Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eldur í Álsey Eldur kom upp í Álsey VE við Vestmannaeyjar skömmu fyrir hádegi í dag. Verið var að gera að skipinu þar sem það lá við bryggju og segir Gísli Óskarsson, fréttaritari Stöðvar 2 í Eyjum, að líklegast hafi kviknað í út frá neistaflugi. Að minnsta kosti eitt fiskikar bráðnaði en engin meiðsl urðu á fólki. 4.10.2008 13:01
Gjaldeyriskreppan leysist mögulega í næstu viku Svo gæti farið að gjaldeyriskreppa þjóðarinnar leystist í næstu viku. Stíf fundahöld eru um allan bæ og ef niðurstaða næst um helgina, gæti peningar lífeyrissjóðanna í útlöndum verið komnir heim seinnipartinn í næstu viku. 4.10.2008 12:13
Hvetja landsmenn til að Ganga til góðs Rauði krossinn hvetur landsmenn til að Ganga til góðs í dag. Rauði krossinn þarf um 2500 sjálfboðaliða til að ná takmarki sínu að ganga í hvert hús á landinu. Söfnunarstöðvar eru um allt land þar sem fólk mætir til að fá söfnunarbauka. Helst vantar sjálfboðaliða á höfuðborgarsvæðinu. Auglýsingar um söfnunarstöðvar eru í blöðum og eins er hægt að fá upplýsingar um þær á raudikrossinn.is. 4.10.2008 10:26
Umferðaróhöppum hefur fækkað um 15% síðastliðna sjö mánuði Umferðaróhöppum þar sem slys hafa orðið á fólki hefur fækkað nokkuð á höfuðborgarsvæðinu eða um 15% síðastliðna sjö mánuði samanborið við sama tíma á síðasta ári. 4.10.2008 10:20
Hundruð Íslendinga hafa streymt inn í nýja verslunarmiðstöð Hundruð manna hafa streymt í nýjustu verslunarmiðstöð landsins, Korputorg, í morgun. Fréttastofa ræddi við verslunarstjóra húsgagnaverslunarinnar ILVA, Róbert Valtýsson, nú laust fyrir fréttir og hann sagði viðtökurnar framar vonum. Menn hafi ekki búist við miklu í þessu árferði. 4.10.2008 10:14
Fangageymslur fylltust í nótt Fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fylltust í nótt vegna mikillar ölvunar í borginni. Tilkynnt var um þrjár líkamsárásir í nótt. Í einni þeirra hlaut karlmaður töluverða áverka í andliti og þurfti að leita á slysadeild til aðhlynningar. 4.10.2008 09:58
OJ Simpson sakfelldur fyrir vopnað rán Ruðningskappinn O.J. Simpson var í gærkvöldi sakfelldur fyrir vopnað rán og tilraun til mannráns og gæti átt yfir höfði sér lífstíðar fangelsi. Dómari úrskurðar um refsingu í desember. 4.10.2008 09:52
Vinna að efnahagsaðgerðum um helgina Almennt er búist við að stjórnvöld í samvinnu við lífeyrissjóði, verkalýðshreyfingu og samtök atvinnulífsins og fleiri muni reyna að setja saman aðgerðarpakka í efnahagsmálum um helgina. 4.10.2008 09:44
Þjóðstjórn er ekki töfralausn Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, telur að myndun þjóðarstjórnar sé ekki töfralausn við núverandi aðstæður. 3.10.2008 22:30
Fær hroll vegna ummæla Geirs Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, segir að Geir H. Haarde telji ekki þörf á að útgjöld upp á rúmlega 90 milljarða í tengslum við ríkisvæðingu Glitnis þurfi samþykki Alþingis 3.10.2008 21:15
Sullenberger frumsýnir nýtt myndband - Glitnir í höndum Stoða Athafnamaðurinn Jón Gerald Sullenberger vonast til þess að íslenska þjóðin komist heil frá því sem hann kallar harmleik sem nú á sér stað. Hann hefur látið útbúa myndband um Glitnibanka. Fyrr í vikunni var tilkynnt að bankinn verður ríkisvæddur. 3.10.2008 20:00
Heimili og skóli taka undir með landlækni Heimili og skóli, landssamtök foreldra, taka heilshugar undir þau tilmæli sem fram hafa komið í dag um hófstillta umræðu um efnahagserfiðleika, samdrátt og niðurskurð í atvinnulífinu. 3.10.2008 20:30
Bush hefur staðfest björgunaráætlunina George W. Bush hefur staðfest framvarp um aðgeraáætlun Bandaríkjastjórnar sem ætlað er að bjarga fjármálakerfi Bandaríkjanna. Sjö hundruð milljörðum dollara verður varið til að kaupa upp undirmálslán bandarískra lánastofnana. 3.10.2008 19:15
Stjórnmálamenn missa tiltrú fólks Stuðningur við ríkisstjórnina hefur hrunið og stjórnmálamenn virðast hafa misst tiltrú fólks, hvort sem þeir tilheyra stjórn eða stjórnarandstöðu. Aldrei hefur hlutfall þeirra sem ekki ætla að kjósa verið hærra. Þetta kemur fram í skoðanakönnum sem unnin var fyrir Stöð 2 í gær. 3.10.2008 19:30
Ráðherrar funduðu með fulltrúum lífeyrissjóðanna Fulltrúar lífeyrissjóðanna áttu fyrir hádegi fund með Geir H. Haarde forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur félagsamálaráðherra og Össuri Skarphéðinssyni iðnaðarráðherra. 3.10.2008 18:30
Aðgerða að vænta í byrjun næstu viku Tryggvi Þór Herbertsson, efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar, segir að aðgerðir til þess að stemma stigu við efnahagsvandanum sem nú er uppi, verði kynntar í byrjun næstu viku. 3.10.2008 18:18
Umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu fækkar Umferðaróhöppum þar sem slys hafa orðið á fólki hefur fækkað nokkuð á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu. 3.10.2008 17:57
Börnin vilja Evru Það á að taka upp evruna segja börn í sjötta og sjöunda bekk Salaskóla. Þau segjast finna fyrir því að verðlag fari hækkandi. Haukur Holm hitti unga efnahagsráðgjafa fyrir utan Stjórnarráðið í dag. 3.10.2008 19:15
Örtröð í bankaútibúum Mikil örtröð myndaðist í útibúum í dag þar sem fólk var að færa peninga úr sjóðum inn á sparnaðarreikninga. Viðskiptaráðherra ítrekaði í dag að innistæður almennings eru öruggar. 3.10.2008 19:15
Þorsteinn segir einhug ríkja í stjórn Glitnis Stjórnarformaður Glitnis hvetur hluthafa Glitnis til að samþykkja tilboð ríkisins. Í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í dag segist hann treysta því að ríkisvaldið muni koma til móts við hluthafana sem verða fyrir tjóni. 3.10.2008 19:00
Þúsundum lítra af olíu stolið á Akureyri Þúsundum lítrum af olíu var stolið úr tanki af vinnusvæði verktaka á Akureyri um helgina. Lögregla segir það færast í vöxt að eldsneyti sé stolið sem sé greinilegt kreppueinkenni. 3.10.2008 18:58
Ekkert bólar á aðgerðum Ekkert bólar enn á aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna efnahagsvandans, en viðskiptaráðherra og efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar segja þær væntanlegar. Lífeyrissjóðirnir gætu tvöfaldað gjaldeyrisvaraforða þjóðarinnar með því að færa innistæður sínar í útlöndum heim. Landlæknir hefur áhyggjur af sálarlífi landsmanna í þessu ástandi. 3.10.2008 18:45
Fulltrúadeildin samþykkir björgunaraðgerðina Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti rétt í þessu björgunaraðgerð Bandaríkjastjórnar. 3.10.2008 17:18
Sannkölluð sláturtíð hjá Hagkaup í Skeifunni „Það hefur verið mjög mikið fjör í Skeifunni og mikil sláturtíð í gangi,“ segir Gunnar Ingi Sigurðsson forstjóri Hagkaupa aðspurður út í raðirnar í kjötborðið í Hagkaup í Skeifunni. Hann segir að erfitt sé að finna ódýrari máltíð en slátrið en keppurinn er seldur á 60-70 krónur. „Þú færð því ansi marga keppi fyrir fimm slátur eins og maður segir.“ 3.10.2008 17:03
Stjórn Glitnis hvetur hluthafa til að samþykkja tilboð ríkisins Stjórn Glitnis mælir með því við hluthafa að taka tilboði ríkisins líkt og stjórnarformaður bankans hafði gert fyrr í dag. Stjórn Glitnis kom saman til fundar í höfuðstöðvum bankans fyrr í dag. 3.10.2008 16:54
Sjö rússneskir friðargæsluliðar látast í sprengingu í S-Ossetíu Sjö rússneskir friðargæsluliðar létust og aðrir sjö særðust eftir að bíll með sprengiefni var sprengdur í loft upp nærri herstöð í Suður-Ossetíu, sjálfsstjórnarhéraði í Georgíu, fyrr í dag. 3.10.2008 16:25
McCain sakar Biden um að fara með ósannindi Eftirmálar kappræðna varaforsetaframbjóðanda í Bandaríkjunum eru strax farnir að skýrast. 3.10.2008 16:12
Samþykkja vínveitingaleyfi fyrir KSÍ Borgarráð hefur samþykkt umsókn Knattspyrnusambands Íslands um rekstrarleyfi fyrir veitingastað með vínveitingaleyfi í höfuðstöðvum sínum. 3.10.2008 15:42
Bandaríkjaþing samþykkir umræður og atkvæðagreiðslu um sjóð Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti fyrir stundu að heimila umræður og atkvæðagreiðslu um frumvarp Bandaríkjastjórnar um 700 milljarða dollara björgunarsjóð fyrir fjármálafyrirtæki landsins. 3.10.2008 15:08
Þorsteinn Már hvetur hluthafa til að samþykkja tilboð ríkisins Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Glitnis, hvetur alla hluthafa bankans til þess að samþykkja tilboð ríkisins. Hann segist treysta því að ríkisvaldið komi til móts við hluthafana sem verða fyrir tjóni og bjóði þeim „sanngjarnt úrræði“ sem geti dregið úr tjóninu. 3.10.2008 15:06
Sektaður fyrir að svíkja vörur og fé út með korti annars manns Héraðsdómur Reykjanes hefur sektað 18 ára pilt um 60 þúsund krónur fyrir að hafa svikið út vörur og peninga með debetkorti annars manns. 3.10.2008 14:58
Landlæknir varar við óábyrgri umræðu um efnahagsmál „Umræða um samdrátt og niðurskurð í atvinnulífinu með beinum afleiðingum fyrir heimili og fyrirtæki er mjög hávær og rökin fyrir henni skýr. Þetta er alvarleg umræða sem snertir unga sem aldna og þar af leiðandi er mikilvægt að vanda orðaval til að valda börnum, ungmennum, veikum og öldruðum ekki óþarfa kvíða,“ þetta segir í frétt inni á vef Landlæknisembættisins. 3.10.2008 14:22
Atvinnulausum í Bandaríkjunum fjölgar meira en búist hafði verið við Atvinnulausum í Bandaríkjunum fjölgaði um 159 þúsund í nýliðnum september samkvæmt tölum sem bandarísk yfirvöld birtu í dag. Það var nokkuð meira en greiningaraðilar höfðu búist við. 3.10.2008 14:17
Vill sækja um ESB-aðild strax Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að Íslendingar verði nú þegar að sækja um inngöngu í Evrópusambandið og taka upp evru. Að hans mati á ríkisstjórnin að tilkynna strax að það verði gert. 3.10.2008 14:02
Orkuveitan tryggir sér hagstætt lán Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti í dag lánasamning við Evrópska fjárfestingabankann að fjárhæð 170 milljóna evra, jafnvirði rúmlega 25 milljarða króna, með 9,8 punkta álagi á millibankavexti í evrum. Lánið er til 20 ára. 3.10.2008 13:45
Skilorðsbundinn dómur fyrir vítavert aksturslag Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi, sektað hann um 120 þúsund krónur og svipt ökuleyfi fyrir umferðarlagabrot og líkamsmeiðingar af gáleysi. 3.10.2008 13:26
Færri umferðarslys þar sem fólk slasast Umferðaróhöppum þar sem slys hafa orðið á fólki hefur fækkað nokkuð á höfuðborgarsvæðinu eða um 15 prósent síðastliðna sjö mánuði samanborið við sama tíma á síðasta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglu og vísað í gögn Umferðarstofu. 3.10.2008 13:09
Lokun bankanna ekki á dagskrá Davíð Oddsson seðlabankastjóri neitar því að aðgerðir sem þýða myndu lokun bankanna um helgina hafi verið ákveðnar. Þetta kom fram í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. 3.10.2008 13:01
Sjö ára olli óskunda í dýragarði Sjö ára drengur olli töluverðu tjóni þegar hann braust inn í dýragarð í miðhluta Ástralíu í morgun. 3.10.2008 12:41
Rætt við ýmsa aðila Viðskiptaráðherra segir að efnahagsástandið verði skýrt og bætt á næstu dögum. Hann segir að verið sé að ræða við ýmsa, en vill ekki gefa upp hverja, né hvenær niðurstaða fáist. Hann neitar því að ríkisstjórnin sé ráðalaus. Þá segir hann fráleitt að olíuskortur sé yfirvofandi á landinu. Forsætisráðherra vildi ekki ræða við fréttamenn að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. 3.10.2008 12:31
Óhappahrina í hálku og snjó Fjölmörg umferðaróhöpp urðu í gærkvöldi, eftir að það fór að snjóa víða á landinu og flughált varð á vegum og götum. Önnur óhappahrina varð í morgun og örtröð var á dekkjaverkstæðum. 3.10.2008 12:21
Búist við að bensín- og olíuverð hækki í dag Gera má ráð fyrir að íslensku olíufélögin hækki verð á bensíni og olíu í dag þrátt fyrir að heimsmarkaðsverð á olíu haldi áfram að hríðfalla á mörkuðum bæði vestan hafs og austan. 3.10.2008 12:00
Fráleitt að tala um olíuskort Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra sagði á ríkisstjórnarfundi fyrir hádegið að það væri fjarri sanni að olíuskortur væri yfirvofandi. Hermann Guðmundsson forstjóri N1 segir í viðtali við Viðskiptablaðið í dag að gjaldeyrisþurrð í landinu geru það að verkum að ekki sé hægt að flytja inn meiri olíu. Staðan hjá N1 sé þannig að olían eigi að duga í 30 - 40 daga að öllu óbreyttu. 3.10.2008 11:42
Vildu fresta umræðu um fjárlög vegna óvissunnar Fyrsta umræða um fjárlög næsta árs hófst á Alþingi í dag í skugga mikillar efnhagskreppu. Þingmenn Vinstri - grænna og Frjálslynda flokksins vildu hins vegar við upphaf þingfundar að umræðu um fjárlagafrumvarpið yrði frestað vegna óvissunnar í samfélaginu. 3.10.2008 11:42
Fangar hvetja alþingi til að sýna gott fordæmi Fangar fylgdust eins og þjóðin öll með setningu alþingis í gær. Stjórnmálamenn ræddu þar um þann vanda sem að þjóðinni steðjar og mikilvægi þess að allir legðust á eitt til að leysa vandann. Á heimasíðu Afstöðu, félags fanga birtist í dag tillaga til lausnar á vandanum, að alþingi stigi fram fyrir skjöldu og sýni gott fordæmi, öðrum til hvatningar. 3.10.2008 11:38