Fleiri fréttir

Tók grillið með inn og fékk reykeitrun

Sex manna fjölskylda var lögð inn á sjúkrahús á Hróarskeldu í nótt vegna gruns um reykeitrun. Fjölskyldan býr í Vestur - Såby, sem er vestur af Hróarskeldu.

Lög um dýravernd verði endurskoðuð

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur skipað nefnd til að endurskoða dýraverndarlög. Markmið með endurskoðun laganna er meðal annars að stjórnsýsla og eftirfylgni mála á sviði dýraverndar verði skilvirk og sem einföldust í framkvæmd.

Bjargráðasjóður lagður niður

Kristján L. Möller samgönguráðherra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um að Bjargráðasjóður verði lagður niður. Um leið á að skipta eignum hans á milli eigenda, sem eru ríkið, sveitarfélögin og Bændasamtök Íslands.

Stál í stál vegna REI

Ólafur F. Magnússon borgarstjóri segir að ekki komi til greina að selja einkaaðilum hlut í REI. Þetta kom fram í Kastljósi nú í kvöld.

Ber einn tjón vegna stolinna bíla

Bandarísk tollayfirvöld segja nú ekkert benda til að stolnir bílar frá Bandaríkjunum hafi verið seldir til Íslands. Viðtæk rannsókn þeirra bendi til að Íslendingur sem keypti 11 stolna bíla sé sá eini sem lent hafi klóm glæpagengis. Kaupandinn var nýgræðingur og mun sjálfur bera tugmilljóna króna tjón vegna þessa.

Sveitarfélögin voru blekkt

Stjórnvöld blekktu sveitarfélögin vísvitandi með nýrri skipulags- og byggingalöggjöf, segir Gunnar Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs. Hann segir að sveitarfélögum hafi verið talin trú um að skipulagsmál væru á þeirra valdi, en raunin sé allt önnur.

Gætu orðið Íslendingum til skammar

„Það er mjög alvarlegt ef hringlandahátturinn í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins er farinn að verða okkur Íslendingum til skammar á alþjóðavettvangi,“ segir í orðsendingu frá Sigrúnu Elsu Smáradóttur, fulltrúa Samfylkingarinnar í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur.

Fimm ára drengur fundinn

Hinn fimm ára gamli Oliver Chaaning, sem rænt var í gær, var látinn laus um klukkan 17 í dag að íslenskum tíma, eftir því sem sjónvarpsstöðin TV 2 hefur eftir lögreglunni.

EES-samningurinn viðkvæmur

Varaforseti Evrópuþingsins, segir að ef Íslendingar sæki um aðild að Evrópusambandinu nú, gætu þeir verið komnir þar inn fyrir jól. Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið sé fallinn um sjálfan sig gangi eitt þriggja EFTA ríkja í sambandið.

Reyndu að svíkja fé út af kortareikningi konu

Óprúttnir aðilar reyndu að svíkja fé út af kortareikningi konu í Árnessýslu í gær að sögn lögreglunnar á Selfossi. Um kvöldmatarleytið fékk hún símtal frá konu sem talaði mjög skýra ensku.

OR má einungis eiga þrjú prósent í HS

Orkuveita Reykjavíkur má aðeins eiga þrjú prósent af heildarhlutafé Hitaveitu Suðurnesja samkvæmt ákvörðun sem Samkeppniseftirlitið birti í dag.

Sektaðir fyrir brot á útvarpslögum

Hæstiréttur sneri í dag við dómi Héraðsdóms Reykjaness og sektaði fjóra menn um hálfa milljón hvern fyrir brot á útvarpslögum.

Sömu laun fyrir sömu vinnu hjá RÚV

Í ræðu sinni á aðalfundi Ríkisútvarpsins ohf. minntist Ómar Benediktsson, stjórnarformaður félagsins á umræðu síðustu vikna um laun stjórnenda hjá RÚV. Vísir hefur óskað eftir upplýsingum um laun dagskrárstjóranna Þórhalls Gunnarssonar og Sigrúnar Stefánsdóttur. Enn hafa þær upplýsingar ekki verið veittar. Ómar segir sömu laun vera greidd fyrir sömu vinnu hjá Ríkisútvarpsins.

Stjórnarformaður RÚV með 200 þúsund á mánuði

Á fyrsta aðalfundi Ríkisútvarpsins ohf. sem haldinn var í dag voru laun stjórnarmanna í félaginu ákveðin. Fundurinn samþykkti að greiða stjórnarmönnum 100 þúsund krónur á mánuði. Stjórnarformaður fær 200 þúsund krónur á mánuði fyrir sín störf og varamenn í stjórn fá 25 þúsund krónur fyrir hvern fund.

Ferjusamningafundur í Eyjum yfirstandandi

„Það er verið að fara yfir málin núna, við vitum ekki enn hvort okkar tilboði verður tekið eða því hafnað eða hvað verður gert, þetta eru fyrstu samningaviðræður.

Vilja reisa netþjónabú í Þorlákshöfn

Samkomulag hefur náðst á milli sveitarfélagsins Ölfuss og fyrirtækisins Greenstone ehf. um viljayfirlýsingu um uppbyggingu netþjónabús í sveitarfélaginu.

Nútímaíslenska kennd við 40 háskóla

Íslenskukennsla við erlenda háskóla og þýðingar íslenskra bókmennta á erlend tungumál er meðal yrkisefna málþings Íslenskrar málnefndar, Bókmenntasjóðs og Háskólabókasafns sem haldið verður í Þjóðarbókhlöðunni á morgun.

Undibúa koltrefjaverksmiðju á Króknum

Kaupfélag Skagfirðinga, Gasfélagið og Sveitarfélagið Skagafjörður hafa gert með sér samkomulag um að stofna undirbúningsfélags sem hyggst reisa koltrefjaverksmiðju á Sauðarkróki.

RÚV tapaði 20 milljónum á mánuði

Ríkisútvarpið hélt í dag sinn fyrsta aðalfund eftir að stofnuninni var breytt í opinbert hlutafélag. Þar kom meðal annars fram að tap af rekstri félagsins nam um 108 milljónum króna á þessu fyrsta rekstrartímabili sem markast af 1. apríl 2007 til 31. ágúst 2007.

Var Móses skakkur?

Ísraelítar kunna að hafa verið undir áhrifum plöntu sem framkallar ofsjónir, þegar Móses kom ofan af Sínaí fjalli með boðorðin tíu.

Háöldruð morðkvendi

Tvær aldraðar konur í Bandaríkjunum hafa verið sakfelldar fyrir að myrða tvo heimilislausa menn til þess að fá líftryggingar þeirra greiddar.

Sjúkk við sleppum -líklega

Sagan um þrettán ára þýskan strák sem leiðrétti útreikninga NASA var of góð til þess að vera sönn.

Óskar vill viljayfirlýsingar REI upp á borðið

Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins vill að viljayfirlýsingar sem Reykjavík Energy Invest hefur undirritað síðustu daga verði kynntar í borgarráði. Hann segir nauðsynlegt að skýra frá innihaldi yfirlýsinganna, ekki síst í ljósi þess sem hann kallar misvísandi ummæli sjálfstæðismanna í málinu.

Hent út á sloppnum einum fata

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk heldur óvenjulegt verkefni á dögunum sem tengdist erjum á heimili fólks. Lögreglan var kölluð að húsi og þegar þangað var komið var karlmaður þar utandyra.

Við bugumst ekki

Mikill mannfjöldi safnaðist saman við Virginia Tech háskólann í Bandaríkjunum í gær til að minnast þess að eitt ár er liðið frá mannskæðustu skólaárás í sögu landsins.

Samráð um framkvæmdir á gatnamótum

Borgaryfirvöld ætla að hafa samráð með íbúum í Hlíðunum og nágrenni um framkvæmdir tengdum mislægum gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar. Á annað hundrað manns mættu á kynningarfund sem haldinn var um málið í gær.

Gagnrýndu skipulag þingfundar í dag

Stjórnarandstaðan gagnrýndi á Alþingi í morgun að haldinn væri langur fundur á Alþingi um samgöngu- og menntamál á sama tíma og samgönguþing og aðalfundur Ríkisútvarpsins færu fram.

Beitir sér ekki fyrir auglýsingabanni í kringum barnatíma

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hyggst ekki beita sér fyrir lagasetningu sem bannar auglýsingar í kringum barnatíma í sjónvarpi. Hún treystir fjölmiðlum og foreldrum til þess að meta hvað er best fyrir börnin.

Þingmenn flognir til fundar á Vestfjörðum

Þingmenn Norðvestur kjördæmis ætla að hitta sveitarstjórnarmenn á Vestfjörðum á fundi í dag. Rætt verður um málefni svæðisins en búast má við því að áætlanir um olíuhreinsunarstöð verði ofarlega á baugi.

Hvatti ráðherra til þess að sniðganga hátíðir á ÓL

Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins hvatti flokkssystur sína, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra, til þess að sniðganga bæði opnunar- og lokahátíð Ólympíuleikanna í Peking í sumar og sýna þannig andstöðu sína við mannréttindabrot Kívnerja. Ráðherra sagðist hins vegar fyrst og fremst fara til þess að styðja íslenska íþróttamenn.

Töluvert fleiri legíónellusmit í fyrra en árin á undan

Töluvert fleiri legíónellusmit greindust hér á landi í fyrra en árin á undan samkvæmt upplýsingum frá sýklafræðideild Landspítalans. Vitnað er til þeirra í Farsóttarfréttum Landlæknisembættisins en alls greindust 12 manns með veikina í fyrra.

Sjá næstu 50 fréttir