Innlent

Sex túristar teknir fyrir of hraðan akstur

MYND/HARi

Lögregla stöðvaði sex ökumenn á veginum á milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs í gær, eftir að þeir höfðu mælst á of miklum hraða. Þetta voru allt erlendir ferðamenn á bílaleigubílum.

Þeir greiddu allir sektir sínar á staðnum, til þess að fá afslátt af sektunum, en samanlagt numu þær samt tvö hundruð þúsund krónum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×