Fleiri fréttir

Seinasti fundur Olmerts og Abbas

Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas, forsesti Palestínu, munu hittast á fundi næst komandi þriðjudag. Olmert er bjartsýnn fyrir fundinn og vonast til að hægt verði að koma friðarferlinu í heppilegan farveg.

Eldur í eldhúsi á Hagamel

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að íbúð við Hagamel í vesturhluta Reykjavíkur fyrr í kvöld. Eldur hafði kveiknað í potti á eldavél sem orsakaði ljósan reyk.

Pirraðir ferðalangar

Fjöldi ferðalanga kom í dag heim úr ferðum á vegum XL og segja farir sínar ekki sléttar. Alls hefur gjaldþrot félagsins áhrif á rúmlega þrjú hundruð þúsund manns sem áttu pantaðar ferðir hjá félaginu. Önnur bresk ferðaskrifstofa fór einnig í gjaldþrot um helgina. Hækkandi eldsneytisverði og efnahagsþrengingum er kennt um.

Temmilega bjartsýn

Guðlaug Einarsdóttir, formaður Ljósmæðrafélag Íslands, kveðst vera temmilega bjartsýn fyrir næsta samningafund í kjaradeilu ljósmæðra sem haldinn verður eftir hádegi á morgun.

Vill ekki svara spurningu Guðlaugar

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, vill ekki tjá sig um ummæli formanns Ljósmæðrafélags Íslands í fréttum Stöðvar 2 á föstudag.

Ásaka fyrirrennara XL Leisure um bókhaldssvindl

KPMG endurskoðunarfyrirtækið í Bretlandi sakar stjórn Exel Airways, sem síðar varð XL Leisure Group, um bókhaldssvindl til að fegra fjárhagsstöðu fyrirtækisins áður en móðurfélag þess - Avion - var skráð í Kauphöll Íslands. Hafi þetta verið gert vísvitandi er það alvarlegt brot á bókhaldslögum og lögum um skráningu félaga í kauphöllum.

Rannsókn á rekstri Eimskipafélagsins

Hafin er rannsókn á ýmsum þáttum sem tengjast rekstri Eimskipafélags Íslands undanfarin ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu sem var send út rétt í þessu vegna umfjöllunar um fyrirtækið undanfarið.

Fimm í haldi vegna árásarinnar á Þorlákshöfn

Fimm konur og karlar eru grunaðir um aðild að fólskulegri líkamsárás í heimahúsi í Þorlákshöfn í nótt. Fórnarlambið er piltur um tvítugt og var hann skorinn og stunginn í háls, skorinn á höndum og í andliti og laminn að auki. Litlu mátti muna að árásin yrði hans bani.

Fórnarlamba minnst í Nýju-Delí

Fórnarlömb sprengjuárásanna í Nýju-Delí í gær voru borin til grafar í dag. Yfir tuttugu fórust í árásunum og 97 liggja slasaðir á sjúkrahúsi í höfuðborginni.

,,Árni stendur mjög erfiða vakt"

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, segir að Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, standi mjög erfiða vakt þessa dagana. Árni sé að halda til ákveðnum reglum en hann hefur fyrir hönd ríkisins stefnt félagi ljósmæðra vegna ólöglegra fjöldauppsagna.

Frambjóðandi Demókrataflokksins til bandarísku forsetakosninganna, Barack Obama, safnaði alls 66 milljónum dala, sem jafngildir um sex milljörðum íslenskra króna, í kosningasjóð sinn í ágúst. Frá því að Obama hóf baráttu sína höfðu mest safnast 55 milljónir dala í einum mánuði. Það var í febrúar.

Ítrekar stuðning við Gordon Brown

David Miliband, utanaríkisráðherra Bretlands, hefur ítrekað stuðning sinn við Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands og formann Verkamannaflokksins. Miliband leggst alfarið gegn hugmyndum um leiðatogakjörs innan flokksins.

Telur frekari málaferli hjá Eimskip líkleg

Vilhjálmur Bjarnason, viðskiptafræðingur og formaður Félags fjárfesta, telur frekari málaferli vera yfirvofandi í tengslum við Eimskipafélagið og Baldur Guðnason, fyrrverandi forstjóra fyrirtækisins.

Framsókn kynnir hugmyndir í gjaldmiðlamálum

Framsóknarflokkurinn kynnir eftir helgi hugmyndir í gjaldmiðlamálum sem taka mið af núverandi stöðu. Kostir og gallar ólíkra leiða og valkosta eru metnir í skýrslu gjaldmiðlanefndar flokksins sem kynnt verður á opnum fundi á þriðjudaginn. Jóhannes Geir Sigurgeirsson, fyrrverandi Alþingismaður, veitti nefndinni forystu.

Sigurjón á ekki sjéns

Kristinn H. Gunnarsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, telur að Sigurjón Þórðarson eigi ekki möguleika á að verða formaður flokksins.

Eggvopni beitt í alvarlegri árás á Þorlákshöfn

Eggvopni var beitt í líkamsárás í Þorlákshöfn í nótt. Árásin var að sögn lögreglu mjög alvarleg og virðist sem litlu hafi mátt muna að bani hafi hlotist af atlögunni. Hópur fólks er í haldi lögreglunnar á Selfossi í tengslum við málið.

Fáir fá nýtt MS-lyf

Aðeins tuttugu og fimm af þeim 85 sjúklingum sem læknar hafa metið að þurfi á nýju MS lyfi að halda, hafa fengið lyfið frá áramótum.

Ike veldur eyðileggingu

Fellibylurinn Ike hefur valdið mikilli eyðileggingu í Texas, þar sem rúmlega fjórar milljónir manna eru nú án rafmagns. Í Houston - fjórðu stærstu borg Bandaríkjanna - eru glerbrot um allar götur í miðbænum eftir að bylurinn braut rúður í skýjakljúfum.

Náttúruvernd aldrei verið nauðsynlegri

Aldrei áður hefur verið eins nauðsynlegt að meta gaumgæfilega allar líklegar afleiðingar framkvæmda í náttúrunni og einmitt nú, að mati Þórunn Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra.

Harður árekstur á Breiðholtsbraut

Harður árekstur tveggja bifreiða varð á Breiðholtsbraut laust fyrir klukkan tíu í gærkvöldi. Fjórir voru fluttir á slysadeild. Ekki fengust upplýsingar um um líðan þeirra.

Mannskætt flugslys í Rússlandi

Enginn komist lífs af þegar farþegaflugvél hrapaði í nærri borginni Perm í Rússlandi í nótt. Yfirvöld segja að áttatíu og átta hafi farist í slysinu. Á meðal farþega vélarinnar voru að minnsta kosti 21 útlendingur.

Hugmynd Haralds hefur kosti og galla

Hugmynd Haralds Johannessen, ríkislögreglustjóra, að færa fjárveitingar til lögreglumála til embættis ríkislögreglustjóra hefur kosti og galla, að mati Snorra Magnússonar formanns Landssambands lögreglumanna.

Fyrrverandi forstjóri stefnir Eimskip

Baldur Guðnason fyrrverandi forstjóri Eimskipafélagsins hefur stefnt fyrirtækinu fyrir að virða ekki starfslokasamning við hann. Baldur segir Eimskip skulda sér laun í 22 mánuði eða ríflega 140 milljónir. Fyrirtækið stöðvaði allar greiðslur til hans í maí. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins.

Árni neitar að tjá sig um ljósmæður

Fjármálaráðherra vill ekki tjá sig um kjaradeilu ljósmæðra, né álit utanríkisráðherra um að deilan geti stigmagnast vegna ákvörðunar hans að stefna ljósmæðrum fyrir ólögmæta uppsögn.

Orkuveitan fer yfir öryggismál

Orkuveita Reykjavíkur ætlar að fara yfir öryggismál í spennistöðvum sínum í kjölfar þess að ung stúlka brenndist eftir að hafa stungið reiðhjólastandara inn í spennistöð Hitaveitu Suðurnesja. Ekkert óðelilegt hefur komið í ljós í spenninum, en farið verður yfir málið hjá hitaveitunni svo svona lagað geti ekki endurtekið sig.

Hælisleitandi í hungurverkfalli

Íranskur hælisleitandi hefur setið í hungurverkfalli fyrir utan lögreglustöðina í Reykjanesbæ í rúman sólarhring og bíður þar eftir áheyrn. Annar hælisleitandi segir að lögregla hafi beitt óþarfa hörku við húsleit á fimmtudag.

Bush lýsti yfir neyðarástandi í Texas

Fjórða stærsta borg Bandaríkjanna, Houston í Texas, var sem lömuð í dag þegar fellibylurinn Ike reið yfir. Engar fréttir hafa borist af mannskaða en gífurleg flóð eru á þéttbýlissvæðum sem fellibylurinn fer nú um. Rafmagn fór af heimilum þriggja milljóna manna. Bush Bandaríkjaforseti hefur lýst yfir neyðarástandi í Texas.

Kaninn hljóp á sig

Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að íslensk stjórnvöld muni grípa til ráðstafana ef ágangur Rússa við Ísland færist í aukana.

Vilja banna veiðar við Reykjavíkurhöfn

Fólk sem veiðir í soðið við Reykjavíkurhöfn stefnir sjófarendum í hættu og verulegt eignatjón hefur hlotist af veiðiskapnum. Formaður siglingaklúbbsins Brokeyjar ætlar að fara fram á það við hafnarstjóra að slíkar veiðar verði bannaðar.

Þrýst á Mbeki að segja af sér

Þrýst er á Thabo Mbeki forseta Suður-Afríku að segja af sér sem forseti í kjölfar þess að dómari vísaði í gær frá spillingamáli sem var höfðað gegn Jacob Zuma, forseta Afríska þjóðarráðsins.

Of lítið eftirlit með ólöglegum innflytjendum

Aðgerðir lögregluyfirvalda í fyrradag þar sem leitað var í fórum 42 hælisleitenda sýnir að eftirlit með ólöglegum innflytjendum er allt of lítið, að mati Jóns Magnússonar þingmanns Frjálslynda flokksins.

Magnús: Ingibjörg er slappur leiðtogi

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, er slappur leiðtogi, að mati Magnúsar Stefánssonar þingmanns Framsóknarflokksins.

Ráðherra ósammála Ríkislögreglustjóra

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, deilir ekki þeirri skoðun með Haraldi Johannessen, ríkislögreglustjóra, að færa eigi fjárveitingar til lögreglumála til embættis Ríkislögreglustjóra.

Sprengjuárásir í Nýju-Delí

Að minnsta kosti eru 10 látnir og 50 slasaðir eftir að fjórar sprengjur sprungu með nokkra mínúta millibili á götumörkuðum í Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, fyrir stundu.

Enn deilt á Brown

Enn eykst þrýstingurinn á Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands og formann Verkamannaflokksins, um að hann láti af embætti formanns.

Menningarmiðstöð í Grafarvogi

Síðar í dag verður undirritað samkomulag um rekstur Þjónustu- og menningarmiðstöðvar í Spönginni í Grafarvogi

Lögreglan stöðvar kannabisræktun í Hafnarfirði

Fíkniefni fundust við húsleitir á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu á fimmtudagskvöld. Í íbúð í Hafnarfirði stöðvaði lögreglan kannabisræktun og lagði hald á tíu kannabisplöntur. Karlmaður um þrítugt var handtekinn í tengslum við rannsókn málsins.

Launamunur ekki leystur með kjarasamningum

Utanríkisráðherra segir launamun kynjanna algjörlega óviðunandi og að greinilega þýði ekki að taka á þeim í gegnum kjarassamninga. Ingibjörg Sólrún bindur vonir við að nefndir sem skipaðar voru skili hugmyndum sem leiði til breytinga.

Grænlendingar á leið úr hvalveiðiráðinu?

Breska sjónvarpið, BBC, segir að grænlenska heimastjórnin vilji ganga úr Alþjóðlega hvalveiðiráðinu. Umhverfisfréttamaður BBC segist hafa séð bréf sem heimastjórnin sendi danska utanríkisráðuneytinu þar sem farið er fram á að Grænland dragi sig út úr ráðinu. Danir fara með utanríkismál Grænlendinga og fulltrúi Dana gætir hagsmuna Grænlendinga á fundum ráðsins.

Sjá næstu 50 fréttir