Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Auglýsingar ríkismiðla á Spáni skornar niður Jose Luis Rodriguez Zapatero tilkynnti á þriðjudaginn að hann ætlaði að draga verulega úr auglýsingum í spænska ríkisútvarpinu RTVE. 16.4.2009 15:56
LÍÚ telur strandveiðarnar ekki mikið gæfuspor Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ segir að hann telji strandveiðarnar sem Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra boðaði í dag ekki vera mikið gæfuspor. Þarna sé verið að taka afla frá útgerðum/sjómönnum sem stunda atvinnuveiðar og flytja yfir í einhvern annan flokk. 16.4.2009 15:49
Engin sátt í stjórnarskrárnefnd Engin sátt náðist milli stjórnarflokkanna og stjórnarandstöðunnar á fundi í stjórnarskrárnefnd alþingis sem var að ljúka. Þinglok eru því enn í uppnámi og óljóst hvenær þinginu lýkur. 16.4.2009 15:24
Fimmtán mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart fjórtán ára þroskaheftri stúlku. 16.4.2009 14:54
Ákærður fyrir morðtilraun Hinn rúmlega tvítugi Frans Friðriksson hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps þegar hann á að hafa veist að manni og stungið hann með hnífi vinstra megin í brjósthol með þeim afleiðingum að hann hlaut lífshættulega áverka. Þá er Frans einnig ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás þegar hann á að hafa skorið félaga fórnalambsins þegar hann reyndi að forða honum frá atlögu Frans. 16.4.2009 14:32
Tillögu Ólafs vísað til forsætisnefndar Borgarráð vísaði í dag tillögu Ólafs F. Magnússonar borgarfulltrúa um að upplýsa um öll fjárframlög til sveitarfélaga og einstaklinga innan þeirra framboða sem fengu háa fjárstyrki frá fyrirtækjum og hagsmunatengdum aðilum fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar. 16.4.2009 14:25
Frjálsar strandveiðar í boði Steingríms J. Sigfússonar Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, áformar að koma á nýjum flokki veiða, “strandveiðar”, þar sem heimilaðar verða frjálsar handfæraveiðar við ströndina. Ráðstafað verði 8.127 tonnum af óslægðum botnfiski til strandveiða á yfirstandandi fiskveiðiári. Nýja kerfið komi í stað byggðakvótans, en fyrirkomulag byggðakvóta er umdeilt og hefur valdið margvíslegum þrætumálum. Í tilkynningu um málið segir að strandveiðarnar munu þó í meginatriðum takmarkast annars vegar af þeim heildarafla sem ráðstafað er sérstaklega í þessu skyni og hins vegar af stærð báta. Gert er ráð fyrir að strandveiðum verði í fyrstu komið á til reynslu. Síðan verður metið hvernig til hafi tekist og framhald ákveðið. Markmiðið er nýting sjávarauðlindarinnar á nýjum grunni þar sem mönnum verði gert mögulegt að stunda frjálsar veiðar með ströndinni á sjálfbæran og ábyrgan hátt. Núverandi stjórn fiskveiða er gagnrýnd fyrir að erfitt sé fyrir nýja aðila að hefja veiðar í atvinnuskyni. Með strandveiðunum er opnað á takmarkaðar veiðar þeirra sem ekki þurfa að vera handhafar veiðiheimilda. Þannig er til að mynda ungu og áhugasömu fólki auðveldað að afla sér reynslu og þekkingar um leið og sveigjaleiki er aukinn. Til strandveiða verði ráðstafað þeim heimildum sem nú mynda byggðakvóta, þ.e.a.s. 6.127 tonn af óslægðum botnfiski auk 2.000 tonna viðbótar sem ráðherra ákveður. Þetta magn myndi stofn strandveiðanna, en fyrirmyndin er sótt í verklag við línuívilnun, sem nokkur reynsla er komin á og þykir hafa gengið vel. Öllum verður frjálst að stunda þessar veiðar sem uppfylla þau almennu skilyrði sem sett verða. Alls eru, í dag, skráðir um 720 haffærir bátar undir 15 brúttótonnum. Um 650 þessara báta hafa stundað fiskveiðar í atvinnuskyni á síðastliðnum árum. Varanlegar aflaheimildir eru bundnar við 350 þeirra en til viðbótar eru um 140 bátar með varanlegar aflaheimildir en eru ekki með gilt haffæri sem oftast er þá innlagt. Til viðbótar er einhver fjöldi báta sem varanlegar aflaheimildir eru ekki bundnar við og ekki hafa gilt haffæri. 16.4.2009 14:21
Meira kannabis tekið á þremur mánuðum en þremur árum Afbrotatölfræði fyrir marsmánuð hefur nú verið birt á vef ríkislögreglustjóra. Þar kemur m.a. fram að fyrstu þrjá mánuði ársins 2009 hefur lögreglan lagt hald á 6.001 kannabisplöntu sem er 23% meira en samanlagt magn kannabisplantna sem lögreglan haldlagði á árunum 2005-2008. 16.4.2009 14:04
Þriðjungur þingmanna samþykkti listamannalaun Einungis þriðjungur þingmanna á Alþingi Íslendinga greiddi atkvæði með fjölgun listamannalauna þegar frumvarpið var samþykkt á Alþingi í morgun. Alls greiddi 21 þingmaður frumvarpinu atkvæði sitt. Níu greiddu atkvæði gegn því en 29 voru fjarstaddir við atkvæðagreiðsluna. Alls sitja 63 þingmenn á Alþingi. 16.4.2009 13:19
Shinawatra hvetur til stillingar Thaksin Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðherra Taílands, hvetur stuðningsmenn sína til að sýna stillingu og biður konung landsins um að leysa þær deilur sem blossað hafi upp í taílenskum stjórnmálu. Hann segist ekki geta fjármagnað endurkomu í taílensk stjórnmál að þessu sinni. 16.4.2009 13:15
Bannað að beita börn refsingum Alþingi samþykkti í morgun frumvarp Kolbrúnar Halldórsdóttur og félaga hennar úr Vinstri grænum um að óheimilt og refsivert verði að beita börn líkamlegum og andlegum refsingum. Kolbrún sagði í samtali við fréttastofu, 16.4.2009 13:02
Þjóðhættulegir betra orð en fífl Ég fékk spurningu um það afhverju lönd innan Evrópusambandsins væru í vandræðum og þá var bent á Lettland og Írland í því samhengi. Ég svaraði því bara þannig að ESB tekur ekki af okkur valdið til þess að kjósa fífl yfir okkur," sagði þingmaður Samfylkingarinnar, Árni Páll Árnason, sem uppskar gagnrýni á framboðsfundi flokkanna í Suðvesturkjördæmi í gær fyrir ummæli sín. 16.4.2009 12:31
Dagar skóflustungna hjá ráðherrum runnir upp Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra tekur fyrstu skóflustunguna að Gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Skriðuklaustri í dag um klukkan korter í fimm. Í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu kemur fram að Gestastofan verði fyrsta byggingin hér á landi sem verði byggð samkvæmt vottuðum vistvænum byggingarstöðlum. 16.4.2009 12:09
Ekki einu sinni búið að slá tjaldborg um heimilin í landinu „Það er ekki búið að slá skjaldborg um stöðu heimilanna í landinu. Það er ekki einu sinni búið að slá tjaldborg," sagði Björn Þorri Viktorsson lögfræðinur í samtali við fréttastofu í gær. 16.4.2009 11:34
Árni Páll kallaði andstæðinga sína fífl Þingmaður Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi og oddviti listans, Árni Páll Árnason, kallaði pólitíska andstæðinga sína fífl á fjölmennum og vel heppnuðum framboðsfundi sem haldinn var í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ í gær. 16.4.2009 11:03
Vonar að tengillinn sé kominn á sinn stað Freyr Eyjólfsson, dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu, átti viðtal við Ástþór Magnússon í gær sem þegar hefur vakið mikla athygli ef marka má fyrstu viðbrögð manna. Í viðtalinu sakaði Ástþór Ríkisútvarpið um 16.4.2009 10:34
Fundi sérnefndar um stjórnarskrármál lauk án niðurstöðu Sérnefnd um stjórnarskrármál fundaði á Alþingi í morgun og hófst fundurinn klukkan kortér yfir átta. Sérnefndinni hefur verið falið að leysa ágreining sem uppi er um frumvarp til stjórnarskipunarmála. Fundinum lauk fyrir stundu án þess að niðurstaða fengist í málið og er áætlað að nefndin hittist á ný í hádeginu. 16.4.2009 10:23
Fólk flúði landið á fyrsta ársfjórðungi Alls fluttu 711 fleiri frá landinu en til þess á fyrsta ársfjórðungi 2009 en á sama tímabili í fyrra. Frá landinu fluttu flestir, eða 764, til Póllands, 375 fluttu til Danmerkur, 268 fluttu til Noregs og 176 til Svíþjóðar. Á þessum þremur mánuðum fluttu flestir til landsins frá Póllandi, eða 399, 290 fluttu frá Danmörku, 78 fluttu frá Bretlandi og 77 frá Bandaríkjunum, eftir því sem fram kemur á vef Hagstofunnar. 16.4.2009 09:33
Bilun á páskadag leiddi til lekans á Reykjanesbraut Eríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar, segir að ástæðuna fyrir vatnslekanum á Reykjanesbraut megi rekja til þess að sver vatnsæð gaf sig á páskadag. 16.4.2009 08:46
Framleiðandi Carry On-myndanna látinn Peter Rogers, framleiðandi bresku Carry On-myndanna, er látinn, 95 ára að aldri. Rogers framleiddi allar myndirnar en þær urðu 31 þegar upp var staðið og voru gerðar á árunum 1958 - 1978 auk einnar árið 1992. 16.4.2009 08:21
Rússar á móti heræfingum í Georgíu Rússar hafa biðlað til Nató að bandalagið hætti við fyrirhugaðar heræfingar í Georgíu sem Rússar líta á sem ögrun við sig. Dmitry Rogozin sendifulltrúi Rússa hjá Nató segir fyrirætlanirnar fáránlegar og að hann hafi farið fram á það við framkvæmdastjóra Nato að hætt verði við æfingarnar eða þeim að minnsta kosti frestað. 16.4.2009 08:18
Sálfræðingur ráðleggur fólki um veðskuldir Bandarískur sálfræðingur hefur skrifað bók til hjálpar fólki sem er að missa heimili sín vegna veðskulda. 16.4.2009 08:11
Framtalsskil í Bandaríkjunum í gær Lokadagur til að gera skil á skattframtölum í Bandaríkjunum var í gær. Barack Obama Bandaríkjaforseti notaði tækifærið og lýsti því yfir í ávarpi í Hvíta húsinu að hann myndi gera allt sem mögulegt væri til að létta skattbyrði þeirra sem mest þyrftu á því að halda. 16.4.2009 08:07
Seðlum rigndi í Danmörku Skæðadrífa af peningaseðlum sveif um loftið á þjóðvegi nærri Ballerup í Danmörku í gær og neyddist lögregla til að loka veginum á meðan fénu var smalað saman. Þarna hafði maður rænt eitt útibúa Danske Bank í Ballerup og lagt svo á flótta. 16.4.2009 07:34
Stærstu lýðræðiskosningar heims Kosningar til indverska þingsins hófust í morgun og munu standa næsta mánuðinn. Kosningarnar fara fram í áföngum en rúmlega 700 milljónir manna eru á kjörskrá og er um stærstu lýðræðislegu kosningar heimsins að ræða. 16.4.2009 07:23
Sakfelldur fyrir að myrða fjóra Íraka Bandarískur hermaður hefur verið sakfelldur fyrir að myrða fjóra íraska fanga sem teknir voru höndum í Baghdad vorið 2007 í kjölfar skotbardaga. 16.4.2009 07:12
Scotland Yard vill endurskoðun óeirðalöggæslu Yfirmaður Scotland Yard í Bretlandi hefur fyrirskipað gagngera endurskoðun á starfsaðferðum lögreglu við óeirðir í kjölfar þess er mótmælandi lést af völdum hjartaáfalls meðan á mótmælum vegna G20-ráðstefnunnar stóð í London um mánaðamótin. 16.4.2009 07:09
Enn óljóst um þingrof Enn er óljóst hvenær þing verður rofið en nú eru níu dagar til alþingiskosninga. Þingfundur stóð fram á nótt og tókst að ljúka nokkrum málum en enn er óljóst um afdrif þeirra stjórnarskrárbreytinga sem ræddar hafa verið undanfarnar vikur. 16.4.2009 07:04
Bíll valt á Reykjanesbraut Bíll valt á Reykjanesbraut rétt norðan við Bústaðaveg um sexleytið í morgun. Svo virðist sem nokkur ísing hafi myndast á veginum en síðustu daga hefur pollur myndast á þessum stað ökumönnum til nokkurs ama. 16.4.2009 06:41
Kanadískir Vítisenglar handteknir Um 150 manns voru handteknir í riasastórri aðgerð lögreglu á höfuðstöðvar Vítisengla í Kanada. Um tólf hundruð lögreglumenn tóku þátt í aðgerðinni en svipaðar aðgerðir voru framkvæmdar í Frakklandi og Dóminíska lýðveldinu á sama tíma. Hinir grunuðu voru handteknir eftir niðurstöðu úr svokallaðri „Hákarlsaðgerð“ sem staðið hefur yfir í um þrjú ár. 15.4.2009 23:31
„Hvar er linkurinn á Lýðræðishreyfinguna?“ Ástþór Magnússon frambjóðandi fyrir Lýðræðishreyfinguna í komandi alþingiskosningum var í viðtali hjá Frey Eyjólfssyni í Síðdegisútvarpi Rásar 2 í dag. Þar fór hann mikinn og sakaði Rúv um að vera ritskoðaður fjölmiðill. Meðal annars spurði hann útvarpsmanninn hversvegna ekki væri linkur á framboð Lýðræðishreyfingarinnar á kosningavef Ríkisútvarpsins. 15.4.2009 22:32
Segir engin átök í fulltrúaráðinu Marta Guðjónsdóttir var í dag endurkjörin formaður Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, á aðalfundi félagsins. Marta sem er fyrsta konan sem gegnir stöðunni hefur gegnt formennsku undanfarin tvö ár. Hún segir engin átök hafa verið á fundinum en Bjarni Benediktsson formaður flokksins mætti á stjórnarfund félagsins í gær. Þar velti hann upp þeim möguleika að fresta aðalfundi fram yfir kosningar en stjórn félagsins ákvað hinsvegar að halda fundinn. 15.4.2009 21:33
Ellefu látnir í bílsprengingu í Írak Að minnsta kosti ellefu létu lífið og tuttugu og þrír særðust þegar sprengja sprakk í bíl í borginni Kirkuk í norðurhluta Íraks í dag. Þetta staðfestir lögregla í samtali við BBC nú í kvöld. 15.4.2009 22:07
Vilja flytja ferðamenn í Surtsey Kristín Jóhannsdóttir, markaðsfulltrúi, hefur fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar, sótt um leyfi til Surtseyjarstofu að fá að flytja um hundrað ferðamenn út í Surtsey í sumar. Surtsey, sem er á heimsminjaskrá, hefur verið friðuð síðan 1965 í þágu rannsókna en hugmyndin er að flytja ferðamennina með þyrlu frá Heimaey. 15.4.2009 19:30
Borgarafundur um menntamál Fimmtudaginn, 16. apríl, næstkomandi mun fjöldi hagsmunasamtaka námsmanna á Íslandi standa fyrir borgarafundi um menntamál. Tilgangurinn er að veita íslenskum námsmönnum og starfsfólki innan menntakerfisins tækifæri á að kynna sér áherslur flokkanna og taka afstöðu fyrir komandi alþingiskosningar. 15.4.2009 20:00
Sjóránin við Sómalíu bitna á neyðaraðstoð Tíð sjórán út af ströndum Sómalíu kosta hjálparsamtök og þjóðir mikla fjármuni og bitna á neyðaraðstoð við fjölmörg ríki í Afríku. Frá lokum febrúar hefur verið ráðist á 78 skip á svæðinu. 15.4.2009 19:15
Lýðræðishreyfing Ástþórs uppfyllir ekki skilyrði Framboðslistar Lýðræðishreyfingar Ástþórs Magnússonar uppfylla ekki skilyrði kosningalaga í neinu kjördæmi og hafa yfirkjörstjórnir veitt hreyfingunni frest til að bæta úr ágöllum, ýmist til kvölds eða til morguns. Bæði vantar meðmælendur og galli er á samþykki frambjóðenda. 15.4.2009 19:00
Vanskil einstaklinga þrefaldast frá því í fyrra Vanskil einstaklinga vegna banka- og bílalána hafa rösklega þrefaldast fyrstu þrjá mánuði ársins miðað við sama tíma í fyrra. 15.4.2009 18:45
Eva mun lítið nýtast við rannsókn á bankahruninu Eva Joly hefur einungis setið tvo fundi með embætti sérstaks saksóknara og mun væntanlega lítið nýtast við beina rannsókn og saksókn á bankahruninu. 15.4.2009 18:30
Nokkrir fengið stöðu grunaðra hjá sérstökum saksóknara Nokkrir einstaklingar hafa fengið stöðu grunaðra í rannsókn sérstaks saksóknara bankahrunsins. Menn hafa þegar verið kallaðir inn til yfirheyrslu. Tugir mála eru til rannsóknar hjá saksóknaranum og Fjármálaeftirlitinu. 15.4.2009 18:30
Aldrei sótt um leyfi til niðurrifs Aldrei var sótt um leyfi til að rífa húsið við Vatnsstíg 4. Tuttugu og tveir voru handteknir þar í morgun, fyrir húsbrot. Lögregla notaði vélsög á leið sinni inn í húsið og reif út glugga. Lögreglan beitti piparúða. Húsið hafði staðið autt í næstum tvö ár þegar hústökufólk kom að. Heimspekingur segir þetta átök milli þeirra sem vilja nýta það sem ónýtt er og hinna sem vilja vernda eignarrétt. 15.4.2009 18:30
Hættir sem formaður Blaðamannafélagsins Arna Schram, formaður Blaðamannafélags Íslands, gefur ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku í félaginu. 15.4.2009 17:23
Samtök Fjármálafyrirtækja vara við spilliforriti á netinu Að undanförnu hefur borið á spilliforriti á Netinu, svokölluðum Nadebanker Trójuhesti, sem dreifir sér í gegnum veraldarvefinn, fylgist með tölvunotkun og sækir upplýsingar í tölvur notenda í þeim tilgangi að misnota þær. Spilliforritinu virðist m.a. ætlað að komast yfir aðgangsupplýsingar netbankanotenda. Ekkert fjárhagstjón hefur orðið hér á landi til þessa af völdum Nadebanker, en reynslan frá nágrannaríkjum Íslands kennir að mikilvægt er að gæta fyllsta öryggis við netnotkun til að koma í veg fyrir slíkt. 15.4.2009 17:11
Öllum hústökumönnunum sleppt Lögreglan hefur sleppt úr haldi öllum þeim 22 hústökumönnum sem voru handteknir í húsi við Vatnsstíg í morgun. Aðgerðir lögreglunnar voru umfangsmiklar og þurfti hún að brjóta sér leið inn í húsið til þess að ná fólkinu. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu slösuðust tveir lögreglumenn lítillega og jafnframt slösuðust einhverjir mótmælendur. 15.4.2009 16:27
Rannsakendur verða að gæta orða sinna „Ég er sammála því að þeir sem að eru að rannsaka mál eða koma að rannsókn máls verða að gæta orða sinna þegar þeir ræða um hugsanlega sök einhvers sem á hlut að máli," segir Eiríkur Tómasson lagaprófessor 15.4.2009 16:04