Innlent

Össur verðmætasta félagið í Kauphöllinni

Kauphöllin Viðskipti með skuldabréf upp á 328 milljarða voru gerð í júlí.fréttablaðið/stefán
Kauphöllin Viðskipti með skuldabréf upp á 328 milljarða voru gerð í júlí.fréttablaðið/stefán

Össur hf. er verðmætast þeirra fyrirtækja sem skráð eru í Kauphöllinni. Markaðsvirði hlutabréfa Össurar nam rúmum 48 milljörðum króna um mánaðamótin. Næst í stærð er Marel en markaðsvirði þess nemur rúmum 31 milljarði króna. Markaðsvirði Færeyjabanka er rúmir 29 milljarðar.

Samanlagt markaðsvirði skráðra félaga í Kauphöllinni var 192 milljarðar um mánaðamót.

Þessar upplýsingar koma fram í Mánaðaryfirliti Kauphallarinnar.

Hlutabréfaviðskipti í júlí námu tæpum 5.316 milljónum. Viðskiptin voru mun meiri í júlí en í júní á undan þegar veltan nam tæpum 1.600 milljónum. Munar þar mestu um yfirtökutilboð í Alfesca.

Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,25 prósent á milli mánaða og stendur nú í 746,2 stigum.

Kaupþing var með mesta hlutdeild á hlutabréfamarkaði; tæp 90 prósent. Stafar þetta háa hlutfall af umsjón bankans með yfirtökutilboði í Alfesca. Saga Capital og Landsbankinn komu þar á eftir.

Heildarviðskipti með skuldabréf námu tæpum 328 milljörðum í júlí og jukust nokkuð frá júní. Er júlí raunar veltuhæsti mánuður ársins á skuldabréfamarkaði. Viðskipti með ríkisbréf námu alls 198 milljörðum en viðskipti með íbúðarbréf námu 122 milljörðum.

MP banki hafði mesta hlutdeild kauphallaraðila á skuldabréfamarkaði; eða samtals 33,7 prósent. Íslandsbanki og Landsbankinn komu þar á eftir.- bþs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×