginn tímarammi um afnám haftanna Svein Harald Øygard seðlabankastjóri segist vonast til þess að búið verði að aflétta gjaldeyrishöftum af landinu að fullu eftir tvö til þrjú ár. Hann segist sjálfur ætla að gera hvað hann getur til að aðstæður skapist til þess. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Seðlabankanum í gær þar sem áætlun um afnám haftanna var kynnt. 6.8.2009 05:00