Bjóst ekki við að drengurinn myndi lifa 24. mars 2008 15:59
Vitni að því þegar snjósleði rann stjórnlaust á fjórtán ára gamlan dreng í Bláfjöllum í gær segist ekki hafa búist við því að hann myndi lifa af. Sleðinn hafi skollið á piltinum á miklum hraða og þeir svo oltið áfram. Vitnið óskaði eftir nafnleynd en sat í nýju stólalyftunni næst þeim stað sem slysið átti sér stað. Slysið varð með þeim hætti að starfsmaður var í lyftuviðgerð í nýju stólalyftunni. Hann var í miklum bratta eftir að brjóta ís á staur og var á leið niður þegar sleðinn lendti í ójöfnu. Magnús Árnason forstöðumaður í Bláfjöllum segir að í stað þess að velta sleðanum hafi starfsmaðurinn kastað sér af honum og sleðinn þá runnið stjórnlaust niður gilið. Ekki náðist í vakthafandi lækni nú fyrir stundu en samkvææmt upplýsingum Magnúsar sé hann kominn á almenna deild og sé ekki í lífshættu. Eins og fram kom í fréttum fyrr í dag margbrotnaði hann á vinstri fæti og viðbeinsbrotnaði auk þess sem hann hlaut bólgur í andliti og á hnakka. Magnús segir að snjósleðar haldi áfram að renna eftir að manneskja fari af þeim, en engin inngjöf sé. Þegar þeim sé beint niður í móti geti þeir haldið áfram að fara ansi hratt. Hann segir þó ómögulegt að segja til um á hversu miklum hraða sleðinn hafi verið þegar hann lenti á drengnum. Strákurinn hafi hins vegar verið á litlum hraða í miðri beygju á leið niður. Starfsmenn í Bláfjöllum voru afar slegnir eftir slysið, og sérstaklega starfsmaðurinn sem í hlut átti. Magnús segir að hann hafi fengið áfallahjálp. Vitni voru yfirheyrð af lögreglu þegar hún kom á slysstað og svæðið lokað af á meðan rannsókn stóð yfir.
Tengdar fréttir Drengur alvarlega slasaður eftir snjósleða í Bláfjöllum Alvarlegt slys varð á skíðasvæðinu í Bláfjöllum í gærmorgun. Starfsmaður missti stjórn á vélsleða rétt ofan við Kóngslyftu þannig að hann féll af honum. Vélsleðinn rann stjórnlaus niður skíðabrekku og hafnaði á ungum dreng sem varð undir sleðanum. Drengurinn var fluttur alvarlega slasaður á Landsspítalann í Fossvogi. Hann mun vera margbrotinn á vinstri fæti og viðbeinsbrotinn auk þess sem hann hlaut bólgur í andliti og á hnakka. 24. mars 2008 12:59 Mest lesið Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Erlent Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Innlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Erlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Innlent Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Innlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Njósnasjeik“ keypti Trump-félag og fékk flögur Erlent Fleiri fréttir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Boðar aðgerðir gegn brotastarfsemi Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita Sjá meira
Drengur alvarlega slasaður eftir snjósleða í Bláfjöllum Alvarlegt slys varð á skíðasvæðinu í Bláfjöllum í gærmorgun. Starfsmaður missti stjórn á vélsleða rétt ofan við Kóngslyftu þannig að hann féll af honum. Vélsleðinn rann stjórnlaus niður skíðabrekku og hafnaði á ungum dreng sem varð undir sleðanum. Drengurinn var fluttur alvarlega slasaður á Landsspítalann í Fossvogi. Hann mun vera margbrotinn á vinstri fæti og viðbeinsbrotinn auk þess sem hann hlaut bólgur í andliti og á hnakka. 24. mars 2008 12:59