Fleiri fréttir

Rækjustofninn að koma til

Bílddælingar telja sig sjá merki þess að rækjustofninn í Arnarfirði sé að koma til eftir lélegt ástand mörg undanfarin ár.

Kosið í Serbíu í dag

Kosið verður til þings í Serbíu í dag í einhverjum mikilvægustu kosningum frá því Slobodan Milosevic var hrakinn frá völdum árið 2000.

Obama með fleiri ofurkjörmenn

Barack Obama hefur nú tryggt sér fleiri ofurkjörmenn en Hillary Clinton í forvali Demókrata fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. Þetta er í fyrsta sinn í allri kosningabaráttunni sem Obama hefur forskot í fjölda ofurkjörmannna, en hann hefur umtalsvert forskot í fjölda kjörinna þingmanna.

Samkomulag um afnot af kirkjum

Þjóðkirkjan og Kaþólska kirkjan á Íslandi hafa gert samkomulag um afnot af kirkjum og um helgihald. Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson og Reykjavíkurbiskup, Pétur Bürcher, undirrituðu samkomulagið fyrir helgi en það felur í sér leiðbeiningar um samstarf kirkjudeildanna.

Fimm stútar undir stýri

Fimm voru kærðir fyrir ölvunarakstur í höfuðborginni í nótt. Talsverður erill var hjá lögreglunni í höfuðborginni í nótt og safnaðist töluverður fjöldi fólks saman í miðborginni. Allt fór þó friðsamlega fram, að sögn lögreglu.

Alli ríki jarðsunginn í dag

Útför Aðalsteins Jónssonar útgerðarmanns var gerð frá Eskifjarðarkirkju í dag. Aðalsteinn var jafnan þekktur sem Alli ríki en kistu hans báru úr kirkju nánustu skyldmenni; börn, barnabörn og tengdabörn.

Bílvelta á Vesturlandsvegi

Lögregla, slökkvilið og tækjabíll sjúkraliðsins var kallað að Vesturlandsvegi fyrir stundu. Atvik eru óljós að stöddu en svo virðist sem bíll hafi farið á ljósastaur og oltið á hliðina.

Sérsveit lögreglunnar við Eyjaslóð

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit Ríkislögreglustjóra fóru að húsi við Eyjaslóð rétt fyrir klukkan sex. Litlar upplýsingar hafa fengist frá lögreglunni að öðru leyti en þær að verið sé að kanna grun um veiðiþjófnað.

Framhjáhaldið gæti kostað þingmannssæti

Bandaríski fulltrúadeildaþingmaðurinn Vito Fossella gæti þurft að segja af sér þingmennsku eftir að upp komst að hann hefði feðrað barn með viðhaldi sínu. Kröfur um afsögn hans verða æ háværari á meðal almennings.

Leita fleiri fórnarlamba Mansons

Lögregla í Bandaríkjunum hyggst hefja aftur uppgröft á búgarði í Kaliforníu til þess að leita að fleiri líkum fórnarlamba raðmorðingjans Charles Mansons.

Vélmenni munu aðstoða eldri borgara

Eldri borgarar á hjúkrunarheimilum mega í framtíðinni eiga von á því að vélmenni sjái um að aðstoða þá við daglegt líf, svo sem við böðun og ferðir á snyrtinguna. Þetta segja talsmenn Tækniháskólans í Danmörku.

Brjálæði að vilja flugvöllinn úr Vatnsmýrinni

Danskur arkitekt sem er einn af aðalarkitektum nýja tónlistar- og ráðstefnuhússins í miðborginni, segir brjálæði að vilja Reykjavíkurflugvöll burt úr Vatnsmýrinni. Það sé auðlind út af fyrir sig að hafa flugvöll í borginni og það spari einnig orku.

Býður Mugabe forseta byrginn

Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Zimbabwe, Morgan Tsvangirai, segir að hann muni taka þátt í annarri umferð forsetakosninganna, þrátt fyrir mikla óöld í tengslum við kosningarnar.

Samið um frið við shíta múslima

Stjórnvöld í Írak tilkynntu í dag að þau hefðu náð samkomulagi við Mogtada al-Sadr, leiðtoga shíta múslima um að binda endi á vikulanga bardaga í austurhluta Bagdad milli skæruliða og varnarsveita.

Bankaræningi hefur játað

Karl á þrítugsaldri hefur játað að hafa framið rán í útibúi Landsbankans á Bæjarhrauni í Hafnarfirði síðastliðinn miðvikudag en maðurinn var handtekinn í gærkvöld. Hann var einn að verki.

Í spreng fyrir utan Baðhúsið

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um innbrotstilraun í Baðhúsið í Brautarholti rétt fyrir klukkan fimm í morgun.

Björgunarsveitarmenn aðstoðuðu strandaglópa

Björgunarsveitarmenn þurftu að aðstoða fólk sem hugðist fara yfir Steingrímsfjarðarheiði í nótt, en heiðin var lokuð sökum ófærðar. Að sögn lögreglu urðu fjölmargir strandaglópar á Hólmavík vegna ófærðar.

Byrjaði smátt og bætti við

Bílastæði eru hluti af andliti fyrirtækja út á við. Ýmsir hafa falið BS verktökum umsjá þeirra. „Við málum línur á bílastæði, sópum þau og gerum við malbik og kantsteina auk þess að setja upp skilti. Þetta er eina fyrirtækið hér á landi sem hefur þetta allt á einni hendi,“ segir Bjarni Hilmar Jónsson, forstjóri BS verktaka, þegar hann er spurður út í starfsemina.

Hvítahúsið bregst við ofbeldinu í Beirút

Bandaríkin eru að ráðfæra sig við öryggisráð sameinuðu þjóðanna og aðra í miðausturlöndum um hugsanlegar aðgerðir gegn þeim sem bera ábyrgð á ofbeldinu í Beirút. Þetta kom fram hjá talsmanni Hvíta hússins nú í kvöld.

Blair gefur Brown góð ráð

Tony Blair fyrrum forsætisráðherra Bretlands gefur Gordon Brown núverandi forsætisráðherra ráð í ólgunni sem nú ríkir í kringum þann síðarnefnda. Hann hefur sagt honum hvernig hann geti sigrað næstu kosningar, þetta segir Cherie Blair í The Times í dag.

Lögreglan á Akureyri biður ökumenn að fara gætilega

Lögreglan á Akureyri hafði samband við Vísi fyrir stundu og vildi brýna fyrir ökumönnum á norðurlandi að fara varlega á vegum úti. Fjórir árekstrar hafa orðið í grennd við bæjarfélagið nú í kvöld en mikil hálka er fyrir norðan.

Steingrímsfjarðarheiði ófær

Ófært er á Steingrímsfjarðarheiði þar sem er mikil stórhríð. Hálka og éljagangur er á Holtavörðuheiði og Snjóþekja og éljagangur á Laxárdalsheiði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni nú í kvöld.

Móðir Byrgisstúlku gat ekki lesið dóminn vegna hryllings

Oddrún Einarsdóttir móðir stúlku sem varð fórnarlamb Guðmundar Jónssonar í Byrginu segist hafa þurft að hætta að lesa dóminn sem féll í svokölluðu Byrgismáli í dag þar sem lýsingarnar voru svo hræðilegar. Mæður stúlknanna þriggja voru í viðtali í Íslandi í dag fyrir stundu. Þær eru ekki smeykar um að Guðmundur verði sýknaður í Hæstarétti.

Fá að lenda á mánudaginn

Herforingjastjórnin í Búrma hefur heimilað Bandaríkjamönnum að fljúga með hjálpargögn til landsins en flugvélar þeirra fá þó ekki að lenda fyrr en á mánudag.

Hætta á borgarastyrjöld í Líbanon

Hætta er á að borgarastyrjöld brjótist aftur út í Líbanon. Hizbollah-skæruliðar hafa lagt undir sig megnið af höfuðborginni Beirút.

Sauðaþjófnaðarmálinu á Höfn lokið

Rannsókn á svokölluðu sauðaþjófnaðarmáli á Höfn sem lögreglustjórinn á Eskifirði fór með er lokið. Ákveðið var að fella málið niður þar sem sönnunargöngin í málinu þóttu ekki nægjanleg til sakfellingar.

Segir niðurstöðu Hæstaréttar miður

Í dag birti Hæstiréttur Íslands niðurstöðu í máli rétthafa gegn Svavari Lúthersyni og Istorrent ehf. Snæbjörn Steingrímsson hjá rétthafasamtökunum Smáís segir niðurstöðuna miður þar sem málinu hafi verið vísað frá á þeim forsendum að málsóknarumboð væru ekki gild.

Sjá næstu 50 fréttir