Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sneypuför norskra loðnuveiðiskipa Ljóst er að norski loðnuveiðiflotinn, sem hefur leyfi til loðnuveiða hér við land, fer hálfgerða sneypuför til Íslands að þessu sinni. 14.2.2008 08:30
Samfylkingin orðin stærst samkvæmt nýrri könnun Fylgi við Samfylkinginguna er orðið mun meira en við Sjálfstæðisflokkinn, samkvæmtkönnun, sem Talnakönnun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is, rétt áður en skýrslan um REI kom út. 14.2.2008 08:28
Kjálka- og kinnbeinsbrotinn eftir fólskulega árás í Reykjanesbæ Nítján ára karlmaður var fluttur á slysadeild Landspítalans kjálka- og kinnbeinsbrotinn eftir fólskulega árás á hann og föður hans að Heiðarhvammi í Reykjanesbæ laust upp úr klukkan sjö í gærkvöldi. 14.2.2008 08:24
Kínverjar harma ákvörðun Spielbergs Kínverjar standa nú frammi fyrir vaxandi þrýstingi varðandi málefni Darfur-héraðs í Súdan í kjölfar þess að kvikmyndaleikstjórinn Steven Spielberg sagði upp sem listrænn ráðgjafi Ólympíuleikanna í Peking í sumar. 14.2.2008 08:16
Ólga í Beirút Mikill öryggisviðbúnaður er nú í Beirút, höfuðborg Líbanon en þar fara fram í dag tvær athafnir sem óttast er að geti orsakað uppþot í borginni. Íbúar landsins minnast þess nú að þrjú ár eru liðin frá því að Rafik Hariri, fyrrum forsætisráðherra, var ráðinn af dögum. 14.2.2008 08:15
Bandaríkjaþing bannar vatnspyntingar Bandaríkjaþing samþykkti í gær að banna svokallaðar vatnspyntingar, þrátt fyrir skilaboð frá Hvíta húsinu þess efnis að neitunarvaldi verði beitt á slík lög. Það voru demókratar á þinginu sem komu lögunum í gegn en þar eru þeir í meirihluta. 14.2.2008 08:10
Ölvaður í Elliðaánum Ölvaður ökumaður, sem ók austur Bústaðaveg í gærkvöldi, gleymdi að beygja til hægri eða vinstri á mótum Reykjanesbrautar heldur ók þvert yfir hana og út í eina kvísl Elliðaánna. 14.2.2008 07:50
Uppþot í Kaupmannahöfn Sautján voru handteknir í Kaupmannahöfn í nótt og hefur lögregla farið fram á gæsluvarðhald yfir fimm þeirra. Mikill órói var á götum höfuðborgarinnar og í fleiri borgum Danmerkur í nótt og hefur verið kveikt í bílum og gámum á nokkrum stöðum. 14.2.2008 07:48
Vilja evru en ekki ESB Forsvarsmenn tveggja fyrirtækja af þremur vilja losna við krónuna. Um leið eru fleiri á móti Evrópusambandsaðild en fylgjandi. Á Viðskiptaþingi 2008 voru stjórnvöld gagnrýnd fyrir stefnuleysi í gjaldeyrismálum og lausatök í hagstjórn.Viðskiptaráð kallar eftir skýrri sýn og aðgerðum af hálfu stjórnvalda varðandi framtíðarskipan gjaldeyrismála hér á landi og aðgerðum til að styrkja efnahagslegan stöðugleika. 14.2.2008 05:00
Farið hefur fé betra, segja Bandaríkjamenn um Mughniyeh Talsmenn á vegum ríkisstjórna Bandaríkjanna og Ísraels fögnuðu því Imad Mughniyeh, einn af leiðtogum Hizbollah-samtakanna í Sýrlandi, skyldi vera ráðinn af dögum í bílsprengjuárás í Damaskus í morgun. 13.2.2008 23:20
Tveir handteknir vegna morðsins á Bhutto Tveir menn sem handteknir voru í tengslum við morðið á Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistan, hafa játað að hafa aðstoðað árásarmanninn. Yfirmaður rannsóknarinnar á morðinu, Chaudhry Abdul Majid, segir að mennirnir hafi játað að hafa afhent árásarmanninum sprengjuvesti og byssu. 13.2.2008 22:02
14 mánaða fangelsi fyrir kókaínsmygl Hollenskur karlmaður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í 14 mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að reyna að smygla um 390 grömmum af kókaíni innvortis. 13.2.2008 21:40
Robert Gates á hálum ís Mörgum stjórnmálamanninum hefur orðið fótaskortur á hinu pólitíska svelli í gegnum tíðina. Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, þykir þó hafa átt rólegri daga en forveri hans Donald Rumsfeld. 13.2.2008 22:34
Maó bauðst til að senda tíu milljónir kvenna til Bandaríkjanna Mao Zedong, fyrrverandi leiðtogi Kína, bauðst til þess að senda tíu milljónir kínverskra kvenna til Bandaríkjanna árið 1973. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjum skjölum sem bandaríska utanríkisráðuneytið hefur veitt aðgang að og vitnað er til á heimasíðu breska ríkisútvarpsins. 13.2.2008 22:08
Mannréttindabrot að vísa mönnum úr landi fyrir að skipuleggja morð Formaður fjölmenningarsamtaka í Danmörku segir það brot á mannréttindum að vísa tveimur mönnum úr landi, vegna gruns um skipulagningu morðs á teiknara Jótlandspóstsins. 13.2.2008 21:25
Ætlar ekki að senda Villa til Kanada Geir H. Haarde forsætisráðherra segir ekkert til í því að Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson oddviti Sjálfstæðismanna í borginni sé að verða sendiherra í Kanada. Þetta kom fram í Íslandi í dag fyrir stundu. 13.2.2008 19:07
Beðið í Karphúsinu eftir ákvörðun Seðlabankans Vaxtaákvörðun Seðlabankans í fyrramálið ræður miklu um framhald kjaraviðræðna, að mati Samtaka atvinnulífsins. Fulltrúar þeirra sitja þessa stundina hjá ríkissáttasemjara á fundi með fulltrúum Alþýðusambands Íslands. 13.2.2008 18:52
Tillögur um Miklubraut í stokk Miklabraut verður lögð í stokk milli Kringlumýrarbrautar og Snorrabrautar, samkvæmt tillögum vinnuhóps Vegagerðar og Reykjavíkurborgar, sem verið er að kynna í borgarkerfinu. Lagt er til að framkvæmdir hefjist á næsta ári og þeim verði að fullu lokið eftir sex ár. 13.2.2008 18:50
Guðlaugur Þór styður Vilhjálm sem borgarfulltrúa Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra styður Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson og þvertekur fyrir að vera sjálfur á leið í borgarmálin. Tveir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks sem fréttastofa náði tali af í dag vildu ekki lýsa yfir afdráttarlausum stuðningi við Vilhjálm, en hinir fjórir hafa ekki látið ná í sig í dag. 13.2.2008 18:30
Bolvíkingar styðja Súðvíkinga í baráttu fyrir jarðgöngum Bæjarráð Bolungarvíkur tekur heilshugar undir með sveitastjórn Súðavíkur þar sem skorað er á ríkisstjórn Íslands að hefja nú þegar undirbúning að gerð jarðganga á milli Álftarfjarðar og Skutulsfjarðar. 13.2.2008 17:34
Matsmaður metur hvort farið hafi verið illa með hest Hæstiréttur hefur vísað frá kærumáli manns, sem sakaður er um að hafa farið illa með hross, á þeim grundvelli að kæra mannsins til Hæstaréttar hafi borist of seint. Matsmaður verður því kallaður til í málinu. 13.2.2008 17:22
Spielberg hættir við listræna stjórnun Ólympíuleikanna Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn Steven Spielberg hefur hætt við að taka að sér listræna stjórnun Ólympíuleikanna í Peking á þessu ári. Í tilkynningu frá leikstjóranum sakar hann yfirvöld í Kína um að beita Súdan ekki nægilegum þrýstingi til að binda endi á þjáningu fólks í Darfur héraði. 13.2.2008 16:38
Aldraðir fá inni í Heilsuverndarstöðinni Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra og María Ólafsdóttir, yfirlæknir eignarhaldsfélagsins Heilsuverndarstöðvarinnar, skrifuðu í dag undir samning um rekstur 20 skammtímahvíldarrýma fyrir aldraða skjólstæðinga heimahjúkrunar á höfuðborgarsvæðinu og 30 dagvistarrýma þar sem áhersla verður lögð á endurhæfingu. 13.2.2008 16:24
Geir útilokar evru „Það er einfaldlega ekki kostur að taka einhliða upp evru. Slíkt er ekki trúverðugt og því fylgir margs konar óhagræði og aukakostnaður," sagði Geir Haarde forsætisráðherra á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs í dag. Hann benti því á að tveir kostir væru í stöðunni. Að halda íslensku krónunni eða taka upp evru sem jafnframt þýði inngöngu í Evrópusambandið. 13.2.2008 16:21
Kýldi ellefu ára fósturson sinn fullur í útilegu Fertugur karlmaður var í dag dæmdur í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa slegið ellefu ára gamlan fósturson sinn í andlitið. 13.2.2008 16:15
Skipulagðri leit að Cessnu formlega hætt Skipulagðri leit að bandarísku flugvélinni sem hvarf af ratsjá 50 sjómílur vestur af Keflavík á mánudag hefur verið hætt. 13.2.2008 15:53
Bush varar við frumvarpi um hleranir George Bush forseti Bandaríkjanna hefur sagt bandaríska þinginu að hann muni ekki samþykkja annað tímabundið frumvarp sem leyfi að grunaðir hryðjuverkamenn séu hleraðir án dómsúrskurðar. Hann varaði þingið við að samþykkja varanlegt frumvarp þess efnis sem myndi auk þess gera undanþágur símafyrirtækja afturvirkar. 13.2.2008 15:27
Markús Örn í Þjóðmenningarhúsið Markús Örn Antonsson, fyrrverandi borgarstjóri og útvarpsstjóri, hefur verið skipaður forstöðumaður Þjóðmenningarhússins frá og með 1. september næstkomandi. 13.2.2008 15:19
Mál Vestmannaeyjarbæjar á hendur olíufélögum þingfest í næstu viku Mál Vestmannaeyjabæjar á hendur stóru olíufélögunum þremur vegna tjóns sem bærinn telur sig hafa orðið fyrir vegna samráðs þeirra, verður þingfest í næstu viku. 13.2.2008 14:57
Barnaníðingurinn Ágúst Magnússon býr á höfuðborgarsvæðinu Barnaníðingurinn Ágúst Magnússon sást í Reykjanesbæ í gærdag. Hann mun þó ekki búa í bænum heldur er hann með dvalarstað á höfuðborgarsvæðinu. Ágúst ók um á grænni Toyotu Corollu sem er í eigu föður hans. 13.2.2008 14:54
Gafst upp eftir gíslatöku á ítölskum leikskóla Karlmaður vopnaður dúkahnífi sem réðist inn í leikskóla í Reggio Calabria á suðurhluta Ítalíu í dag og hélt þar börnum og starfsmanni í gíslingu hefur gefist upp. Að minnsta kosti 11 börn og kennari voru inni á leikakólanum þegar maðurin réðist þar inn. Enginn slasaðist. Lögreglan og ættingjar mannsins eyddu klukkutímum í að reyna að fá manninn til að yfirgefa bygginguna og sleppa föngunum. 13.2.2008 14:39
Extra Bladet biðst aðeins afsökunar á enskri þýðingu Ritstjóri danska Extrablaðsins segir að afsökunarbeiðni blaðsins til Kaupþings nái einungis til enskrar þýðingar á greinaflokki sem blaðið skrifaði um bankann. Þýðingin var sett á vefsíðu þess. 13.2.2008 14:15
Býst við mótmælum í Indónesíu vegna Múhameðsteikninga Blásið verður til mótmæla í Indónesíu vegna þess að dönsk dagblöð birtu aftur skopmyndir af Múhameð spámanni sem ollu mikilli reiði meðal múslíma fyrir um tveimur árum. 13.2.2008 14:03
Framtíð Nasa rædd í skipulagsráði Óskar Bergsson, áheyrnarfulltrúi framsóknarmanna í skipulagsráði segir að málefni Nasa við Austurvöll hafi verið til umræðu á fundi skipulagsráðs í dag án þess að niðurstaða væri tekin í málinu. Hugmyndir eru uppi um að rífa salinn sem hýsir tónleikastaðinn í dag en gert er ráð fyrir að endurbyggja hann að nýju á sama stað, eða í kjallara þeirrar byggingar sem á að reisa á reitnum. 13.2.2008 13:13
40.000 króna aukakostnaður á hverja fjölskyldu Gengi krónunnar og heimsmarkaðsverð skýra hækkun eldsneytisverðs að undanförnu einungis að hluta til. Þetta kom fram í máli Runólfs Ólafssonar, formanns Félags íslenskra bifreiðaeigenda, í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag. 13.2.2008 13:02
Hafa áhyggjur af dæmdum barnaníðingi í Reykjanesbæ Foreldrar og aðrir forráðamenn barna í Reykjanesbæ, hafa miklar áhyggjur af því að þar í bæ hefur dæmdur barnaníðingur, Ágúst Magnússon sést á ferli, en hann var nýverið var látinn laus til reynslu. 13.2.2008 12:47
Ritstjóri Kastljóss tjáir sig ekki um lögsókn Þórhallur Gunnarsson, ritstjóri Kastljóss, vildi lítið tjá sig um stefnu sonar og tengdadóttur Jónínu Bjartmarz, fyrrverandi umhverfisráðherra, á hendur útvarpsstjóra og ritstjórn Kastljóss. 13.2.2008 12:33
Obama gæti komið japönsku fiskiþorpi á kortið Barack Obama hefur nú naumt forskot á Hillary Clinton eftir að hann hafði sigur á henni í forkosningum í þremur fylkjum í Bandaríkjunum í gær. Obama barst stuðningur úr óvæntri átt á dögunum. 13.2.2008 12:32
Ekki fyrsti misskilningur Gísla og Ástu Misskilningur leiddi til þess að kjósa þurfti tvisvar um varaformann í umhverfis og samgönguráð Reykjavíkur í gær. Sjálfstæðismenn töldu einn fulltrúa sinn tilheyra F-lista og að þess vegna ætti varaformaður nefndarinnar að koma úr röðum sjálfstæðismanna. 13.2.2008 12:25
Setur strik í kjaraviðræður ef vextir verða ekki lækkaðir á morgun Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að það muni setja verulegt strik í kjaraviðræður ef Seðlabankinn hefur ekki vaxtalækkunarferli á morgun. Búist er við að á fundum þeirra með fulltrúum verkalýðshreyfingarinnar síðar í dag skýrist mjög hvort samningar takist á næstu sólarhringum. 13.2.2008 12:20
Þrír ákærðir fyrir að ráðast á fíkniefnalögreglumenn Algis Rucinskas, Sarunas Urniezius og Vitalij Gagin hafa verið ákærðir fyrir að ráðast með ofbeldi á lögreglumenn við fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem voru við skyldustörf fyrir utan veitingastaðinn Monte Carlo á Laugavegi þann 11. janúar síðastliðinn. 13.2.2008 12:05
Vilja 3,5 milljónir í bætur vegna umfjöllunar Kastljóss Sonur og tengdadóttir Jónínu Bjartmarz, fyrrverandi umhverfisráðherra, fara fram á að útvarpsstjóri og fjórir úr ritstjórn Kastljóss greiði sér samtals 3,5 milljónir króna í miskabætur og verði dæmd fyrir ærumeiðingar vegna umfjöllunar um ríkisborgararétt tengdadótturinnar í Kastljósi. 13.2.2008 11:52
Samkomulag um að sleppa fréttamönnum CBS í Írak Samkomulag hefur náðst við mannræningja í Írak sem rændu tveimur fréttamönnum frá bandarísku sjónvarpsstöðinni CBS í Basra. 13.2.2008 11:34
Ísraelskur ráðherra blessar morðingja Ísraelskur ráðherra hefur fagnað því að háttsettur foringi Hizbolla samtakanna í Sýrlandi var ráðinn af dögum með bílsprengju í dag. 13.2.2008 11:03
Stærsta lögregluaðgerð í sögu Bretlands Yfir 500 breskir lögregluþjónar réðust í dag til inngöngu í tugi húsa til þess að uppræta kókaín-smyglhring sem sagður er hafa selt kókaín fyrir meira en þrettán milljarða króna á ári. 13.2.2008 10:53