Fleiri fréttir

Vilja úttekt á hraðakstri og kappakstri í borginni

Samfylkingin lagði fram tillögu í borgarráði í dag sem gengur út á að gerð verði úttekt á hraðakstri og kappakstri í borgarlandinu. Flokkurinn vill að gerðar verði tillögur að úrbótum og frekari stefnumörkun borgarinnar um hraða umferðar innan borgarlandsins í ljósi umferðaröryggisstefnu borgarinnar, m.a. með hliðsjón af slysum og slysablettum og reynslu af svokölluðum 30 kílómetra hverfum.

Borgarráð samþykkir 5 milljarða lífeyrissjóðslán

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag tillögu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra um 5 milljarða króna lántöku til að fjármagna framkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar á árinu 2009. Lánið er tekið með skuldabréfaútboði til 45 ára en nú þegar liggja fyrir skuldbindandi fyrirheit frá lífeyrissjóðum um kaup á 5 milljörðum.

Spíttverksmiðjumálið til ríkissaksóknara

Rannsókn lögreglunnar á umfangsmikill amfetamínframleiðslu sem var starfrækt í iðnaðarhúsi við Rauðhellu í Hafnarfirði er lokið. Karl Steinar Valsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu,

Beðið eftir endurskoðun

Formaður Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi segir að ekkert verði aðhafst í málum er varða greiðslur Kópavogsbæjar til fyrirtækis í eigu dóttur Gunnars I. Birgissonar bæjarstjóra fyrr en niðurstaða endurskoðanda liggi fyrir. Mál sem tengist greiðslum bæjarins til Klæðningar sem var í eigu Gunnars verði þá einnig tekin fyrir. Framsóknarmenn í Kópavogi taka í sama streng. Helga Arnardóttir.

Grunaður um sérstaklega ofbeldisfulla nauðgun

Portúgali á fertugsaldrinum hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan á laugardaginn en hann er grunaður um sérstaklega ofbeldisfulla nauðgun. Rannsóknardeild kynferðisbrota auglýsti í gær eftir leigubílstjórum sem mögulega keyrði manninn og meint fórnalamb hans í heimahús í Hafnarfirði á Uppstigningadag.

Hraðakstur við skrifstofu forsetans

Sautján ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Sóleyjargötu í Reykjavík í gærkvöld en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Þetta kemur frama í tilkynningu frá lögreglunni í höfuðborgarsvæðinu. Skrifstofa forseta Íslands er til húsa að Sóleyjargötu 1

Steingrímur víst mættur - var í símanum

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins gerði athugasemdir við það að ráðherrar Vinstri grænna skyldu ekki vera mættir við upphaf umræðunnar um tillögu ríkisstjórnarinnar sem gengur út á aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Hann spurði um stuðning flokksins við tillöguna sem Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra flutti. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir í samtali við fréttastofu að um vindhögg sé að ræða hjá Sigmundi.

Lést í umferðarslysi

Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Grindavíkurvegi í gærmorgun hét Sigurfinnur Jónsson. Sigurfinnur bjó í Grindavík, var 48 ára og lætur hann eftir sig eiginkonu og þrjú börn.

Saga Film stefnir ÍNN

Framleiðslufyrirtækið Saga Film er búið að stefna sjónvarpsstöðinni ÍNN fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur vegna skuldamáls.

Krefjast félagsfundar í VR

250 félagsmenn í VR munu í dag afhenda formanni félagsins beiðni um að haldinn verði félagsfundur. Þetta mun vera í fyrsta sinn í sögunni sem þessu er beitt en samkvæmt lögum félagsins er hægt að krefjast þess að félagsfundur verð haldinn með því að eigi færri en 200 félagsmenn skrifa undir slíka beiðni. Kristni Erni Jóhannessyni, formanni VR, verður afhentur listinn í hádeginu í dag.

Fjórir togarar HB Granda á úthafskarfaveiðum

Fjórir af frystitogurum HB Granda hafa verið að úthafskarfaveiðum upp á síðkastið. Helga María kom inn til löndunar í morgun en Venus, Þerney og Örfirisey eru enn á miðunum.

Bjartsýnn á að samstaða náist um Evrópumálin á þingi

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra mælti fyrir þingsályktunarillögu um aðildarumsókn að Evrrópusambandinu á Alþingi í morgun. Össur fór yfir kosti og galla varðandi veru okkar í Evrópusambandinu og sagði rökin með og á móti bæði eiga rétt á sér. Hann sagðist bjartsýnn á að góð samstaða næðist meðal flokkanna á þingi varðandi þessi mál. Tuttugu og fimm þingmenn bíða þess nú að taka til máls.

Öflugur skjálfti undan ströndum Hondúras

Öflugur jarðskjálfti, 7,1 á Richter-kvarða reið yfir undan ströndum Hondúras í morgun. Upptök skjálftans eru um 64 kílómetra undan ströndum landsins og var hann á tiltölulega grunnu dýpi að því er landfræðistofnun Bandaríkjanna segir. Fylgst er með því hvort skjálftanum fylgi flóðbylgja. Engar fréttir hafa borist af tjóni af völdum skjálftans en hann fannst greinilega í Hondúras og í Gvatemala.

Með borgina í vasanum

Mobileguide er gjaldfrjáls gagnvirk upplýsingahandbók sem sérhönnuð er fyrir farsíma og lófatölvur. Handbókin er jafnt ætluð íslendingum sem og erlendum ferðamönnum og býður upp á margvíslega möguleika svo sem að leiða þig um götur Reykjavíkur eða kynna fyrir þér þjónustur og markverða staði á höfuðborgarsvæðinu.

Obama skipar nýjan sendiherra á Íslandi

Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur skipað Robert S. Connan í embætti sendiherra á Íslandi. Connan mun taka við af Carol van Voorst sem gegnt hefur stöðunni síðustu ár. Obama tilkynnti í gær um skipanir sendiherra í fjölmörgum ríkjum, þar á meðal í Bretlandi, Frakklandi, Indlandi og í Japan.

Sjálfsvíg aldrei fleiri í Japan

Sjálfsvígum fjölgar nú sem aldrei fyrr í Japan en rúmlega eitt hundrað manns styttu sér aldur þar í landi í apríl. Sjálfsmorðstíðni Japana hefur lengi verið ein sú hæsta í þróuðum löndum og mælist nú 24 tilfelli á hverja 100.000 íbúa landsins.

Skart rappara hríðfellur í verði

Harðnandi árferði gerir það að verkum að rapptónlistarmenn draga nú úr gullskreytingum sínum og bera jafnvel gerviskartgripi.

Nautgripaþjófum vex fiskur um hrygg vestra

Þegar hjónin Chrissy og Benny Pinckard risu úr rekkju í smábæ nokkrum í Alabama fyrr í vor og fóru á stjá kom í ljós að tvö verðlaunanaut í eigu þeirra voru horfin.

Skotinn í brjóstið í Kaupmannahöfn

Tuttugu og sex ára gamall maður liggur á sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn eftir að hafa verið skotinn í brjóstið í Sydhavn skömmu eftir miðnætti í nótt.

Felldu 34 talibana í Pakistan

Hersveitir NATO létu til skarar skríða ásamt afgönskum lögreglumönnum í nótt og drápu 34 talibana í árás á þorp í suðausturhluta Pakistans.

Bandaríkin nálgast jafnvægi

Jafnvægi er að komast á bandarískt efnahagslíf eftir erfiðasta krepputímabil í áratugi. Þetta sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti þegar hann ávarpaði fjáröflunarsamkomu Demókrataflokksins í gær.

John Yettaw í vitnastúkuna

Bandaríkjamaðurinn John Yettaw, sem heimsótti stjórnarandstöðuleiðtogann Aung San Suu Kyi á Búrma í stofufangelsi hennar, kom fyrir rétt í gær og bar vitni í réttarhöldunum yfir henni.

Tíu skip við síldveiðar

Tíu skip, að minnsta kosti, eru nú byrjuð síldveiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum djúpt norðaustur af landinu. Tvö þeirra eru á landleið með afla og þrjú eru á útleið eftir löndun.

Tvö útköll vegna sinubruna

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var tvívegis kallað út í gærkvöldi vegna sinubruna, annars vegar í Fossvogi og hins vegar í Hafnarfirði.

Innbrotsþjófar enduðu bílferð á vegg

Þrír innbrotsþjófar enduðu bílferð sína á steinvegg við Brúnaveg í Reykjavík, í grennd við Hrafnistu, þegar þeir voru að reyna að stinga lögregluna af. Þeir slösuðust ekki en hlupu hver í sína áttina eftir að bíllinn nam staðar.

Fundu nærri 700 kíló af kóki

Franskir tollverðir lögðu hald á 684 kíló af kókaíni við reglubundið eftirlit í flutningabíl sem var að koma frá Spáni. Tollayfirvöld í Frakklandi segja að þetta sé einn stærsti fíkniefnafundur í þeirra sögu. Talið er að verðmæti fíkniefnanna nemi 4600 milljónum íslenskra króna. Tveir voru handteknir, grunaðir um að tengjast smyglinu, en ekki hefur verið upplýst um það hverjir þeir eru eða af hvaða þjóðerni.

Lögreglan of fáliðuð til að sinna skyldum sínum

„Við höfum gagnrýnt það lengi að löggæslan sé ekki nægjanleg. Það vanti bæði fjármagn til lögreglunnar og fólk til að sinna henni," segir Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna. Það tók lögreglumenn 27 mínútur að mæta á Barðaströnd í fyrrakvöld þegar brotist var inn til roskins manns sem bjó þar og ráðist á hann.

Vill betri undirbúning að ESB umsókn

Það er ekki hægt að henda ákvörðun um að sækja um aðild að ESB inn í þingið núna í júní bara vegna þess að Samfylkingin vill það, segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Bjarni segir að sjálfstæðismenn og

Klæðning fékk 130 milljónir frá Kópavogsbæ

Verktakafyrirtækið Klæðning, sem var í eigu Gunnars I. Birgissonar bæjarstjóra Kópavogs til ársins 2003, fékk tæpar hundrað og þrjátíu milljónir króna greiddar frá bænum fyrir ýmis verkefni á fjögurra ára tímabili

Framsókn leggur til þingsályktun um 20% afskriftir

Framsóknarflokkurinn mun leggja fram tillögu á Alþingi um að fjármálaráðherra verði falið að framkvæma nauðsynlegar afskriftir á lánum til íslenskra heimila og rekstrarfyrirtækja um 20% af höfuðstól láns. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að afskriftunum vera lokið eigi síðar en 1. ágúst 2009.

Dæmdar 21 milljón króna í bætur vegna bílslyss

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Tryggingamiðstöðina, Hópbíla hf og Lýsingu til að greiða karlmanni 20 milljóna króna bætur með vöxtum vegna umferðarslyss sem hann varð fyrir árið árið 2002.

Boðið upp á gullkryddað risotto í forrétt

Þegar veislan stóð sem hæst í útrásinni árið 2007 kepptust bankarnir við að gera vel við stærstu viðskiptavini sína. Í einni boðsferð Landsbankans var um 300 manna hópi meðal annars boðið upp á Risotto sem kryddað var með gulli.

Pensím gæti nýst í baráttunni gegn svínaflensu

Niðurstöðu er að vænta á næstunni á því hversu vel íslenska efnið pensím virkar gegn flensuveirum, en vonast er til að það geti jafnvel hjálpað í baráttunni gegn svínaflensu. Sænskt lyfjafyrirtæki ætlar á næsta ári að setja á markað sótthreinsivörur úr efninu sem eiga meðal annars að gagnast þeim sem eru með flensu.

Lífeyrissjóðirnir rúnir trausti

Um 77% aðspurðra segjast bera mikið traust til Háskóla Íslands og Lögreglunnar. Sjö af hverjum tíu segjast bera mikið traust til Fréttastofu RÚV og Háskólinn í Reykjavík nýtur trausts 65% svarenda. Mikið skilur á milli ofangreindra fjögurra stofnana og annarra sem spurt var um í traustskönnun MMR dagana 7.-14. maí.

Sameiginlegur þingflokksfundur stjórnaflokkanna í Þjóðminjasafninu

Þingflokkar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna hittast á sameiginlegum þingflokksfundi í Þjóðminjasafninu klukkan sex síðdegis. Björgvin G. Sigurðsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, staðfesti þetta í samtali við fréttastofu en fundarefnið er kynning á stöðu ríkisfjármálanna.

Hestaeigandi sakar yfirvöld um einelti

„Í desember fargaði ég fimm hrossum. Vegna frosta náði ég ekki að grafa þau alveg niður," segir Sæmundur Tryggvi Halldórsson á Miklagarði í Borgarbyggð en Héraðsdýræknir og búfjáreftirlitsmaður Búnaðarsamtaka Vesturlands hafa gert alvarlega athugasemdir við aðbúnað hrossa í hans eigu.

Lögreglan leitar að leigubílstjórum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú að tveimur leigubílstjórum sem hún þarf að hafa tal af vegna máls sem er til rannsóknar hjá embættinu. Í tilkynningu segir að annar þeirra hafi verið að störfum í miðborginni á uppstigningardag en í bíl hans klukkan tuttugu mínútur í sex um morguninn kom par og ók hann því til Hafnarfjarðar. „Um er að ræða karl af erlendum uppruna, dökkan á hörund og með derhúfu, og íslenska konu með ljóst hár.“

Kaupfélag Skagfirðinga býðst til að leggja út fyrir nýjum skóla

Kaupfélag Skagfirðinga hefur boðist til að lána sveitarfélaginu Skagafirði allt að 600 milljónir króna vaxtalaust til tveggja ára til þess að byggja viðbyggingu við Árskóla. Lánið er hugsað til að greiða fyrir byggingu skólans þar til ástand skánar á fjármálamörkuðum.

Sjá næstu 50 fréttir