Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Grænfriðungar grípa til aðgerða gegn botnvörpuveiðum Grænfriðungar sökkva nú stórgrýti innan fiskveiðilögsögu Evrópusambandsins til að koma í veg fyrir það sem þeir kalla skaðlegar fiskveiðar. 10.8.2009 21:42
Vill sjá glæsisundlaug við Lækjargötu „Er þörf á fleiri minjagripabúðum eða kaffihúsum eins og líklegast koma þarna í staðinn? Við erum gjörn á að missa tækifærin til að gera skemmtilega hluti frá okkur," segir sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason í samtali við fréttastofu. 10.8.2009 20:59
Stjórnmálafræðiprófessor: Djúp stjórnarkreppa verði Icesave fellt Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir djúpa stjórnarkreppu blasa við ef Icesave málið fellur í þinginu í viðtali við fréttastofu RÚV. 10.8.2009 20:24
Söguleg sumarútskrift hjá Keili Síðasta laugardag var haldin hátíðleg sumarútskrift Keilis, en alls útskrifuðust 53 nemendur. Bættist þar í hóp þeirra 167 sem brautskráðust úr skólanum í maí. 10.8.2009 19:41
Öryrkjar ósáttir við útvarpsgjald Öryrkjar eru ósáttir við að þurfa að greiða fullt útvarpsgjald á meðan aldraðir horfa frítt á Ríkissjónvarpið. Formaður öryrkjabandalagsins hefur óskað eftir fundi með menntamálaráðherra vegna málsins. 10.8.2009 19:16
Leigukvótaviðskipti með allra minnsta móti Viðskipti með leigukvóta eru með allra minnsta móti, jafnvel miðað við árstíma, segir kvótamiðlari. Hann telur meðal annars að frysting lána hjá útgerðum skýri lítil viðskipti. Landssamband íslenskra útvegsmanna telur að einnig verði erfitt að fá leigukvóta á nýju fiskveiðiári. 10.8.2009 19:12
Forstjóri FME sannfærður um markaðsmisnotkun Forstjóri Fjármálaeftirlitsins er sannfærður um að um markaðsmisnotkun sé að ræða í nokkrum málum sem send hafa verið til sérstaks saksóknara. Fleiri stór og alvarleg mál séu á leið þangað. 10.8.2009 19:05
Fyrirvarar ræddir í þingflokkum Viðbúið er að stjórnvöld taki upp viðræður við Hollendinga og Breta um leið og Alþingi hefur afgreitt fyrirvara við ríkisábyrgð á Icesave reikningum Landsbankans. Þetta segir fulltrúi Vinstri-grænna í fjárlaganefnd. 10.8.2009 18:58
Segir sumar hugmyndir um fyrirvara ógilda samninginn Málamyndafyrirvarar duga ekki í Icesave málinu, segir formaður Sjálfstæðisflokksins. Forsætisráðherra segir að hugmyndir sumra þingmanna um fyrirvara yrðu til þess að ógilda samninginn. 10.8.2009 18:53
Skilanefnd í málaferlum við stjórnarformann Icelandair Skilanefnd Glitnis stendur í málaferlum við félag í eigu Sigurðar Helgasonar, nýkjörins stjórnarformanns Icelandair, vegna gjaldfallinnar skuldar. Sigurður og félag hans Skildingur skulda Glitni einn og hálfan milljarð. Skilanefndin hefur meðal annars kyrrsett tugmilljóna króna innistæðu félagsins. 10.8.2009 18:38
Kastaði sér út í fljót til að losna við nöldur Kínverskur vörubílstjóri lét sig gossa út í straumharða á til að losna við nöldrið í konunni sinni. 10.8.2009 18:30
Hannaði gistiheimili í gamalli rafstöð „Ég nota gamla húsið, held grindinni og klæðningunni og bæti inn hosteli í litlum einingum sem eiga að líkja eftir vélunum," segir Sólveig Ragna Guðmundsdóttir, nýútskrifaður arkitekt úr Arkitektaskólanum í Árósum. 10.8.2009 17:55
Stefna á Íslandsmet í hópsundi í sjó ÍTR Siglunes stefnir að því að slá Íslandsmet í hópsjósundi í dag í samstarfi við apótekið Lyfju. Til stendur að halda hópskemmtisund frá Nauthólsvík og yfir til Kópavogs, og fyrir þá allra hörðustu til baka aftur. 10.8.2009 17:22
Ökumenn sektaðir um eina og hálfa milljón Alls voru 27 ökumenn sektaðir fyrir að aka of hratt í Árborg í síðustu viku. Lögreglan á Selfossi sektaði þessa einstaklinga en samanlögð fjárútlát þeirra voru tæp ein og hálf milljón króna vegna lögbrotanna. 10.8.2009 15:39
Dæmd til að láta syni sína af hendi Íslensk tveggja barna móðir er dæmd til að afhenda fyrrverandi eiginmanni sínum í Bandaríkjunum syni sína tvo samkvæmt nýlegum dómi Hæstaréttar. Konan er hvorki með fjármagn til upphalds né landvistar-og atvinnuleyfi þar í landi. Allls staðar segist hún koma að lokuðum dyrum í íslensku stjórnkerfi. 10.8.2009 15:05
Birgir vildi vita hvort samskiptin við norrænu ríkin hefðu verið óljós Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði forsætisráðherra að því á Alþingi í dag hvort það gæti verið að eitthvað óljóst hafi verið í því á hvaða forsendum norrænu ríkin veittu Íslandi lán sem beðið hefur verið eftir um allnokkurt skeið. 10.8.2009 15:31
Vill samþykkja Icesave samning í þágu umhverfismála Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands skorar á Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, formann þingflokks VG, að styðja ríkisstjórnina í Icesave málinu. Hann segist óttast að ríkisstjórnin muni að öðrum kosti falla og öll þau góðu mál sem hún gæti komið fram. 10.8.2009 17:07
Icesave rýrir ekki rétt íslenska tryggingarsjóðsins Ákvæði Icesave samninganna um jafnræði milli tryggingarsjóða Íslands, Bretlands og Hollands rýra ekki að neinu leyti rétt íslenska tryggingarsjóðsins þegar kemur að úthlutun úr búi Landsbankans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu vegna nýs lögfræðiálits sem unnið var fyrir ráðuneytið. 10.8.2009 15:24
Obama styður fíkniefnastríð mexíkóskra stjórnvalda Barack Obama, Bandaríkjaforseti, kveðst styðja fíkniefnastríð mexíkóskra stjórnvalda sterkt og ákveðið. Obama er staddur í Guadalajara þar sem hann fundar með Felipe Calderon, forseta landsins, og Stephen Harper, forsætisráðherra Kanada. Þremenningarnir ræða meðal annars fíkniefnastríðið, svínaflensuna og horfur í efnahagsmálum. 10.8.2009 15:12
Kosningu í bankaráð Seðlabankans frestað Kosningu sjö aðalmanna og jafnmargra varamanna í bankaráð Seðlabankans hefur verið frestað til morguns. Þetta kom fram í máli Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, þegar þingfundur hófst klukkan 15 í dag. 10.8.2009 15:02
Risasnekkja við bryggju í Reykjavíkurhöfn The Apoise heitir snekkja sem lagðist að bryggju í Reykjavíkurhöfn í morgun. Snekkjan er án efa með þeim stærri sem hafa lagst a bryggju hér að landi í sumar en, samkvæmt upplýsingum fréttastofu er hún 67 metrar á lengd og 13 metrar á breidd. Til samanburðar má nefna að varðskipið Týr er tæpir 66 metrar á lengd og 10 metrar á breidd. 10.8.2009 14:37
Icesave: Greiðslur verði af hagvexti Eina niðurstaðan af fundi fjárlaganefndar í morgun, um Icesave-frumvarpið, var að Seðlabankinn tæki þátt í að meta gildi fyrirvara við ríkisábyrgð. Meðal fyrirvara sem rætt er um að setja, er að Íslendingar greiði Hollendingum og Bretum eingöngu af framtíðarhagvexti. 10.8.2009 13:17
Ræða þarf við Hollendinga og Breta vegna fyrirvara Alþingis Stjórnvöld munu þurfa að ræða við Hollendinga og Breta, vegna þeirra fyrirvara sem Alþingi gerir við ríkisábyrgð á Icesave reikningum Landsbankans. Þetta segir fulltrúi Vinstri grænna í fjárlaganefnd. Engin niðurstaða varð um fyrirvara á fundi nefndarinnar í morgun. 10.8.2009 13:00
Senda skyttusveitir til að skjóta hundruð þúsunda úlfalda Ástralska ríkisstjórnin ætlar að senda skyttusveitir á þyrlum til þess að skjóta hundruð þúsunda úlfalda í óbyggðum landsins. 10.8.2009 12:23
Ræðismaður Ísraela tekinn á teppið Utanríkisráðherra Ísraels hefur lagt til að ræðismaður landsins í Boston segi af sér fyrir að gagnrýna stefnu stjórnvalda í landnemabyggðum. Nadav Tamir ræðismaður Ísraels í Boston skrifaði um landnemabyggðir Ísraels á herteknu svæðunum í minnisblaði sem ætlað var til innanhússbrúks. 10.8.2009 12:10
Yfir 100 greinst með svínaflensu Yfir hundrað hafa nú greinst með svínaflensuna hér á landi. Sóttvarnarlæknir segir ástandið erfitt og að mikið álag sé á heilbrigðisþjónustunni. 10.8.2009 12:09
Litlar líkur á sátt um fyrirvara vegna Icesave Alls óvíst er að nokkur niðurstaða verði um Icesave málið á fundi fjárlaganefndar Alþingis sem nú stendur yfir. Fram hefur komið að nefndin vinni að gerð fyrirvara við ríkisábyrgð á Icesave reikningum Landsbankans. 10.8.2009 10:44
Sjö gjaldþrotamál á Akureyri Sjö gjaldþrotamál eru tekin fyrir í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag. Flest fyrirtækjanna sem krafist er gjaldþrots yfir eru tengd byggingariðnaði. Þá er eitt fyrirtæki sem heldur úti smábátaútgerð á Akureyri sem krafist er gjaldþrots yfir. 10.8.2009 10:36
Rússneskir Birnir létu sjá sig í síðustu viku Tvær rússneskar TU-95 sprengjuflugvélar, eða svonefndir Birnir, flugu um íslenska loftrýmiseftirlitssvæðið í síðustu viku, aðeins sólarhirng áður en bandaríski flugherinn hóf loftrýmisgæslu hér. Ferðum þessara véla fer aftur fjölgandi á norðurslóðum. 10.8.2009 10:04
Gæsir reyttar lifandi og fiðrið selt í Skandínavíu Þúsundir gæsa eru reyttar lifandi og er fiðrið af þeim selt í dúnsængur, kodda, yfirhafnir og fleira. Þetta sýna gögn sem danska ríkisútvarpið, DR 1, fjallar um á vef sínum í dag. 10.8.2009 09:52
Icesave ekki afgreitt úr nefnd í dag Ekki stendur til að afgreiða Icesave málið úr fjárlaganefnd í dag. Nefndin situr nú á fundi og ræðir hvers konar fyrirvara er hægt að setja við frumvarp um ríkisábyrgð á Icesave reikningum Landsbankans. 10.8.2009 09:17
Stóri bróðir stækkar og stækkar í Bretlandi Deilurnar um notkun breskra yfirvalda af ýmsu tagi hafa harðnað þar í landi síðustu daga eftir að í ljós kom að njósnað var um 500 þúsund manns þar á síðasta ári. 10.8.2009 09:10
Chavez brjálaður út í Kólombíumenn Forseti Venesúela, Hugo Chavez, sakar Kólombíumenn um hernaðaraðgerðir gegn landi sínu. Hann segir að Kólumbískir hermenn hafi sést fara yfir Orinoco ánna sem myndar landamæri á milli landanna, og yfir á yfirráðasvæði Venesúela. 10.8.2009 09:06
Tugir látnir í sprengjuárásum í Írak Tæplega fjörutíu létust í fjórum bílsprengjum sem sprungu með skömmu millibili í írösku borgunum Mosul og Bagdad í morgun. Að minnsta kosti 150 eru særðir að því er breska ríkisútvarpið BBC greinir frá. 10.8.2009 09:02
Sex túristar teknir fyrir of hraðan akstur Lögregla stöðvaði sex ökumenn á veginum á milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs í gær, eftir að þeir höfðu mælst á of miklum hraða. Þetta voru allt erlendir ferðamenn á bílaleigubílum. 10.8.2009 08:50
Ljósanótt í Hafnarfirði og á Patró Neyðarblysum var skotið á loft í Hafnarfirði um miðnættið og svifu til jarðar í fallhlífum. Kona sem varð vitni að þessu sá hvar fallhlífarnar lentu og fann þær. Þeim var komið í hendur Landhelgisgæslunnar, en þar á bæ kannast menn ekki við þessa gerð af neyðarblysum og verður málið kannað nánar í dag. 10.8.2009 08:41
Vill ákæra forsprakka mótmælanna í Íran Háttsettur yfirmaður í Íranska Byltingarverðinum, sérsveitum írönsku klerkastjórnarinnar, sagði í viðtali við írönsku ríkisstöðina í morgun að forsprakka mótmælanna síðustu vikurnar í Íran eigi að draga fyrir rétt og ákæra fyrir landráð. 10.8.2009 08:37
Málningu skvett hjá Hjörleifi Kvaran Málningu var í nótt skvett á hús og bíla Hjörleifs Kvaran, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, en Hjörleifur býr við Granaskjól í Reykjavík. Öryggisvörður frá Securitas tilkynnti lögreglunni um málið, en hann sá ekki til gerendanna. 10.8.2009 08:18
Átta létust í eftirför lögreglu Átta létust í bílslysi í Kalíforníu í gær, þar af fimm börn. Ökumaður bíls af gerðinni Dodge Neon sem hafði ekki virt stöðvunarskyldu reyndi að komast undan lögreglunni á ofsahraða og á meðan á eftirförinni stóð ók hann á fullri ferð á pallbíl. Börnin sem voru á aldrinum eins til átta ára voru öll um borð í pallbílnum. Þrír fullorðnir sem voru um borð í flóttabílnum létust einnig á staðnum. Þá eru tveir fullorðnir sem voru með börnunum í bílnum á sjúkrahúsi, alvarlega slasaðir. 10.8.2009 08:15
Féll milli báts og bryggju Maður sem var að vinna við bát, sem liggur við bryggju skammt frá Kaffivagninum í Reykjavíkurhöfn, féll milli bátsins og bryggjunnar um klukkan þrjú í nótt. 10.8.2009 08:12
Milljón flúði Morakot Um ein milljón manna þurfti að yfirgefa heimili sín í strandhéruðum Kína í gær og í nótt þegar fellibylurinn Morakot reið þar yfir. Morakot náði um 120 kílómetra hraða í mestu vindhviðunum og eyðilagði hús og færði akurlendi á kaf. Íbúar á ströndinni sluppu þó flestir vel en tilkynnt hefur verið um eitt dauðsfall í kjölfar fellibylsins sem nú hefur dregið úr styrk sínum og kallast nú hitabeltisstormur. 10.8.2009 07:11
Togarinn Sólbakur færður til hafnar Varðskip færði togarann Sólbak EA til hafnar á Akureyri á sjötta tímanum í morgun, eftir að skipstjórinn var staðinn að meintum ólöglegum veiðum noðrvestur af landinu í gær. Eftir því sem Fréttastofan kemst næst snýst málið um möskvastærð í trollinu og útbúnað á smáfiskaskilju, sem á að hleypa smáfiski lifandi út úr trollinu. 10.8.2009 07:09
Lögreglumenn íhuga að grípa til aðgerða Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu hafa rætt það sín á milli að grípa til aðgerða gegn yfirstjórn embættisins ef ekki verður hætt við fyrirhugaðar skipulagsbreytingar sem taka eiga gildi 1. september. Mögulegar aðgerðir gætu til dæmis falist í því að neita að taka aukavaktir nema þeir verði beinlínis skyldaðir til þess og svara ekki í síma þegar þeir eru á frívöktum. 10.8.2009 06:15
Nýjar útfærslur breyta ekki afstöðu stjórnarandstöðu Ekki tókst að ná þverpólitískri samstöðu um lausn á deilum vegna Icesave-samkomulagsins á fundi fulltrúa allra flokka í gær, eins og vonir höfðu staðið til. Til stóð að ljúka umræðum um málið í fjárlaganefnd í dag og hefja aðra umræðu á Alþingi á morgun, en fullljóst er talið að af því verði ekki. 10.8.2009 06:00
Þvo í þágu góðs málstaðar „Þetta er fínt, maður má bara ekki horfa of mikið niður,“ segir Hildur Arnardóttir, meðlimur í Hjálparsveit skáta í Reykjavík, sem varði gærdeginum hangandi í sjötíu metra hæð yfir jörðu utan í háhýsinu við Höfðatorg. 10.8.2009 05:00