Innlent

Í ham á Háteigsvegi

Ofurölvi maður var handtekinn á Háteigsveginum í Reykjavík undir morgun eftir að hann hafði gengið berserksgang og brotið framrúður í fjórum mannlausum bílum við götuna. Þjófavarnakerfi bílanna fóru í gang og vöktu vöktu íbúa við götuna með látum, sem sáu hvers kyns var og kölluðu á lögreglu.

Ekkert var hægt að ræða við manninn vegna ölvunar og verður hann látinn sofa úr sér vímuna í fangageymslum þartil hann verður viðræðuhæfur.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×