Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rændu feðga dulbúnir sem pizzasendlar Ráðist var inn á heimili feðga í danska bænum Skibby laust eftir miðnætti í nótt, þeir bundnir og heimilið rænt verðmætum. Faðirinn er rúmlega fertugur en sonur hans fjögurra ára og voru ræningjarnir tveir. 29.5.2009 07:19
Bing er nýjasta leitarvél Microsoft Steve Ballmer, framkvæmdastjóri Microsoft, hleypti í gær af stokkunum tilraunaútgáfu nýrrar leitarvélar hugbúnaðarfyrirtækisins sem gengur undir nafninu Bing og er ætlað að verða eins konar keppinautur og jafnvel arftaki Google-leitarvélarinnar sem einnig er runnin undan rifjum Microsoft. 29.5.2009 07:18
Obama fundaði með Abbas í gær Barack Obama Bandaríkjaforseti átti í gær fund með Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, þar sem þjóðhöfðingjarnir ræddu málefni Vesturbakkans. 29.5.2009 07:13
Eton-skólanum lokað vegna svínaflensu Hinn virti breski einkaskóli Eton verður lokaður næstu vikuna eftir að einn nemenda hans greindist með svínaflensu. 29.5.2009 07:10
Ákvörðun um gæsluvarðhald í dag Það ræðst í dag hvort lögregla krefst gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir þriðja manninum sem handtekinn var í gær vegna innbrots á heimili manns á Seltjarnarnesi fyrr í vikunni, en hinir tveir eru nú báðir í gæsluvarðhaldi. 29.5.2009 07:08
Haldið sofandi eftir slys Fimmtán ára stúlku, sem varð fyrir bíl á Breiðholtsbraut síðdegis í gær, er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans. Að sögn lækna er hún alvarlega slösuð. 29.5.2009 07:04
Áfengi hækkar ekki í verði í dag Töluvert annríki var undir kvöld í þeim verslunum ÁTVR sem opnar eru lengst eftir að greint var frá frumvarpi um hækkanir á áfengisgjaldi í gær. Ekki var þó nein ástæða til að hamstra vínið enda mun áfengisverð ekki hækka í dag, að sögn Sigrúnar Óskar Sigurðardóttur, aðstoðarforstjóra ÁTVR. 29.5.2009 06:00
Rannsóknin tíu mánaða spretthlaup Þeir tíu mánuðir sem rannsóknarnefnd Alþingis fékk til að ljúka rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna eru hálfnaðir. Formaður nefndarinnar segir vinnuna minna á tíu mánaða spretthlaup. 29.5.2009 06:00
Stöðvar líka pólitík Netvari Símans er forrit sem á að verja notendur fyrir óæskilegu efni og lokar fyrir aðgang að því, svo sem ofbeldi og klámi. Svo virðist þó sem Netvarinn loki einnig fyrir aðgang að ýmsu pólitísku efni. Þannig hafa notendur hans sagt frá því að þeir geti ekki lesið efni á róttækum pólitískum umræðusíðum, svo sem um anarkisma, eða til dæmis netsíðu tímarits Byltingarsinnaða bandaríska kommúnistaflokksins. 29.5.2009 05:45
Hóta aftur ragnarökum Náttúruverndarsamtökin Sea Shepherd mótmæla því að íslensk stjórnvöld hafi leyft hvalveiðar í atvinnuskyni á ný og hóta að grípa tið aðgerða. 29.5.2009 05:30
Laugavegi lokað í góðu veðri Til íhugunar er að loka hluta Laugavegs fyrir bílaumferð á góðviðrisdögum í sumar. Dofri Hermannsson, fulltrúi Samfylkingar í umhverfis- og samgönguráði, lagði fram tillögu þess efnis á fundi ráðsins á þriðjudag. 29.5.2009 05:30
Efnahagsþrengingar ógna mannréttindum Mannréttindabrotum fjölgar í efnahagsþrengingunum og á sama tíma hljóta þau minni athygli. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Amnesty International. 29.5.2009 05:00
Bótaþegar kallaðir í viðtal Vinnumálastofnun er nú í átaki til að tryggja að þeir sem skráðir eru á atvinnuleysisbætur séu ekki jafnframt í vinnu. Líkt og Fréttablaðið greindi frá uppgötvaðist að svo var ástatt um fimmtán til tuttugu starfsmenn undirverktaka við Tónlistarhúsið. 29.5.2009 05:00
Deila um tónlistarskóla leyst Borgaryfirvöld komu til móts við forsvarsmenn tónlistarskóla í Reykjavík á fundi í gær með því að bjóða fram 50 milljóna króna viðbótarframlag fram til haustsins frá því sem áður stóð til. 29.5.2009 04:30
Bandaríski bílarisinn GM endar í ríkiseigu Samkvæmt því sem lekið hefur út um drög að samkomulagi milli bandaríska fjármálaráðuneytisins og helstu lánardrottna bílarisans GM stefnir í að ríkið eignist yfir 70 prósent í endurreistu fyrirtæki eftir hraðgjaldþrot. Óljóst um örlög Opel. 29.5.2009 04:30
Stefna mörkuð í nýmiðlun Ráðherrafundur Evrópuráðsins um fjölmiðlun og nýmiðla hófst í Reykjavík í gær. Ráðherrar allra 47 aðildarríkja ráðsins eða fulltrúar þeirra sitja fundinn ásamt fulltrúum alþjóðlegra hagsmunasamtaka. 29.5.2009 04:30
Alþingi samþykkir hærri neysluskatta Samtök ferðaþjónustunnar óttast að hækkun stjórnvalda á neyslusköttum muni koma illa við fyrirtæki í ferðaþjónustu. Frekar ætti að auka tekjur með markaðsátaki erlendis. Talsmaður neytenda óttast áhrif hækkana á verðtryggð lán. 29.5.2009 04:30
Fjögur börn sögð hafa farist Minnst fjórir létust í Hondúras í gær þegar sterkur jarðskjálfti, 7,1 á Richterkvarða, reið yfir undan ströndum Mið-Ameríkulandsins. Hús hrundu bæði í Hondúras og nágrannalandinu Belís og fólk allt til höfuðborgarinnar í Gvatemala flúði híbýli sín á náttfötunum. 29.5.2009 04:15
Nauðsynlegar ráðstafanir „Sé ekki gripið til viðeigandi ráðstafana þegar á þessu ári verður halli ríkissjóðs á árinu 2009 meiri en áætlað var og meiri en viðunandi getur talist,“ segir í athugasemdum með frumvarpi fjármálaráðherra um hækkanir á gjöldum á eldsneyti, bílum, áfengi og tóbaki. 29.5.2009 04:15
Þúsund störf í púkkið Reykjavíkurborg tekur fimm milljarða lán hjá lífeyrissjóðum til ýmissa framkvæmda. Formaður borgarráðs segir lánið á góðum kjörum miðað við aðstæður. 29.5.2009 04:15
Munu rannsaka innhöf Evrópu Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands hefur hlotið 200 þúsund evra rannsóknarstyrk – eða sem nemur um 35 milljónum króna – úr 7. rammaáætlun Evrópusambandsins. Styrkinn hlýtur stofnunin vegna þátttöku sinnar í verkefninu EU4SEAS, sem alls hlaut vilyrði fyrir 1,2 milljóna evra styrk. 29.5.2009 04:15
Mikil þörf fyrir hvíldarheimili Átak til styrktar hvíldarheimili Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna hófst í gær. Nefnist það Á allra vörum og byggir á sölu á varaglossum. 29.5.2009 04:15
Ríkur þingvilji til að sækja um ESB-aðild Aðferðafræði greinir að tillögur ríkisstjórnarinnar annars vegar og Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hins vegar um Evrópusambandsmál. Stjórnin vill leggja inn aðildarumsókn en stjórnarandstöðuflokkarnir vilja undirbúa mögulega umsókn. 29.5.2009 04:15
Ólík aðferðafræði við undirbúning Munurinn á tillögunum tveimur er sá helstur að ríkisstjórnin vill að þingið feli henni að leggja inn umsókn en framsóknar- og sjálfstæðismenn vilja að utanríkismálanefnd undirbúi mögulega umsókn. 29.5.2009 04:15
Hækkun á eldsneyti og áfengi samþykkt Alþingi samþykkti nú í kvöld frumvarp Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, sem gerir meðal annars ráð fyrir að áfengi og eldsneyti hækki. Frumvarpið fékk flýtimeð en það var að lokukm samþykkt með 32 atkvæðum en 22 þingmenn greiddu atkvæði gegn því. 28.5.2009 23:28
Fimmtán féllu í mosku í Íran Að minnsta kosti 15 manns biðu bana og meira en 50 særðust í sprengjuárás ódæðismanna á mosku í borginni Zahedan í suðausturhluta Írans í kvöld. Sprengja sprakk í moskunni þegar fjölmargir sjíta-múslimar voru þar við kvöldbænir. 28.5.2009 22:45
FÍB: Stjórnvöld í skattavíking gegn bifreiðaeign Félag íslenskra bifreiðaeigenda varar ríkisstjórnina við margþættum óæskilegum áhrifum af frumvarpi sem nú er til umfjöllunar á Alþingi sem felur meðal annars í sér 10% hækkun bifreiðagjalds. Félagið segir að sú aðferð stjórnvalda að leggjast í skattavíking gegn bifreiðaeign og bifreiðanotkun landsmanna þegar rétta þurfi hag ríkissjóðs sé ekki ný saga. 28.5.2009 21:19
Fundum Alþingis ítrekað frestað Þingfundum hefur ítrekað verið frestað í kvöld. Til umræðu hefur verið frumvarp ríkisstjórnarinnar sem felur 10% hækkun bifreiðagjalds og 15% hækkun gjalda á tóbak og áfengi. Frumvarpið fékk flýtimeðferð og verður væntanlega að lögum innan tíðar. 28.5.2009 23:09
Vill að Ísraelar hætti við landtökubyggðir Barack Obama, Bandaríkjaforseti, ætlar að beita sér fyrir því að Ísraelar hætti við frekari framkvæmdir við landtökubyggðir á Vesturbakka Palestínu en þær eru afar umdeildar og stangast á við alþjóðalög. Obama fundaði með Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, í kvöld. Þar ræddu þær um leiðir til að koma á friði í heimshlutanum. 28.5.2009 21:59
Pelosi vill að Kínverjar beiti sér í málefnum N-Kóreu Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, fordæmir kjarnorkutilraunir Norður-Kóreumanna. Jafnframt hvetur hún ráðamenn í Kína til að beita áhrifum sínum og fá Norður-Kóreumenn til að láta af tilraunum sínum með skammdrægar eldflaugar. 28.5.2009 21:08
ESB-tillagan ekki kúvending Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að þingsályktunartillaga Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks sé ekki í kúvending frá fyrri afstöðu flokksins í Evrópumálum. 28.5.2009 20:53
Bankarnir réðu bresk almannatengslafyrirtæki Íslensku bankarnir réðu til sín bresk almannatengslafyrirtæki til að fá þarlenda fjölmiðla í lið með sér í góðærinu. Þetta segir framkvæmdastjóri Alþjóðasamtaka blaðamanna. Á annað hundrað jákvæðar greinar í breskum blöðum hafi orðið til þess að Bretar lögðu nærri tvo milljarða punda í íslenskar fjárfestingar eða um 400 milljarða króna á gengi dagsins í dag. 28.5.2009 20:42
Þvingaður út af Vesturlandsvegi Lögreglan þvingaði ökumann bifreiðar af Vesturlandsvegi við Höfðabakkabrú eftir stutta eftirför á áttunda tímanum í kvöld. Lögregla hafði áður borist ábending um manninn sem er að sögn lögreglu andlega vanheill. Hann mun ekki hafa ekið yfir leyfilegum hámarkshraða. 28.5.2009 20:31
Mikið að gera í vínbúðum Mikið var að gera í verslunum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins í dag og víða mynduðust raðir undir kvöld. 28.5.2009 20:21
Kona sakar fyrrverandi biskup um kynferðislegt áreiti Kona sem var nemandi Ólafs heitins Skúlasonar fyrrverandi biskups segir hann hafa áreitt sig kynferðislega þegar hann kenndi við Réttarholtsskóla. Hún iðrast þess að hafa ekki sagt sögu sína fyrr en stígur nú fram til að styðja þær konur sem hafa verið í sömu sporum. 28.5.2009 19:45
Barðastrandaránið: Þriðji maðurinn handtekinn - þýfið fundið Karlmaður fæddur 1989 var handtekinn síðdegis í dag grunaður um aðild að innbroti á Seltjarnarnesi á mánudagskvöldið þar sem karlmanni á áttræðisaldri voru veittir áverkar. Jafnframt lagði lögregla hald á þýfi úr ráninu í dag. Þetta sagði Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. 28.5.2009 19:15
Svindl getur sýkt heilu atvinnugreinarnar Svindl atvinnubótaþega á vinnumarkaði getur sýkt heilu atvinnugreinarnar, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann óttast að svört atvinnustarfsemi muni aukast á næstu mánuðum. Verið er að þróa sérstakt kerfi sem eykur eftirlit með starfsfólki. 28.5.2009 18:47
Hækkun gjalda hefur óhjákvæmilega neikvæð áhrif Gjöld á bíla, eldsneyti, áfengi og tóbak hækka um tíu til fimmtán prósent, samkvæmt stjórnarfrumvarpi sem lagt verður fram á Alþingi í kvöld. Fjármálaráðherra segir að ekki verði hjá því komist að hækkun gjalda hafi neikvæð áhrif á verðlagið. 28.5.2009 18:39
Vörubíll valt á Selfossi - ökumaður grunaður um ölvunarakstur Vörubifreið sem ekið var um hringtorgið við Ölfusárbrú á Selfossi valt á sjötta tímanum í dag. Tildrög slyssins eru óljós á þessari stundu en að sögn lögreglu er ökumaður vörubifreiðarinnar grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. 28.5.2009 18:10
Mannskæðar sprengjuárásir í Pakistan Að minnsta kosti tíu eru látnir og hið minnsta 70 eru slasaðir eftir tvær sprengjuárásir í borginni Peshawar sem er í norðausturhluta Pakistans. Tvær sprengjur sprungu á markaði í miðbæ borgarinnar og þar er talið að sex einstaklingar hafi fallið. Á sama tíma sprengdi karlmaður með sprengjubelti sig í loft upp við starfsstöð hersins í útjaðri borgarinnar og þar munu að minnsta kosti fjórir hafa dáið. 28.5.2009 18:01
Tollari fær þrjár milljónir frá ríkinu Hæstiréttur staðfesti í dag dóm hérðasdóms þar sem íslenska ríkinu var gert að greiða fyrrum tollverði þrjár milljónir króna. Maðurinn starfaði sem tollvörður en var vikið frá embætti um stundarsakir og síðar að fullu. Áður höfðu fjórir menn verið handteknir fyrri að taka órfrjálsri hendi áfengi sem átti að farga. Þeir kváðu umræddan tollvörð hafa verið í vitorði með þeim við þessa háttsemi, hann neitaði hinsvegar. 28.5.2009 16:52
Kastljós sýknað í tengdardótturmáli Hæstiréttur Íslands staðfesti sýknudóm yfir Páli Magnússyni, yfirmanns fréttastofu Ríkisútvarpsins og Þórhalli Gunnarsyni, Helga Seljan, Jóhönnu Vilhjálmsdóttur auk Sigmars Guðmundssonar í Kastljósi vegna umfjöllunar þeirra um veitingu ríkisborgararéttar til tengdadóttur Jónínu Bjartmarz, þáverandi umhverfisráðherra Framsóknarflokksins. 28.5.2009 16:46
Hæstiréttur staðfestir þyngsta kynferðisbrotadóm sögunnar Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Suðurlands frá því í desember yfir manni sem dæmdur var í átta ára fangelsi fyrir að misnota fósturdóttur sína á þriggja ára tímabili. 28.5.2009 16:44
Staðfesti ársfangelsi fyrir hrottafengna árás Hæstiréttur staðfesti í dag ársfangelsi yfir karlmanni sem dæmdur var fyrir hrottafengna árás á þáverandi unnustu sína, sem var að hluta til framin fyrir framan dóttur hennar. Af ársfangelsi eru níu mánuðir skilorðsbundnir. 28.5.2009 16:30
Ingvi Hrafn Jónsson: Golíat að níðast á Davíð „Í minni bók er þetta Golíat að níðast á Davíð," segir sjónvarpsmaðurinn Ingvi Hrafn Jónsson, einn af aðaleigendum sjónvarpstöðvarinnar ÍNN en Saga Film höfðaði skuldamál gegn þeim og krafðist 200 þúsund króna. Það gerðu þeir vegna meintra vangoldinna reikninga sem vörðuðu tækjaleigu en ÍNN fékk fyrirtækið til þess að setja upp ljósabúnað fyrir 800 þúsund krónur. 28.5.2009 16:27