Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Í eftirlitsferð við Bandaríkin Rússar hafa staðfest að tveir kafbátar, sem sáust út af austurströnd Bandaríkjanna, hafi verið rússneskir. 6.8.2009 03:00
Landsmenn sækja í Lónið Þeim Íslendingum fjölgar sem sækja heim Bláa lónið. Heimsóknum Íslendinga í Lónið fjölgaði um 26 prósent í júlí sé miðað við sama mánuði í fyrra. Alls fóru 73.800 manns í Bláa lónið í júlí. 6.8.2009 03:00
Þórður sinnir sérverkefnum Embætti fiskistofustjóra hefur verið auglýst laust til umsóknar frá 1. september. Skipunartími er fimm ár. 6.8.2009 02:30
Klædd lerki, kopar og torfi Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs við Skriðuklaustur í Fljótsdal verður klædd lerki, kopar og torfi. 6.8.2009 02:00
Fleiri útlendingar á hótelunum Gistinóttum á hótelum í júní fækkaði um fimm prósent á milli ára. Voru þær 147.900 í júní í ár en 155.800 í sama mánuði í fyrra. Fækkun varð víðast hvar á landinu en fjölgun á Suðurlandi. 6.8.2009 02:00
Tvö til þrjú ár í fullt haftaleysi Íslendingar geta verið lausir við gjaldeyrishöft eftir tvö til þrjú ár, að mati Sveins Haralds Øygard seðlabankastjóra. Lausleg áætlun um afnám haftanna var kynnt í gær. 6.8.2009 01:45
Hundruð mótmælenda við þinghúsið Hundruð mótmælenda létu í sér heyra við þinghúsið í Teheran í gær þegar Mahmoud Ahmadinejad sór embættiseið fyrir annað kjörtímabil sitt sem forseti. 6.8.2009 00:45
Bandarískum blaðakonum fagnað við heimkomuna Bandaríkin, AP Bandarísku blaðakonurnar Euna Lee og Laura Ling fengu góðar móttökur þegar þær komu til Bandaríkjanna í gær og hittu fjölskyldur sínar eftir langan aðskilnað. 6.8.2009 00:15
Ástralski forsætisráðherrann sakaður um fjöldamorð „Það er raðmorðingi í Ástralíu og við ætlum að sýna ykkur mynd af honum svo þið sjáið hver það er,“ sagði fréttaþulurinn Erin Burnett sem er þekktust fyrir að flytja yfirvegaðar fréttir af CNBC um verðbréfaviðskipti í heiminum. 5.8.2009 21:31
Líkamsræktarmorðinginn ætlaði að drepa í janúar Morðinginn George Sodini, sem fór inn í líkamsræktarstöðin LA Gym og mytri þrjár konur auk þess sem hann særði tíu aðrar í Bandaríkjunum, bloggaði um ætlun sína að myrða fólk. Þar segist hann hafa áður farið vopnaður í þeim tilgangi að myrða. 5.8.2009 21:05
Útlán Kaupþings „ógeðfelld“ og „ferleg“ Ógeðfellt og ferlegt eru orð sem stjórnandi lífeyrissjóðs notar til að lýsa útlánum Kaupþings til stærstu eigenda sinna. Formaður Landssamtaka lífeyrissjóða segir það varla geta talist eðlilegt hvað eigendur fengu mikið að láni í bankanum. 5.8.2009 19:03
Icesave fer ekki óbreytt í gegnum þingið Það er engin sátt um það á alþingi að frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave skuldbindinga við Hollendinga og Breta fari óbreytt í gegnum þingið. Sumir stjórnarliðar eru ekki sáttir við núverandi texta og leita samkomulags við stjórnarandstæðinga um fyrirvara, sem meirihluti Alþingis geti sætt sig við. 5.8.2009 18:49
Slasaður maður í Esjunni Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út klukkan 16:30 vegna manns sem hrasaði á Svínaskarðsvegi í Esju og meiddist á fæti. 5.8.2009 17:17
Lánabók Kaupþings til rannsóknar hjá skattstjóra Ríkisskattsstjóri segir ólíklegt að skattayfirvöld hér á landi hefðu fengið sambærilegar upplýsingar við rannsókn mála eins og komu fram í lánayfirliti Kaupþings sem lekið var á netið. Ítarleg rannsókn standi yfir og ný framkomin gögn verði tekin til rannsóknar. 5.8.2009 18:55
Skemmdarverkin minnsta mögulega refsingin Náttúruverndarsamtökinn róttæku, Saving Iceland skvetti grænni málningu á stigang Alcoa við Suðurlandsbraut í gær. 5.8.2009 18:02
Dýrin í Húsdýragarðinum fá sumarleyfi Dýrin í húsdýragarðinum eru mörg hver í sumarleyfi þessa dagana, að sögn Unnar Sigþórsdóttur deildarstjóra fræðsludeildar fá dýrin hið minnsta einn mánuð í sumarfrí á ári. 5.8.2009 16:54
Innbrotum á höfuðborgarsvæðinu hefur fjölgað um 70% í ár Innbrotum hefur fjölgað um 67% á fyrstu sjö mánuðum ársins ef miðað er við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í tölum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 5.8.2009 15:51
Fjárlaganefnd ætlar að klára Icesave um helgina Enn er stefnt að því að afgreiða Icesave frumvarpið út úr fjárlaganefnd um helgina. Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar segiVið teljum okkur vera komin með öll gögn í þessu máli. „Við færumst ekkert nær sannleikanum varðandi efnahagsforsendur og varðandi lögfræðiálitin. Svo er það bara okkar að höndla hann og það er pólitíski hlutinn eftir og við erum að vinna í honum," segir Guðbjartur. 5.8.2009 15:34
Ekkert lát á innbrotum Ekkert lát virðist vera á þeirri innbrotaöldu sem ríður yfir höfuðborgarsvæðið þessa dagana. Frá því klukkan sjö í morgun hefur lögreglunni borist tilkynningar um tvö innbrot og tvær innbrotstilraunir. 5.8.2009 15:01
Ekið á tvö börn í Reykjavík í dag Ekið var á dreng á Baldursgötu í Reykjavík í hádeginu í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni slapp drengurinn vel og þurfti hann ekki að leita aðstoðar á slysadeild. Þá var ekið á barn við Landakot nú rétt fyrir fjögur. Ekki hafa fengist nánari upplýsingar um málsatvik eða líðan drengsins að öðru leyti en því að hann er með meðvitund. 5.8.2009 14:48
Tilgangur lánanna var Svíum fullljós „Þeim var vel ljóst að þessi lántaka var hugsuð til þess að byggja upp öflugan gjaldeyrisvarasjóð en ekki til útgjalda," segir Jón Sigurðsson, formaður samninganefndar Íslendinga gagnvart Norðurlöndunum. 5.8.2009 14:11
Flestum finnst lögreglan skila góðu starfi Um 92% finnst lögreglan skila góðu starfi í sínu hverfi eða byggðarlagi við að stemma stigu við afbrotum, en um 8% finnst lögreglan ekki skila góðu starfi. Þetta sýnir könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir ríkislögreglustjóra í aprílmánuði. Könnunin var kynnt fjölmiðlum í dag. 5.8.2009 12:44
Ekkert um Al Thani í lánayfirliti Kaupþings Ekkert finnst um lán Kaupþings til sjeiksins Al Thanis frá Katar í lányfirliti bankans sem lekið var á netið fyrir skömmu. Eignarhaldsfélag hans keypti hlut í bankanum undir lok september í fyrra fyrir tuttugu og fimm milljarða króna. Þar með varð hann þriðji stærsti hluthafi Kaupþings. 5.8.2009 12:07
Lán SÍ til íslensku bankanna tvöfölduðust árið fyrir hrun Útistandandi lán seðlabankans til íslenskra banka meira en tvöfölduðust á árinu fyrir hrun. Í reikningum bankans sést að frá því í júlí 2007 til september 2008 hækkuðu lán til innlánsstofnana úr tæpum 158 milljörðum í tæpa 455 milljarða. Í júlí, ágúst og september 2008 voru útlán seðlabankans til íslensku bankanna tvöfalt hærri en í sömu mánuðum árið áður. 5.8.2009 11:58
Kruzenshtern verður í Reykjavík næstu daga Hið fræga rússneska skip Kruzenshtern mun liggja við höfnina í Reykjavík dagana 6. - 9. ágúst næstkomandi. Skipið mun koma til Íslands, meðal annars til að fagna því að 65 ár eru liðin frá lokum Seinni heimstyrjaldarinnar. 5.8.2009 11:28
Þvingunaraðgerðir ESB ræddar í utanríkismálanefnd Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir eru á dagskrá utanríkismálanefndar í dag. Það mun þó vera um praktíska umfjöllun að ræða, þ.e. hvernig þátttöku Íslands í slíkum aðgerðum verði háttað. 5.8.2009 11:07
Efnahagsástandið mun versna áður en það batnar Það versnar áður en það batnar. Íslendingar fá nú fyrst fyrir alvöru að finna fyrir efnahagskreppunni, hefur danska blaðið borsen.dk eftir Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra. „Það bíður okkur erfiður vetur, þar sem atvinnuleysið getur aukist á ný, en eftir það ættum við að hafa séð það versta," segir Steingrímur. 5.8.2009 11:06
Forgangur krafna skiptir miklu - myndrænt „Ég held að margir hafi haldið að ef eignir Landsbankans dygðu fyrir þessum 670 milljörðum, þá væri íslenska ríkið stikkfrí í Icesave. Sú er ekki raunin," segir Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri gagnavinnslufyrirtækisins Datamarket. 5.8.2009 10:37
Skvettu málningu á hús Rannveigar Rist Skemmdarvargar skvettu málningu á hús Rannveigar Rist, forstjóra álversins í Straumsvík, en verknaðarins varð vart í morgun. Skemmdarvargar virðast herja á heimili stjórnenda í stóriðjufyrirtækja þessa dagana því að fyrir rúmri viku var málningu skvett á hús Friðriks Sophussonar, forstjóra Landsvirkjunar. 5.8.2009 10:28
Bændur hvattir til að virða útivistartíma kúa Matvælastofnun hefur hrundið af stað átaksverkefni til að tryggja að kýr fái notið eðlilegrar útivistar yfir sumarið reglum samkvæmt, sem kveða á um að kýr eigi að njóta útivistar í átta vikur yfir sumarið. 5.8.2009 09:41
Gistinóttum fækkar Gistinætur á hótelum í júní síðastliðnum voru 147.900 en voru 155.800 í sama mánuði árið 2008. Þetta kemur fram hjá Hagstofunni og segir einnig að gistinóttum hafi fækkað í öllum landshlutum nema á Suðurlandi. Á Norðurlandi voru gistinætur svipaðar milli ára. 5.8.2009 09:35
Mikill meirihluti andvígur Icesave samningunum Nærri 68% landsmanna er andvígur frumvarpi ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð á Icesave samningum, en 19,6% landsmanna eru hlynntir. Þetta sýna niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar sem Capacent-Gallup gerði fyrir útgáfufélagið Andríki, sem gefur út Vef-þjóðviljann. 5.8.2009 09:28
Stútur tekinn úr umferð á Selfossi Mikið ölvuð kona var tekin úr umferð á Selfossi í nótt eftir að lögreglumenn tóku eftir undarlegu ökulagi hennar. 5.8.2009 08:13
Skotárás í ræktinni Að minnsta kosti fimm eru látnir eftir að maður hóf skothríð í líkamsræktarstöð í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í nótt. Tíu eru særðir í það minnsta, en byssumaðurinn skaut sjálfan sig til bana að árásinni lokinni. 5.8.2009 08:11
Danskar löggur segja slagsmálasögur á Facebook Lögreglumenn í Dönsku borginni Bröndby liggja nú undir ámæli eftir að nokkrir þeirra skrifuðu skeyti á Fésbókarsíðu kollega síns. Í skrifunum lýsa lögreglumennirnir ánægju sinni með átök sem þeir lentu í á dögunum við pólska fótboltaáhangendur en 113 voru handteknir í slagsmálunum. 5.8.2009 08:03
Enn séns fyrir ítalska lottóspilara Enginn var með allar tölur réttar í ítalska lottóinu en dregið var í gærkvöldi. Potturinn er sá næst stærsti sem í boði hefur verið í Evrópu en sá sem hefði haft heppnina með sér í gær væri nú 116 milljónum evra ríkari eða rúmum 20 milljörðum íslenskra króna. 5.8.2009 08:01
Vel græjaður þjófur handtekinn við iðju sína Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók á sjöunda tímanum í morgun mann, sem var að reyna að brjótast inn í íbúðarhús í austurborginni. 5.8.2009 07:57
Ferð Clintons bar árangur Heimsókn Bills Clintons fyrrverandi Bandaríkjaforseta til Norður Kóreu bar árangur því blaðakonurnar tvær sem hann vildi fá lausar úr haldi voru um borð í þotu hans á heimleiðinni en hann hélt til Bandaríkjanna í nótt. 5.8.2009 07:54
Ahmadinejad sór embættiseið Mahmoud Ahmadinejad forseti Írans sór embættiseið fyrir annað kjörtímabil sitt í morgun í Íranska þinginu. Ahmadinejad bar sigur úr býtum í kosningum á dögunum en kosningarnar hafa verið harðlega gagnrýndar og yfirvöld sökuð um kosningasvindl. 5.8.2009 07:34
Átta kálfar drápust í árekstri Sjö kálfar drápust samstundis og dýralæknir þurfti að aflífa einn til viðbótar, eftir að amerískum jeppa af stærstu gerð var ekið inn í hóp kálfa, sem sloppið höfðu úr girðingu við þjóveginn, rétt austan við Selfoss laust eftir miðnætti. 5.8.2009 07:29
Leðurjökkum og fjórhjóli stolið í nótt Lögreglu var tilkynnt um fjögur innbrot á höfuðborgarsvæðinu í nótt og komust þjófarnir undan í öllum tilvikum. Brotist var inn á heimili, í pylsuvagn og tvö fyrirtæki. Annað þeira var herrafataverslun, þar sem stolið var mörgum dýrum leðurjökkum. Hitt fyrirtækið var bílasala og þaðan var stolið fjórhjóli, sem þjófarnir óku burt, að sögn vitnis, en ekki er talið að þeir hafi stolið lyklum að bílum, sem eru á sölunni. 5.8.2009 07:27
Verjendur skila greinargerðum Mál Jónasar Inga Ragnarssonar og Tinds Jónssonar, sem ákærðir eru fyrir að ætla að framleiða amfetamín í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði, var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Þar skiluðu verjendur greinargerðum þar sem afstaða sakborninganna tveggja til sakarefnisins var skýrð. 5.8.2009 06:00
Handritin á heimslista Unesco Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, hefur frá 1997 haldið skrá yfir minjar sem þykja hafa sérstakt varðveislugildi fyrir andlegan menningararf mannkyns og nefnist „Memory of the World“, eða „Minni heimsins“. Nú eru 193 minjar í skránni. Handritasafn Árna Magnússonar er fyrstu íslensku minjarnar til að komast í varðveisluskrána. 5.8.2009 06:00
Össur á undanþágu Össur er eina fyrirtækið á lista Seðlabanka Íslands sem hefur undanþágu frá reglum um gjaldeyrismál og hefur stundað viðskipti með krónur erlendis. Fréttablaðið sendi eftirfarandi fyrirspurn til allra fyrirtækja á lista Seðlabankans: Hafið þið verið þátttakendur á markaði með krónur á erlendum mörkuðum? 5.8.2009 06:00
Færri fá bætur yfir sumarið Vinnumálastofnun greiddi rúmlega fimmtán þúsund einstaklingum rúmlega 1,7 milljarða króna í atvinnuleysisbætur nú um mánaðamótin að sögn Líneyjar Árnadóttur, forstöðumanns greiðslustofu Vinnumálastofnunar. 5.8.2009 05:30