Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rannsókn á rekstri Eimskipafélagsins Hafin er rannsókn á ýmsum þáttum sem tengjast rekstri Eimskipafélags Íslands undanfarin ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu sem var send út rétt í þessu vegna umfjöllunar um fyrirtækið undanfarið. 14.9.2008 17:58
Fimm í haldi vegna árásarinnar á Þorlákshöfn Fimm konur og karlar eru grunaðir um aðild að fólskulegri líkamsárás í heimahúsi í Þorlákshöfn í nótt. Fórnarlambið er piltur um tvítugt og var hann skorinn og stunginn í háls, skorinn á höndum og í andliti og laminn að auki. Litlu mátti muna að árásin yrði hans bani. 14.9.2008 17:09
Fórnarlamba minnst í Nýju-Delí Fórnarlömb sprengjuárásanna í Nýju-Delí í gær voru borin til grafar í dag. Yfir tuttugu fórust í árásunum og 97 liggja slasaðir á sjúkrahúsi í höfuðborginni. 14.9.2008 17:03
,,Árni stendur mjög erfiða vakt" Geir H. Haarde, forsætisráðherra, segir að Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, standi mjög erfiða vakt þessa dagana. Árni sé að halda til ákveðnum reglum en hann hefur fyrir hönd ríkisins stefnt félagi ljósmæðra vegna ólöglegra fjöldauppsagna. 14.9.2008 16:11
Frambjóðandi Demókrataflokksins til bandarísku forsetakosninganna, Barack Obama, safnaði alls 66 milljónum dala, sem jafngildir um sex milljörðum íslenskra króna, í kosningasjóð sinn í ágúst. Frá því að Obama hóf baráttu sína höfðu mest safnast 55 milljónir dala í einum mánuði. Það var í febrúar. 14.9.2008 15:21
Ítrekar stuðning við Gordon Brown David Miliband, utanaríkisráðherra Bretlands, hefur ítrekað stuðning sinn við Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands og formann Verkamannaflokksins. Miliband leggst alfarið gegn hugmyndum um leiðatogakjörs innan flokksins. 14.9.2008 14:21
Telur frekari málaferli hjá Eimskip líkleg Vilhjálmur Bjarnason, viðskiptafræðingur og formaður Félags fjárfesta, telur frekari málaferli vera yfirvofandi í tengslum við Eimskipafélagið og Baldur Guðnason, fyrrverandi forstjóra fyrirtækisins. 14.9.2008 14:11
Framsókn kynnir hugmyndir í gjaldmiðlamálum Framsóknarflokkurinn kynnir eftir helgi hugmyndir í gjaldmiðlamálum sem taka mið af núverandi stöðu. Kostir og gallar ólíkra leiða og valkosta eru metnir í skýrslu gjaldmiðlanefndar flokksins sem kynnt verður á opnum fundi á þriðjudaginn. Jóhannes Geir Sigurgeirsson, fyrrverandi Alþingismaður, veitti nefndinni forystu. 14.9.2008 13:24
Sigurjón á ekki sjéns Kristinn H. Gunnarsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, telur að Sigurjón Þórðarson eigi ekki möguleika á að verða formaður flokksins. 14.9.2008 13:02
Eggvopni beitt í alvarlegri árás á Þorlákshöfn Eggvopni var beitt í líkamsárás í Þorlákshöfn í nótt. Árásin var að sögn lögreglu mjög alvarleg og virðist sem litlu hafi mátt muna að bani hafi hlotist af atlögunni. Hópur fólks er í haldi lögreglunnar á Selfossi í tengslum við málið. 14.9.2008 12:39
Framlengt til að sýna að ekki er búið að ráðstafa starfinu Umsóknarfrestur um starf forstjóra Landsvirkjunar hefur verið framlengdur, meðal annars til að sýna að ekki sé búið að ráðstafa starfinu. 14.9.2008 12:12
Fáir fá nýtt MS-lyf Aðeins tuttugu og fimm af þeim 85 sjúklingum sem læknar hafa metið að þurfi á nýju MS lyfi að halda, hafa fengið lyfið frá áramótum. 14.9.2008 12:08
Ike veldur eyðileggingu Fellibylurinn Ike hefur valdið mikilli eyðileggingu í Texas, þar sem rúmlega fjórar milljónir manna eru nú án rafmagns. Í Houston - fjórðu stærstu borg Bandaríkjanna - eru glerbrot um allar götur í miðbænum eftir að bylurinn braut rúður í skýjakljúfum. 14.9.2008 12:05
Náttúruvernd aldrei verið nauðsynlegri Aldrei áður hefur verið eins nauðsynlegt að meta gaumgæfilega allar líklegar afleiðingar framkvæmda í náttúrunni og einmitt nú, að mati Þórunn Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra. 14.9.2008 11:34
Umsóknarfrestur um forstjórastöðu framlengdur Umsóknarfrestur um forstjórastöðu Landsvirkjunar hefur verið framlengdur um tvær vikur eða til 26. september. 14.9.2008 10:13
Róleg nótt hjá lögreglunni víðs vegar um landið Rólegt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og engin alvarleg útköll. Sex voru þó teknir grunaðir um ölvunarakstur. 14.9.2008 10:02
Harður árekstur á Breiðholtsbraut Harður árekstur tveggja bifreiða varð á Breiðholtsbraut laust fyrir klukkan tíu í gærkvöldi. Fjórir voru fluttir á slysadeild. Ekki fengust upplýsingar um um líðan þeirra. 14.9.2008 10:00
Mannskætt flugslys í Rússlandi Enginn komist lífs af þegar farþegaflugvél hrapaði í nærri borginni Perm í Rússlandi í nótt. Yfirvöld segja að áttatíu og átta hafi farist í slysinu. Á meðal farþega vélarinnar voru að minnsta kosti 21 útlendingur. 14.9.2008 08:48
Hugmynd Haralds hefur kosti og galla Hugmynd Haralds Johannessen, ríkislögreglustjóra, að færa fjárveitingar til lögreglumála til embættis ríkislögreglustjóra hefur kosti og galla, að mati Snorra Magnússonar formanns Landssambands lögreglumanna. 13.9.2008 21:00
Orkuveitan fer yfir öryggismál Orkuveita Reykjavíkur ætlar að fara yfir öryggismál í spennistöðvum sínum í kjölfar þess að ung stúlka brenndist eftir að hafa stungið reiðhjólastandara inn í spennistöð Hitaveitu Suðurnesja. Ekkert óðelilegt hefur komið í ljós í spenninum, en farið verður yfir málið hjá hitaveitunni svo svona lagað geti ekki endurtekið sig. 13.9.2008 19:05
Hælisleitandi í hungurverkfalli Íranskur hælisleitandi hefur setið í hungurverkfalli fyrir utan lögreglustöðina í Reykjanesbæ í rúman sólarhring og bíður þar eftir áheyrn. Annar hælisleitandi segir að lögregla hafi beitt óþarfa hörku við húsleit á fimmtudag. 13.9.2008 19:01
Bush lýsti yfir neyðarástandi í Texas Fjórða stærsta borg Bandaríkjanna, Houston í Texas, var sem lömuð í dag þegar fellibylurinn Ike reið yfir. Engar fréttir hafa borist af mannskaða en gífurleg flóð eru á þéttbýlissvæðum sem fellibylurinn fer nú um. Rafmagn fór af heimilum þriggja milljóna manna. Bush Bandaríkjaforseti hefur lýst yfir neyðarástandi í Texas. 13.9.2008 18:37
Kaninn hljóp á sig Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að íslensk stjórnvöld muni grípa til ráðstafana ef ágangur Rússa við Ísland færist í aukana. 13.9.2008 18:31
Vilja banna veiðar við Reykjavíkurhöfn Fólk sem veiðir í soðið við Reykjavíkurhöfn stefnir sjófarendum í hættu og verulegt eignatjón hefur hlotist af veiðiskapnum. Formaður siglingaklúbbsins Brokeyjar ætlar að fara fram á það við hafnarstjóra að slíkar veiðar verði bannaðar. 13.9.2008 18:45
Öklabrotinn gangnamaður sóttur á þyrlu Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út fyrr í dag vegna öklabrotins gangnamanns við Reynistaði í Skagafirði. 13.9.2008 16:56
Þrýst á Mbeki að segja af sér Þrýst er á Thabo Mbeki forseta Suður-Afríku að segja af sér sem forseti í kjölfar þess að dómari vísaði í gær frá spillingamáli sem var höfðað gegn Jacob Zuma, forseta Afríska þjóðarráðsins. 13.9.2008 16:45
Of lítið eftirlit með ólöglegum innflytjendum Aðgerðir lögregluyfirvalda í fyrradag þar sem leitað var í fórum 42 hælisleitenda sýnir að eftirlit með ólöglegum innflytjendum er allt of lítið, að mati Jóns Magnússonar þingmanns Frjálslynda flokksins. 13.9.2008 16:00
Magnús: Ingibjörg er slappur leiðtogi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, er slappur leiðtogi, að mati Magnúsar Stefánssonar þingmanns Framsóknarflokksins. 13.9.2008 15:18
Sama þótt sér sé líkt við fjöldamorðingja Guðlaugur Þór Þórðarsson, heilbrigðisráðherra, kippir sig ekki upp við að vera líkt við fjöldamorðingja. 13.9.2008 14:30
Ráðherra ósammála Ríkislögreglustjóra Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, deilir ekki þeirri skoðun með Haraldi Johannessen, ríkislögreglustjóra, að færa eigi fjárveitingar til lögreglumála til embættis Ríkislögreglustjóra. 13.9.2008 13:11
Sprengjuárásir í Nýju-Delí Að minnsta kosti eru 10 látnir og 50 slasaðir eftir að fjórar sprengjur sprungu með nokkra mínúta millibili á götumörkuðum í Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, fyrir stundu. 13.9.2008 14:11
Enn deilt á Brown Enn eykst þrýstingurinn á Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands og formann Verkamannaflokksins, um að hann láti af embætti formanns. 13.9.2008 13:53
Menningarmiðstöð í Grafarvogi Síðar í dag verður undirritað samkomulag um rekstur Þjónustu- og menningarmiðstöðvar í Spönginni í Grafarvogi 13.9.2008 13:26
Lögreglan stöðvar kannabisræktun í Hafnarfirði Fíkniefni fundust við húsleitir á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu á fimmtudagskvöld. Í íbúð í Hafnarfirði stöðvaði lögreglan kannabisræktun og lagði hald á tíu kannabisplöntur. Karlmaður um þrítugt var handtekinn í tengslum við rannsókn málsins. 13.9.2008 12:50
Launamunur ekki leystur með kjarasamningum Utanríkisráðherra segir launamun kynjanna algjörlega óviðunandi og að greinilega þýði ekki að taka á þeim í gegnum kjarassamninga. Ingibjörg Sólrún bindur vonir við að nefndir sem skipaðar voru skili hugmyndum sem leiði til breytinga. 13.9.2008 12:17
Grænlendingar á leið úr hvalveiðiráðinu? Breska sjónvarpið, BBC, segir að grænlenska heimastjórnin vilji ganga úr Alþjóðlega hvalveiðiráðinu. Umhverfisfréttamaður BBC segist hafa séð bréf sem heimastjórnin sendi danska utanríkisráðuneytinu þar sem farið er fram á að Grænland dragi sig út úr ráðinu. Danir fara með utanríkismál Grænlendinga og fulltrúi Dana gætir hagsmuna Grænlendinga á fundum ráðsins. 13.9.2008 12:05
Geir: Stjórnarandstaðan hefur ekkert til málanna að leggja Stjórnarandstaðan sýndi á yfirstandandi septemberþingi að hún hefur ekkert til málanna að leggja í efnahagsmálum, að mati Geirs H. Haarde forsætisráðherra. Sókn stjórnarandstöðunnar hafi leysts upp í innri átök og endað með glæsilegu sjálfsmarki. 13.9.2008 11:59
Að minnsta kosti fimmtán látnir í lestarslysi í Los Angeles Farþegalest og flutningalest rákukst á í Los Angeles í gær með þeim afleiðingum að fimmtán menn, að minnsta kosti, létu lífið og sjötíu slösuðust. Eldur kviknaði undir lestabrakinu og það tók slökkviliðsmenn tvær klukkustundir að slökkva hann. Búist er við að tala látinna muni hækka þegar björgunarmenn komast nær lestarvögnum þar sem eyðileggingin var mest. 13.9.2008 10:39
Skemmdarvargur á Akureyri Karlmaður er í haldi lögreglunnar á Akureyri fyrir skemmdarverk sem hann vann á tveimur bílum í bænum í nótt. Ekki er vitað hvað manninum gekk til með verknaðinum. Þá tók lögreglan ökumann grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna og tveir menn voru handteknir á veitingastað í bænum með fíkniefni í fórum sínum. 13.9.2008 10:18
Ike mættur til Texas Fellibylurinn Ike gekk á land við Texas í nótt. Óttast er að hann færi með sér flóð á stóru og þéttbýlu svæði. Alls hefur um milljón manna í Texas flúið heimili sín við ströndina. Áður en bylurinn fór yfir olíuvinnslusvæði í Mexíkóflóa undan ströndum Texas var borpöllum lokað, þannig að tekið var fyrir um fimmtung af olíuframleiðslu Bandaríkjanna. Ike er nálægt því að vera þriðja stigs fellibylur og því sérlega viðsjárverður. 13.9.2008 10:16
Páfinn í París Rúmlega 200 þúsund manns mættu til að hlýða á Benedikt páfa sextánda í París í Frakklandi í morgun. Páfi er í fjögurra daga heimsókn til Frakklands, sinni fyrstu frá því hann varð páfi árið 2005. 13.9.2008 10:01
Mikið álag á fæðingardeildinni í nótt Mikið álag var á fæðingardeild Landsspítalans í nótt og í morgun og þegar fréttastofa hafði samband við deildina skömmu fyrir fréttir gátu ljósmæður ekki talað við fréttamann sökum anna. 13.9.2008 09:58
Ermarsundsgöngin opnuð á ný Lestarsamgöngur um Ermarsundsgöngin milli Frakklands og Bretlands hófust í dag á ný eftir bruna í flutningalest á fimmtudag. Tugir þúsunda manna urðu að hætta við áætlaðar ferðir um göngin á fimmtudag og í gær. 13.9.2008 09:43
Reyndu að frelsa félagann úr haldi lögreglu Þónokkuð var að gera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Til átaka kom í Breiðholti þegar lögreglumenn hugðust handtaka mann. Félagar mannsins ákváðu að reyna að koma honum til bjargar og frelsa hann úr haldi lögreglu. 13.9.2008 09:40
Íslenski sprengjulistamaðurinn laus allra mála í Kanada Kanadískur dómstóll felldi í dag dóm í máli listnemans Þórarins Inga Jónssonar en mál hans komst í hámæli í nóvember á síðasta ári þegar hann kom fyrir eftirlíkingu af sprengju á listasafni í Toronto. Athæfið olli því að rýma þurfti safnið og fjáröflunarsamkomu sem halda átti á staðnum var aflýst. 12.9.2008 22:15