Innlent

Rannsóknin tíu mánaða spretthlaup

Erlendir sérfræðingar munu fara yfir niðurstöður rannsóknar á bankahruninu í sumar, segir Páll Hreinsson, formaður rannsóknarnefndar Alþingis (fyrir miðju).Fréttablaðið/pjetur
Erlendir sérfræðingar munu fara yfir niðurstöður rannsóknar á bankahruninu í sumar, segir Páll Hreinsson, formaður rannsóknarnefndar Alþingis (fyrir miðju).Fréttablaðið/pjetur

 Þeir tíu mánuðir sem rannsóknarnefnd Alþingis fékk til að ljúka rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna eru hálfnaðir. Formaður nefndarinnar segir vinnuna minna á tíu mánaða spretthlaup.

Ekkert bendir til annars en að niðurstöður nefndarinnar verði tilbúnar í byrjun nóvember eins og lagt var upp með, og engar óvæntar tafir hafa orðið á starfinu að sögn Páls Hreinssonar, formanns rannsóknarnefndarinnar.

„Það hefur gengið mjög vel að safna gögnum, allir hafa verið mjög hjálplegir við að greiða götu okkar að þeim upplýsingum sem við höfum þurft,“ segir Páll.

Ekkert fæst gefið upp um það sem upp hefur komið í starfi nefndarinnar hingað til. Í rannsóknar­skýrslu sem gefin verður út í haust verður ýtarleg lýsing á atburðarásinni hjá stjórnvöldum og bönkunum í aðdraganda hrunsins. Þar verða einnig hagfræðilegar ályktanir um orsakir fyrir bankahruninu.

Alls starfa ríflega tuttugu manns að rannsókninni, og verður þeim heldur fjölgað í sumar, segir Páll. Þá munu erlendir sérfræðingar einnig koma til landsins í þrjá mánuði til að fara yfir niðurstöðurnar.

Ekki stendur til að gera hlé á störfum nefndarinnar í sumar, segir Páll. „Mönnum verður boðið að taka sumarfrí um jólin, eins og það er nú gaman. Þetta er bara tíu mánaða spretthlaup.“- bj



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×